Vísir - 14.01.1966, Page 16
Fðstudagur 14. janúar 1966.
SKÁKIN
Reykjavíkurmótið hélt áfram
í gœr og var þá tefld önnur
umferð. Fóru leikar þannig:
Wade og Björn Þorsteinsson
gerðu jafntefli eftir 28 leiki.
Kieninger og O’Kelly gerðu jafn
tefli eftir 30 leiki. Friðrik Ólafs
son vann Jón Hálfdánarson eft-
ir 21 leik. Böök vann Guðmund
Sigurjónsson eftir 42 leiki. Jafn
tefli varð hjá Guðmundi Pálma
syni og Jóni Kristinssyni eftir
27 leiki og einnig varð jafntefli
hjá Freysteini og Vasjúkof eftir
29 leiki.
í dag eiga keppendur frí.
/ Garðahreppi hófust framkvæmd-
ir við nær 100 íbúðir árið 1965
Nærri 100 nýjar íbúðabygg
ingar hófust í Garðahreppi á
nýliðnu ári, þar af um 60
íbúðir, sem hreppurinn hafði
ráðstafað lóðum undir, en að
öðru leyti á Arnarnesi.
Þá er gert ráð fyrir þvi,
að framkvæmdir við svipað-
an fjölda íbúða hefjist á þessu
ári. Þegar á s.l. hausti var
úthlutað 40 lóðum af hálfu
hreppsins til byggingar á
þessu ári og mun bætast við
þann fjölda áður en langt um
líður. Hátt á 2. hundrað um-
sóknir um lóðir í hreppnum
liggja nú fyrir.
Undanfarin ár hefur upp-
bygging Garðahrepps verið
jöfn og þétt. Mjög skipulega
er unnið að þeim málum af
hálfu sveitarstjórnarinnar,
hvert hverfið af öðru tekið til
skipulagningar og úthlutunar
og lóðum úthlutað að jafnaði
með u. þ. b. hálfs árs fyrir-
vara, enda er stefnt að því
að undirbúningsframkvæmd-
um hreppsins ljúki í hverju til
felli áður en íbúðabyggingar
hefjast.
Óhætt er að fuilyrða, að í
Garðahreppi sé unnið að upp
byggingarstarfinu til mikillar
fyrirmyndar, bæði hvað snert
ir skipulagingu verkefna og
framkvæmdir af hálfu hrepps
ins.
Um þessar mundir nálgast
fólksfjöldi í hreppnum að ná
2. þúsundinu, en fyrir 4 árum
var hann tæplega 1100
manns
Fallegar útgáfur
LOFTLEIÐA
Loftleiðir hafa nú gefið út
skinandi fallegan bækling í
mörgum litum, þar sem sagt er
frá hinu nýja hóteli félagsins,
sem opnar þann 1. maí í vor. í
hæklingnum eru margar teikn-
ingar af hótelinu, eins og það
TrÆ
SOKJAKIK. ICfc'fSftKO
3P*:« fROtt MAV Ht.
mun líta út fullbúið. Er bækl-
ingur þessj prentaður vestan
hafs, en honum mun verða dreift
um allan heim, til ferðaskrif-
stofa og flugfélaga.
Verð á herbergjum í hinu nýja
hóteli Loftleiða verður sem hér
segir: Eins manns herbergi
kostar á sólarhring frá kr. 344
til 903. Og venjulegt tveggja
manna herbergi kostar kr. 602.
Öll herbergin eru með baði og
eru herbergin alls 108 talsins.
I kjallara hótelsins verður
glæsileg sundlaug, gufubað-
stofur, snyrtistofur o.fl.
Þá hefur verið ákveðið nafn
gistihússins. Nefnist það Hótel
Loftleiðir.
Einnig ^hafa Loftleiðir gefið
út annan mjög fallegan kynn-
Framh. á bls. 6.
Flatimar í Garöahreppi þykja til fyrirmyndar um skipulagningu og undirbúning.
Lóðum uudir 214 íhúðir var
úthlutað íHafnarfirði 1965
Fyrir 4—5 árum var orðin nær
alger ördeyða í skipulagningu og út
hlutun lóða undlr íbúðarhús í
Dauðaslys á Ströndum
Forsíða bæklingsins
Norður í Strandasýslu fórst
maður af voðaskoti snemma í
gærmorgun.
Þessi maður var bóndinn í
Asparvík í Kaldrananeshreppi,
Andrés Sigurðsson, maður á
fimmtugsaldri og fjöskyldumað-
ur.
Andrés heitinn var að 'hand-
leika byssu og mun hafa verið
að búa sig á veiðar, er skot
hljóp úr byssunni og varð hon-
um að bana.
Kona Andrésar hringdi eftir
lækni til Hólmavíkur og í för
með honum slóst ennfremur
fuiltrúi sýslumanns Stranda-
manna.
Vísir átti í morgun tal við full
trúa sýslumanns, en hann
kvaðst á þessu stigi ekki geta
skýrt nánar frá atvikum. Hann
taldi hafa verið nokkrum erfið-
leikum bundið að komast norð
ur í Asparvík sökum fljúgandi
hálku á veginum, en þangað er
sem næst lJ/2 stundar akstur
frá Hólmavík.
Hafnarfirði. Hafði þá skapazt þar 1
svlpað ástand í þeitn málum og nú
ríkir í Kópavogi.
Nú nokkrum misserum síðar
hafa bæjaryfirvöld 1 Hafnarfirði
rétt sig úr kútnum og var lóðum
undir 214 íbúðir úthlutað á s.l. ári.
Sú tala ein segir þó ekki alla sög-
una, heldur samanburður á út-
hlutun 5 síðustu ára.
1961 var úthlutað lóðum í Hafn-
arfirði undir 13 íbúðir, 1962 undir
15 íbúðir, 1963 undir 84 íbúðir,
1964 undir 100 íbúðir og 1965 und-
ir 214 ibúðir, eins og fyrr greinir.
Til viðbótar má geta þess, að
langt er komið undirbúningi að
alveg nýju íbúðahverfi i Hafnar-
firði, sem gert er ráð fyrir að
taka til úthlutunar á árinu.
Lausar stöður í
samgöngumálum
Övenju margar stöður hafa verið
auglýstar lausar til umsóknar hjá
5,5 MILLJÓNIR KR0NA FÓRU
í ÁFENGI Á ÞORLÁKSMESSU
Hver Islendingur eyddi oð meðaltali 4000 krónum i vin og tóbak á
árinu, sem jafngildir 20,000 krónum á fimm manna fjölskyldu
Áfengis- og tóbaksverzlun rík
isins seidi áfengi og tóbak á ár-
inu 1965 fyrir um 726 miilj. kr.
Árið 1964 seldist áfengi og tó-
bak fyrir 548 millj. kr. og nein
ur þvf aukningin frá fyrra ári
30% ef ekki eru reiknaðar með
verðhækkanir sem urðu á árinu
1965.
Tóbak var hækkað sl. haust
um 12%. Var áfengi sömuleiðis
hækkað á árinu tvisvar sinnum
í janúar og í október. Mesti
söludagur ársins var Þorláks-
messa, en þá var áfengi selt
fyrir 5.5 millj. kr.
Ef meðalneyzla Islendinga á
áfengi og tóbaki er reiknuð eft
ir þessum tölum kemur það í
ljós, að hver Islendingur hefur
neytt áfengis og tóbaks fyrir
rúmlega 4000 kr. á sl. ári. Er
þá ótalið það áfengi og tóbak
sem kemur inn i landið á ann
an hátt, með ferðafólki og smygl
að.
hinu opinbera um þessi áramót.
I síðasta Lögbirtingi er skrá yfir
allmargar stöður sem Samgöngu-
máiaráðuneytið auglýsir og eru þær
þessar:
Staða deildarstjóra við jarðeðlis-
fræðideild Veðurstofu íslands.
Staða aðstoðarmanns við Veður-
stofuna á Keflavíkurflugvelli.
Staða ritara við Veðurstofuna í
Reykjavík.
Staða aðstoðarmanns í veðurfars
deild Veðurstofunnar.
Staða tæknifræðings hjá Vega-
gerð rfkisins.
Staða ritara hjá Skipaskoðun rík
isins.
Staða skoðunarmanns hjá Ör-
yggiseftirliti ríkisins.
Staða verkfræðings hjá Vita- og
hafnarmálaskrifstofunni.
Laun samkvæmt hinu almenna
launakerfi opinberra starfsmanna
Umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf sendist
samgöngumálaráðuneytinu fyrir 31.
janúar 1966.