Vísir - 03.05.1965, Qupperneq 1
Leitað í brakinu. Sveinn Eiríksson slökkviliðsstjóri annar frá hægri ásamt slökkviliðsmanni af Keflavikiir-
flugvelli. Aðrir á myndinni eru bandarískur lögreglumaður, hvítklæddi maðurinn er bandaríski yfiriög-
regluþjónninn á Keflavíkurflugvelli og þá læknir Vamarliðsins. Fremst á myndinni er vélin úr þyrlumti..
Fim MENN FORUST ER ÞYRLA
HRAPAÐIÁ VATNSLEYSUSTRÖND
Vísir talar við þrjó drengi sem sóu slysið gerast
Myndina hér að ofan tók I.M. ljósm. Vísis á slysstaðnum. Slökkviliðs-
menn af Keflavfloirflugvelli kvoða yfir brakið úr vélinni. Fyrlr framan
fætur lögreglumannsins liggur eitt af skrúfublöðunum og vinstra
megin sést stélið þar sem það Iiggur á veginum. — Myndin til hliðar
er af drengjunum sem sáu slysið. Talið frá vinstri: Hörður Vilhjálms-
son, Bjami Sverrisson og Guðbjöm Jónsson.
á símstöðina í Vogum, sem kom
tilkynningunni ále'iðis. Lögreglan í
Hafnarfirði brá skjótt við og
sendi lögreglubifreið með 3 mönn-
um og sjúkrabifreið af stað. Hafði
Iögreglan í Hafnarfirði síðan sam-
band við flugturninn á Reykjavíkur j
flugvelli og skömmu síðar varð I
Ijóst að hér var um flugslys að |
ræða.
Blaðamenn Vís'is komu á stað- |
Framh. á bls. 6
SEM FÓRUST
Hörmulegt flugslys varð
sl. föstudag. Fimm Banda-
ríkjamenn biðu bana, þeg-
ar þyrilvængja frá varnar-
liðinu á Keflavíkurflug-
velli hrapaði til jarðar við
nýja Keflavíkurveginn. —
Þyrlan var á leiðinni til
Keflavíkurflugvallar frá
bækistöð hersins í Hval-
firði og með henni voru
m. a. tveir háttsettir for-
ingjar í vamarliðinu: Cap
tain Robert R. Sparks yfir-
maður flotastöðvarinnar,
og Lt. Col. Arthur E.
House yfirmaður land-
gönguliða, ásamt tveimur
flugmönnum og einum
borgaralegum starfsmanni
John Brink, sem m. a. hef-
ur séð um íþróttamál varn
arliðsins. í gær kom hing-
að til lands rannsóknar-
nefnd frá Bandaríkjunum
til þess að rannsaka slysið.
Kl. 19.00 á föstudag barst lög-
reglunni í Hafnarfirði tilkynning
um að slys hefði orðið í heiðinni
fyrir ofan bæinn Landakot á
Vatnsleysuströnd. Ekki var vitað
um hvers konar slys varð, en
heimafólk í Landakoti hafði hringt
ÞEIR
Þeir sem fórust í flugslysinu
á Vatnsleysuströnd á laugardag-
inn voru þessir:
Captain Robert R. Sparks, sem
var í æðsta foringjaliði á Kefla-
víkurflugveili, hafð'i stöðuna
„Commander of the Naval Station
Keflavík." Hann var 46 ára ætt-
aður frá Californiu. Hann var há-
skólagenginn maður og hafði lokið
prófi í viðskiptafræði. Árið 1941
gekk hann í flugher flotans og
tók þátt í bardögum á Kyrrahafi
m.a. í innrás á eyjuna Tarawa og
hlaut ýmis heiðursmerki. Hann
kom hingað til lands í júní 1964.
Hann lætur eftir sig konu, frú
Marjorie Anne, 17 ára son Robert
Ronald og tvær dætur Leslie Anne
14 ára og Nancy Lynn 10 ára.
Framh. á bls. 6
Mr. John Brink
Capt Robert R. Sparks
Lt Col. Arthur E. House
Lt. Clinton L. Tuttle