Vísir - 08.09.1965, Side 8

Vísir - 08.09.1965, Side 8
8 irrv-ri t VÍSIR Ctgefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson Ritstjóri: Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson Þorsteinn Ó. Thorarensen Auglýsingastj.: Halldór Jónsson Sðlustjóri: Herbert Guðmundsson Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 lírrur) Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3 Askriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands í lausasolu kr.. 7,00 eintakið Prentsmiðja VIsis — Edda h.f. Ódrengileg árás Þjóðviljirin helgaði Guðmundi í. Guðmundssyni, fyrrv. utanríkisráðherra forustugreinina sl. sunnudag. Var hún eins konar kveðja til ráðherrans og köld eins og vænta mátti, því fáa menn, ef nokkra, hefur Þjóðviljinn lagt eins í einelti síðustu árin og Guð- mund. Blaðið segir m.a. að það sé „alkunnugt hvemig hann reyndi með öllum ráðum að koma í veg fyrir stækkun landhelginnar 1958, en fékk því ekki ráðið vegna harðfylgis Alþýðubandalagsins." Þeir sem hafa lesið Þjóðviljann undanfarin ár, kannast svo sem við þennan þvætting, svo oft hefur hann verið endurtek- inn í blaðinu. Hvar er það „alkunnugt“ að Guðmund ur hafi reynt að koma í veg fyrir stækkun land- helginnar? Sú skoðun er hvergi til nema á> ritstjóm- arskrifstofum Þjóðviljans. Þetta er uppspuni sem á sínum tíma varð til þar og hefur hvergi fengið hljóm- grunn annars staðar. Þetta var fundið upp í reiði kommúnista yfir því, að þeim skyldi ekki takast það ?ipm þeir raunverulega ætluðu sér með stækkun landhelginnar. Það var ekki fyrst og fremst útfærsla landhelginnar, sem þeim lá á hjarta, heldur átti að nota hana sem tilefni ósamkomulags og illinda, er leitt gætu til þess, að íslendingar hrökkluðust úr At- lantshafsbandalaginu. Guðmundur í. Guðmundsson vildi fara að öllu með gát og reyna að koma í veg fyrir alvarlega árekstra út af stækkun- inni, en kommúnistar vildu hins vegar að þeir yrðu sem mestir. Þeir urðu því fyrir miklum vonbrigðum yfir því að ekki fór verr en fór. Ekjki lætur Þjóðviljinn heldur hjá líða að minnast á samkomulagið, sem síðar var gert við Breta, þegar landhelgisdeilan var leyst, og fara um það hinum hraklegustu orðum. Þar vann þó ríkisstjóm- in mesta sigur í milliríkjasamningum, sem nokkur ís- lenzk stjóm hefur unnið. En þótt stjómin ætti þar öll hlut að, hvíldi samningsgerðin að sjálfsögðu mest á utanríjrisráðherranum. Þau málalok geta kommúnist- ar aldrei fyrirgefið honum, og sýnir það bezt hvað fyrir þeim vakti 1958. Vélabókhald verzlana Eins og frá hefur verið skýrt í blaðafregnum, mun nú vera í athugun að koma á sameiginlegu vélabók- haldi eftir IBM-kerfi fyrir allmargar smásöluverzl- anir hér í Reykjavík. Bókhald margra verzlana hefur til þessa verið ófullkomið og eigendur þeirra af þeim sökum ekki getað fylgzt eins vel með rekstrinum og æskilegt hefði verið. Með því að taka upp þetta nýja bókhaldskerfi á með lítilli eða svo til engri fyrirhöfn að vera hægt að sjá, hvemig fyrirtækið stendur á hverjum tfma, og er slíkt að sjálfsögðu mikilsvert. V í SI R . Miðvikudagur 8. september 1965. FóHdð þyrptist upp á Hótel Sögu í gærdag óðara og sýningin hafði verið opnuð. Konan, sem situr á bekknnm, er kona Hjartar Jónssonar í Olympia, frú Þórleif Sigurðardóttir. (Myndimar tók stgr.) SÍBREM í LIST Tnngönguversið var spilað hægL Fólkið fór sér hægt, þótt það þyrptist inn til að skoða. Mejstarinn sjálfur var hæglátur og heilsaði vinum og aðdáendum og hverjum sem var með s'inni snertingu og gerði lúmskt að gamni sínu að vanda Uppboðshaldarinn leiðbeindi og fræddi, ef þess var farið á leit. Og þama var þjóðleikhús- stjóri mættur með fyrstu mönn um og heilsaði upp á musteris- riddara íslands númer eitt. Þeg ar Rós’inkranz var farinn sagði Kjarval: „Hann var ágætur — lét mig hafa fríbilletti á eitt- hvert leikrit." Þegar Jónas frá Hriflu kom og mynd hafði verið smellt af, sagði Kjarval: „Ég átti að vera með hatt... Jónas er með svo fallegt höfuð, að maður verður alveg eins og múmía við hlið- ina á honum.“ Þegar Jónas kvaddi sagði hann: „Þetta hjá Kjarval f dag minnir á undir- búning undir stórorrustu eins og hjá Napoleon.“ Pétur Friðrik listmálari sagði: um eina mynd: „Það er eitt- hvað svo anzi fallegt f þessu línufiugi.“ Um aðra mynd: „Hún er eins vel gerð og hún væri eftir Matisse og minnir dá lítið á það...“ Sigurður uppboðshaldari sagði um „Landslag spilað á píanó“: „Hún þætti fín eftir Picasso þessi.“ (Kjarval sagði við blaðamann, að hann hefði unnið að þeirri mynd árum sam an. Við vin sinn Hafliða, sagði meistarinn: „Hættu nú að mennta, Hafliði." „Glym heill“ heyrðist hann segja nokkru síð ar. Þorvaldur hótelstjóri sagði, þegar hann gekk frá garði: „Too much — too good — Kjarval — plenty alright." Þetta skildu þeir víst báðir, hann og meistarinn. Arinbjöm Kolbeins læknir sagði: „Þetta er mikið og gott úrval.“ Ein myndanna heitir Sí- breiði, en það orð er notað um hey, þegar allt liggur undir, allt er flatt á túni og engjum. Þann ig koma þessi verk Kjarvals frá ýmsum tímabilum fyrir sjónir þama í Súlnasalnum — gerð í hans síbreiða st'fl. Kjar- val sagði h'ins vegan „Ég hef engan stíl.“ — stgr. Fjöldinn allur af stéttarbræðsum Kjarvals mætti á sýningunni. Þama em þeir að skeggræða melstarinn og Kristján Daviðsson, listm&Iatf. Arinbjöm Kolbeinsson, læknir, sem er mikill Kjarvalsaðdáandi (lengst til vinstri) sagði við Sigurð Benediktsson (til hægri): „Þetta er mikið og gott úrval“. Ungur iistiumandi er lengst tii hægri.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.