Vísir - 22.02.1966, Blaðsíða 3

Vísir - 22.02.1966, Blaðsíða 3
V í SIR . Þriðjudagur 22. febrúar 1966. 3 „Á ÞESSUM SÉRSTAKA DEGIÞARFALLT AÐ úANGA FLJÚTT FYRIR SIG11 Karl Jóhannesson með síðuflesk, en smábiti af því bætir baun- imar að mun. NDS J Þorbjöm sýnir næst bakka fulla af saltkjöti, sem er aðeins ör- lftill hluti þeirra þriggja tonna, sem venjulega seljast á sprengi daginn sjálfan og daginn áður. Með á bökkum var léttsaltað síðuflesk, sem títt hefur verið sett í baunimar til þess að þær yrðu mýkri og betri, þarf ekki nema einn smábita af því með venjulegu saltkjöti. „Yngra fólkið heldur að þetta sé svo feitt, segir Þorbjörn, að það í skrifstofunni uppi á lofti dregur Þorbjöm fram tímaritið „Ný félagsrit" í því eru „Nokkrar greinir um sveitabú- skap“. Ekki virðast bændur alls kostar hafa kunnað að meta kjöt sitt á þeim tímum því að þama má lesa hollar og nytsam ar leiðbeiningar um verkun salt kjöts og skilvíslega er sagt frá víxlverkun kjötkraftsins og pæk ilsins, og þar er bændum sagt frá því að neyðarúrræði sé að selja nýtt og gott kjöt á 6 til 7 skildinga pundið, þegar engu betra kjöt er selt erlendis fyrir 16 til 18 skildinga pundið, og þeir áminntir um að vanda verk un þessarar útflutningsvöru. Spjallað v/ð Þorbjörn í Borg um sprengikvöld \ þesum sérstaka degi þarf 99 allt að ganga fljótt fyrir sig“, segir Þorbjörn Jóhannes- son í Borg þar sem við stöndum og virðum fyrir okkur 200 kílóa eikarámumar, fleytifullar af salt kjöti. Ekki dugar annað fyrir gamla og rótgróna kjötverzlun en að vera viðbúin með rétt dagsins, saltkjötið og baunirnar, sem enn þann dag í dag er neytt af flest um á sprengidag, hátíðisdegin- um fyrir löngu föstu, þegar all- ir háir sem lágir gátu etið kjöt eins og þeir gátu í sig látið. Annimar eru þegar byrjaðar hjá Þorbirni. Starfsmennimir hendast á milli geymslanna i gamla portinu og aðalhússins með föt full af rófum og önnur kúfuð af kjöti. „Það þarf að setja farg ofan á til þess að kjötið brotni", seg ir Þorbjöm, um leið og hann lyftir einu farginu ofan af einni ámunni og leyfir blaðamönnun um að lfta á kjötið f pæklinum. „Við flýtum fyrir brotinu um þrjá daga með því að setja farg ið ofan á, en alls tekur sex daga að fá kjötið hæfilega salt“. Og Þorbjöm heldur áfram að útskýra hvemig gott saltkjöt er verkað og búið til. „Fyrst er kjötið sagað rétt niður, síðan rafmagnssagirnar komu til sög unnar er það miklu auðveldara viðfangs, en þegar við þurftum að höggva allt kjötið niður með öxi. Eftir að pækillinn hefur verið búinn til er kjötinu raðað í tunnuna þannig að bitamir mætast í sárið. Fargið er sett af an á og innan tíðar er pækillinn kominn á ferð“. Verkun saltkjöts fyrr og nú ber næst á góma. „Hér áður fyrr söltuðu allir til vetrarins og var þá saltmagn ið ólíkt meira, saltið var það mikið að það tók tvo daga að afvatna kjötið, hver skrokkur var saltaður í sex stykkjum og er svo enn um saltkjötið, sem Norðmenn fá ennþá flutt í tunn um héðan frá fslandi. Núna er þetta brévtt, segja má að nú sé saltað frá degi til dags, en þessi vérjíun á saltkjöti er ekk- ert nýmæli. í Nýjum' Félagsrit- um fá árinu 1864 er kafli um verkun saltkjöts eins og það gerist bezt, og veit ég ekki til þess að neitt hafi verið ritað um þau mál síðan og mætti taka til fyrirmyndar þann áhuga, sem sýndur var þá á ýmsum bú- bótum“. Samstarf — Framh ols. 7 ember og skortur á vinnuafli seinkar útflutningi síldarinn- ar. Eftir því sem næst verður komizt, mun skiptast svo: útflutningur Svíþjóð 238.000 tnr. Finnland 74.800 tnr. Danmörk 19.100 tnr. Noregur 13.900 tnr. V.-Þýzkaland 11.300 tnr. Bandaríkin 24.800 tnr. ísrael 3.500 tnr. í Suðurl. samn. 7.000 tnr. 392.400 Neitað og óráðst. 6.600 tnr. Innanl. samn. 7.000 tnr. 406.000 Samanborið við uppgefnar söltunartölur, kemur í ljós að útfl. og nýting er meiri en uppgefin söltun. Þetta er þveröfugt við það sem margra ára venja gerir ráð fyrir. Þetta er að mínu áliti mjög hættulegt fyrir saltendur, að ekki er rétt gefið upp á sölt- unarskýrslum. Offramleiðsla, þó lítil sé, getur eyðilagt markaðinn. Menn skyldu minn ast þess, að megin ástæða fyr ir því að lögin um Síldarút- vegsnefnd voru sett, var sú, að varast offramleiðslu á vandmeðfarinni vöru og lítt seljanlegri eftir takmarkaða geymslu. Miklar umræður hafa verið um það, að saltsíldarfram- leiðslan sé úrelt og hún sé aðeins hráefnisframleiðsla, að engin breyting hafi orðið um áratugaskeið á verkun og nýtingu. Þetta er óréttmæt og órök- studd staðhæfing. Þrátt fyrir það að vandvirkni við verk- un og framleiðslu saltsíldar sé ekki nógu góð og hafi að vissu leyti nrakað hin sein- ustu ár, þá hefur henni farið mjög fram seinustu 4 ára- tugi. Með góðri nýtingu og vandvirkni, framleiðum við bezta hugsanlega neyzlusfld til þeirra þjóða, sem vilja borða sfld. Haust- og vetrarvertíð 1965. gvo sem kunnugt er, hefir síldargengd við Suðvest- urland farið ört minnkandi síðustu árin, og það sem af er yfirstandandi vertíð hefir aflabrestur verið svo til al- gjör á þessu veiðisvæði. Aftur á móti hefir veiðzt samtals um 1,3 millj. tunna á veiðisvæðinu milli Vest- mannaeyja og Hrollaugseyja um síðustu áramót. Er hér eingöngu um að ræða síld af íslenzka stofninum, mest- megnis ungsfld. Nokkuð hefir einnig verið veitt af kyn- þroska síld, sem safnast sam- an á þessu svæði um hrygn- ingartímann. Mestur hluti þessarar síldar hefur því far- ið til bræðslu. Eru margir uggandi yfir því að með þessum veiðum á ung- síldinni og leifum eldri síld- arinnar á hrygningartíma sé verið að eyðileggja íslenzka síldarstofninn sem borið hefir uppi veiðarnar við Suð-vest- urland og sum árin einnig að nokkru leyti norðanlands og austan. Að þessu sinni voru gerðir fyrirframsamningar um minna magn af Suðurlands- sild en oftast áður. Olli því mikið framboð á markaðnum, en jafnframt hið slæma veiði- útlit fyrir Suður- og Vestur- landi. Þó hefir mjög mikil á- herzla verið lögð á sölu rúnd- saltaðrar sfldar og standa samningaumleitanir enn yfir um aukna sölu á þeirri síld er þetta er ritað. Heildarsöltun upp í Suður- landssamninga nemur nú að- eins um 36.000 tunnum, þar af hefir verið saltað á Suð- vesturlandi í tæpl. 30.000 tunnur og veiddist sú síld að- allega við austanverða suður- ströndina og úti af sunnan- verðum Austfjörðum. — Á Austurlandi hefir verið saltað í um 6.0000 tnr. upp í vetrar- síldarsamninga. Auk þessa er ráðgert að afgreiða upp í samninga sunnanlands 5 — 10.000 tunnur af síld, sem söltuð var á Austurlandi f haust, en reyndist of smá upp í gerða samninga um Norðurlandssíld. Ég get ekki endað þessar hugleiðingar án þess enn einu sinni að benda síldarsaltend- um á, að það er þeirra hags- munamál að vanda söltun sild arinnar, ferskleik, gæði, með- ferð og síðan alla umönnun, viðhald og búnað til útflutn- ings.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.