Vísir - 08.09.1965, Page 11

Vísir - 08.09.1965, Page 11
I Heimsmet i Eftir nokkra daga lýkur furðu legri setu 62- ára Bandaríkja- manns á 16 metra háu mastri. Þann 15 september hefur Dixie Blandy setið 154 sólarhringa á mastrinu, sem er í Gröna Lund, sem er Tívolígarður Stokkhólms búa. Hefur Blandy þegar hnekkt heims„metinu“ í þessari sér- stæðu grein en það var 78 sól arhr'ingar. Blandy fór upp í mastrið 1. apríl s. 1. og hefur síðan setið þar oftast fullur eða góðglaður og veit ekki að hann er í stór kostlegri lífshættu. Segja lækn ar í Svfþjóð að hættan á að fá blóðtappa sé mjög mikil við svo óeðlilega setu. Það gæti því farið svo að Blandy logn aðist útaf fyrir framan h’ina mörgu áhorfendur í Gröna iilil§lllSI I.sVfiV.v.'f.v.v.v.'Aw.v. Verðlaunakeppnin Þess verður ekki langt að bíða, að stórir hlutir fari að gerast í sambandi við verð- launasamkeppnina. Bréfin streyma að úr öllum áttum, og er nú svo komið að bréfberarn ir telja sig eiga skilið að fá e'in hverja sérstaka umbun fyrir aukið álag vegna þessa tiltæk is, þetta er nú í athugun, en til þess að sýna einhverja við leitni tafarlaust í þá átt, vilj- um Við fara þess á leit við alla þá, eða réttara sagt, allar þær, sem enn eiga eftir að taka þátt í keppninni,’ að skrifa bréf sín á flugpappír og leggja í flug- umslög, það mundi strax gera póstmönnunum byrðina léttari, að maður tali nú ekkí um ef þær hinar sömu vildu láta sér nægja að skrifa eina örk ein- ungis ... hvað mundi um leið létta okkur erfiði að mun. Ein kona skrifar til dæmis lýsing- una ,á eiginmanni sínum á átta arkir, þétt skrifaðar og smátt- skrifaðar meira að segja - tekur svo fram í lokin, að þetta sé í rauninni .ekki annað en úrdrátt ur, svo margslunginn persónu- leiki er hann hennar. Það leynir sér ekki, að hún hefúr veitt hon um nána athygli, sofandi sem vakandi og um leið reynt að kryfja til mergjar orsökina að hvaðeina í fari hans... t. d. því hvað hann verður eins og annars hugar, þegar hún hefur rætt við hann í riokkrar klukku stundir, yfirleitt fram á nóttina, því að það er eitt af sér ein- kennum hans, að hann vinnur fram á kvöldið, og þó einkum hafi hann grun um að hún þurfi að rökræða við hann viður- hlutamikil mál. Þessi viðbrögð hans hyggur hún, kannski með réttu, að muni eiga rætur sín ar að rekja til þess, að tengda móðir sín hafi verið óvenju- lega fjasgjörn og orðmörg, og þreytt hann í uppvextinum með mælgi og málalengingum... hvað hún telur og að hafi haft talsverð áhrif á sig því að sjálf hafi hún tamið sér að segja sem mest í sem stytztu máli eftir að hún komst í kast við mælsku tengdamóðurinnar og kveðst hún þó hafa verið fáorð fyrir — og ber því bréf hennar því líka ljóst vitni, að hún hef ur náð óvenjulegri fullkomnun í þessari vandasömu list. En nóg um það, Iátið kúlupennan geysa, góðar eiginkonur takið þó jafnframt áðumefnt tillit til okkar og póstberanna... við erum hálft í hvoru að hugleiða, að úrval þessara merkilegu bréfa gæti orðið bráðskemmti- leg og auðseld jólabók ... íklæddur „Iandsliðsbúningi“ USA situr Dixie Blandy uppi í 16 metra háu mastri i Gröna Lund. Hann er að hvolfa í sig slurk úr hinni daglegu wisky flösku sinni. stangarselu44 Lund. Blaðamaður ræddj nýlega við Dixie og var viðtalinu komið á- leiðis til gestanna í Gröna Lund með aðstoð hátalarakerfisins. Það varð sannarlega ekki mikið að græða á því samtali, því Dixie Blandy hafði þá nýlokið við hina daglegu wisky-flösku sfna og var vart viðmælandi. Hreyfingarleysið á Dixie þar sem hann s'itur dag eftir dag í körfu sinni er mjög hættulegt. En hversvegna situr maður- inn þarna í körfunni sinni hátt yfir mannvirkjum skemmtigarðs ins? Hann fær 500 sænskar krónur á sólarhring fyrir þetta, en það eru rúmlega 4100 krón ur íslenzkar og sitj'i hann í 154 sólarhringa verður launaum- slagið hans nokkuð þykkt. Hann fær þá 640 þús. krónur, en 20% skemmtanaskatt borg- ar Gröna Lundgarðurinn til rlk issjóðs fyrir þessa „sjálfsmorðs tilraun“ Blandys, en því nafni nefna sænsku blöðin þetta til tæki. Dixie Blandy er eng'inn nýliði í þessari flaggstangarsetu. Hann hefur fengið prýðis æf- ingu í þessari furðulegu grein allt frá 1929, en þetta krefst mjög mikillar einbeitni eins og menn geta gert sér í hugarlund og þarf sterkan lfkama til að þola annað eins og þetta, því hreyfingarleysið er þjakandi og hjartað og æðakerfið eiga bágt með að þola hreyfingarleysi svo langan tíma. Aldreí fyrr hefur Dixie set ið svo lengi sem nú. Á heims- sýningunni í New York sat hann, 78 sólarhringa í fyrra og var það viðurkennt heimsmet, — enginn hafði til þess tíma svo vitað væri setið jafnlengi á „flagg“ stöng sinni. Það sem Dixie gerir þarna uppi sér til^dægrastyttingar er lestur á amerískum vasabrots- bókum, tímaritum.' Þá hefur hann meðferðis sænsk-ame- ríska orðabók og getur sagt ýmsar setningar á sænsku eins og: Góðan daginn — Blessuð — Falleg sænsk stúlka — Góð ást kona — Ég elska þig, og ýmis Iegt í þá áttina. Þá drekkur hann mik'ið á- fengi og hallast þar aðallega að Four Roses sem er ame- rfskt wisky, en öðru hvoru hvflir hann sig á því og fær sér Gordons Gin eða Negrita- rom. Til að koma í veg fyrir að hann detti niður úr mastr- inu þegar hann er sem fyjlstur, er hann festur með öryggis- keðju. Neðan úr skemmtigarðinum er hægt að fá að tala við Dixie í síma. Það kostar ekki nema sænskan 25-eyring að tala við hann. Dixie verður sérstak- lega spenntur ef það er ung stúlka, að ekki sé talað um ef hún er falleg. Þá býður hann henni yfirleitt alltaf að giftast henni, þegar hann komi niður og bætir v’ið að brúðkaupið fari fram á stóra sviðinu f Gröna Lund. Dixie hefur 6 sinnum gifzt, en skilið jafnharðan. Konumar hafa líklega ekki þolað þessa atvinnu eiginmannsins, a. m. k. er það ekki óeðlileg tilgáta. Talsvert vandamál verður það að ná Dixie niður úr mastr inu 15. september. Forstjórinn f Gröna Lund sagði að annað hvort yrði það gert með að- stoð þyrilvængju eða með geysistórum brunastiga. Hjálpar laust getur hann ekki komizt niður, þvf vöðvamir hafa rým að og hreyfingarleysið gert hann máttlausan með öllu ... jjö’- "3esxmemtw ■ tts '• ■ wwffH K,) ’íI|íís''í( -jeSfc.'!"A & Mastrið f Gröna Lund Kári skrifar: Enn hefur kona sent Kára lfnur, enda virðast konur annað hvort miklu duglegri skriffinnar en karlar, eða þá að þær beri almenn velferðarmál meir fyrir brjósti heldur en þeir, nema hvortveggja sé. Þessi kona skrifar: „Ég las f Kára fyrir nokkr- um dögum athugasemd varð- andi umferðarrétt gangandi fólks á götum úti og fannst þar drengilega verið tekið máli okk ar, sem annaðhvort eigum ekki bfl eða þá við förum annað veif ið í gönguferðir, ým'ist okkur til skemmtunar eða af nauðsyn. Ég hef þráfaldlega tekið eftir því að ökumenn telja sig eiga göturnar og að þeir telja þær gerðar fyrir sig en ekki fótgang endur. Mér er nær að halda að þeir ætl'ist til að við förum alls ekki yfir götuna, heldur krækjum fýrir þær, a. m. k. þær stundimar sem einhver bíll er á leið eftir þeim. En það er ekki þetta, sem ég ætlaði að gera að umræðuefni, heldur hitt, að mér finnst sem hið opinbera taki í sama streng og bílstjórarnir og beri þennan hag þeirra fyrir brjósti heldur en okkur sem ganga þurfum eða viljum. Þetta kemur allra berlegast í Ijós á vetrum þegar snjó er rutt af götum. Þá er ekk'i ver ið að hugsa um okkur gang- andi fólkið, þvf snjónum er beinlínis rutt af akbrautum og upp á gangstéttina. Ég hef ver ið þess ama átakanlega vör stundum í snjóatíð þegar ég hef þurft að fara í mjólkur og matvöruverzlanir á morgnana. Þá er ekki um annað að ræða, en annaðhvort hafa snjóinn f hné eða þaðan af dýpra á gangstéttunum, eða halda sig á hinum ruddu akbrautum, bif reiðastjórunum til erg'is og ama og stofna jafnframt lífi og limum sjálfs sfn í hættu.. En þetta er ekld þar með bú- ið. Okkur fótgangandi fólki er á annan hátt sýnt það svart á hvítu að meir er hugsað um velferð ökumanna og farar- tækja þeirra heldur en okkar, sem engan bílinn eigum. Hér á ég við gatnagerðarfram- kvæmdir borgarinnar sem nú eru f gangi. Akbrautir hafa ver ið Iagðar hingað og þangað, en gangstfgar skildir eftir. Þar myndast aur og eðja ef rignir, en ryk og óþrifnaður í þurrki. Af öllu þessu leiðir að gang- andi fólk leiðist til þess að forð ast gangbrautir að öðru jöfnu og halda sig úti á akreinunum þegar það þarf að komast leið ar sinnar. Um slysahættuna þarf ekkj að ræða, ekki sfzt við vond birtusk’ilyrði í skamrr deginu, f ljósaskiptunum, rign- ingu, eða þegar ökumaður á i sól að sækja og blindast meira eða minna af birtunni. Er engin leið að gera hvort tveggja f senn, eða þá með stuttu millibili að malbika ak brautir og leggja gangstéttir.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.