Vísir - 14.01.1966, Síða 11

Vísir - 14.01.1966, Síða 11
VlSIR . Föstudagur 14. janúar 1966. 77 Sigurþór Jakobsson leikur mei enska áhugamannaliðimi Dulwich Hamlet Sigurþór Jakobsson hinn kunni knattspymu- maður úr KR og landsliðinu, hefur nú fengið leyfi frá KSf og enska Knattspyrnusambandinu til að leika með enska áhugamannaliðinu DULWICH HAMLET, en það lið er í sama hverfi og skóli sá er Sigurþór gengur í til myndlistamáms. Hið fræga enska atvinnu- mannalið Crystal Palace er einnig í sama hverfi, og var Sigurþóri boðið að æfa með því liði en vegna þess, að æfingartímar atvinnumánn- anna eru eftir hádegi, varð hann að neita því góða boði, og æfa heldur með áhuga- mönnunum, sem hafa hent- ugri æfingatíma. Dulwich Hamlet leikur í hinni frægu Isthmian 'League, en það er deildarkeppni, milli 20 sterkustu áhugamannaliða Englands og í henni keppa t. d. Hendon bikarmeistarar 1965 og 1960 og mörg önnur fræg áhugamannalið. Enska landsliðið sem lék íslendinga svo grátt hér 1963 var nær allt úr liðum, sem leika í þessari keppni. Dulwich Hamlet hefur gengið mjög illa undan farin ár og nú er liðið í 15 sæti, en keppnin er svo til ný byrjuð og nokkrum leikjum hefur þurft að fresta vegna veðurs. Enska blaðið South London press, segir frá því með stórri fyrirsögn 7. janúar s.l. að Sigurþór muni spila þá um kvöldið með liðinu, en fréttir af þeim leik né umsagn ir blaða hafa ekki borizt, þeg ar þetta er skrifað. Annar KR ingur Sæmundur Bjarkan æf- ir einnig með Dulwich Haml- et og hefur leikið nokkra leiki með Cliðinu við góðan orðstfr Þeir Sæmundur og Sigurþór njóta mjög góðrar fyrir- greiðslu hjá Englendingum, sérstaklega hjá þeim er heim- sótt hafa Island í knattspyrnu keppni, var þeim t.d. boðið í veizlu hjá Middlesex Wander ers, þar sem samankomnir voru helztu forustumenn knattspymumála f Englandi og formenn sérsambanda alls staðar að úr heiminum. Þótti mikill heiður f þvf að vera boðinn í þessa veizlu, sem í vom um 300 manns. Sexþrautarkeppni KR LANDSLIÐIÐ I HANDKNATTLEIK FARIÐ UTAN í gær fór íslenzka landsliðið í handknattleik utan, en liðið keppir á sunnudag i Gdansk við Pólverja en þar taka Pólverjar við hópnum í HM í handknattleik. I dag verður haldið af stað til Varsjár fljúgandi, og farið með jámbrautarlest mjög hraðskreiðri til Gdansk, sem mun vera 400 km. leið og tekur ferðin milli þessara staða rúma 3 tíma. Pólverjar veittu litlar sem engar upplýsingar um annað varðandi móttökumar þrátt fyrir fyrir- spumir. Á miðvikudaginn heldur íslenzka liðið áfram í HM og þá eru mót- herjamir Danir, sem er þriðji aðil- inn í þessum riðli. Verður þá keppt í Nyborg og er fyrir löngu uppselt á leikinn og Danir talsvert sigur- vissir. Lið Dana hefur verið valið og aðeins ein breyting gerð á liðinu sxðan það vann Noreg um jólin með 19:9. Liðið lítur þannig út: Erik Holst, Árhus KFUM, Leif Gelvad, AGF, Jorgen Vodsgaard, Árhus KFUM, Ole Sandhoj, Skov- bakken, Gert Andersen, HG, Jorgen Petersen, HG, Mogens Cramer, Helsingor, Klaus Kaae, Arhus KFUM, Max Nielsen, MK 31, Iwan Christiansén, Árhus KFUM, og Jorgen Peter Hansen, Tamp Varamenn: Uffe Madsen, Tarup, og Arne Andersen, Efterslægten. 1. hluti. Sexþrautarkeppni KR, í karla- flokki, hófst f KR-húsinu á mið- ivikudag 12. jan. Fyrsta keppnis- greinin var langstökk án atrennu. Þátttaka var allgóð, — tíu menn mættu til leiks. Keppnin var mjög tvísýn, og skemmtileg. Nýkjörinn íþróttamaður ársins 1965, Valbjöm Þorláksson, tók forystuna strax í fyrstu umferð keppninnar og hélt henni allt til loka. Var sigur hans öruggur og aldrei í hættu. í öðru og þriðja sæti urðu hinir lands- þekktu langstökkvarar Olfar Teits son og Einar Frímannsson. Ungur stúdent, Niels Siemsen, kom á ó- vart með ágætum árangri. Fleiri nýliðar vöktu athygli. Þeir Ólafur og Bjöm Sigurðssynir ættu að geta náð langt í framtíðinni, ef þeir leggja rækt við æfingamar. Segja má, að sexþrautarkeppnin hafi farið vel af stað og árangur verið athyglisverður og jafn. Frjáls íþróttadeild KR hvetur alla þá íþróttamenn, sem tóku þátt í fyrsta hluta keppninnar, að sækja vel æfingar deildarinnar og mæta til sexþrautarkeppninnar næstu fimm miðvikudaga í KR-húsinu kl. 18.55. Nýir félagar eru ætíð velkomnir! Úrslit f 1. hluta, langstökki án atrennu: 1. Valbjörn Þorláksson 3.04 m 1 tilraun. 2. Úlfar Teitsson 2.98 m. 2. tilr. 3. Einar Frímannsson 2.88 m. 1. tilraun. 4. Niels Siemsen 2.87 m. 1. tilr. 5. Guðjón Guðmundsson 2.86 m. 2. tilraun. 6. Gestur Þorsteinsson 2.85 m. 3. tilraun. 7. Ólafur Guðmundsson 2.84 m. 1. tilraun. 8. Þórarinn Ragnarsson 2.83 m. 2. tilraun. 9. Ólafur Sigurðsson 2.79 m. 5. tilraun. 10. Bjöm Sigurðsson 2.77 m. 6. tilraun. (Aðeins 5 cm skildu að 3. og 8. mann!) iK<‘ Stjóm FKR. Sigurþór Jakobsson Ieikur knattspyrnu í Englandi í frítímum frá listaskólanum. PÓLLAND — ÍSLAND: Landsliðið valið / gær Landsliðið í körfuknattleik var valið endanlega í gærkvöldi, en Hðið leikur sína fyrstu landsleiki um og eftir helgina við Pólverja í Laugardalshöllinni. j Liðið er þannig skipað: Birgir Birgis, Ármanni, Davíð Helgason, Ármanni, Agnar Friðriksson, iR, Birgir Jakobsson, ÍR, Hólmsteinn Sigurðsson, IR, Ólafur Thorlacius, KFR, Einar Bollason, KR, Kolbeinn Pálsson, KR, Hjörtur Hansson, KR, Gunnar Gunnarsson, KR. Kristinn Stefánsson, KR, slasað- ist fyrir nokkrum dögum, skarst á hendi og verður líklega ekki j með, en annars hefði hann leikið í stöðu miðherja í liðinu. Mögu- leiki er þó á að hann verði með a. m. k. í seinni leiknum. Pólverjarnir koma hingað á morgun (laugard.) og leika fyrri leikinn á sunnudaginn, en síðari leikinn á þriðjudag. Forsala að- göngumiða hófst í morgun og eru miðar seldir í bókaverzlunum Lár- usar Blöndal f Vesturveri og á Skólavörðustíg. Evrópubikarinn: FH - DUKLA VALUR - DHFK • Tvö Norðurlandalið, fimm austantjaldslið. Það eru liðin, sem mætast í 3. umferð Evrópubikarkeppninnar í hand- knattleik. 1 fyrrakvöld var dregið um hvaða lið mætast í 3. umferð og fór drátturinn fram í París. Voru félögin dregin í þessari röð: R.K. Zagreb, Júgóslavía - DHFK LEIPZIG FH - DUKLA, Prag Honved, Búdapest — Grasshoppers, Ziirich Redbergslid, Gautaborg - SLASK, Póllandi Liðin, sem talin eru á undan eiga heimaleikinn fyrst, en leikimir eiga að fara fram á tímabilinu 29. jan. - 27. febr n.k. • í Evrópubikarkeppni kvenna eru Valsstúlkurnar meðal 8 liða sem enn eru eftir. Þar hefur einnig verið dregið og var röðin þessi: HG, Kaupmannahöfn — Trud, Moskvu Bayer, Leverkusen - Spartak, Prag Sofia — Startacus, Budapest Valur - DHFK, Leipzig. • Félagið sem Valur fær er með lið einnig í karlakeppn- inni eins og sjá má, en Island er eitt þriggja þjóða sem á lið eftir f báðum keppnunum. Dómari í leik Vals og DHFK hér í Reykjavík verður Norð-Í maðurinn Knut Nilsson frá Oslo, en seinni leikinn dæmir| dómari með því ágæta nafni Suslov. • Hafnfirðingar voru bæði ánægðir og óánægðir þegar þau tíðindi bárust þeim að þekktasta handknattleikslið heims ætti að leika gegn þeim. „Að vissu leyti er ég ánægð- ur“, sagði Hallsteinn Hinriksson. „Þarna höfum við toppinn í handknattleik og nú fáum við þó örugglega að vita hvar við stöndum“, sagði hann.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.