Vísir - 03.05.1965, Side 9
VI S I R . MánudagJir 3. mai 1965,
Fjölfamasti vegur
iandsins í dag er vegar-
spotti sá er liggur suður
úr Reykjavík og áleiðis
í gegnum Kópavogs-
kaupstað og þaðan suð-
ur í áttina gegnum
Garðahrepp og til Hafn-
arfjarðar.
Það er þó einkum á kaflanum
um Fossvoginn og suður í Kópa
vogskaupstað, sem umferðin er
mest. Á þeim spotta skiptir tala
ökutækja á hverjum klukkuttma
mörgum hundruðum. Er nú svo
komið að látlaus straumur öku-
tækja er um veginn, sem er nú
þegar orðinn alltof mjór fyrir
svo mikla umferð. Verst er á-
standið á þeim tímum, þegar
menn eru að aka í og úr vinn
unni. Má þá heita að bflaröðin
sé samfelld þarna.
Vegurinn á þessu svæði er
enn með mjög líku sniði og
hann var fyrir tveimur áratug-
um, þegar byggðin í Kópavogi
var að byrja að aukast. Þetta
er einföld akbraut í báðar leiðir
1 Kópavogi hefur það ráð því
verið tek'ið i öryggisskyni að
banna með öllu framúrakstur.
Á öðrum hlutum vegarins er
umferðin oftast svo mikil að
ekki er hægt að aka þar fram-
úr.
Vegur þessi er nú orðinn alls
endis ófullnægjandi og eitt af
Vegurinn suður í Kðpavog eins og hann er 1 dag.
Hugmyndin m hraðbraut gegnum Kópavog
^ ; |
iiliaiii
—J ■ J
7 J J. f
■iiSlplll 'lp'i!p ,
1 k i ■ aw':í
'■ tjL'fS)'1'#'1 V -
'i-
Hugmyndin um hraðbraut eins og hún myndi líta út í Fossvogi og upp á Kópavogsháls.
helztu vandamálunum £ umferð
inni, þar sem hann liggur i
gegnum þéttbýli í Kópavogi og
umferð gangandi fólks þar yfir
brautina. Vegna þessa hefur orð
ið að herða æ meir á öryggis-
reglum og nú síðast hefur verið
staðsettur þar strangur lög-
regluvörður.
Hér er því að því komið, að
gera verði róttækar ráðstafan-
ir til að endurbæta brautina
ekki sízt þar sem menn sjá
fram á það ,að umferð muni
enn aukast stórlega eftir þess-
art leið. Að vísu er nú I ráði
að gera annan veg I áttína suð
ur til Hafnarfjarðar, sem á að
liggja upp frá Elliðaárvogi og
þar suður um. En það breytir
því ekki að vegurinn suður um
Fossvog verður áfram fjölfarn
asti vegur landsins.
Á döfinni eru nú áform um
að leggja nýjan veg á þessu
svæði, sem verður fuilkomin,
tvöföld hraðbraut. Slík fram-
kvæmd myndi þó verða mjög
kostnaðarsöm. Hún yrði dýrasta
vegagerð hér á landi fram til
þessa. Til þess að jafna hæðar-
mun yrði að hlaða veginn all-
mikið í sjálfum Fossvoginum,
en síðan að lækka hann á há
Kópavogshálsinum með því að
sprengja hann þar niður. Hefur
nú verið áætlað að slík fram-
kvæmd myndi kosta ekk'i minna
en 80-90 milljónir króna.
Myndir þær sem hér birtast
gefa nokkra hugmynd af þess
ari stórfelldu framkvæmd, sem
enn er þó aðeins á hugmyndar-
og undirbúningsstiginu.
Á annarri myndinni sést veg
urinn í Fossvoginum og upp á
Kópavogshálsinn eins og hann
er í dag, þama hlykkjast hann
Framh. á bls. 4