Vísir - 18.01.1966, Síða 11
PÍSIR . Þriðjudagur 18. janúar 1966.
11
RITSTJÓRI: JON BIRGIR PETURSSON
LandsliS Pólhnds
í handknattleik
0 Pólverjar hafa aldrei Verið taldir með beztu hand-
knattleiksþjóðunum, en samt hefur landsliðum frá
Wislu-bökkum oft tekizt að ná framúrskarandi
góðum árangri. Á HM 1958 urðu Pólverjar fimmtu,
enda þótt sérfræðingar teldu liðið ekki í sérflokki.
Það eitt vakti mikla athygli. Og þrem árum síðar
unnu Pólverjar Tékka, sem einmitt þá voru með-
al þriggja beztu þjóða í heimi. Á HM 1964 voru
Pólverjar þó slegnir út af Rúmenum, Ungverjum
og Rússum.
Framfarlmar eru án efa að
þakka þjálfaranum Tadeusz
Bregula og hinni miklu vinnu
hans. Ýkjulaust má segja að
þessi ungi handknattleiksþjálf-
ari sé höfundur pólsks kerfis
í handknattleik innanhúss.
Fyrsta árið eftir lokapróf frá
íþróttaháskóla 1954 sá Bregula
um unglingalandsliðið. Lands-
liðið, sem stóð sig svo vel 1958
á HM var að mestu nemendur
hans úr því liði.
Því miður varð Bregula að
hætta starfi alllangan tíma
vegna sjúkdóms og það kom
brátt í ljós að pólskur hand-
knattleikur dalaði við þetta og
hafði ekki lengur neina þýðingu
i alþjóðlegum handknattleik.
Eftir tvö töp gegn Ungverjum
og Rússum í HM 1961 var þátt-
töku Pólverja þar með Iokið.
Síðustu tvö árin hefur Breg-
ula aftur verið þjálfari. Vinna
hans bar ávöxt þegar i sumar-
leikjunum í Sopot. Þar mátti sjá
fjöldamargar pólskar leikflaekj- \
ur og afbrigði gegn liðum
Rússa, Rúmena og Ungverja.
til að koma á óvart í handknatt
leiksíþróttinni. Að vísu töpuðu
þeir i Danmörku í fyrsta lelk
sínum í HM, en í fyrradag
sýndu þeir hvers þeir eru megn
ugir gegn íslenzka landsliðinu
og unnu mun stærri sigur, en
nokkurn hafði órað fyrir. Það
er greinilegt að Danir mega
vara sig þegar þeir fara til Pól-
lands síðar í þessum mánuði til
að leika við Pólverjana.
Pólverjar og A..Evrópuþjóð-
irnar yfirleitt eru sagðar leika
þann leik að steypa saman
landsliðinu og sterkasta fé-
lagsliðinu, en vegna þessa
varð mikið fjaðrafok á dögun-
um, þegar tveir sterkir Ieik-
menr, voru skyndilega og fyrir-
varalaust búnir að skipta um
félag. Þetta voru þeir Choiewa
og Czichy sem voru félagar í
Pogron þar til allt i einu
að þeir birtust með Siask
gegn Dönunum. Liðið sem Ar-
hus KFUM mætti í Evrópubik-
arkeppninni var í rauninni lands
lið Pólverja. Þetta þjónar tví-
þættum tiigangi, landsliðið fær
íslenzkir skíðamenn
til keppni í Noregi
Otto Rieder, mikil hjálparhella íslenzkra skíðamaniia, sést hér
ásamt frú Ellen Sighvatsson, formanni Skíðaráðs Reykjavíkur,
er hann kom til Reykjavíkur í eina af heimsóknum sínum.
íslenzkir skíðamenn
við æfingar í
Austurríki
Eins og undanfarin þrjú ár hefur
Skíðaráðið í Bergen boðið reyk-
vískum skíðamönnum að taka þátt
í bæjakeppni Reykjavík—Glasgow
—Bergen. Keppnin í ár verður
haldin í Voss dagana 19. og 20.
marz n.k. Reykjavík er boðið að
senda sex manna sveit til keppni.
Mótið 1965 var einnig haldið í
Voss og reykvfskir skíðamenn,
sem þar voru, rómuðu mjög brekk-
urnár f Bavallen. Flugvél frá Flug
félagi íslands mun flytja skíða-
fólkið til Bergen, en þaðan er stutt
ferðalag í. lest til keppnisstaðar. ■
Eins og venjulega mun verða farið I
nokkrum dögum fyrir mótsdag,
svo keppendum gefist tækifæri til
æfinga á mótsstað. Ferðaskrifstof-
an Lönd & leiðir (Steinn Lárusson)
veitir allar nánari upplýsingar um
ferðirnar til og frá Noregi svo og
um uppihald f Voss.
BREGULA — maðurinn bak
við pólska landsliðið.
tækifæri til að æfa saman og
félagsliðið í Evrópubikarkeppni
verður sterkara, — en umdeilt
er það hvort hér sé löglega að
farið og hefur danska félagið
kært Pólverja vegna þessa.
Meðalaldur pólsku handknatt-
leiksmnnnanna er 23 ára eða
þar um bil og aðeins fáir þeirra
hafa leikið 10 landsleiki eða
meira. Meðalhæð leikmannanna
er 1.85 m.
Skíðaráð Reykjavíkur hafði
snemmá 'á árinu 1965 samband við
Islandsvininn Otto Rieder f Inns-
bruck um möguleika á að koma
skíðamönnum til æfinga í Austur-
rfki í vetur. Fyrir milligöngu
Rieders fóru eftirtaldir skfðamenn
til Austurríkis f nóvember síðastl.
og æfðu þar meðal annars með
austurríska unglingalandsliðinu:
Guðrún Björnsdóttir, Rvk, Hrafn-
hildur Helgadóttir, Rvk, Georg
Guðjónsson, Rvk, Hinrik Her-'
mannsson, Rvk, Leifur Gíslason,
Rvk, Sigurðpr Einarsson, Rvk, Ár-
dfs Þórðardóttir, Sigluf. og Ivar
Sigmundsson, Akureyri. Farið var
flugleiðis frá Reykjavík og dvalið
f Innsbruk í 4 daga. Þaðan var
haldið til Enzingerboden, sem er
smábær fyrir austan Innsbruck,
og var dvalið þar í 16 dága. Snjór
var þar fremur lítill. Þaðan var
haldið til Mutters, sem er þorp
rétt hjá Innsbruck. Þar var dvalið
við æfingar í 5 daga við mjög góð
æfingaskilyrði. Frá Mutters var
haldið til St. Anton, en það er
, mjög þekktur skíðastaður í Aust-
urríki, og var þar nú kominn næg-
ur snjór. I St. Anton var æft með
; austurrísku félagsliði, en með
því var mjög góður þjálfari, sem
íslendingarnir nutu góðs af. Farið
var heim til Islands 12. des., nema
ívar Sigmundsson sem er ennþá
við æfingar erlendis. Æfingaferð
þessi hefur í alla staði verið mjög
gagnleg og lærdómsrík fyrir þessa
8 skíðamenn og eru þeir íslands-
vininum Otto Rieder mjög þakk-
látir fyrir aðstoðina.
ALLT AÐ
VINNA
Pólland og Island
aftur saman 'i kvöld
I kvöld kl. 20.15 fer fram
seinni landsleikur íslands og
Póllands f körfuknattleik, en
fyrri leikurinn fór svo að Pól-
verjar skoruðu 91 stig gegn 44.
íslenzka liðið lék að vísu tals-
vert undir getu, en f kvöld á
hið lítt leikreynda lið íslands
(2. landsleikurinn hér heima)
allt að vinna, en engu að tapa.
Það er ástæða til að hvetja
fólk til að koma f Laugardalinn
í kvöld. Með því að gefa fs-
lenzka liðinu kröftug hróp, er
eins og liðið fái byr í seglin
Það er hagræðið við að leika á
heimavelli meðal annars.
I leiknum á sunnudaginn bar
lítið á áhorfendum, sem stein-
þögðu í stað þess að hvetja sitt
lið sem mest þeir máttu.
Á myndinni eru pólska og íslenzka Iandsliðið þegar þjóðsöngvar landanna voru leiknir fyrir leikinn á sunnudaginn.