Vísir - 08.09.1965, Síða 3

Vísir - 08.09.1965, Síða 3
VISIR. Miðvikudagur 8. september 19«5 ÚTSÝNID ÚR HALlSRlMSKIRKJU sem ekki alls fyrir löngu skart- aði ekki öðru en Skólavörðunni. : Þama hefur hver stórbyggingin ' risið á fætur annarri og enn eru þær að rísa. Það er því tímabært að líta snöggvast í kringum sig á Skóla- vörðuholtinu og virða fyrir sér þessar byggingar, áður en þær hverfa alveg í skuggann af hinni mikhi kirkju, sem þama er að rísa. Og náttúrlega er sjónarhóll inn tilvalinn — ofan á uppslátt- arverkinu, sem hæst rís á Hall- grimskirkju sjálfrL Fyrst verður manni litið til austurs. Þama eru næstar tvær miklar skólabyggingar (efsta myndin á síðunni), báðar með þeim stærstu £ sinni röð. Yzt til vinstri er það hinn aldni skóli, Austurbæjarbamaskólinn, dökk- ur og mikilúðlegur. Á miðri myndinni er hinn skólinn, Gagn- fræðaskóli Austurbæjar, bjartari bygging og nýtízkulegri, enda bam nýrri tíma. Aftan við hanp er Heilsuverndarstöðin, með sér- kennilegustu opinberu bygging- um borgarinnar. Fyrir ofan Aust- urbæjarbarnaskólann skín í Sundhöll Reykjavíkur, og þykir hún nú lágreistari en hún var meðan víðara var í kringum hana. Aftan við Heilsuvemdar- stöðina og eilítið til vinstri við hana er enn eitt stórhýsið risið, Domus Medica, miðstöð lækna- vísindanna. Húsið er þegar risið í fulla hæð, en uppsláttur er enn við húsið. í fjarlægð sést yfir Miklatún, Háteigskirkju og Sjó- mannaskólann. Aðeins til vinstri við þetta sjónarhom er Iðnskólinn, að hálfu fullgerður og gamalkunnur í borginni, en að hálfu 1 bygg- ingu (næsta mynd fyrir neðan á siðunni). Ef við snúum okkur nú heldur til suðausturs, blasa fremst við okkur (stóra myndin neðst á síðunni) útveggir kirkjunnar sjálfrar og hluti af kjallaranum undir kórnum væntanlega, þar sem nú er messað. Síðan sést til hægri Bindindishöllin, sem er í byggingu. Við vesturhorn hennar sést aðeins í Blóðbankann og Rannsóknarstofu Háskólans og er þá komið yfir á yfirráðasvæði læknavísindanna. Þar gnæfir hinn nýi hluti Landspítalans, geysileg bygging, en til hægri er Hjúkrunarkvennaskólinn eða réttar sagt Hjúkrunarskólinn, sem nú á að fara að stækka. Bak- sýnin er flugvöllurinn og vestur- hlíð Öskjuhlíðar. í aðrar áttir er útsýnið gamal- kunnugra (litla myndin hér fyrir neðan). Til vesturs sést bezt kastalabyggingin sérkennilega, sem hýsir Listasafn Einars Jóns- sonar og í baksýn er Háskóla- hverfið í öllu sínu veldi, Garð- amir, Atvinnudeildin, Þjóðmirija- safnið, Háskólabíó og Eðlisfræði stofnunin, — og svo auðvitað Hótel Saga. Ekkert er óbreytilegt, jafnvel ekki Skólavörðustígurinn (litla mvndin neðst á síðunni). Þar er fremstur Leifur heppni og getum við nú litið niður á hann. Honum mega það vera nokkrar sárabæt- ur, að þar er nú verið að gera fínan garð og tröppur í kring, svo að umhverfi hans verður hið virðulegasta. Þegar Skólavörðu- stígnum sleppir, sést yfir höfn- ina og miðbæinn. Lengst til vinstri trónir ferkantaður haus musteris Thalíu. Hallgrímskirkja rís mjög hægt en einnig mjög örugglega. Upp- slátturinn færist stöðugt ofar og er þegar farinn að rísa hátt yfir umhverfið, hvaðan sem litið er að úr bænum. — En Hallgríms- kirkja er ekki eina stórbygging- in á Skólavörðuholtinu, holtinu,

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.