Vísir - 14.01.1966, Page 6

Vísir - 14.01.1966, Page 6
6 VlSIR . Föstudagur 14. janúar 1966. The Hollies halda tónleika í Háskólabíói Um mánaðamótin koma hingað til lands The Hollies, hljómsveit Aðolfundur Týs, f.u.s. í Kópuvogi Aðalfundur TÝS, félags ungra Sjálfstæðismanna í Kópavogí, verðnr haldinn í Sjálfstæðishús inu, Borgarholtsbraut 6. n. k. mánudagskvöld 17. janúar og hefst kl. 20,30. Á fundinum verða venjuleg aðalfundarstörf og umræður um starfsemi félagsins. Ennfremur mun formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna, Ámi Grétar Finnsson lögfræðingur, flytja ávarp. lVTú er starfsár Sinfóníuhljóm- ^ sveitarinnar hálfnað, átt- undu tónleikar hennar voru í gærkvöld, og stjömandi að þessu sinni Dr. Róbert A. Ottós son. Tónleikamir hófust með forleik Mozarts að gamanleikn- um „Leikhússtjórinn", og var hann fluttur af miklu fjöri, skörpum útlínum og nærfærni gagnvart „smáatriðum“, hinu innra lífi gegnsærrar tónlistar. Því næst var G-dúr fiðlukonsert Mozarts, K. 216. Einleikkonan, Fredell Lack, var komin alla leið frá Texas, og hefði mátt búast við miklum tíðindum (því að ekki er fiðluleikaraleysinu fyrir að fara hér á nyrðri mið- um) en svo var því miður ekki. Frúin spilaði skilvíslega, en ekki skáldlega, með vissum tóngæðum og fimi fingra, en takmörkuðu styrkleikasviði. Það er mesti misskilningur að gefa í skyn, að dramatískasta tónskáld sögunnar sé einhver veimiltíta. Samleikur hljóm- sveitarinnar var prýðilegur (þar var aðeins fækkað strengj- um, svo að öll áferð varð galla- laus, engir „hjátónar") og stíl- skipuð fimm ungum mönnum, þeim Graham Nash, Allan Clark, Tony Hicks, Eric Haydock og Bobby Eliot. Er áætlað að þeir komi fram á femum tónleikum í Háskólabíói. The Hollies er ein af vinsælustu bítlahljómsveitum í heimi og skip ar víða þriðja sæti vinsældalist- ans á eftir þeim The Beatles og Stórþjófnr — Framh. af bls. 1 verzlun Magnúsar E. Baldvins- sonar haustið 1964, þar sem hann stal 50—60 úrum, að verð mæti á 2. hundrað þúsund krón ur, að því er þá var talið. En fleiri þjófnaði og innbrot og sum þeirra allmikil mun hann hafa á samvizkunni. í gærkvöld vissan einkenndi allan hennar leik. Er ekki ánægjulegt að fá að heyra þótt aðeins eitt sé nefnt, hvaða hlutverki t. d. víól umar gegna í hæga þætti kon- sertsins? T okaverk tónleikanna var önnur gerð 3. sinfóniu Bruckners. Ekki veit ég, hve stór hópur Bruckner-unnenda er hér á landi, en sú ást er a. m. k. illa endurgoldin utan Austurríkis yfirleitt. Þetta var því gullið tækifæri að endur- nýja kunningskapinn eða kynn- ast fyrst hinum stórbrotnu á- formum þessa saklausa manns. Það var líka auðheyrt, að stjómanda var annt um að ekkert færi milli mála, öll augnablik lífi gædd og eftir- væntingu. Stór þáttur í verkum Bruckn ers eru áhrif 9. sinfóníu Beet- hovens. Það er tilhlökkunarefni, að nú skulum við líka fá að njóta þeirra áhrifa beint á næst unni frá hinni sömu styrku hendi og flutti okkur d-moll sinfóníu Bruckners i þetta sinn. Þorkell Sigurbjömsson. The Rolling Stones. Plötur þeirra njóta geysivin- sælda og hafa verið númer eitt á vinsældalistanum f Bandarikjun- um. Hér á landi hafa The Hollies einnig notið vinsælda og má nefna sem dæmi um það lagið þeirra „I’m alive“. Hingað til lands koma The Holl ies á vegum forráðamanna Lídós og Skemmtikraftaþjónustunnar. Verða tónleikar þeirra í Háskóla- bfói haldnir dagana 31. janúar og 1. febrúar n.k. kl. 7 og 11.15. Einn ig er gert ráð fyrir að þeir komi fram á tónleikum f Lídó. Á tónleik unum f Háskólabíói koma einnig fram íslenzkar beathljómsveitir en ekki hefur endanlega verið ákveð ið hverjar þær verða. Forsala aðgöngumiða hefst næstu daga í Háskólabíói. Loffleiðir — Framh. af bls. 16 ingarbækling. Fjallar sá um dvöl farþega á Islandi, hvað þar er upp á að bjóða og unnt að sjá f skammri viðdvöl. Heitir þessi bæklingur Step off — Stopover. Geta farþegar félags ins dvalizt hér á landi í sólar- hring fyrir 15 dollara gjald að vetrinum en 19.50 dollara gjald að sumri til. Er í bæklingnum greint frá því helzta sem hér er að sjá og birtar mjög fallegar litmyndir frá landinu. Eru báð- ar þessar útgáfur til hinnar mestu fyrirmyndar, svo smekk- lega eru þær úr garði gerðar. Þessum bækling verður einnig dreift víða um heim á vegum félagsins en það færist nú mjög í vöxt að farþegar með vélum félagsins staðnæmist hér f sól- arhring og kynnist landinu. Iðnoður — Framh. af bls. 1 verra í þessum efnum. Ef lækka á tolla, þarf að byrja á því að lækka tolla á hráefnum, sagði Gunnar. Hann sagði, að mikið væri oft rætt um hina miklu tollvemd ísl. iðnaðar, en hinar gífurlegu hækkanir reksturs útgjalda, sem lent hefðu á iðn- aðinum undanfarið, hefðu á vissum vörutegundum etið upp tollverndina. Til væru einnig iðn aðargreinar, sem engrar toll- verndar nytu og væru þær að sjálfsögðu verst settar. Þá væri rétt að hafa það í huga, að fyr- ir npkkrum árum hefðu ýmsir iðnrekendur verið með áætlanir um framleiðslu til útflutnings, sem þá virtust framkvæmanleg ar. En eftir verðlagsþróun síð- ustu ára hafa.flestar þessar á- ætlanir orðið að engu. Gunnar J. Friðriksson sagði, að ýmislegt kæmi til greina til þess að bæta samkeppnisað- stöðu iðnaðarins. Með nánu samstarfi iðnfyrirtækja f stað innbyrðis samkeppni, mætti draga úr rekstrarörðugleikum fyrirtækjanna af völdum erlendr ar samkeppni. Um þetta má þegar finna nokkur dæmi í iðn- aðinum, sem sýna, að hér hefur vel farið og reynsla nágranna- þjóðanna sýnir hið sama Sam- starf norskra iðnfyrirtækja hef ur verið mjög athyglisvert eftir að Noregur gekk f EFTA. Fyrir- tæki, sem áttu áður erfitt upp- dráttar f samkeppni, standa nú sterk saman, og hafa mörg hver hafið útflutning í stórum stíl. Þá væri hagnýting aukinnar tækni annað meginmál fslenzks iðnaðar. Þegar Framleiðnistofn- un Evrópu starfaði, áttu iðn- fyrirtæki nokkuð greiðan að- gang að erlendri aðstoð sér- fræðinga fyrir milligöngu Iðn- aðarmálastofnunar Isl. En eft- ir að Framleiðnistofnunin hefði verið lögð niður, hefði öll fyrir greiðsla í þessum efnum orðið mun erfiðari. Það væri mikil nauðsyn að komið yrði á aftur því skipulagi, sem gerði iðnfyrir tækjum kleift að fá í sína þjón ustu erlenda sérfræðinga með hagstæðum kjörum til leiðbein- ingastarfsemi. Þá sagði Gunnar að mikið verk væri enn að vinna á sviði hagræðingarmála iðnfyrirtækja. I þvf sambandi yrði að hafa í huga, að hagræð ing í verksmiðjuiðnaðinum krefðist fjármagns og því þyrftu fyrirtæki, er leggja vildu út í slíkt, að hafa greiðan aðgang að lánsfé. Það þyrfti einnig að lækka tolla á þeim vélum, sem ekki væru framleiddar í Iandinu. Aukin vélvæðing væri leið fyr ir iðnaðinn til að mæta hinum miklu launahækkunum að nokkru leyti. ■■■■ni t i —■■rnm l Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og jarðarför mannsins míns, GUÐNA STÍGSSONAR fyrrv. löggildingarmanns. Margrét Guðbrandsdóttir. VERZLUN TIL SÖLU Til sölu varahlutaverzlun á góðum stað. Mik- ill lager fylgir. Mjög hagstæðir greiðsluskil- málar. Tilboð merkt „Áramót“ sendist augld. blaðsins fyrir þriðjudag merkt „1084“. ÚTGEFENDUR Get tekið að mér þýðingar úr ensku og norð- urlandamálunum. Tilboð sendist afgr. Vísis, merkt „Gott mál“. SKRIFSTOFUSTÚLKA óskast frá kl. 1—5 á fasteignasölu. Þarf að vera vön vélritun. Aldur ekki yngri en 24 ára. Símar 34472 og 38414. IBÚÐ ÓSKAST 2—3 herb. íbúð óskast sem fyrst. Sími 35740. LITIÐ HÚS VIÐ HAFNARFJÖRÐ Til sölu ódýrt. Gott fyrir einhleypan mann eða barnlaus hjón. Sími 51438 eftir kl. 7 á kvöldin. BÍLL TIL SÖLU Volvo Amazon, árg. ’64, 4 dyra, ekinn 40 þús. km., til sölu. Sími 10366 frá kl. 5—7 í kvöld. RAFVIRKJAR Óskum að ráða nokkra vana rafvirkja við uppsetningar á lyftum. BRÆÐURNIR ORMSSON H.F. Símar 38820 og 50166. Tónleikarnir

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.