Vísir - 05.01.1966, Blaðsíða 16

Vísir - 05.01.1966, Blaðsíða 16
14 sækja um stöður yfir- lögr.þjóna Um áramótin rann út frestur til að skila umsóknum um stöð- ur tveggja yfirlögregluþjóna og þriggja aðstoðaryfiriögregiu- þjóna við lögregluna hér í Reykjavik. 9 umsóknir hafa borizt um stöður yfirlögregluþjónanna, en Framh. á bls. 6 Árið 1965 varð algert met- ár i fiugsamgöngum eins og kemur fram í nýútkominni skýrslu Alþjóða flugmála- stofnunarinnar ICAO. Með sama áframhaldi verður árið 1966 fyrsta árið, sem fleiri en 200 milljón farþegar verða fluttir loftleiðis milli staða. Farþegaflutningar jukust um 16% frá fyrra ári og er það mesta hækkun, sem orð- ið hefur á liðnum áratug. Bæði farþegafjöldi og far- þegakílómetrar jukust um 16%. Farþegafjöldinn var árið 1965 180 milljónir, en var 9 milljónir árið 1945. Far þegakílómetrarnir voru í fyrra 199.000 milljónir, en voru 8000 milljónir árið 1945. Stórkostlegasta aukningin var samt í vöruflutningum í lofti. 5.010 milljónir tonnkíló- metrar er niðurstaða ársins 1965, eða 28% meira en var árið áður. Árið /1945 voru tonnkílómetrarnir aðeins 110 milljónir Póstflutningar juk- ust um 15% upp i 1.050 tonn- kílómetra. Á árinu voru flognar 8,8 milljónir flugstunda og sam- anlögð fluglengd var 4.100 milljónir kflómetra. Meðalfar þegafjöldi á flugvél í ferð hækkaði um 7% upp í 49 far- þega og meðalvegalengd hvers farþega var 1.110 kíló- Skýrsla ICAO gildir fyrir 110 lönd og eru 'ekki talin með Kína, Sovétríkin og nokkur önnur ríki. í heild sýnir skýrslan, hvílík bylting hefur orðið í flugsamgöngum á síðustu 20 árum og hvernig þróunin liggur stöðugt í átt til aukinna flugsamgangna. Bcki vitaí hvenær Þór kemst á flot Varðskipið Þór er enn í sama ásigkomulagi og þegar það fór á hiiðina í slippnum í fyrradag. 1 dag verður unnið að undirbún ingi að því að koma skipinu á flot en hvenær það tekst gat yfirverkstjóri Slippsins ekki gef ið upplýsingar um í morgun. Eru skemmdir á Þór enn ekki fullkannaðar en kafari vann að því f gær að kanna undirstöðuna og verður því verki haldið áfram. Myndin er tekin í morgun þegar verið var að kanna skemmdir. Spilakvöldið Sjálfstæðisfólk. — Munið spila- kvöid Sjálfstæðisfélaganna í kvöld. Hódegis- fundur Fyrsti hádegis- fundur Varð- bergs og Sam- taka um vest- ræna samvinnu á hinu nýbyrj- aða ári verður haldinn næst- komandi laugar dag, 8. janúar. Þar mun Emil Jónsson utanríkisráðherra flytja stutt erindi, sem hann nefnir: Á ráðherrafundi Atlantshafs- bandalagsins. Ráðherrann sat, sem kunnugt er, fund NATO- ráðherra í París um miðjan des- ember s.l. og mun hann segja frá helztu málum, sem þar voru rædd. Fundurinn verður hald- inn i Þjóðleikhúskjallaranum og hefst kl. 12:30. ELDUR AÐ SPÍT- ALASTÍG 4 Slökkviliðið var í gær kvatt að Spítalastfg 4, en þar er gamall Tvö slys í gær Lögreglunni var gert aðvart um tvö slys sem orðlð hefðu hér í borg síðdegis í geer. Annað slysið varð innanhúss. Hafði maður, Eyjólfur Konráðsson Gunnarsbraut 28, dottið í stiga í Oddfellowhúsinu um sexleytið f gærkveldi og mun hafa meiðzt talsvert. Hitt slysið var umferðarslys á mótum Miklubrautar og Háaleitis- iirautar um hálfátta leytið í gær kveldi. Þar varð ungur piltur Hendrik Thorarensen Gunnlaugs- son Stóragerði 22 fyrir bifreið og 'ilaut skurð á enni. húshjallur, sem einhvem tíma hef ur verið búið í, en nú mannlaus og yfirgefinn. Við þennan húskofa er skúrbygging áföst og í honum kom eldurinn upp. Var talsvert magnaður eldur í skúrnum þegar slökkviliðið kom á vettvang á 2. tfmanum eftir hádeg ið í gær. Urðu siökkviliðsmenn að rjúfa gat á þekjuna til að komast að eldinum, en úr því gekk slökkyi starfið greiðlega. Þótt talsvert hafi skemmzt af eldinum var samt ekki um mikið tjón að ræða því hvorki mun skúrinn vera talinn mikils virði né heldur það sem í honum var geymt. Eldsupptök eru ókunn, en annað hvort mun vera um íkveikju að ræða út frá rafleiðslu eða af manna , völdum. Stendur rannsókn í því yf | Steypubíll á hliðina Síðdegis í gær vildi það óhapp ■ til suður í Kópavogi, að stór "álga-steypubíll frá Goða h.f. ran.. út í djúpan skurð og fór bar á hliðina. Steypubíllinn var í drætti, en á móts við Nýbýla- veg námu bílamir staðar úti á vegarbrún á meðan ökumaður fremri bílsins þurfti að laga eitt- hvað. En þá slitnaði steypubfll- inn aftan úr og r'ann út f skurð- inn. Munaði litlu að slys hlytist af, því að maður var inni í stýr- ishúsinu, en hann fékk stokkið út á sfðustu stundu áður en ó- happið varð. Aimríki hjá slökkviliSimi á árinu sem leiS Slökkviliðið í Reykjavík hafði meira að gera á árinu er var að lfða heldur en nokkru slnni áður á elnu ári. Alls var það kvatt út 534 sinn um á sl. ári og hefur aldrei þurft að sinna svo mörgum kvaðning- um áður. Flestar höfðu þær orðið 475 á einu ári og það var 1959. I þessum 534 kvaðningum í fyrra var f 5 tilfellum um mikla eldsvoða og brunatjón að ræða, 56 gabbkvaðningar ýmist gegnum síma eða brunaboða og í 93 tilfell um var um grun um eld að ræða. Um síðustu áramót var slökkvi liðið kvatt út 16 sinnum. 1 þeim tilfellum var í 11 skipti um- eld að ræða, en alls staðar mjög lítið í einu tilfelli grunur um eld og 4 göbb. Sömu daga, þ.e. á gamlárs- og nýársdag, aðstoðaði slökkviliðið við 26 sjúkraflutninga, þar af voru 5 slys. Á árinu sem leið var tala sjúkraflutninga slökkviliðsins 7160 og af þeim voru 556 slysaflutn- ar. Árið 1964 voru 497 slasaðir fluttir. Sötfar út í skip í nótt fór Reykjavíkurlögreglan út í þýzkan togara, Hermann Krause, sem lá f höfninni til að sækja stúlkur, sem lagt höfðu leið sína út í togarann, en komu ekki aftur. Voru þetta ■ tvær kornungar stúlkur, önnur 15 og hin 16 ára og þótti ekki hollt að hafa þær næturlangt úti í erlendu skipi. Flutti lögreglan báðar telpumar heim til foreldra þeirra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.