Vísir - 23.11.1965, Síða 8
8
T
VISIR
Útgefandi: Blaðaútgáfan VfSIR
Framkvæmdastjóri: Agnar Ólafsson
Ritstjóri: Gunnar G. Schram
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjórar: Jónas Kristjánsson
■ Þorsteinn Ó Thorarensen
Auglýsingastj.: Halldór Jónsson
Sölustjóri: Herbert Guðmundsson
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Auglýsingar og afgreiðsla Ingóifsstræti 3
Áskriftargjald: kr. 80,00 á mánuði innanlands
i lausasölu kr. 7,00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Nýr Framkvæmdasjóður
J^íkisstjórnin hefur nú ákveðið að beita sér fyrir
víðtækum breytingum á skipulagi stofnlánamála í
landinu. Einn þáttur þeirrar breytingar er sá að Fram-
kvæmdabankinn verður nú lagður niður. Stofnaður
verður sérstakur Framkvæmdasjóður ríkisins, sem
starfa mun í tengslum við Seðlabankann. Hlutverk
þessa nýja framkvæmdasjóðs verður það, svo sem
Magnús Jónsson fjármálaráðherra gat um á ráðstefnu
Sambands sveitarfélaga, að afla nauðsynlegs fjár-
magns til stofnlánasjóða atvinnuveganna. Jafnframt
er sjóðnum ætlað það hlutverk að afla fjár til Fram-
kvæmdaáætlunar ríkisins. í athugun er nú hvort
stofnlánaþörf sveitarfélaganna geti ekki fallið inn í
þetta lánal^erfi, en að því yrði tvímælalaust hin mesta
bót. Hinum nýja Framkvæmdasjóði ríkisins mun
verða fagnað af öllum þeim aðilum, sem njóta eiga
lána úr Stofnlánasjóðum atvinnuveganna. Á það hefur
oft réttilega verið bent að æskilegt væri að efla þá
enn meira en orðið hefur, þótt t. d. stofnlánasjóður
landbúnaðarins hafi verið mjög efldur á síðustu ár-
um. Nú myndast ný viðhorf í þessum efnum, ekki
sízt fyrir þá auknu samræmingu að Framkvæmda-
sjóðnum er ætlað að afla fjár til framkvæmdaáætl-
ana ríkisins og landsfjórðunganna. Þannig ætti að
vera vel tryggt að framkvæmdafé nýtist sem bezt og
það gangi til þeirra framkvæmda, sem mikilsverðast-
ar eru á hverjum tíma.
Utboð framkvæmda
Hér á landi eru engar almennar reglur til um tilboð
í verk samkvæmt útboðum. Verkkaupar afla tilboða,
en telja sér ekki skylt að taka lægsta tilboði, dæmi
eru til um margvísleg undirboð og þeir sem telja sig
misrétti beitta geta hvergi leitað réttar síns. Útboð
stórra framkvæmda hafa hins vegar færzt í vöxxt
síðustu árin. Er því fullljóst að tímabært er að settar
verið nákvæmar reglur um tilboð í verk samkvæmt
útboðum hér á landi, Á það benti Þorvaldur Garðar
Kristjánsson í fyrirspurn sem hann gerði fyrir nokkr-
um dögum á þingi um það hvað liði störfum nefndar
sem skipuð var 1959 og athuga átti þessi mál. Er hin
brýnasta nauðsyn að sú nefnd ljúki störfum. Það
ætti að vera skylda að framkvæmdir ríkis og sveitar-
félaga væru boðnar út til þess að tryggja sem mesta
hagsýni í meðferð opinbers fjár. Á það ekki sízt við
á byggingarmarkaðnum, þar sem upphæðirnar skipta
hundruðum milljóna. Þannig hagnýtist hin frjálsa
samkeppni verkaðilanna sem bezt. En til þess þarf
að skapa fastar reglur í þessu efni, sem tryggi ekki
aðeins hagsmuni verktaka og verkkaupa, heldur og
þ j óðarheildarinnar.
V í S 1R . Þriðjudagur 23. október 1965.
■SXiemtOs
Seinna bindið af ferða-
bók Olaviusar komið út
Seinna bindið af ferðabók
Ólafs Olvisar er komið á bóka
markaðinn á vegum Bókfellsút-
gáfunnar, — nær 400 blaðsiðna
bók með mörgum uppdráttum
og myndum.
Það má kallast stórvirki að
ráðast í útgáfu þessara mestu
landslagslýsingu Olaviusar, sem
er ein hin merkasta heimild um
landshætti og atvinnuvegi ís-
lendinga á síðari hluta 18. ald-
ar. Bókin hefur aldrei komið út
á íslenzku fyrr, en frumútgáfan
danska hefur í meira en öld
verið ófáanleg bók.
í þessu bindi lýsir Olavius
landsháttum og atvinnuvegum á
austanverðu Norðurlandi svo og
á Austurlandi öllu. Þá er og
2 bækur B.O.B.
Bókaforlag Odds Björnssonar
hefur nýlega gefið út tvær nýjar
skáldsögur eftir Ingibjörgu Sig
urðardóttur. Sögur þessar heita
„Sjúkrahússlæknirinn" og „Feðg
arnir á Fremra-Núpi. Báðar eru
þær islenzkar ástarsöguur, sú
fyrmefnda getur flokkazt undir
þær vinsælu bókmenntir sem
kallaðar eru læknasögur, hin er
um sveitarómantík. Ingibjörg
Sigurðardóttir gerist nú stórvirk
ur rithöfundur. Þessar bækur
hafa komið út eftir hana frá
sama forlagi: Sýslumannssonur-
inn Systir lækr.isins, Ást og
hatur, Bylgjur, Heimasætan á
Stórafelli, Læknir í leit að lífs-
hamingju og Sigrún I Nesi.
Þá gefur sama forlag út tvær
barnabækur Önnur þeirra er eft
ir Jennu og Hreiðar Stefánsson
í Öddu-bókaflokknum, heitir í
þessi Adda í kaupavinnu. Er það
endurprentuð bók en hún kom
fyrst út 1950.
Hin bamabókin er eftir Ingi-
björgu Jónsdóttur og heitir „Jóa
Gunna“. Það er dýrasaga ætluð
fsrrir böm allt að 10 ára að aldri
sérstakur kafli sem höfundur
kallar „Ýmislegt um náttúru-
fræði og fornleifar", en þar á
eftir kemur „Viðbætir um
Breiðafjörð". Það er síðasti þátt
ur Olavisuar sjálfs í Ferðabók
inni. En í bókarlok koma tveir
langir kaflar eftir útlenda menn.
Annar þeirra er Skýrsla Ole
‘ Henckel um brennisteinsnámu
á íslandi, en hin er „Lýsing á
nokkrum surtarbrandsfjöllum"
eftir Christian Ziener. Ýtarleg
nafnaskrá yfir staðarnöfn, svo
og atriðaskrá fylgir ritinu, sem
Jón Gíslason hefur gert.
Steindór Steindórsson mennta
„ , » , , skólakennari á Akureyri þýddi
og er hun ævintyri litillar brunn .... ... .
, i •«•11 DOKina a ísienzKu.
ar bjoliu.
Nýtt hefti Ice-
land Review
Nýtt hefti af ICELAND
REVIEW er komið út, vandað
að efni og útiliti eins og áður.
Að þessu sinni er það helgað
íslenzkum frímerkjum að nokk-
ra, birtir viðtal við póst- og
símamálastjóra, Gunnlaug
Brigm. Qyttifj,grein um íslenzk
fröneriíi. ,~,/fyrr. og..nú, eftir
Jónas Hallgrímsson, stutt viðtal
við bandarískan frímerkjakaup
mann um íslenzk frímerki og
segir frá frímerkjasölu póst-
þjónustunnar. Ennfremur fclrtist
í ritinu heil síða litmynda af
íslenzkum frímerkjum, m. a.
Surtseyjarseríunni, og mun það
Raftækjasalar
stofna
Mánudagiim 15. þ. m. var
haldinn stofnfundur Félags raf-
tækjasala f skrifstofu K.I. að
Marargötu 2 hér í borg.
Mættir vom á fundinum 17
raftækjasalar og samþykktu þeir
einróma stofnun félagsins svo
og framlagt lagafrumvarp.
Fundinum stýrði Sigurður
Magnússon formaður Kl. en
framkvæmdastjóri samtakanna
Knútur Bruun, hdl., flutti
skýrslu um undirbúning félags-
stofmmarinnar og skýrði fram-
lagt lagauppkast.
1 stjóm félagsins vom kosnir
eftirtaldir menn: Formaður Gfsli
Jóh. Sigurðsson. Meðstjómend-
ur: Valur Pálsson, Geir A.
Bjömsson, Rafn Johnson og
Andrés Reynir Kristjánsson.
Varamenn: Karl Eiríkson og
Þorsteinn Hannesson. Endurskoð
endur vom kosnir: Ragnar
Jóhannsson og Jónas Jónasson.
Fulltrúi í stjóm K.í. var kos-
inn Valur Pálsson og til vara
Hákon Kristinsson.
Að lokinni stjómarkosningu
tók nýkjörinn formaður félags-
ins Gísli Jóh. Sigurðssöp við
fundarstjóm. Er fundi hafði ver
ið slitið bauð framkvæmda-
stjóm K.!. fundarmönnum til
móttöku.
Á stjómarfundi hjá K.l. 16.
þ. m. lá fyrir upptökubeiðni hins
nýstofnaða félags í K.í. og var
hún samþykkt samhljóða. Sér-
greinafélög innan vébanda sam
takanna em nú 18 en tala fyrir-
tækja um það bil 600.
í fyrsta sinn að slík litprentun
birtist í blaði útgefnu á íslandi.
Hefur þetta hefti þegar vakið
mikla athygli íslenzkra frí-
merkjasafnara — og er Iceland
Review eina ritið, sem gefið er
út á ensku — og birtir réglulega
þátt um íslenzk frímerki.
,Þá er í ritinu um Slysavama
félag íslands og hið giftudrjúga
starf þess eftir Elínu Pálmadótt-
ur, blaðakonu. Nefnist greinin
á ensku „On the Storay Atlant-
ic“ og fylgja henni myndir af
björgun áhafnarinnar af brezka
togaranum Sargon frá Grimsby,
teknar úr kvikmyndinni um
björgunarafrekið við Látrabjarg.
Framganga íslenzkra björgunar
sveita hefur oft vakið athygli
erlendis og er hér brugðið upp
glöggri mynd af sögu og starfi
Slysavarnafélagsins i máli og
myndum.
í heftinu er einnig grein um
stærsta jökul Evrópu, Vatna-
jökul, prýdd fjölda góðra mynda
eftir Magnús Jóhannsson og
Mats Wibe Lund jr.
Viðtal er við bandaríska sendi
herrann, James K. Penfield, um
ferðalög hans á Islandi, en hann
hefur ferðazt um landið þvert og
endilangt, meira en þorri íslend
inga. Þar segir sendiherrann frá
því sem hann hefur séð athyglis
verðast á ferðalögum sínum.
7 þús. fjár slátrað
hjá Kaupfél. Höfn
Hinn 11. nóv. s.l. hafði verið
slátrað í sláturhúsi Kaupfélags-
ins Hafnar á Selfossi 7.030 fjár.
Er það mun fleira fé en slátrað
var þar í fyrra, og nemur aukn
ingin 36%. — Sláturhússtjóri
er Guðmundur Geir Ólafsson.
Meðalfallþungi dilka reyndist
13.90 kg. en 1964 var meðal-
vigtin 13.39 kg. Mesta meðal-
vigt hjá innleggjendum, sem
lögðu inn tíu dilka eða fleiri,
höfðu lömb frá Guðmundi Þor
valdssyni, Laugarbökkum, Ölf-
usi 17.93 kg., Birgi Hartmanns-
syni, Úlfljótsvatni, Grafningi,
17.44 kg., Pétri M. Sigurðssyni,
Austurkoti, Sandvíkurhreppi,
17.33 kg., og Hlíðardalsskólabú
inu, Ölfusi, 17.20 kg.
Sláturhús Kaupfélagsins Hafn
ar er starfrækt allt árið, og er
því enn verið að koma þangað
af og til með f^ til slátmnar.
Síðan um miðjan október hefir
þó aðaliega verið slátrað þar
nautgripum.