Vísir - 03.05.1965, Blaðsíða 11

Vísir - 03.05.1965, Blaðsíða 11
Vf SIR . Mánudagur 3. mai 1965. n RITSTJORI: JON BIRGIR PETURSSON Islandsstytta Panam fór fil KR eftir skemmti legan úrslitaleik við IR, sem hafði unnið Is- landsmófið undanfarin 6 ár KR varð íslandsmeistari í körfuknattleik á föstudaginn var. Það er £ fyrsta sinn í 6 ár, sem ÍR hefur ekki unnið þetta mót og má segja að það né vel að einveldi þeirra er hnekkt, því það er vissulega heldur einhæft, þegar eitt lið vinnur mót ár eftir ár án þess að mæta nokk- urri mótspymu að gagni. En nú loks kom mótspyma og lið ÍR kunni ekki að mæta henni, en setti nú allt sitt traust á einn mann, Þorstein Hallgrimsson. Það nægði ekki. Það sýna tveir síðustu leikir ÍR og KR, sem voru nokkuð svipaðir hvor öðrum hvað leikgang- inn snertir, og báðir unnust með svipuðum mun og báðir voru rétt- látir sigrar fyrir KR. KR sýndi i leiknum mikið öryggi og má benda á Einar Bollason, sem mun hafa átt um 95% hittni á körfuna þetta kvöld og skoraði 29 stig. Aðeins tvö skot úr vítum hittu ekki frá Einari. Það er því augljóst að frammistaða þessa risavaxna unga manns var þung á metunuhi, í hálfléíic var staðan 28:23 fyrir KR og í seinni hálfleik náðu KR- ingar algjörum undirtökum á leikn- um og komust í 42:23. ÍR-ingamir komust þó yfir slenið og fóm að smásaxa á forskot KR, sem að vísu reyhist orðið nokkuð stórt. Tókst þeim að jafna leikana i 49:49. KR hélt þó forystunni, því Hjörtur skorar 51:49. Þá jafnar Agnar fyrir ÍR. Gunnar skorar 53:51 og Einar 54:51 og mínúta eftir. — Loka- mínútan var einmitt glæsilegasta mínúta KR í leiknum. Mínútan sem islandstitillinn í ár hékk á var þeirra. áttu leikinn þessar stuttu 60 sekúndur og unnu leikinn og þar með hinn eftirsótta titii og voru vel að honum komnir. Þetta kvöld vann KR einnig ann- an gleðilegan sigur. Þeir unnu Ár- mann í úrslitum 1. flokks og virð- ast því eiga mikið af efnivið í bakhöndinni. Til hamingju KR- íslandsmeistarar KR í körfuknattleik. Óskar Guðmundsson tvöfaldur meistari en ísfirzkur knnttspyrnumaður kom mest á óvurt á íslandsmótinu í badminton ÓSKAR GUÐMUNDSSON úr KR var hið stóra nafn á Badmin- tonmóti Islands um helgina og vann tvo Islandsmeistaratitla, í einliðaieiknum án erfiðismuna í fjarveru skæðasta keppinaut- arins, Jóns Árnasonar, en eftir harða keppni í tvíliðaleik. Sá maður sem kom mest á óvart í keppninni allri var þó kunnur ísfirðingur, Björn Helgason, knattspymumaður og landsliðs- maður í þeirri grein fyrir nokkrum árum og ágætur skíða- maður. Hann vann einliðaieik í 1. fiokki og færist upp í meistara- flokk. Er þetta góð frammistaða því ísfirðingar taka nú þátt í mótinu í fyrsta skipti. Óskar með Rafni Viggóssyni úr TBR og unnu þeir Jón Hösk- uldsson og Steinar Petersen úr TBR með 15:13 og 15:8. Stúlkurnar háðu hnífjafna og skemmtilega úrslitakeppni í tvíliðaleik. Þær Jónína Nil- johníusdóttir og Hulda Guð- mundsdóttir unnu fyrsta leik- inn með 15:11 gegn þeim Lov- ísu Sigurðardóttur og Halldóru Óskar Guðmundsson lék til úrslita í gær gegn Viðari Guð- jónssyni og vann leikina með 15:8 og 15:5. Viðari hefur farið geysimikið fram í vetur og lék nú í fyrsta sinn til úrslita í þessum flokki. í tvíliðaleik var Lélegir leikir í Reykjavíkur- Áffræður i dag: Steindór Björns- son frá Gröf móti Fram og Valur fögnuðu sigrum á laugardag og sunnudag í Reykja- víkurmótinu í tveim heldur leiðin- legum leikjum. Áhorfendur hafa ekki látið standa á sér að mæta á leikina, en greinilegt er að breyt- ing þarf að verða á leikjunum til að svo megi verða áfram. Á laugardaginn vann Fram Vík- ing með 4:0, en í hálfleik var stað- an 1:0. Og í gær hélt mótið áfram með leik Vals og Þróttar. í hálfleik var staðan 0:0, en í seinni hálfleik hagnýtti heldur slöpp framlína Vals einmunalega lélega vöm Þróttar og skoraði fjögur mörk. í dag er Steindór Björnsson frá Gröf áttræður. Steindór er fæddur 3. maí 1885 á Hvann- eyri í Borgarfirði, en faðir hans Bjöm Bjarnason, — síðar i Grafarholti, — hafði þá fest kaup á Hvanneyri, til þess að þar kæmi upp búnaðarskóli. Steindór settist ungur f lærða skólann hér í Reykjavík, en sigldi til íþróttanáms í Dan- mörku árið 1906. Er hann kom heim gerðist hann íþróttakenn- ari um tíu ára skeið, en varð þá efnisvörður Landssíma íslands. Árið 1909 gekk Steindór í reglu góðtemplara og hefur verið félagi hennar æ síðan og leyst af hendi mikið og farsælt starf fyrir regluna. Hann er einn stofnanda U. M.F. Aftureldingár í Mosfells- sveit, og enn brenna þeir logar glatt sem ungmennafélögin tendruðu í hugsjónaheimi hans. Árið 1915 gekk Steindór Björnsson í íþróttafélag Reykja- vikur, og hefur starfað fyrir fé- lagið óslitið síðan. Hann hefur setið í fjölda mörgum nefndum fyrir félagið, og þjálfað ung- lingaflokka þess, og séð um Víðavangshlaup I.R. um langt árabil, fyrst með Helga frá Brennu og síðar einsamall. íþróttafélag Reykjavíkur hef- ur sæmt Steindór Björnsson æðstu heiðursmerkjum sínum og gert hann að heiðursfélaga. Á þessum merku tímamótum Thoroddsen, en seinni leikinn unnu þær síðarnefndu með 15:12 þannig, að aukaléik þurfti. Tókst þeim Jónínu og Huldu aö vinna íslandsmeistaratignina á betra úthaldi og unnu aukaleik- inn 15:7. Hjónin Jönína og Lárus Guð- mundsson áttu ekki í neinum erfiðleikum í tvenndarkeppn- Framhald á bls. 2. Steindór Björnsson frá Gröf. árna ég Steindóri heilla, og flyt honum þakkir félagsins fyrir gifturíkt brautryðjendastarf. I dag dvelur Steindór á heim- ili dóttur sinnar að Rauðalæk 8. Lifðu heill! Reynir Sigurðsson, formaður Í.R. SuiQÍu&fiidSÉSS'í?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.