Vísir - 22.02.1966, Blaðsíða 1

Vísir - 22.02.1966, Blaðsíða 1
VISIR Dælt úr Jökulfelli FuHnaðarvíðgerð erlendis / dag 56. úrg. - ÞrKgu*^r 22. - 44. tbl. — Það standa vonir tll aS faeegt verði að dæla úr Jökní- feffinu f dag og framkvæma ð þvf bráðabirgðaviðgerð svo að hægt verði að leggja af stað til Reykjavfknr f kvöld, sagði Hjört ur Hjartar forstjóri skipadeild- ar Sfe f viðtaR við Vfsi í morg- im. — Jðkulfellið kom inn til Vest- mannaeyja í gær og f gærkvöldi var byrjað að dæla úr skipinu en dælumar, sem voru fyrir hendi í Vestmannaeyjum reyndust ekki nægilega kraftmikiar svo að f gær- kvöldi var send dæla úr Reykja- vík með Herjólfi. Var Herjölfur væntanlegur á hádegi í dag til Vestmannaeyja og ef allt gengur samkvæmt áætlun ætti að vera Framh. á bls. 6. Nær 900milljóa króna hagnaður aforkusöíu til áUræðslu Orkusala til álbræðslu myndi greiða nær tvo þriðju hluta stofnkostnaðar Búrfellsvirkjunar Því hefur verið haldið fram að undanfömu í blöðum stjórnarandstöðunnar að sára iítill hagur væri af því fyrir landsvirkjun við Búrfell að selja álverksmiðju raf- orku. Væri sanni nær að reisa orkuverið eingöngu með al- menningsnotkun í huga. Þessa fullyrðingar eru mjög fjarri lagi. — Fram- leiðslukostnaður raforku frá Búrfellsvirkjun verður um 860 millj. kr. lægri ef virkjun in selur raforku til álbræðslu, en ella væri. Er þá reiknað með 25 ára tímabili. Þetta þýðir með öðrum orðum að það er yfir 800 millj. kr. hag- stæðara fyrir þjóðina að seljá raforku frá Búrfellsvirkjun til álbræðslu en ef um enga slíka raforkusölu væri að ræða. Liggur þetta Ijóst fyrir nú eftir að föstum tilb. hefir ver ið skilað í byggingu raforku- versins. Nemur þessi hagnaður nær tveimur þriðju hlutum af byggingarkostnaði Búrfells- virkjunar, eins og fyrr hefur verið bent á. Orkusölusamn- ingur til álbræðslu greiðir nær tvo þriðju hluta af stofn kostnaðinum við virkjunina. Vitanl. má nota þennan hagn að á margvísl. hátt m.a. til að lækka raforkuverðið i land- inu, eða hraða byggingu nýrra orkuvera, t. d. Dettifoss virkjunar. Hér hefur verið á þessar staðreyndir drepið vegna þeirra sfendurteknu fullyrð* inga, að jafnhagstætt væri fyrir þjóðina að byggja ein- ungis raforkuver við Búrfell til eigin nota. Sést af framan sögðu að svo er ekki. Á næstu 25 árum myndi raf- orkukostnaðurinn frá verinu verða allt að 25% hærri, ef Búrfellsvirkjunin væri ekki byggð með það fyrir augum að seija áibræðslu raforku. Myndin er tekin f þann mund, er slökkviliðið kom að skúr Véltækni alelda. Börn kveiktu í á tveim stöðum og ollu stórtjóm íkveikjuhneigð barna olli í gær verulegu verðmætatjóni á tveim stöðum í Reykjavík og nemur tjónið á öðrum staðnum a. m. k. mörgum tug um ef ekki hundruðum þús- unda króna. Á hinum staðn- um var einnig um mikið tjón að ræða. Fyrri íkveikjan varð rétt fyrir kl. 2 e. h. i gær í vinnuskúr sem verktakafyrirtækið Vél- tækni h.f. átti við Skipholt. í skúmum voru gevmdar ýmsar vörur og tæki, þ. a. m. birgðir af einangrunarplasti, tjöru- pappa, ýmiss konar tæki og út- búnaður sem fyrirtækið þurfti til framkvæmda sinna og loks Ingólfur Jónsson ávarpar búnaðarþing. Tilfærsla í landbúnaði nauðsynleg: FÆKKA ÞYRFTIKÚM UM 5 ÞÚS. ENFJÖLGA SAUÐFÉUM100 ÞÚS. Úr ræðu Ingólfs Jónssonar við setningu Búnaðarþings s morgun Búnaðarþing var sett I morgun af formanni Búnaðar félagsins, Þorsteini Sigurðs- syni. Þingið kom saman í Bændahöllinni og voru' þar mættir fulltrúar hvaðanæva að af Iandinu, og ýmsir gest Ingólfur Jónsson landbún- aðarráðherra flutti ræðu við setningu þingsins. Ræddi hann m. a. um þær miklu framfarir sem hefðu orðið í landbúnaðinum í seinni tið. Ræktunin hefði aukizt, vél- væðing og tækni orðið meiri en menn létu sér detta í hug fyrir tiltölulega fáum árum. En á s. 1. ári nam ræktunin um 7 þúsund hekturum í tún- rækt og garðrækt samaniagt. Hann skýrði frá þvi að Stofn- lánadeild landbúnaðarins hefði veitt 1413 lán að upphæð 128 millj. kr. Á árinu voru keyptar t-ramr. ols 6 ýmis vinnufatnaður verka- manna. Verkstjórinn hjá Véltækni h.f. sem þama ræður ríkjum og stjómar hitaveitufram- kvæmdum, sem fyrirtækið hef- ur tekið að sér á Skipholtinu, skýrði Vísi frá þvl að rétt áður en kveikt var í skúmum, hafi krakkar verið þar að leik. Hann sagði að þetta væri daglegur viðburður og að það hafi aldrei hvarflað að sér að stugga við þeim. En eftir hádegið i gær var því veitt athygli að þeir höfðu eldspýtustokk undir höndum og áður en varði kast- aði 5 ára drengur logandi eld- spýtu inn í skúrinn. Eldurinn læsti sig á sama augnabliki í plastefni, sem er ailt að því eins eldfimt og benzín og skúr- inn stóð í björtu báli. Þegar slökkviliðið kom á vettvang fáum mínútum síðar var skúrinn og allt sem í hon- um var alelda, og fékk það ekki við neitt ráðið. Skúrinn stendur að nafninu tii uppi en er eyðilagður, svo og því sem næst allt sem þar var geymt, en alls nema þessi verðmæti tugum ef ekki hundruðum þús. króna. Skömmu eftir kl. 4 e. h. í gær var slökkviliðið kvatt vestur að Hringbraut 121 en þar logaði glatt í timburhlaða sem geymd- ur var milli tveggja húsa og tilheyrði húsgagnafvrirtækinu Skeifunni sem bar rekur bólst- urverkstæði. Eitthvað brann af kössum sem var hjá timbur- hlaðanum. Eldurinn var fljótt kæfður, og ekki er vitað um brunatjón. Þama er talið að krakkar hafi einnig verið að verki, í gærkveldi um tíuleytið, var slökkviliðið enn kallað út, þá að Borgarsjúkrahúsinu, en þar hafði kviknað í timburhlera yfir lyftuopi niður í kjaliara. Tjón varð lítið sem ekkert. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.