Vísir - 18.01.1966, Blaðsíða 7

Vísir - 18.01.1966, Blaðsíða 7
V1SIR . Þriðjudagur 18. janúar 1966. HLJÓMTÖNN Dr. Ash tannlæknir og Scott verkfi-æðingur með hljómtönnina, sem þeir framleiddu. Hljómtönn — því í henni eru sex útvarpstæki — hefur verið tekin £ notkun í Bandaríkjunum við tannsjókdómarannsóknir. Að utan lítur þessi gervitönn út eins og venjulegur jaxl en að innan ber hún vitni um listfengi nútíma rafeindatækni. í þröngu holrúmi tannarinnar er komið fyrir 28 rafeindatækjum og tveim rafhlöðum. Sé tönnin sett £ sjúkling, get ur hann tuggið með henni, en merkjasendingar frá tönninni veita nákvæmar upplýsingar um þrýsting og hvernig á hana reyn ir. Við þessum upplýsingum taka siðan og skrá fjarritandi mælitæki £ rannsóknarstofunni. Vegna þess að útsendingar- svið rafeindatannarinnar er tak markað, verða allar tilraunir með hana að fara fram f rann sóknarstofu. S En nú er £ smfðum magnari Itil að hafa f vasa, og beri sjúkl ingur hann á sér, geta merkin frá tönninni heyrzt i nokkurra milna fjarlægð. Hugsanlegt er, að sjúklingur gæti gengið til verka á venjulegan hátt, meðan tannlæknirinn hlustar á merkin frá tönninni i munni sjúklings- ins. Dr. M. Ash. prófessor i tann lækningum, og Ian S. Scott, verkfræðingur við tannlækninga deild Michiganháskólans í Ann Arbor í Michigan, hafa unnið að þessari afar flóknu tann- smíði. Fyrri tilraunir til rannsókna á áreynslu, sem tönn verður fyrir, hafa ekki tekizt sökum þess að mælitæki, sem komið hefur ver ið fyrir £ munninum, hafa hindr að, að samanbit tannanna verði eðlilegt. Jafnvel smásnerting á andlitið getur verið nægileg til að breyta samstillingu vöðv- anna. Eðlilegar tennur hafa varn arkerfi, sem vinnur gegn tann skemmdum með því að stilla hreyfingar kjálkavöðvanna. Búizt er við, að þessi nýja rafeindatönn muni auka skilning manna á vamarkerfi náttúrunn ar og sambandi þess við starf vöðvanna. Einnig er búizt við, að tönn in muni hjálpa rannsakendum til að öðlast þekkingu á tann holdssjúkdómum og grundvall- arlögmálum tauga og vöðvástarf semi, sem stjórnar stöðu og hreyfingum kjálkanna. Ennfrem ur getur tönnin komið að notum fyrir tannlækna, þegar þeir þarfnast nákvæmra upplýsinga vegna endurnýjunar skemmdra tanna. Srníði rafeindatannarinnar og rannsóknir með henni hafa verið gerðar á vegum Tannsjúkdóma- rannsóknarstofnunar Bandaríkj- anna. , Höfðingleg minningargjöf um Guttorm Pálsson, skógarvörð TC’yrir skömmu afhentu börn Gutt orms Pálssonar, fyrrum skógar varðar á Hallormsstað, fimmtíu þúsund króna fjárhæð að gjöf til hinnar nýju skógtilraunastöðvar Skógræktar ríkisins að Mógilsá. Gjöfinni skal verja til þess að koma upp bókasafni við tifrauna stöðina á Mógilsá, sem tekur til starfa innan skathms. Vfldu börn Guttorms minnast föður síns og starfa hans á þennan smekklega og gagnlega hátt. Guttormur Pálsson var skógar- vörður á Hallormsstað í samfleytt 46 ár. Hann tók við starfi árið 1909 og gegndi þvi til 1955. Guttormur var borinn og barnfæddur á Hall- ormsstað. Faðir hans var Páll Vig fússon, stúdent, ritstjóri og bóndi á1 Hallormsstað ,en móðir hans var Elísabet Sigurðardóttir prests Gunn arssonar á Hallormsstað. Páll and aðist fyrir aldur fram 1885, þegar Guttormur var á fyrsta ári. Hann ólst upp með móður sinni og syst ur á Hallormsstað, og þegar leitað var eftir ungum mönnum til skóg arvarðamáms árið 1905 var Gutt ormur einn af þeim, sem valinn var til námsins. Var þetta í sama Heimdallur — Framh. af bls. 4: salarstærð til æfinga og minni- háttar móta. Borgarstjórn mun hafa á prjónunum mjög góða lausn, sem- nú þegar mun að vísu vera farið að vinna að. Iþrótta- salir skólanna verða í fullri lög- legri stærð og þar munu íþrótta- félögin eiga að fá aðstöðu á kvöldin og um helgar. Þannig verða hin brýnu húsnæðisvand- ræði leyst, fyrir utan það, að íþróttahöllin verður dýr í rekstri og því hagkvæmara á allan hátt að hafa slik minni hús fyrir minniháttar starfsemi. - Ég vil aðeins segja að lok- um, að tilkoma nýju íþróttahall- arinnar er stórt stökk til fram- fara íþróttahreyfingunni, og við vonum að samstarfið við þá að- ilja aðra, sem að húsinu standa, verði sem ákjósanlegast. mund og Hallormsstaðaskógur var friðaður en Elísabet móðir hans lét skógmn af hendi til friðunarinnar, því að hún hafði þá ábúðarrétt á jörðinni, og mun þá strax hafa ver ið gert ráð fyrir að, Guttormur settist þar að sfðár meir. Þegar Guttormur Pálsson hafði lokið 3 ára verklegu og bóklegu skógarvarðamámi eftir dvöl á lýð háskólanum í Askov, settist hann að á Hallormsstað og tók þar við búsforráðum. Hann kvæntist Sigríði Guttorms dóttur frá Stöð skömmu eftir heim komu sína. Þau áttu 4 börn, Berg- ljótu, kennara í Reykjavík, Pál skóg arverkstjóra á Hallormsstað, Sigurð bónda á Hallormsstað og Þórhall kennara í Reykjavík. Sigríður Gutt ormsdóttir lézt árið 1930. Síðari kona Guttorms var Guðrún Páls- dóttir frá Þykkvabæ í Landbroti. Þau eignuðust 5 börn, Margrétu kennara i Reykjavík, Gunnar, jám smið í Reykjavík, Hjörleif líffr. og kennara í Neskaupsstað, Loft sagn fræðing og kennara í Reykjavík og , Elisabetu, stúdent í Reykjavík. Segja má með nokkrum sanni, að Guttormur hafi verið samgróinn skóginum á Hallormsstað. Þar hafði hann lifað bernsku- og æskuár sín, ; og þegar honum er falin umsjón | skógarins var hann nýlega friðaður. ! Hann átti því láni að fagna að sjá \ kræklótt kjarr breytast í fallegan \ birkiskóg og stór rjóður, móa og ! mela skrýðast skógi á ný. Jafn- j framt því uxu upp margar tegundir erlendra barrtrjáa, er sumar hverj ar hafa unnið sér þegnrétt i gróður riki Islands, undir handleiðslu Gutt orms. Hallormsstaðaskógur ér nú orðinn einhver dýrmætasti staður á öllu Islandi. Allur hugur Guttorms Pálssonar var bundinn skóginum á Hallorms stað og skógræktinni i landinu. Af reynslu sinni sá hann hilla undir betra og fegurra land í framtíð- inni, og hafði hann oft orð á því að honum þætti íslendingar seinir til skilnings. Fyrir því var það einstaklega vel til fundið af börnum hans að minn ast hans á þennan hátt. Tilrauna stöðin á Mógilsá á að verða sá hom steinn, sem skógrækt á íslandi hlýt ur að byggja á £ framtíðinni. Veltur því á öllu, að undirstaðan sé traust. Með sli'kri gjöf og þessari er stefnt að því að yanda undirstöðuna. Fyrir hönd Skögræktar ríkisins vil ég færa börnum Guttorms Páls sonar hjartanlegar þakkir fyrir þessa ágætu gjöf og þann góða hug, sem að baki liggur. Reykjavík á þrettándanum 1966. Hákon Bjarnason. Aukinn — Framh. af bls 9 bilið milli góðs ökumanns og tjónavalds með hækkuðum bón- us til gætinna ökumanna og stig hækkandi iðgjöldum til tjóna- valda Var því þegar hinn 1. maí 1965 þeim tryggingartökum Ábyrgðar, sem tjónlausir höfðu verið í fjögur ár, veittur 50% bónus af ábyrgðartryggartök- gjaldi bifreiða þeirra og auk þess 5% viðbótar bónus \ af kaskótryggingum til allra félags bundinna bindindismanna. Jáfn framt hefur öllum tryggingartök um Ábyrgðar verið send tilkynn ing þess efnis, að tjónvaldar megi vænta hækkaðs iðgjalds í hlutfalli við tjónatiðni þeirra iiihn 1. maí 1966. Þá tóku einnig gildi hinn 1. jánúar s.l. strangari reglur um nýtryggingar bifreiða sem fela m.a, í sérhærriiðgjöldtilumsækj enda, sem yngri eru en 23 ára og ekki hafa haft ökuréttindi í tvö ár, eða verið félagsbundnir bindindismenn í tvö ár. En eins og kunnugt er tryggir Ábyrgð aðeins bindindismenn og býður þess'vegna lægri iðgjöld heldur en almennt gerist. Nú eru í athugun frekari breyt ingar á bónuskerfi félagsins og munu þær niðurstöður verða kunngjörðar mjög bráðlega“. AusubúnaBur á sér vel viB björgunarstörf Þyrlur eru fjölvirkustu tæki þessarar aldar til notkunar við björgunarstörf einkum á hafi úti eða illfærum landssvæðum. .En oft verður þyrla að halda sér háskalega lágt yfir mann- eskju eða öðru sem bjarga skal sérstaklega ef renna þarf niður streng til að draga einhvern upp. í slíkum tilfellum verður venjulega einhver af áhöfn þyrlunnar að siga i strengnum og fésta hann við þann eða það sem bjarga á. Einnig kemur það til, að þyrl an verður að vera beint fyrir ofan það. sem bjarga skal, en þar sem þyrlustjórinn getur ekki séð nákvæmlega þann„ sem bjarga á, getur reynzt erf itt að halda þyrlunni á réttum stað I loftinu. Nú hefur verið ráðin bót á þessum ágöllum með því að setja framan á þyrluna „bómu“ með áfestri „ausu“ úr neti, sem ir það, sem bjarga skal, og því síðan lyft upp úr. Þar sem björgunarbúnaðurinn er framan á þyrlunni, getur flug stjórinn allan tímann séð það, hægt er að nota við björgunar- störf á sjó eða vatni. Þessari „ausu“ sem gerð var í Bandaríkjunum, er sökkt und sem verið er að bjarga og á þvi hægara með að stýra þyrlunni á réttan stað. Bómunni með „ausunni" er hægt að sveifla kemur afturfyrir að hliðardyrum þyrl unnar svo að ekki er þörf fyrir neinn af áhöfninni að fara úr þyrlunni. Bóman er gerð úr alumínröri en „ausan“ úr plasthúðuðu vír- neti, sem ekki ryðgar af salt- vatni. þessi björgunarbúnaður var búinn til í Houston í Texas £ rannsóknarstöð Geimrannsóknar ráðs Bandaríkjanna. Upphaflega var þessi búnaður ætlaður til að bjarga geimförum, er geimfar þeirra var lent í sjó, en svo getur farið, að þessi búnaður komi að jafnmiklu gagni við önnur björgunarstörf. Allur björgunarbúnaðurinn vegur tæp 80 kg. og tveir menn geta komið honum fyrir á þyrlu á 5-10 mínútum. Og jafnauðvelt er að losa hann af þyrlunni. Um leið og bómunni er sveiflað aftur fyrir er búnaðurinn ekki í vegi fyrir eðlilegri lendingu þyrlunnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.