Vísir - 05.01.1966, Blaðsíða 1
BS&T
''AV ‘WÍ4 K"rv"rf5p'^í».*.J» • r nl' • ■ *••
*»- '*** ’*^' v
Eldgosii ifið SURTSEY
sofnaði i austanrokinu
Stórrigning tálnwði amferð um horgina
Jim Hastie.
ekki sézt til þeirra 1 rúman sól
arhring vegna fárviöris þess
(13 vindstig 1 Eyjum) og rign
ingar, sem yfir gekk.
Flugstjóri á þessari vél sem
var á leiðinni til Kaupmanna-
hafnar var Snorri Snorrason, en
hann er í hópi þeirra manna,
sem mest hafa fylgzt með Surts
eyjargosi og áhugamaður mikill
á þvi sviði.
! morgun flaug hann mjög ná
lægt gosstaðnum og sá greini
lega Surtsey, en sér til mikilla
vonbrigða, varð hann þess vís
ari að gosið i litla Surti var
með öllu hætt. Er svo að sjá
sem eldgígurinn hafi ekki þolað
átök austanroksins og sofnað
áftur. Flugstjórinn sá á þessum
stað, að rétt braut á neðan
sjávareyju sem eftir stendur af
þeirri iitlu eyju sem myndaðist
nú á dögunum.
Banaslyssmálið fellt niður
Saksóknari riktsins hefur
ekki talið óstæðu til að fyrir-
skipa málshöfðun út af banaslys
málinu að Hlégarði i Mosfells-
sveit á s.l. haustl og er það
þar af lelðandi úr sögunni.
Eins og áður hefur verið
skýrt frá í Vísi kom til handa-
lögmáls og átaka milli tveggja
pilta á skemmtun í Hlégarði í
haust sem leið. Annar pilturinn
varð miður sín á eftir, fann til
verkjar í höfðinu, sem ágerðist
unz hann var iagður inn í
sjúkrahús og þar lézt hann
skömmu síðar.
Pilturinn sem lézt var frá
Hafnarfirði og þar fór rannsókn
málsins fram. Vitnaðist þar
hver greitt hefði piltinum höfuð
höggið og ennfremur upplýstist
um önnur málsatvik sem þýð-
ingu höfðu.
Að rannsókn lokinni var
málið sent til saksóknara til
endanlegrar ákvörðunar. en
hann taldi ekki ástæðu til máls
höfðunar
í morgun flaug utanlandsvél
frá Flugfélagi Islands yfir gos
stöðvamar við Surtsey og hafði
í morgun var enn flóð á sumum götum, þegar menn voru að aka til vinnu sinnar.
56. árg. — Miðvikudagur 5. janúar 1966. - 3. tbl.
SIR
jT
Irskam og skozkum þjóadönsum og
þjóðlögum svipar saman
BIAÐIÐ í DAG
BIs. 3 Heimsókn í Loft-
Ieiðahótelið.
Myndsjá.
— 4 Á að Iækka kosn-
ingaaldurinn?
— 7 Vindmyllustrið
umferðarnefnda.
— 8 Sjálfsmorð f
Austur-Berlín.
— Rætt við Tryggva
Gunnarsson skip-
stjóra.
Rætt við stjórnanda irska þjóðdansaflokksin s, Jim Hastie, áður
stjórnanda „Caledonian dancers"
1 nótt kom hingað til lands
19 manna írskur þjóðdansa- og
söngflokkur á leið til Banda-
rfkjanna og Kanada og hefur
elna sýningu í Þjóðleikhúsinu í
kvöid. Stjómandi flokkslns og
þjálfari er Jim Hastie og hafði
blaðið tal af honum i morgun
að Hótel Borg, þar sem flokk-
urinn hafði glstingu.
„Það vill svo til að ég er ekki
nema hálfur Iri segir Jim
Hastie, því að ég er skozkur í
aðra ættina og hef starfað
jöfnun höndum I báðum lönd-
unum í sambandi við þjóðdans-
ana. Síðastliðið haust fór ég
með skozkan þjóðdansaflokk til
Bandaríkjanna, „The Caledonign
Dancers“ sem hafði sýningar
víðsvegar um Bandaríkin og i
Kanada. Að þeirri ferð lokinni
samdist um það að ég kæmi
með írskan þjóðdansaflokk til
Bandaríkjanna og Kanada á
þessu ári og því er þessi för
farin“.
„Það er talsverður munur á
skozkum og írskum þjóðdöns-
um, m. a. sá, að Skotar dansa
með upprétta arma en Irar ekki.
Þjóðlögin sem dansað er eftir
Framh á bls 6
Mesta úrkoma, sem mælzt hefur í vetur, vard ú Suðurlandi í gær.
Vatnselgurinn núði í hné ú horni Eskihlíðar og Miklubrautar
— Við vorum í marga klukku
tfma að berjast við vatnselginn
á götunum i gær, sagði Aðal-
steinn Guðbjartsson flokkstjóri
hverfis 2 í gatnahreinsunardeild
borgarinnar, þegar blaðið
hringdi í hann í morgun. Hverfi
2 nær alit frá Lækjargötu inn
að Kringlumýrarbraut og skýrði
Aðalsteinn frá þvi, að í öllum
gatnahverfunum fjórum hefði
verið mikiil vatngelgur í úrhell-
inu, sem gerði síðdegis í gær.
Úrkoman í Reykjavík í
nótt mældist 14 miliimetrar.
Fylgir rigningin sunnanáttinni
en vindurinn komst upp í 8
vindstig síðdegis í gær, gera má
þó ráð fyrir meiri vindhraða í
mestu byljunum. Stífluðust nið-
urfallsrör og um kl. fjögur fóru
vinnuflokkar gatnahreinsunar
deildar á staðina þar sem
versti vatnsgangurinn var og
var unnið við að koma niður
stærstu pollunum allt til kl. 7
og haft áframhaldandi eftirlit
fram eftir kvöldi.
Var vatnselgurinn mestur þar
sem götunum hallar niður og á
gatnamótum Eskihlíðar og
Miklubrautar náði vatnselgur-
inn í hné þegar verst lét. Mikil
flóð voru einnig á Lönguhlíð
Skúlatorgi o.fl. götum og viðar
runnu miklir lækir. Gætti þess
að bílar drápu á sér, þegar
þeir fóru yfir stærstu pollana
og voru margir J>eirra í lama
sessi i nokkra klukkutíma.
Aðalsteinn skýrði frá því, að
í sínu hverfi hefðu fjórir
menn unnið að því að hleypa
vatninu niður.
— Þegar við vorum búnir að
ganga frá mestu pollunum vor
um við eins og hundar af sundi
dregnir. Það sem amaði mest
var umferðin, það virtist
sem ökumenn ykju hraðann þeg
ar þeir komu í pollana og var
gusugangurinn þá óskaplegur.
Við fengum einn lögregluþjón
til að aðstoða okkur í þessu.
Unnum við fram eftir kvöldi við
að ganga betur frá eftir að hafa
komið niður stærstu pollurtum,
er þetta mesta vatnsveður sem
ég man eftir í langan tfma,
sagði Aðalsteinn að lokum.
Rigningin náði um allt sunn
anvert landið og um vestanvert
landið gætti hennar einnig.
Mesta útkoman mældist á sex
stöðun suðaustanlands og komst
Framh. bls. 6
YFIRNEFND í FISKVERÐ-
INU Á LÖNGUM FUNDI
Ekki er enn komin nein ákvörð-
un um fiskverðið á vetrarvertfð-
inni. Er ýfimefnd verðlagsráðs
sjávarútvegsins á stöðugum fund-
um, en f nefnd þessari sitja fimm
menn, en þeir eru þessir: Jónas
Haralz formaður, fulltrúar kaup-
enda, það er fiskverkunarstöðva
Bjami V. Magnússon og Helgi G.
Þórðarson og fulltrúar seljenda
Kristján Ragnarsson sem er fyrir
útgerðarmenn og Tryggvi Helgason
sem er fyrir sjómenn.
Framh. á bls. 6