Vísir - 18.01.1966, Síða 5
VlSIR . Þriðjudagur 18. janúar 1966,
5
útlönd. í noi 'íZVLn- ' utl.önd £ in- orr.nn útlönd í iT.crgun : útlö nd í morgun
AÐEINS OPINBERAR TIL-
KYNNINGAR FRÁ NIGERIU
Erlendir fréttaritarar í Nigeriu i berum heimildum.
geta eins og sakir standa engar j Hinn nýi stjórnarleiðtogi, Ironsi
fréttir sent nema samkvæmt opin- 1 hershöfðingi skýrði frá því í gær
<**
akkar jafnóbilgjarn-
ir og áður í EBE
Couvé de Murville, utanríkis-
ráðherra Frakklands tók harð-
ari afstöðu en búizt hafði verið
við á fundi utanríkisráðherra
EBE er hófst í Luxemborg í gær.
Hann kvað einfaldan meirihluta
ekki eiga að ráða, ef eitthvert
sammarkaðslandanna teldi hags
munum sínum teflt í hættu. —
Frakkland viil, að krafan um
að vestur-þýzki prófessorinn
Hallstein víki sem formaður
EBE-ráðsins og annar taki við
verði rædd um leið og tillagan
um samsteypu EBE, Kola- og
stálsambandsins og Euratom. —
Luns utanríkisráðherra Hollands
kvaðst ekki geta fallizt á neitt,
sem rýrði vald ráðsins. Hann
kvað ríkisstjóm sína ánægða
með störf ráðsins.
í framhaldsfrétt segir, að það
sé skoðun allra EBE-ríkjanna
nema Frakklands, að halda beri
því fyrirkomulagi, að meirihluti
atkvæða skuli gilda, eins og tek
ið sé fram í Rómarsáttmálanum
—' og að fara að vilja Frakka
væri sama sem að innleiða neit-
unarvald í EBE.
MYRTIR I BYLTINGUNNI
Myndirnar eru af ráðherrunum, sem drepnir vom í byltingunni:
Akintols, forsætisráðherra Vestur-Nígeríu, og Sir Ahmadu Bello
forsætisráðherra Norður-Nígeríu.
á fundi með fréttamönnum, að,
byltingarmenn í norðurhluta lands-
ins hefðu boðið hollustu .sína, og
boðið verið þegið. Ironsi staðfesti,
að leitin að Balewa hefði enn eng-
an árangur borið.
Hann sagðist ekki búast við að
verða lengur við völd en þangað
til gengi í gildi hin nýja stjómar-
skrá, sem verið væri að undirbúa.
Forseti Nigeriu, sem áður til-
kynnti, að hann ætlaði heim við
fyrsta tækifæri, kvaðst nú ekki
fara nema í samræmi við þá, sem
fara með völdin í landinu, — ella
gæti heimkoma hans orðið til
þess að valda erfiðleikum.
BALIWA INN ÓFUNDSiN
Myndin er af þeim Harold Wilson og Sir Abubakar Tafavva Balewn
forsætisráðherra sambandsstjórnar Nígeríu. Hann er enn ófundinn
en honum og fjármálaráðherranum var rænt í upphafi býltingar.
heims-
horna
milli
► Þeir, sem gerst fylgjast með
stjómmálalegri þróun mála í
Moskvu, líta svo á, að árangur
sá, sem Sjelepin náði í ferðinni
til Hanoi, og Brezhnev I Mong-
ólíu, sé svo mikilvægur, að Iíta
verði á hann sem ósigur fyrir
Kínverska alþýðulýðveidið. -
Hiiin nýi sáttmáli milli Sovét-
samveldisins og Mongólíu er tal-
inn stjómmálalega og landvarna
Iega mikilvægur. - Landvarna-
ráðherra Sovétsamveldisins,
Malinovski marskálkur, fór með
Brezhnev til Ulan Bator höfuð-
borgar Mongólíu.
► Deilurnar út af ráninu á
Mehdi Ben Barka, róttækum
marokkönskum leiðtoga, hafa
aftur blossað upp í frönskum
stjómmálum. Kommúnistar, jafn
aðarmenn og miðflokkamenn
hafa áður haldið uppi árásum á
yfirvöldin fyrir meðferð þeirra
á málinu.
í* Lögreglan í Halden i Noregi
ætlar sér ekki að þola lengur
neina uppivöðslu sænskra „ragg
ara“, en slæpingjalýður þessi
hefur valdið þar miklum erfið-
Ieikum. Þrátt fyrir aðvaranir
komu allmargir þangað um sein-
ustu helgi, en lögreglan rak þá
burt úr bænum.
► Heimsmeistarinn í hnefaleik
hefur ráðið Joe Louis sem þjálf-
ara sinn.
► Frá mánudegi í næstu viku
að telja verður dregið úr inn-
flutningi bifreiða i Finnlandi frá
vestrænum löndum svo að inn-
flutningurinn á fyrra misserl
þess árs mun verða aðeins %
hlutar, miðað við misseris
innflutning á þessu ári. í tilkynn
ingunni segir, að ákvörðunin
hafi verið gerð til tryggingar
greiðshijöfnuði. Sparas^ mun
gjaldeyrir, svo nemur 50 miilj.
marka, en tekjur ríkisins af
tolhim og levfum rriunu minnka
■<•11 15 milh'ónir
Uppdráttur, sem sýnir legu Nígeríu. íbúatala landsins er 56 millj.
Áfgreiðslumaður
getur fengið atvinnu við sérverzlun, sem
verzlar með vörur fyrir pilta og karlmenn.
Kaup eftir samkomulagi. Uppl. um aldur og
hvar unnið áður sendist augld. Vísis merkt
„Gott starf“.
T7TT
TínGiífirrr^
Fokhelt einbýlishús
mjög glæsilegt, 153 ferm. að flatarmáli, til
sölu af sérstökum ástæðum, á hornlóð við
Aratún (í fremstu röð). Mjög fallegt útsýni,
sem aldrei verður skyggt á.
STEINN JÓNSSON HDL.
Lögfræðiskrifstofa — Fasteignasala, Kirkjuhvoli
Sírnar 14951 og 19090.
Stúlkur — atvinna
Stúlkur vantar til verksmiðjuvinnu. Uppl. í
síma 36945.
Stýrimann og háseta
vantar á netabát frá Keflavík.
Uppl. í síma 92—1579 92—2164 og 92—1815.
BLÝ ÓSKAST
Blý óskast. Hátt verð.
JÓN GÍSLASON S/F
Hafnarfirði . Sími 50165
HEILBRIGÐIR FÆTUR
eru undirstaða vellíðunar. Látið þýzku BIRK-
ENSTOCIÍS skóinnleggin lækna fætur yðar.
Móttökutimi föstudaga og laugardaga kl. 2—7
e. b. — Aðra daga eftlr umtali. Simi 20158.
SKO-INNLEGGSSTOFAN Kaplaskjóli 5