Vísir - 03.05.1965, Page 8

Vísir - 03.05.1965, Page 8
8 V i S I íi, ?ílánudagur 3. maí 1965. VISIR Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjóran Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ö. Thorarensen Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178 Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Áskriftargjald er 80 kr á mánuði I lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur) Prentsmiðja Visis — Edda h.f Verðtrygging íbúöarlána Qft hefur verið á það drepið á liðnum árum að eitt öflugasta vopnið í baráttunni við verðbólguna væri einhvers konar verðtrygging fjárskuldbindinga. Hef- ur nýlega verið ritað um það hér í Vísi hve æskilegt það væri að sparifé almennings í innlánsstofnunum væri verðtryggt svo sparifjáreigendur væru ekki fé- flettfr af verðbólgunni. Nú hefur ríkisstjómin lagt fram rammafrumvarp, þar sem gert er ráð fyrir heim- ild til verðtryggingar fjárskuldbindinga. Er í frum- varpinu gert ráð fyrir að þessi verðtrygging verði fyrst og fremst tengd öflun fasteigna eða annarra fjármuna sem ætla má að hækki í verði með almenn- um verðlagsbreytingum. Höfuðnauðsyn er að við þetta eitt verði ekki látið sitja, ef farið verður út í verðtryggingu hér á landi. Spariféð verður þar að fylgja með. £n leiðir ekki verðtrygging byggingarlána til þess að öllu láglaunafólki verður gjörsamlega fyrirmunað að eignast íbúðir, þar sem vitað er að rýmandi kaup- máttur krónunnar hefur gert hina álmennu íbúðaeign íslendinga kleifa á liðnum árum? Þannig munu vafa- laust margir spyrja. Og ekki er hægt að neita þeirri staðreynd að rýrnun krónunnar hefur gert mörgum manninum kleift að afla sér fasteigna sem hann hefði ekki megnað í stöðugu verðlagsþjóðfélagi. En eitt verður að hafa hér 1 huga: íslenzka þjóðin getur ekki byggt efnalega tilveru sína og gæðaöflun á slíku fjárhættuspili til lengdar. Því verður að reyna að draga úr verðrýrnuninni með öllum ráðum, þótt nokkurn sársauka kunni að kosta í fyrstu. Varlega verður að vísu að fara í beitingu verðtryggingar- ákvæða í íbúðarlánamálum, því ella væri mörgum reistur hurðarás um öxl af ríkisvaldinu, þeim sem nýlega hafa byrjað framkvæmdir. En mörg ráð em til þess að létta íbúðabyggjendum framkvæmdir og þeim ráðum er sjálfsagt að beita í rikum mæli. T imamótafund ur Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti í einu hljóði ályktun þar sem Gunnari Thoroddsen fjármála- ráðherra voru þökkuð frábær störf í þágu Sjálfstæðis- flokksins og alþjóðar og honum og fjölskyldu hans óskað allra heilla í bráð og lengd. Senn líður að því að Gunnar Thoroddsen láti af embætti fjármálaráð- herra og hverfi til nýrra verkefna á öðrum vettvangi. Þeirra tímamóta minnast öll Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík á morgun er fulltrúaráð þeirra boðar til almenns fundar í Sjálfstæðishúsinu. Þar mun Gunnar Thoroddsen flytja aðalræðuna. Sjálfstæðisfólk í Reykjavík mun fjölmenna til fundarins á þessum * tímamótum og heiðra með því einn hinn fjölhæfasta og vinsælasta foringja, sem Sjálfstæðisfiokkurinn hefur nokkru sinni átt. Útflutningsatvinnuvegirnir gátu aðeins borið auknar byrðar vegna góðra aflabragða og útfl.verðlags Nýlega gaf Seðlabanki íslands út ársskýrslu sína og er þar að finna athyglisverðar upplýsingar um þróun efnahagsmálanna á s.L ári og hugleiðingar um á- stand og horfur í þeim efnum. Verða hér rakin nokkur höfuð atriðin eftir skýrslunni, en einn ig stuðzt við ummæli dr. Jóhann esar Nordal bankastjóra í ræðu sem hann flutti á fundi í gær. ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLAN Hún hefur haldið áfram að vaxa tiltölulega ört. Árið 1962 var aukning 8%, árið 1963 var hún 7% og s.l. ár 5—6%. Hún hefur þannig aukizt á þremur árum um rúm 20%. Framleiðsluaukningin á síð- asta ári á að langmestu leyti rætur að rekja til meiri sjávar afla og fiskvinnslu. Heildarafl- inn varð sá mesti í sögu þjóðar innar eða 972 þús tonn. Aukn- ingin varð bæði á þorskafla á vetrarvertíð og á síldarafla. Ár- ið 1963 hafði framleiðsluaukn- ingin orðið langmest í iðnaði, einkum byggingariðnaði en varð tiltölulega lítil nú. Verðlag á útflutningsafurðum fór hækkandi á árinu og var hagstætt. Verzlunarkjörin hafa batnáð þrátt fyrir nokkra hækk- un á innfluttum vörum. Þjóðar tekjur hækkuðu þvf nokkuð meira en þjóðarframleiðslan. Horfur eru öilu lakari nú'í ár. Það þykir nú méga sjá ffam á að þorskvertíðin við Suðuriand verði um fjórðungi minni en í fyrra og verðlagsútlit á fisk- mörkuðunum er einnig lakara. JAFNVÆGI EFNAHAGSLÍ FSIN S Efnahagslífið færðist nokkuð í jafnvægisátt eftir hina alvar- Iegu verðbólguþróun ársins 1963. Þá hafði allt kaupgjald og verðlag hækkað mjög verulega og var nauðsynlegt að draga úr þeirri þenslu sem þetta orsak- aði. 1 þessum efnum náðist mjög mikilsverður árangur á s.l. ári og var það að verulegu leyti að þakka hinu víðtæka samkomu lagi f launamálum, sem gert var í júnfmánuði til eins árs, en með þvf var f fyrsta skipti reynt með heildarsamningum að skapa al- mennan ramma fyrir launaþró- unina f landinu. Eftir hinar öru kaupgjalds- hækkanir ársins 1963 átti júní- samkomulagið verulegan þátt í að draga úr verðbólguótta og skapa heilbrigðara ástand í efnahagsmálum. HÆKKUN LAUNAKOSTNAÐAR. Þrátt fyrir júnísamkomulagið er talið að hækkun launakostn- aðar hafi nú orðið upp undir það helmingi meiri en aukning þjóðarteknanna, varð á s.l. ári. Þótt launahækkanirnar á ár- inu 1964 hafi verið tiltölulega hóflegar, einkum miðað við árið áður, munu þær þó hafa numið að meðaltali 5—6%. Við það hefur svo bætzt lenging orlofs, 1% launaskattur og nú nýlega 3% verðlagsuppbót og er þá hækkun launakostnaðar orðin 10—12% á einu ári. En eins og fyrr var tekið fram var fram- leiðsluaukningin á sl. ári 5—6%. Slík hækkun framleiðslu- kostnaðar, einkum ofan á hinar gífurlegu hækkanir á árinu 1963 hefði undir venjulegum aðstæð- um valdið framleiðslunni stór- kostlegum erfiðleikum. Það er aðeins hinum óvenjul. góðu afla- brögðum og hagstæða útflutn- ingsverðlagi að þakka, að út- flutningsatvinnuvegirnir hafa getað borið þessar byrðar til þessa, án mikilla nýrra erfið- leika. HÆIT VIÐ STÖÐNUN OG SAMDRÆTTI. Engu að 'sfðúr’ segir í skýrslu seðlabankans er það Ijóst, að ýmsar greinar sjávarútvegsins, svo og þær greinar iðnaðarins, sem lítillar eða engrar toll- verndar njóta, hafa þegar tekið á sig svo þungar byrðar, að hætt er við stöðnun eða jafnvel samdrætti í rekstri og uppbygg- ingu. Þvf má sízt gleyma, að það eru einmitt þessar greinar atvinnulffsins, sem veitt hafa þjóðarframleiðslunni vaxtar- megin. Og sé vexti þeirra og viðgangi of þröngur stakkur sniðinn, hlýtur það að kippa fótum undan vexi þjóðarfram- leiðslunnar í heild og þar með úr þeim Iffskjarabótum, sem eru markmið allrar efnahags- starfsemi. GREIÐSLUJÖFNUÐUR OG GJALDEYRISSTAÐA. Það kemur fram í skýrslu Seðlabankans, að mjög mikil aukning hafi orðið á utanrfkis- viðskiptum íslendinga. Heildar- verðmæti útflutningsins jókst Gluggar framleiddir Plastgiuggar h.f. nefnist nýtt fyrirtæki, sem kynnir nýjung i byggingariðnaði. Hér er um að ræða glugga úr gerviefnum, sem ekid J>arf að mála. Verksmiðjan er tii’ húsa að Suðurlandsbraut 2, en eigandi fyrirtækisins er Ingvi Guðmundsson. Hráefnið til framleiðslunnar er fengið frá hinu velþekkta málninga- og efnafræðifyrirtæki Hoechst All Frankfurt. — Ingvi Guðmundsson, sem hefur einka- leyfi á innflutningi og samsetn- ingu glugganna, boðaði blaða- menn á sinn fund og kynnti fyrir þeim þessa nýjung. Verðið er mjög sambærilegt við það sem almennt gerist hér á landi eða um kr. 340 á lengdarmetr- ann í fullunnum glugga. Sagði Ingvi, að sérstakt tillit bæri að taka til þess, að gluggarnir væru glerjaðir innan frá og hefði það í för með sér mikla vinnuhag-' ræðingu og gæti í mörgum til- fellum sparað kostnaðarsaman uppslátt vinnupalla. Þá er glerj- un miög auðveld. Plastgluggana þarf ekki að mála og getur kaup andinn valið á milli þriggja lita. Atvinnudeild Háskólans hefur fengið sýnishorn af þessum plastgluggum til atbugunar og segir m. a. í umsögn: Bygging- arefnarannsóknir Atvinnudeild- ar Háskólans hafa að sinni ekki möguleika á að framkvæma um 733 milljónir króna miðað við árið áður eða rúm 18% og jafnframt ukust birgðir útflutn- ingsafurða um 86 millj. kr. en samtals nemur það 819 milljón- um króna. Innflutningurinn jókst þó örar eða um 933 milljónir kr., sem er tæplega 20% aukning. En meiri hluti þessarar aukningar innflutnings- ins er vegna innflutnings skipa og flugvéla. Vöruskiptajöfnuðurinn varð óhagstæður á árinu 1964 um 874 milljónir króna móti 674 milljónum árið 1963. En f þess- um tölum er'verðmæti útflutn- ings reiknað fob en verðmæti innflutriings cif. Þó það sé al- menn venja, þá gefur það ekki alveg rétta hugmynd um sam- anburðinn, því að eftir er að setja flutningsgjöld trygg- ingar o. fl. inn í. Sé bæði inn- og útflutningur reiknaður á fob-verði kemur i Ijós, að vöru- skiptajöfnuðurinn hefur á árinu 1964 verið óhagstæður um 375 millj. kr. og á sama hátt árið 1963 um 260 millj. kr. En sem fyrr segir varð inn- flutningur á skipum og flug- vélum alveg óvenjulega mikill þar sem saman fór bæði mikill innflutningur fiskiskipa og að keyptar voru til landsins tvær stórar farþegaflugvélar að verð- mæti 436 millj. kr. Skip þau og flugvélar sem keyptar voru til landsins voru að miklu leyti greiddar með erlendum lánum. Þetta ásamt fleiru hafði þau áhrif, að þrátt fyrir halla á heildarviðskiptun- um við útlönd batnaði gjaldeyr- isstaða bankanna á árinu 1964 um 281 milljón króna og nam nettógjaldeyriseignin í árslok 1 milljarð 593 milljónum króna. ERLENDAR LÁNTÖKUR. Erlendar lántökur til eins árs eða lengri tíma námu á s.l. ári alls 918 milljónum króna. Þar af voru lán til einkaaðila 761 milljón kr. (mest vegna skipa og flugvélakaupa) og lántökur opinberra aðila 157 millj. kr. Endurgreiðslur af sams konar lánum námu alls um 408 millj. kr. Þar af 187 millj. kr. af lán- um einkaaðila en 221 millj. kr. af opinberum lánum. Erlend lán einkaaðila hækk- uðu því um 574 millj. kr. en opinber lán lækkuðu um 64 millj. kr. úr plasti nauðsynlegar rannsóknir á þessu efni, en eftir lestur lýs- inga á efni, framleiðslumátum og skoðun sýnishorna, teljum við Ifklegt að hér sé um efni að ræða sem gæti haft mikla þýðingu fyrir byggingariðnað- inn í framtíðinni. — Flest tækni- leg útfærsluatriði teljum við mjög vel leyst og hæfa vel að- stæðum hér á landi. Samkvæmt upplýsingum, sem tngvi gaf blaðamönnum, eiga - gluggarnir ekki að þrútna, gisna eða veðrast og eiga einnig 'að þola sýrur og sjávarseltu. Þá eiga þeir einnig að geta þolað fjörutíu gráðu frost og allt að áttatíu gráðu hita.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.