Vísir - 08.09.1965, Side 6

Vísir - 08.09.1965, Side 6
VlSIR. Miðvikudagur 8. september 1965. .ír.tSv. BRIAN POOLE KOMNIR í gærkvöldi léku fyrir troðfullu húsi Brian Poole & The Tremeoles i Háskólabíói. Þetta er fyrri brezka hljómsveitin af tvelm sem hingað koma í þessum mánuði. Með Brian léku nokkrar íslenzk- ar hljómsveltlr, og báru þelr brezku mjög af og gersigruðu á- heyrendur, hvort sem um var að ræða fjörug „beat“lög eða eldheita trúarsöngva. Piltamir eru á aldrinum 22 til 24 ára og hljómsveit þeirra sjö ára gömul. Þá vakti mikla athygli á hljóm- leikunum siglfirzkur gamanvísna- söngvari, AIli Rúts, hugmyndaríkur og uppátektarsamur. Vísir hafði tal af þeim félögum í gærmorgun og fór með þá á æf- ingu synfóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói. — Það er eflaust til fólk sem hefur gaman af þessu, sagði Dave Munden, trommuleikari, þegar hann var spurður álits á þeirri tónlist. Þeim þótti það leitt að geta ekki séð neina Eskimóa hér á landi, en vildu í staðinn fá tvö hreindýr með sér og færa dýra- garðinum í London að gjöf. — Þetta er fyrsta erlenda hljómsveitin sem ég hef heyrt, og ekki orðið fyrir neinum vonbrigð- um með, sagði Pétur östlund, trommuleikari Hljóma um þá fé- laga. Þriðju og síðustu tónleikar þeirra verða í kvöld klukkan sjö, en þeir fara héðan fyrst til Bret- lands og síðan f hljómleikaför um Þýzkaland. LYST Loksins vaknaði tónlistarlíf bæjarins af sumarlöngum blundi sínum. Það var að þakka þeim hjón unum Ruth Little, mezzósópran, og Jósef Magnússyni, flautuleikara, en LIDO - BRIAN POOLE - LlDÓ BÍTLADANS I LÍDÓ I KVÖLD BRIAN POOLE & TREMEOLES nú verður fjörið í Lídó TOXIC - DÁTAR MIÐASALA í IÍDÓ FRÁ KL. 5 í DAG LÍDÓ - BRIAI3 POOLE - LÍDÓ Guðrún Kristinsdóttir aðstoðaði þau af kunnri alúð. Efnisskrá þess- ara tónleika var skemmtilega fjöl- breytt, samleikur á flautu og píanó, einsöngur og söngur með flautu- og píanóleik, verkefnin frá ýmsum tímum, þjóðlög og tónsmíðar á- gætra höfunda. Flautuleik Jósefs hafa menn eflaust beðið eftir með mestri forvitni, og hlustað eftir af mestri smásjárnákvæmni. Hann slapp bærilega frá þvh en stundum var leikur hans heldur þunglamaleg ur (t. d. í scherzói Roussels) eða blæbrigðin of hófsamleg (í Poulenc sónötunni). Samleikur þeirra Jósefs og Guðrúnar var undantekningarlít ið sannfærandi. Hinn skíri fram- burður söngkonunnar og öryggi túlkunarinnar var eins og kóróna á fagurri rödd hennar. Það var ekki aðeins áberandi í lögunum frá heimalandi hennar eða Ameríku heldur ekki síður í ápænsku alþýð- Iegu lögunum (ekki „vinsælu" eins og stendur í efnisskránni) eftir de Falla. Áhrif söngs Ruth Little náðu hæst í framúrskarandi meðferð hennar á hinu hrikalega recitativi Monteverdis, Tu se morta. Óhætt er að segja, að tími tón- leikahalds hafi vel hafizt með þess um tónleikum nú 1 haustbyrjun, að lystin eftir góðu framhaldi sé glað- vöknuð. Þorkeil Sigurbjörnsson. Brunavornir — Framh. af bls. !■ almennur reksturskostnaður og hins vegar leiga eftir eignir og tæki, og í því sambanfli hafa allar eignir slökkviliðsins verið metnar. Inn í samningsgerðina var skot- ið ákvæði um það að á fyrsta samningsári, þ.e. 1965, greiði samn ingsaðilar utan Reykjavíkur til borgarsjóðs Reykjavíkur ekki nema helming umsaminna greiðslna. Á árinu 1966 greiða þeir þrjá fjórðu hluta og fulla greiðslu á árinu 1967. Vegna fjarlægðar Mosfells- hrepps frá Reykjavík, hefur sér- stakri viðbótargrein verið skotið inn í samninginn varðandi slökkvi starf þar í hrepp. Sú grein hljóðar þannig: „Slökkvilið Reykjavíkur skuld- bindur sig til að staðsetia slökkvi dælu, ásamt tilheyrandi búnaði miðsvæðis í Mosfellssveit í sam- ráði við sveitarstjóra, og annast slökkvilið Rvíkur viðhald dælunn- ar. Hreppurinn leggur til húsnæði fyrir dæluna svo og bifreið til flutnings hennar á brunastað Slökkviliði Reykjavíkur að kostn- aðarlausu. Slökkvilið Reykjavíkur þjálfar 4 menn ,tilnefnda af hreppsnefnd Mosfellssveitar til slökkvistarfa i Mosfellssveit. Þeir fá sömu greiðslu fyrir útköll og vara- slökkviliðsmenn Slökkviliðs Rvík- ur. Hins vegar eiga aðrir aðstoðar- menn utan liðs Slökkviliðs Rvíkur ekki rétt á greiðslu frá Slökkviliði Rvíkur. Hreppsnefndin og Slökkvilið Rvikur vinna að þvi sameiginlega að koma á beinu simasambandi milli Mosfellshrepps og slökkvi- stöðvarmnar í Reykjavík". Visir innti Gunnar varaslökkvi- liðsstjóra að þvi hvort Slökkvilið- ið í Reykjavík sinnti einnig beiðn- um lengra að, en frá viðkomandi sveitafélögum sem að framan eru greind. Gunnar kvað svo vera, þeg ar því yrði við komið, en undir þeim kringumstæðum væru aðeins varabflar slökkvistöðvarinnar send ir. Gunnar sagði að strax hafi ver- ið farið að vinna eftir samningi þessum er viðkomandi aðilar höfðu undirritað hann. Hins vegar kvaðst Gunnar ekki vita hvort samingurinn hafi þegar fengið stað festingu ráðuneytisins eða ekki. Þjóðleikhúsið — Frh. af 16. síðu: „Eiríkur XIV“, eftir Strindberg, verður einnig sýnt síðari hluta vetrar og sænskur leikstjóri fpng- inn til a ðstjórna því. Söngleikur- inn „Oh, What a Lovely War“ eftir Charles Chilton og Joan Littlewood verður einnig sýndur hér, og er vonazt til, að Joan Littlewood geti sjálf komið til að setja það á svið, ellegar aðstoðar- leikstjóri henngr. Þá má búast við að „Oedipus Rex“ verði sýnt hér, en Jón Gíslason þýddi það beint úr grísku. Er það eftir Sókókles, eitt hinna klassísku leikhúsverka. Siðasta verkefnið, sem áætlað er að Þjóðleikhúsið taki sér fyrir hendur er óperan „Ævintýri Hoff- manns“, eftir Offenbach. Hljóm- sveitarstjóri verður Bodhan Wodisco. Þá verða væntanlega tveir gestaleikir: Franskur ballet og írskur dans- og söngvaflokkur, — sá fyrri nú 1 þessum mánuði, en hinir strax eftir áramót. í Lindarbæ verður mikil starf- semi. „Hver er hræddur við Virgi- niu WooIf“ verður sett þar upp og verða á því nokkrar sýnlngar seinni hluta septembermánaðar. „Síðasta segulband Krafts", eftir Samuel Becket, sem er einþátt- ungur, verður sýndur móti nýjum íslenzkum einþáttungi, „Jóðlíf", eftir Odd Björnsson. Elzta íslenzka leikritið, „Hrólfur" eftir Sigurð Pétursson, sýslumann verður sett þar á svið og með því „Á rúmsjó" eftir ungan pólskan rithöfund, Slawomir Mrozek „Næst syng ég fyrir þig“ heitir enskt leikrit eftir ; James Sonders, sem sýnt verður ! í Lindarbæ og „Rejsen til De | Grönne Skvgger", sem er danskt j leikrit eftir Finn Methling. Þá hefur Þjóðleikhúsið áformað að sýna einhvem tíma á miðjum vetri „Gullna hliðið" eftir Davið Stefánsson frá Fagraskógi og næsta vetur „íslandsklukkuna“. „Gullna hliðið" er nú í nýrri upp- setningu og með' nýjum leikumm. Ný verkefni Þjóðleikhússins í vetur eru alls 20, þar af fimm ís- lenzk, og tvö þeirra eru nú leikrit. Eins og alls staðar getur komið fyrir, kann þessi áætlun að breyt- ast eitthvað smávegis, en verður þó í megindráttum á þennan hátt. Evrópuródi^ — Framhald af bls. 16. heyrzt þar, að það sé að verða tímabært að fara að bjóða þeim þátttöku í þvi. Smithers framkvæmdastjóri, sagði þó að þetta væri enn örð ugt viðfangsefni og mynd'i enn eiga langt í land, þv£ að and- stæðurnar milli þjóðfélagshátta fyrir austan og vestan em mjög miklar. Ein greinileg breyting til batn aðar virðist vera að komast á í þessu og er það e'inn skýrasti vottur þess, hvemig farið er að draga úr kalda stríðinu. Strax og dregið hefur úr kalda stríðinu þá fara Austur Evrópuþjóðimar að finna til þess, að þær eiga söguleg tengsli við Vestur Evrópu. Þær hafa frá alda öðli átt mikil skipti við nágrannaþjóðir sínar í vestrinu og þegar leyst er úr hömlum er eðlilegt að þær hefji þau skipti á ný. Og þær sjá það einnig að aðild að Evrópu ráðinu er ein heppilegasta leið in til þess að komast Inn í Evrópusamstarfið á óteljandi mörgum sviðum. T. d. er lik- legt að samstarf í ýmsum tækni legum efnum gæti hafizt þar. Þá drap Smithers á sam- skipti Evrópuráðsins og íslands ekki sízt 86 millj. kr. lánið úr Viðreisnarsjóði Evrópu til fram kvæmda á Vestfjörðum. Á fundi þessum var Smithers einnig spurður að þvi, hvaða líkur væru til þess að Bretar , gerðust eða fengju aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu. En Sm'ithers var einmitt aðstoðar- utanríkisráðherra Breta á þeim tíma þegar Briissel-viðræðumar fóru fram á sínum tíma og stóð mjög í þeirri eldraun. Hann kvaðst nú vera mjög vondauf- ur um að saman gæti gengið með Bretum og meginlandsþjóð unum. Möguleikarnir á því væru nú miklu minni orðnir en um árið, þegar de Gaulle mein aði þeim inngöngu í Efnahags bandalagið. Heyflutningar — Frh. af 16. síðu mundu vilja gefa til bænda á Austurlandi. Málið er nú í athug un hjá stjórnum hreppabúnaðar- | félaganna og er svara að vænta frá þeim í síðasta lagi 10. sept. Enn er heldur ekki ljóst, hve j mikill verður heyfengur á i kalsvæðinu. Þegar niðurstöður j af báðum þessum atriðum liggja j fyrir, verður hægt að ákveða endanlega þær ráðstafanir, sem gerðar verða i kalmálinu. FJÖGURRA HERB. ÍBÚÐ í HÁALEITISHVERFI Höfum til sölu glæsileg 4ra herb. íbúð í Háa leitishverfi. íbúðin er á 2. hæ.ð. HÚS OG SKIP fasteignastofa LAUGAVEGI 11. Síml 2 1515. Kvöldsimar 23608 og 13637

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.