Vísir - 14.01.1966, Síða 5
VÍ SIR . Föstudagur 14. janúar 1966.
utlönd. í mormm
-i H-iWi -i ínprrnr
i mor.íun
utlönd í morr.ui
BOTTOMLEY VARÐ AD HÆTTA
VID RHODESIUFERDINA
•Heath.
Wilson er kominn heim úr
Afríkuferðinni. Hann tilkynnti
óvænt við heimkomuna í gær-
kvöldi, að ekkert yrði úr því,
að Bottomley samveldisráðherra
færi til Rhodesíu, þar sem Smith
hefði sett skilyrði, sem væru
„óþolandi“, en Wilson gef í skyn
að þau hefðu verið slík, að svo
kynni að hafa verið litið á, hefði
verið á þau fallizt, að í því fælist
viðurkenning á hinni ólöglegu
stjóm Smiths.
Áður hafði Bottomley talað
drjúgt um það, að hann myndi
ekki tala við Smith - nema þá
sem privatmann. Wilson kvaðst
hafa sagt Bottomley í gærkvöldi
að koma heim, nema breyting
yrði á afstöðu Smiths í nótt.
Wilson kvað Smith ávallt hafa
getað farið á fund Gardners lá-
Tina komin heim
Danskt blað birtir þessa mynd
og segir í upphafi greinar um
barnsránið:
Tina litla er komin heim.
Mamma hennar á afmæli í dag og
allt er gott, en ...
SKIPAFRÉTTIR
SKIPAUTGCRB RIKISINS
M.s. Hekla fer austur um land
I hringferð 18. þ.m. VörumótJ;aka
í dag til Fáskrúðsfjarðar, Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarðar,
Seyðisfjarðar, Raufarhafnar og
Húsavíkur. Farseðlar seldir á
þriðjudag.
í Og svo bætir blaðið við í fram-
! haldi af þessu stutta orði — en:
j í fyrsta lagi hafa tvær mann-
i eskjur verið fangelsaðar, örvænt-
andi, sjúk ung kona, og maður
hennar, enn yngri, sem vægast
sagt hlýtur að vera „einfaldur" f
meira lagi, o. er þá ekki sterkt
að orði kveðið. Og svo er sú stað-
reynd, að næstum þriggja mánaða
barn getur allt í einu skotið upp
kollinum í ókunnu umhverfj í bæ
, úti á landi, fyrir augunum á kon-
um, sem sjálfai eiga börn, og
j þeim sýnt barnið, sem nýfætt
■ barn — án þess neitt sé gep í
málinu. og alkunnugt um barns-
hvarf. — Og svo reyndist það
vera karlm; sem kom lögregl-
unni á sporið . . .
varðs landstjóra Breta f Rhode-
siu, ef hann hefði einhverjar tíl-
lögtir fram að bera varðandi
lausn deilunnar, en það hefði
hann ekki gert, og taldi Wilson
það sönnun þess, að tal Smiths
um samkomulagsvilja væri inn-
antóm orð.
Smith lét tilkynna þremur þing-
mönnum krata, að þeir yrðu að
fara úr landi tafarlaust fyrir brot
á settum reglum. Voru þetta þing-
menn þeir sem hendur voru lagðar
á. Tveir þeirra voru í Bulawao, er
þetta var tilkynnt, — kváðust þeir
ekki fara fyrr en á laugardag sam-
kvæmt áður gerðri áætlun, enda
hefðu þeir ekki fengið neina fyrir-
skipun um að hverfa úr landi.
Þriðji þingmaðurinn var farinn,
er brottvísunarfréttin barst.
Smith skoraði í gær á íhalds-
þingmann nokkurn sem er í Rhode
siu, að skýra frá hvaða heimild
hann hefði fyrir því, að Rhodesiu-
her hefði neitað að framkvæma
fyrirskipun um, að handtaka
Gardner landstjóra daginn, sem
lýst var yfir sjálfstæði Rhodesiu.
Kvað Smith þetta uppspuna og róg.
íhaldsþingmaðurinn neitaði að
skýra frá heimildinni og kvaðst
ekki taka neitt aftur af þvl, sem
hann hafði sagt.
Heath kominn .
heim frá Asíu.
Edward Heath leiðtogi stjómar-
andstöðunnar er kominn heim úr
Asíuferðinni, en I henni ræddi hann
við marga leiðtoga. Hann sagði við ,
heimkomuna í gærkvöldi, að hann j
hefði hvergi í ferð sinni heyrt
háværar raddir um að beita skyldi
valdi í Rhodesiu.
Um Vietnam sagði hann, að bú-
ast mætti við hörðum átökum og
löngum.
Sambúð ríkisstjóma Indlands og
Bretlands kvað Heath mjög slæma
og kenndi Wilson um.
Auknar refsi-
aðgerðir.
Wilson hefir boðað auknar við-
skiptalegar aðgerðir gegn Rhode-
siu innan fárra daga — og hvaða
skilyrði stjóm hans setji fyrir
samkomulagsumleitunum.
Mjög er um það rætt hver verði
afstaða íhaldsflokksins. Hún hefur
verið talin harðnandi og a því
er efnahagsaðgerðir varðar er búið
að segja: Hingað og ekki lengra.
Bottomley og Wilson.
- **■. iÍ&*. .** ii.' '
BINGÓ - BINGÓ
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt hefur nýársfagnag í Sjálfstæðishús-
inu mánudaginn 17. þ. m. kl. 8,30 e. h.
D A G S K R Á :
Frú Auður Auðuns forseti borgarstjómar
flytur ávarp.
Bingó spilað.
Margir ágætis munir verða veittir í verðlaun þ. á m. vetrarferð
meg Gullfossi til Kaupmannahafnar. — Kaffihlé verður, síðan
haldið áfram spilinu og verðlaun veitt. — Allt sjálfstæðisfólk vel-
komið á Bingóspilið meðan húsrúm leyfir. — Aðgangur ókeypis.
Fjölmennið. STJÓRNIN.
Þjóðlagakynning
HEIMDALLUR F. U. S. efnir til þjóðlagakynningar í Félagsheimili
Heimdallar í kvöld og hefst hún kl. 8,30. — Kynninguna annast
Heimir Sindrason og Jónas Tómasson.
ÖLLUM HEIMILL AÐGANGUR. FJÖLMENNIÐ.
HEIMDALLUR F.U. S.