Vísir - 22.02.1966, Side 2

Vísir - 22.02.1966, Side 2
Allir fylgdust með ba^a hennar JJún var vinsælasta sjónvarps A stjama Bandaríkjanna. Þrjú kvöld í viku sátu milljónir Bandarikjamanna heima fyrir framan sjónvarpið og horfðu á hana f eftirlætisdagskrárefninu „Peyton Place.“ — Dorothy Mal one ijóshærð, bláeygð, ljómandi falleg og full iífsgleði. Um kvöldið þann 24. septemb er sat fólk eins og vanalega fyr ir framan sjónvarpið og beið eft ir „Peyton Place“ Allt í einu var útsendingunni hætt. Þulur- inn las upp tilkynningu: Ung- frú Dorothy Malone er mjög veik. Á þessu augnabliki er ver ið að skera hana upp í Sedrus- viðum Líbanon — frægasta sjúkrahúsi Beverly Hills kvik- myndastjömuhverfinu í Holly- wood. Hún hefur misst mikið blóð og blóðbirgðir sjúkrahúss- ins nægja ekki. Nú biðja lækn amir alla á Los Angeles-svæð- inn að gefa blóð undir ems — blóð f blóðflokki B jákvæðum. Þetta var neyðarkall. Aðeins þegar um forseta er að ræða er sjónvarpið vant að senda út neyðarkall til allra rfkjanna, en Malone var dýrkuð af millj ónum sjónvarpsáhorfenda og hún lá fyrir dauðanum. Allri bandarfsku þjóðinni brá við. Þeir, sem ekki áttu sjón- varp gátu heyrt það í útvarp- inu. Innan nokkurra mfnútna höfðu meir en 100 manns gefið sig fram við sjúkrahúsið. Þúsundir streymdu að, til þess að vaka um nóttina fyrir utan sjúkrahúsið. Símasamband ið roftiaði, samtöl komu frá öllu landinu. Á meðan lá Dorothy f skurð- arherberginu meðvitundarlaus. Átta skurðlæknar og átta aðrir læknar áttu í höggi við tímann um líf hennar. Daginn áður hafði hún allt í einu dottið nið- ur þegar hún var við sjón- varpsupptöku. Frá þvf var hún Um daginn og veginn R“ * íkisútvarpið er merkileg stofnun fyrir margra hluta sakir. Þó að starf þess sé að miklu leyti í lausu lofti, stendur það undir fleiru en flestar aðrar stofnanir f landi voru. Það stend ur t.d. að verulegu leyti undir menningunni--------hvað þyrfti raunar ekki að sanna annað en það, að hún væri í enn lausara lofti — og auk þess undir nokkr um vafasamari afleggjurum hennar, svo sem sinfóníuhljóm- sveitinni og tilvonandi sjónvarpi .. loks stendur það og undir sjálfu sér, hvað er meira en yf- irleitt verður sagt, ekki einung- is um ríkisstofnanir heldur og bókstaflega allt, sem heiti hefur á voru landi... Það væri þvf kannski ekki svo illa til fundið að fá útvarpsstjóra til að taka að sér landbúnaðinn og sjávarútveginn, þegar hann fer úr embætti fyrir aldurs sakir. En þetta átti ekki að vera neitt spjall um útvarpsstjóra sér staklega — heldur um mannlegt eðli, ef þannig mætti að orði komast, eða öllu heldur þann þátt mannlegs eðlis, sem yfir- leitt segir alltaf til sfn hjá skjól stæðingum, og móta sér f Iagi afstöðu þeirra, sem eldri eru í skjólinu, til hinna, sem þangað eru nýkomnir. . að vfsu verð- ur ekki með sanni sagt að það séu göfugustu eðlisþættir mannsins, en hvað um það, þeir geta engu að sfður komið skemmtilega fyrir á stundum. þó að það megi heita undan- tekning. Sú undantekning átti sér einmitt stað fyrir nokkrum dögum, þegar yngri skjólstæð- ingurinn vildi gera sig hús- bóndalegan við þann eldri, sjálf ur enn ekki kominn úr burðar- liðnum — sýndi meira að segja viðleitni til að afmynda hann og kom fyrir ekki þó að sá eldri segist ekki mega vera að þessu hann væri önnum kafinn við þá nfundu, fór svo að sá eldri hrakti hinn á brott f bili og hrósaði einum af þessum al- kunnu pyrrusarsigrum, tók sfð an aftur til við þá nfundu og hafði óðurinn til gleðinnar al- drei hljómað af viðlfka krafti ... Annars segja sumir sem til þekkja að ekki mun; sinfónfu- hljómsveit hafa óttazt neitt að koma fram á sjónvarpsskermi ófæddra glápara .. . heldur hafi hún í rauninni óttazt að fleira kæmi fram á mjmdfletinum en það, sem annars er sjáanlegt berum augum — eins og Guð- mundur Jónsson t.d. er yfirleitt — að ef til vill yrði þetta eins konar andamynd, sjálfur meist- arinn Beethoven, faðir þeirrar níundu kæmi e.t.v. lfka fram, ekki sérlega svipljúfur vegna meðferðarinnar, sem þetta af- kvæmi hans hlyti hjá sveitinni.. HilLBRIGÐIR FÆTUR eru undirstaða vellfðunai Láttð pýzku BIRK- ENSTOCKS skóinnleggtr lækna tætui yðai Móttökutlmi föstudaga og laugardaga kl. 2—7 e. h. — Aðra daga eftii umtall Slml 20158 SKG-INNLEGGSSTOFAN KaplaskjðU 5 meðvitundarlaus. Hún hafði blóðtappa í lungunum. í rúma tfu tíma barðist Dor- othy fjirir iífi sfnu á skurðar- borðmu. Fjórum sinnum stanz aði hjartað. Fjórum sinnum björguðu læknamir lffi hennar. Klukkan 5.15 um morguninn var uppskurðinum lokið en ekki var hætt á það að gefa fólks- mergðinni fyrir utan nokkra von Læknir vakti við rúm Dorothy allan morguninn og fyrri hluta dagsins. Siðdegis, fimm tímum eftir uppskurðinn opnaði hún augun hló lágt og hvíslaði að lækninum: „Hailó sólargeisli". Blöð Bandaríkjanna dreifðu fréttinni. Sfmskeyti, blóm, bréf og gjafir strejmidu að. Tvö her bergi varð að taka frá aðeins undir póstinn, blómin voru gef- in á annað sjúkrahús. Einkarit- arar Dorothy urðu að koma tii liðs til j>ess að svara símanum. Á tveim dögum var tekið á móti yfir tvö þúsund samtölum frá aðdáendum og 900 frá vin- um. Joan Crawford hringdi dag lega frá New York, Charies Boyer, Rock Hudson, Rita Hay- worth, Debbie Reynolds voru á meðal þeirra mörgu sem stóðu f biðröð heimsækjendanna. Liz Taylor og Richard Burton gáfu kampavfn f kæli, sem var skreyttur með 50 orkideum. Frank Sinatra hringdj og bauð Dorthy búgarð sinn f Palm Spring til þes að ná sér aftur f. Hinn 4. október gat Dorothy Malone farið fram úr í fyrsta sinn. Núna er hún aftur heima hjá dætrunum sfnum tveim og milljónir Bandaríkjamanna von ast nú eftir að fá að sjá sjón varpsstjörnuna sfna aftur. Sjónvarpsstjarnan varð alvarlega veik i miðjum þætfi. Öll banda- riska bjóðin fylgdist með veikind- um hennar með kviða Dorothy með dætrunum tveim eftir uppskurðinn. Hún Ijóm ar af hamingju með þeim Díönu fimm ára og Mimi þriggja ára. Kári skrifar: J dag vill Kári beina nokkr- um aðvörunarorðum til al- mennings f Reykjavík — og ef til vill vfðar á landinu. Þessi aðvörunarorð hafið þið vafalaust heyrt áður, e.t.v. oft, en þau eru samt sem áður f fullu gildi. En þau eru töluð, eða öllu heldur skrifuð vegna van- rækslu fólks að læsa útidyrum. hjá sér. Fólkið hugsar sem svo: Ekki get ég farið óboðinn inn f annars manns íbúð eða forstofu og hvl skyldu þá aðrir gera það? Auk þess eru íslend- ingar heiðarlegir og stela ekki. Það er nú svo. Oft-hefur ver ið skrifað um það f erlend blöð og rit að Islendingar séu svo heiðarlegir að óhætt sé að skilja eftir heila milljón króna á almannafæri. Þeim yrði ekki hreyft. Staðreyndimar sýna annað, þvf miður og jafnframt að ís- lendingurinn er — miðað við fólksfjölda — ekki heiðarlegri en hver önnur þjóð. I hverju þjóðfélagi hvar sem er f ver- öldinni, er til strangheiðarlegt fólk, en lfka talsvert af þjófum. Við erum þar engin undantekn- ing. Og einmitt þess vegna er ástæða til að aðvara ykkur, borg arar góðir. Þjófar eru öðru vfsi gerðir en þið, þeir eru bíræfnir og láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna Ef komið er að þeim, eru þeir snarráðir, gera sér upp erindi setja upp sakleysissvip eða þá að þeir taka til fótanna ef þeir sjá sitt óvænna. Nú hefur það þráfaldlega kom ið fyrir að menn, einkum ungl- ingar, leggja leið sína inn f ó- læst hús stela fatnaði, kven- veskjum bar sem peninga er von eða úr vösum vfirhafna. Lög- reglunni er stöðugt að berast kærur út af slfkum málum oe stundum upplýsast þau, en stundum ekki. En bezt af .öllu er að fyrirbyggja þau með því að taka upp bá reglu að hafa hús sín ævinlega læst, hvort sem fólk er heima eða að heim an. Stuttar dagleiðir fyrir póst. Þá hefur Kári verið beðinn að koma á framfæri fyrirspum til póstmálastjómarinnar út af skip an póstmála f Kópavogskaup- stað og iafnvel víðar f nágrenni Revkiavíkur. Fyrirspyrjandinn fullyrðir það við Kára að veniuleg sendibréf séu allt að 6 sólarhringa að komast þessa 5 km. löngu leið milli Reykjavfkur og Kópavogs. Það þykir nú til dags furðu stuttar dagleiðir fyrir póst á ekki torsóttari leið. Sá ágæti maður segist ekkert botna ( seinaganginum á póstútburði i Kópavogi og að jafn undrandi séu aðrir fbúar kaupstaðarins Hann segir, að það sé gersam lega þýðingarlaust að ætla sér að koma fundarboðum eða árfð andi tilkynningum póstleiðis til Kóoavnsrs nema þær séu sendar viku eða hálfan mánuð áður af stað. Þetta hafi oft og einatt komið sér ákaflega illa, jafnt fyrir sendendur sem viðtakend ur. Fyrirspyrjandinn kvaðst hafa heyrt að ástandið í póstmálun- um sé í öðrum nágrannabyggð um Reykjavfkur eitthvað á- þekkt þvf sem það er f Kópa- vogi. En hvort sem það sé rétt eða ekki, sé ástandið f Kópa- vogi svo slæmt að furðu gegn- ir — það sé staðreynd. Og að lokum biður maðurinn Kára að koma þeirri fyrirspum á fram- færi hvort ekki megi vænta lag færinga á þessu á næstunni og af hverju þessi seinagangur stafi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.