Vísir - 28.08.1965, Page 11
r
af • •
• ungu
fólki •
a irian Poole
í Háskólabíói |
^ Toxic
Það kemur fyrír að þessum
þætti berast bréf. Nokkur
þeirra eru skammarbréf, yfir-
leitt mjög sanngjörn og leynir
sér ekki, að þar fylgir hugur
máli. Hrós berst e'innig bréf-
lega, en það er þó sjaldgæft og
öllu vafasamara um einlægn-
ina, því venjulega eru hrós-
yrðin formáli að einhverri
beiðn'i — venjulega um að láta
nú einhvern tiltekinn fá kúl-
una kembda. Loks eru það
„skrifta“-bréfin, bréf, sem sýni-
lega eru einungis skrifuð í
þeim tilgangi að draga úr innri
þrýstingi og koma í veg fyrir
sprengingu. Það eru kærkomn-
ustu bréfin, þar eð ganga má út
frá því sem gefnu að þau hafi
haft biessunarrík áhrif á skaps
muni bréfritarans, og þá um
le'ið ekki síður á umhverfi hans,
sem annars hefði orðið óþyrmi-
lega fyrir barðinu á honum —
eða þó oftast nær henni. Kon-
ur virðast nefnilega fremur
þarfnast slíkra „skrifta", eða
minnsta kosti notfæra sér þær
fremur en karlmenn. Yfirleitt
eru þetta giftar konur, og yfir-
leitt snúast þessar „skrift'ir“
þeirra um eiginmanninn, og yf-
irleitt er e’itt og sama að hon-
um að finna hjá þeim öllum —
hann er fyrst og fremst þraut-
leiðinlegur. Eigi að síður eru
morg þess'i bréf bráðskemmti-
leg, i sumum þeirra er brugðið
upp bráðsnjallri mannlýsingu,
kannski i einni setningu, sem
Dagana 7.-8. september munu
skemmta f Háskólabíói Brian
Poole and the Tremeloes, brezk
hljómsveit og söngvari. Þeir fé-
lagar hafa áður ferðazt um alla
Evrópu og eru einkum vinsælir
fyrir lagið „Someone", senynot
ið hefur mikilla vjnsælda. Nýj
asta lag þeirra „I Want Candy“
er einnig mjög vinsælt. Þeir
leika annars yfirleitt margs
kyns lög, svo sem þjóðlög, ró
ieg lög og svo nýjustu „beat-
lögin. Hljómsveitin er ekki ný
af nálinni, en hefur stað'ið af
sér allar breytingar og nýjung
ar í tónlist unga fólksins, sér-
staklega vegna þess hve vel
þeim félögum hefur tekizt að
fylgjast með.
Með þessari hljómsve'it munu
koma fram þrjár fslenzkar, Dát
ar, Toxic og Ponik. Ennfrem-
ur verða á þessari skemmtun
Siglfirðingur nokkur, All Rúts,
„Presley íslands": Þorsteinn
Eggertsson og kynnirinn Hauk-
ur Morthens.
heyrt á götunni
AÐ George Harrison sé orðinn vinsælastur Bítlanna, enda
sá eini, sem enn er ólofaður.
AÐ Hljómar frá Keflavik séu að leika í kvikmynd þar sem
þeir leiki mörg ný lög eftir sig sjálfa.
AÐ hin vinsæla brezka hljómsveit, The Kinks, séu væntan-
legir hingað til íslands nú í september.
AÐ Rolling Stones verði önnum kafnir við hljómleikaför um
Þýzkaland í septembermánuði.
AÐ The Pretty Things, Yardbirds, Unit Four Plus Two og
fleiri hljómsveitir hafi nýlega leikið fyrir sjónvarpsþáttinn
bandaríska „Shindig", sem síðar verði sjónvarpað um
Keflavíkurstöðina.
AÐ nokkrar fslenzku hljómsveitanna muni hætta í vetur,
þar sem meðlimimir þurfi að fara í skóla.
Bréfaskriftir og skriftabréf
hver nóbelshöfundur mætti vera
stoltur af. En því miður eru
öll þessi „skrifta“-bréf með
sama marki brennd — bréfritar
inn treystir á drengskap við-
takandans, rétt e'ins og skrifta-
föðurins, að hann láti ekkert
uppskátt úr þeim við aðra, og
það verður að segjast viðtak-
anda til hróss, að hingað til
hefur hann stað'izt þá freist-
ingu. Nú vill hann hinsvegar
komast að samningum við
skriftadætur sínar — að þær
sendi honum lýsingu á e'igin-
manninum, í þeim tilgangi, að
hún verði birt — Vitanlega und-
ir dulnefni, snjalla, greinagóða
en fáorða lýsingu á hinum
hnapphelduaðilanum, eins og
hann kemur viðkomandi skrifta
dóttur fyrir sjónir... Að sjálf
sögðu heitir þátturinn verðlaun
um fyrir snjöllustu eiginmánns
lýsinguna, og þeim ekki smá-
væg'ilegum ... stórkostlegustu
verðlaunum seni nokkurt ís-
lenzkt blað hefur heitið til
þessa: Ferð með áætlunarflaug
til tunglsins, strax og hafnar
verða þangað fastar ferðir og
þriggja vikna dvöl þar í 1.
flokks luxushótelj — og svo að
sjálfsögðu ókeypis ferð heim
aftur, en sá farmiði verður feng
inn í hendur eiginmanninum,
sem gert er ráð fyrir að haldi
sig á jörðu niðri, og ræður
hann þar með hvort og hvenær
verðlaunahafinn kemur til
baka!
ef stu 10
í gærkvöldi leit sölulistinn í Hljómplötudeilc
Fálkans þannig út: | vi r: m -[ i öfifÍSBlfKlBfn H.E
1. ( 1) Help
2. ( j Satisfaction
3. ( 2) Don’t Make My Baby Blue .. ... Shadows
4. ( 3) We Gotta Get Out Of This Place Animals
5. ( ) Birds And The Bees
6. ( 5) I’m Alive
7. (10) For Your Love
8. ( ) Such An Easy Question ....
9. ( ) Long Live Love
10. ( ) Someone
L /
Ungt fólk!
ÞESSARI SÍÐU, sem
hófst hér í blaðinu síð-
astliðinn laugardag, og
ætlunin er að birtist
vikulega, er einkum ætl-
að að birta efni fyrir
ungt fólk, fréttir ,frá-
sagnir og myndir af vin-
sælum hljómsveitum
auk annars efnis er varð
ar áhugamál yngri kyn-
slóðarinnar.
Fastir þættir verða
vinsældarlistinn og
bréfakassinn. Við von-
umst til að þið skrifið
okkur bréf, og hvert
þeirra sem birtist er
verðlaunað með hljóm-
plötu frá Hljómplötu-
deild Fálkans. Verður þá
nafn bréfritara að sjálf-
sögðu að fylgja með
bréfinu, þótt öllum sé
heimilt að nota dulnefni.
Bréfin ykkar mega
nánast fjalla um hvað
sem er: ef þið hafið ein-
hverjar tillögur fram að
færa, þá sendið okkur
þær — ef ykkur finnst
eitthvað fara aflaga í
þjóðlífinu, þá sendið okk
ur línu um það og ef
ykkur finnst eitthvað
vel gert, hikið ekki við
að skrifa um það. Um-
fram allt, — sendið okk-
ur skoðanir ykkar á
hinu og þessu og jafnvel
skemmtilegar frásagnir
— þessi síða er ykkar
síða.
5
i
Kári skrifar:
„Náttúruunnandi" sendi Kára
eftirfarandi bréf með beiðrii
um að þessu yrði komið á
framfæri.
„Ég er nýkominn úr ferða-
lagi — langri ferð um byggðir
Islands og fór víða. Ég ætla
ekki að segja neina ferðasögu,
enda skeði ekkert það sem frá
sagnarvert má teljast. Erindið
með þessum Iínum er allt ann-
að. Mig lar.gaði t'il að koma á
framfæri vanþóknun minni á
vissu fyrirbæri, sem nú virðist
stöðugt að ágerast í þjóðfélagi
okkar. Þetta fyrirbæri er minnis
varðadrit út um allar trissur,
haga og tún, uppi á fjöllum og
hólum og heima við bæi. Eng
inn staður virðist óhultur fyrir
þessum ófögnuð'i.
Æpandi skrímsli.
Meiri hlutinn af þessum minn
isvörðum er af vanefnum gerð
ur, jafnt frá listrænu sjónarmiði
sem efnahagslegu. Þetta eru
æpandi skrímsli í átakanlegri
andstæðu við ósnortna náttúr
una, sem hvergi eiga heima
nema þá helzt inni i húsum
með slagbrandi fyrir, þar sem
eng'inn fær aðgang að þeim
nema sá, sem einhverra orsaka
vegna telur sig endilega þurfa
eða vilja sjá minnismerki um
frænda sinn eða afa eða aðdá-
enda f einhverri mynd. Þá
mætti opna húsið, þar sem
skrímslið er geymt, í hálfa gátt
á meðari „frændinn" virðir afa
sinn fyrir sér í e'ina eða tvær
mínútur.
Ég vil spyrja hvort engum
lögum verði yfir þennan ófögn
uð og þessa náttúrusaurgun
komið, hvort hverjum einum sé
heim'ilt að drita niður minnis-
varða, sama hve herfilega ljót-
ur hann er, á hvaða stað í nátt
úrunni sem er? Er ekki unnt að
gera einhverjar lágmarkskröfur
til listræns gild'is til þessara
minnismerkja — fá t. d. skip-
aða nefnd listrænna fegurðar-
dýrkenda til að ákvarða hvaða
minnismerki séu leyfð og hvar
þau skuli staðsett?
Og alltaf fjölgar þessum 6-
fögnuði samkvæmt blaðafrétt-
um. Hvar á þetta að erida?
Ég reyndi á þessari ferð
minni að loka augunum þegar
ég sá einhvern minriisvarða
framundan við veginn. En þar
sem ég sat sjálfur við stýrið
var óhægt um vik fyrir m'ig,
ekki sízt þar sem hættulegar
beygjur voru á veginum eð»
mikil umferð. Það þykir ví.ft
almennt heppilegra að hafa aug
un op'in undir þeim kringum-
stæðum.
Er til umræðu.
Þetta er að vísu harðort bréf,
og svo virðist sem „Náttúru-
unnandi" hafi ekki sérstaklega
mikið ál'it i listgildi eða feg-
urð þeirra minnisvarða sem
reistir hafa verið yfir menn eða
í tilefni ákveðinna atburða úti
á landsbyggðinnl. Og vafalaust
má lengi deila um það hvort
þessir minnisvarðar eða styttur
falli vel i umhverfið, þar sem
þær eru réistar. Hvað um það,
málið er til umræðu fyrir þá
sem vildu leggja orð I belg og
telja sig hafa eitthvað til mál-
anna að leggja.
I