Vísir - 14.01.1966, Page 15

Vísir - 14.01.1966, Page 15
V1 SIR . Föstudagur 14. janúar 1966. 15 Hvað varð af -K Eftir Louis Bromfield Önnu Bolton? slökkviliðsmenn, heimavarnar- liðsmenn grófu í til þess að leita að líkum. Og um kvöldið þegar borgarhlutinn City stóð í björtu báli sló roða á himin allan og eldtungurnar sleiktu jaðra skýj- anna, sem eyðingarsprengjurnar virtust falla úr til jarðar. Allt var þetta þrungið ekki að eins mikilleika hildarleiksins sjálfs heldur og þolgæðis fólks- ins, sem bjó við ógnirnar, sem öllum var ljós, sem til vitnis voru, og engir aðrir munu nokkru sinni fá skilið. Hve ólíkt og fjarri öllu á hinu fagra sumarkvöldi, er ég gekk heim úr hófi Önnu. Það voru fáir í Lundúnum á þessum tíma, sem ekki höfðu verk að vinna, og það var ekki óskað eftir veru þeirra þar, og fáir, sem ekki urðu að vera, kusu að halda kyrru fyrir. Ég á vitanlega við menn af því sauðahúsi, sem voru gestir í boði Önnu. Hinir fátæku í borginni voru .cyrrir, því að þeir komust ekki burt, og hinir snauðu eru bundn ir traustari böndum við þau greni, sem þeir kalla heimili, en hinir auðugu við stórhýsi sín. Lafði Haddonfield og hinn auð mjúki eiginmaður hennar voru löngu horfin þangað, sem ekk- ert bar á þeim. Þau höfðu ávallt verið vinsamleg um of við Þjóð- verja, viðkvæðið hjá þeim var alltaf: Þjóðverjar eru miklu lík- ari okkur en Frakkar. Þau höfðu nft haft boð inni fyrir Þjóðverja, sýnt von Ribbentrop mikla vin- semd, oft sagt: Það er okkur í hag að hafa gott samstarf við Hitler. Þegar þúsundir enskra borgara höfðu beðið bana í loft- árásum og fjórðungur Lundúna var í rústum, áttu þeir ekki upp á pallborðið hjá neinum í Eng- landi sem eitt sinn höfðu sagt, að í rauninni væru Þjóðverjar vinsamleg þjóð og góðhjörtuð. Haddonfield House, þar sem lafði Haddonfield og Anna höfðu staðið sem drottningar á pallin- um ofan stigans breiða, var lok- að. Neglt hafði verið fyrir glugga, málverk, veggtjöld og annað verðmætt flutt upp f sveit. Og það fréttist lítið frá Haddonfieldhjónunum. Orðróm- ur komst á kreik um það, að lafði Haddonfield hefði næstum gleymt Önnu Bolton. Það skipti engu um hana lengur, þar sem hún var farin frá Lundúnum og lagði henni ekki lengur til 20.000 sterlingspund á ári, sem eftir voru. 35. Þeir úr hinni gömlu fylkingu, er gekk milli samkvæmissal- anna og skemmtistaðanna, hitt- ust endrum og eins, eða smá- hópar úr þeirri fylkingu, til dæm is hjá Ruby Hillyer. Húsið til- komumikla í Hill Street var ekki lengur til og Ruby þraukaði í litla húsinu í Lord North Street, þar til það næstum gereyðilagð- ist nóttina, sem sprengjuárásin var gerð á neðri málstofuna. Hinn gamli heimur Önnu Bolton var í nær algerri upplausn. Sum- ;ir, sem eftir vpru, reyndust 'gagnslausir sem fyrr, voru á- jfram sömu slæpingjamir, illa | innrættir og ómerkilegir í fram- jkomu. Sumir örvæntu, buguð- j ust, liðu undir lok, fyrirfóm sér, I en nokkrir uppgötvuðu mitt í þjáningunum nýtt gildi starfs og lífs, tóku til starfa, og uppskáru lífshamingju sér til mikillar ! undrunar. í dálitlu hádegisverðarboði hjá Ruby dag nokkum spurði einhver: — Hvað varð af Önnu Bolton? — Ég hef heyrt, að hún hafi orðið innlyksa í Frakklandi eða haldið þar kyrru fyrir og sé nú í París, svaraði einhver. Enn sagði einn, af nokkurri illkvittni: — Mér er sagt, að hún hafi gerzt samstarfsmaður nazista, sé oft í Vichy, og enn oftar í París, og neyti þá miðdegisverð- ar f Maxim og Ritz með hátt settum þýzkum liðsforingjum. Ruby var jafn trygg og holl henni og ávallt áður: — Öll sagan er áreiðanlega ekki sögð með þessu. Ég hef mfnar fréttir af þessu frá vini í Genf, fréttamanni, sem var í Par ís. Hann sagði mér, að hún hefði fórnað öllu til þess að geta helg- að sig starfi í þágu flóttafólks. Og mér er sagt að hún hafi unn- iö þrekvirki. En þetta hafði engin áhrif á einn eða tvo kynvillinga, sem þarna voru, báðir starfsmenn upplýsingamálaráðuneytisins. — Já, ég hef heyrt, sagði ann- ar þeirra háðslega, að hún hafi farið með seinustu undirsængina sína í flóttamannabúðirnar. En í rauninni vissi enginn hvað orðið hafði af Önnu og ég jafnvel minna en aðrir. Hún hafði blátt áfram horfið eftir að Þjóðverjar hertóku Par- ís og er menn í Lundúnum minntust auðæfa hennar, skart- gripanna hennar, loðfeldanna og veizlnanna hennar fékk þetta allt í endurminningunni nánast goðsagnablæ frásagnar um þann heim, sem hvarf eftir „leiftur- styrjöldina" á Lundúni. Er menn sátu þarna undir borðum hjá Ruby og töluðu um Önnu og þennan horfna heim var það sem verið væri að tala um eitthvað, sem gerzt hafði á 18. öld. Allt of margt hafði gerzt, of margt ótrúlegt, frá því er Ruby flutti úr húsinu í Hill Street. Og okk- ur var Anna gersamlega horfin — hún var orðin goðsagnarper- sóna í augum margra. En þetta er saga Önnu eins og hún sagði mér hana. Ég fór frá Lxmdúnum til Kairo og fljótt þaðan til Singapore og Sidney. Ég frétti ekkert hana varðandi, nema stöku sinnum heyrði ég kastað fram þessari spurningu: Hvað varð af Önnu Bolton? • í Gerbevilliers hafði hún van- izt ljóta, þægindasnauða hús- inu, sem veðbókarinn hafði átt. Hún hélt þar kyrru fyrir, vegna þess að það hentaði vel sem dvalarstaður fyrir hana, ungfrú Godwin og drenginn, og sem bækistöð fyrir hjálparstarfsemi hennar. Og þeim fór enda, henni og ungfrú Godwin, að bykja vænt um húsið, kunnu ekkert illa rósótta veggfóðrinu, og finnst notalegt að vera í litlu stofunni, þótt húsgögnin væru óþægileg. Þarna var orðið heim- ilislegt, með sauma eða hekludót á borði, barnaföt til þerris á þvottasnúrunum í garðinum niðri við ána, og í einhverju horninu vanalega staflar af súkkulaði og vindlingaströngum. Þar sem hamingjukennd ríkir verður alltaf heimilislegt, eins og húsið gerbreytist hennar vegna, og þær voru hamingju- samar þarna þrátt fyrir óþæg- indi og ýmsar áhyggjur og alla örðugleika hinna bágstöddu, sem þær voru að reyna að hjálpa. Það var farinn að verða mikill skortur á matvælum, jafn vel í smábæ úti á landi eins og Herbevilliers. Smjör var ófáan- legt, einnig rjómi, og nýmjólk af skornum skammti. Þetta skipti ekki máli hvað Önnu snerti, því að hún var enn ung og hraust, og þegar hún neytti máltíða í Maxim og Ritz voru þær ríkulegar sem að líkum læt- ur. Þjóðverjar sáu um það. Þótt ungfrú Godwin væri ánægð og hrifin yfir hlutverki sínu var hún greinilega farin að lýj- ast, hún var orðin holdgrennri í andliti og það bar meira á hve kinnbeinamikil hún var. Fagrar, fíngerðar hendur hennar, voru orðnar rauðar, þrútnar, æðaber- ar. Vanalega þegar hún kom heim úr flóttamannabúðunum, var hún ræðin og kát, en Anna sá glöggt hver áhrif það hafði á hana að vinna myrkranna á milli og fá ónógan svefn, og hún lét ekki blekkjast af kæti hennar og skrafi, — hún var orðin smeyk um, að þrek henn ar myndi hraðdvína, ef þessu færi fram, og að hún bugaðist að lokum. Hún fór að hugleiða i kyrrþei, að reyna að koma henni burt úr öllum erfiðleikum um og ömurleikanum — senda hana alla leið til Ameríku. Sjálf hafði hún aldrei þorað að minn ast á að fara heim áður fyrr, af ótta við að ungfrú Godwin mundi ekki vilja fara þangað með henni. Hve allt var breytt. Það var engu líkara en ungfrú Godwin væri komin í stað Mary Scanlon, hreingerningarkonunn ar, eins og hún væri orðin móð- ir hennar. Og Anna vissi ekki hvernig hún gæti farið að varð- andi drenginn, ef hún nyti ekki aðstoðar ungfrú Godwin. aDpiispp al|emann OQlyjanMP æHpODDSQIip algemann æDpHMP aDgiooQaufn algemann æDiæoDDap aDpoQöaimBi algemann sipmHip 1 aDptmaipp algemann aDpDDoaip d VÍSIR er eino síddegisblaðið kemur út alla virka daga allan ársins hring Askriftarsími 1-16-61 Skotvopn eru bönnuð á þessu svæði, Tarz an, en samt finnum við dýr eins og þessa antilópu dauð. Peter, varðmenn þínir myndu sjá alla veiðiflokka sem færu um með skotvopn. Já, þeir myndu gera það, oft hafa þeir gert vopn upptæk. Þá nota veiðiþjófarnir einhver brögð. Vegna þess að þetta dýr var skotið með byssu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.