Vísir - 03.05.1965, Blaðsíða 16

Vísir - 03.05.1965, Blaðsíða 16
3 UMFERDARSL YS UM HELGINA MántHÍagiir 3. maí 1965. Róbert A. Ottósson stjórnar söngnum í Skálholtskirkju. Tónleikar / Skálholtskirkju Tónleikar voru í Skálholtskirkju í gær. Skálholtskórinn söng undir stjóm Róberts A. Ottóssonar klassisk kirkjulög og sálma. Hanna Bjamadóttir söng einsöng: tvær arfur úr „Messías“ eftir Handei, og „Og andi minn gleðst í guði“ eftir Bach og „Vögguljóð Maríu“ eftlr Reger. Þá söng hún gamalt íslenzkt sálmalag úr Hólabók 1619: „Jesús min morgunstjama“ i raddsetningu Jóns Þórarinssonar. Gígja Kjartansdóttir lék á orgel- ið verk eftir Brahms, César Franck. 1 byrjun konserts las sóknar- prestur síra Guðmundur Óli Ólafs- son úr ritningunni, og í lokin las hann kvöldbæn. Róbert A. Ottósson skýrði nokk- ur tónverkanna, t.d. páskasekvent- síuna úr Graduale. Fjölmennt var í kirkjunni og naut tónburður sín vel. Skálholtskórinn var stofnaður 1963 fyrir vígslu kirkjunnar og samanstendur af fólki úr Biskups- tungum og nærsveitum. Hann æfir oftlega og hefur sungið nokkrum sinnum á hátíðum í kirkjunni. Eftir tónleika voru kaffiveitingar í kjallara prestshússins, sem Kven- félag Biskupstungna annaðist af myndarskap. Vísir spurði í morgun biskup ís- lands, herra Sigurbjöm Einarsson, Frh. á bls. 6. Samkvæmt bókun lögreglunn ar urðu a.m.k þrjú umferðar- slys eða óhöpp um helgina. Ek ið var á hjón aðfaranótt laug- ardags, þegar þau voru á gangi eftir Borgartúni, bíl var ekið út af veginum í Þingvallasve'it og piltur féll af re'iðhjóli inni á Sogavegi í gær. Slysið í Borgartúni varð skðmmu eftir kl. eitt um nótt- ina. Var þá ekið á hjónin, sem voru að koma af skemmtistað. Kastaðist maðurinn upp á vélar hús bílsins og braut m.a. fram- rúðuna, en konan kastað'ist frá honum. Voru þau bæði flutt á Slysavarðstofuna. Konan fékk að fara heim eft'ir rannsókn, en maðurinn var fluttur á sjúkra- hús. Ekki hefur blaðinu tekizt að fá upplýsingar um líðan mannsins eða hve aivarlega hann slasað'ist. Um miðnætti á föstudags- Framh. í bls. 6 Fáni Verzlunarmannafélagsins á Lækjartorgi, Eggert G. Þorsteins- son í ræðustóli. Verzlunarmenn gengu nú í fyrsta sinn. Snjóhvftur hvalur sýndur í Hafnarfirði í GÓDU VEÐRI Skömmu fyrir helgina veiddi sjómaður nokkur á Norðurlandi í grásleppunet sitt lítinn hval af tegund þeirri sem heitir mjaldur En þetta er snjóhvítur hvalur, heimskautadýr sem einstöku sinn- um kemur að landi hér. Sjómaður- inn hefur nú gefið hjálparsveit skáta i Hafnarfirði skepnuna og hefur hún verið flutt suður með ærinni fyrirhöfn. Mjaldurinn verð- ur tll sýnis í kvöld kl. 5—10 í Hafnarfirði og næstu kvöld. Sjómaðurinn sem veiddi mjald- urinn heitir Guðmundur Halldórs- son og býr á Tjörnesi skammt frá Húsavík. En mjaldurinn ve'iddi hann austur við Kópasker. Hann var lifandi í netinu, en Guðmundur skaut hann. Síðan bauð Guðmundur Fiski- deildinni hvalinn að gjöf, en hún gat ekki tekið á móti honum. Þá sneri hann sér til skátanna í Hafn- arfirði ,sem hafa verið miklir á- hugamenn að sýna ýmis dýr, svo sem hegrann á sínum tíma og seli og fiska í fiskabúri. Skátarnir þáðu það. Mjaldurinn er 5 | Framh. á bls, 6 1.MAÍ 1. mai var hátíðlegur haldinn 'víða um land síðastliðinn laug- ardag. Algjör eining náðist inn- an hátíðamefndar verkalýðsfé- laganna x Reykjavík um fyrir- komulag hátíðarinnar. Hátíðahöldin hófust með kröfugöngu frá Iðnó klukkan rúmlega tvö, og var gengin í sama leið og undanfarin ár. j Fyrir göngunni lék lúðrasveit. i Göngunni lauk síðan á Lækjar- torgi, en þar hófst útifundur. Óskar Hallgrímsson, formaður fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna setti fundinn, en ræðumenn voru þeir Eggert G. Þor- steinsson og Guðmunaur J. Guðmundsson. Útifundurinn var fjölmennur að venju, enda veður gott og bjart yfir. I Hafnarfirði hófust hátíða- höldin einnig með kröfugöngu. Gengið var undir kröfuspjöld- um og fánum um bæinn og staðnæmzt við Fiskiðjuver Annað kvöld heldur Fulltúraráð Sjálfstæðisfélaganna fund £ Sjálf- stæðishúsinu. Verður þar Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra frum mælandi. Fundurinn hefst kl. 8.30 e h. Bæjarútgerðarinnar, og þar haldinn útifundur. Lúðrasveit lék í göngunni og á fundinum. og um kvöldið var haldinn dans- leikur í Alþýðuhúsinu. Merki dagsins voru hvarvetna seld á götum bæjarins á þessum há- tíðisdegi verkalýðsins. Að fundinum standa auk Full- trúaráðsins Sjálfstæðisfélögin Vörður, Hvöt, Óðinn og Heim- dallar. Er Sjálfstæðisfólk hvatt til þess að fjölmenna til fundarins. Gunnar Thoroddsen f j ármálaráðherra Nýtt happdrætti SjóKstæðisflokksins: EITT GLÆSILE HAPPDRÆTTI TIL ÞESSA BÍLA- víiísifíí Msuiiu mmw ggEíií 3. JðlSI Sjálfstæðismenn um land allt hafa nú fengið senda miða í landshappdrætti Sjálfstæðis- flokksins og mun láta nærri að miðar hafi verið sendir í annað hvert hús á landinu, jafnt í bæj um sem sveitum. Vinningarnir eru tveir glæsilegir bílar báðir af Ford Fairlanegerð 4 dyra. Þetta mun vera eitt glæsilegasta bílahappdrættið, sem hefur verið haldið hér á landi, samanlegt verðmæti bifreiðanna er 660 þús. kr. Dregið verður 3. júní. Eins og sést er mjög lítill tími til stefnu, aðeins mánuður, er fólk því hvatt til þess að ' verða sér úti um miða, sem allra fyrst, en þeir, sem þegar hafa fengið miðana eru beðnir að skila sem fyrst af sér, þar sem það auðveldar allt starf við happ drættið. Miða er hægt að fá um land allt hjá umboðsmönnum, en í Reykjavík verða miðar seld Frh. á bls. 6. Fundur annað kvöld

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.