Vísir - 16.04.1966, Síða 5
Vf S IR . Laugardagur 16, apríl 1966.
5
Fóstbræður —
. ramh. af bls 9
sinna og verður síðasti hluti
söngskrárinnar fluttur af nær-
fellt 100 manna kór. í þeim hópi
eru m.a. 8 núlifandi stofnendur
Kariakórs K.F.U.M., sem tóku
þátt í fyrsta samsöng hans í
Bárubúð vorið 1917. Þessir menn
eru: Bjábni Nikulásson, vél-
stjóri, Gíóli Sigurðsson, rakara-
meistari, Hafliðí Helgason prent
smiðjustjóri, Hallur Þorleifsson
aðalbókari, Helgi Sigurðsson
húsgagnabólstrari, Ludvig C.
Magnússon endurskoðandi,
Magnús Guðbrandsson fulltrúi
og Sæmundur Runólfsson inn-
heimtumaður.
í undirbúningi er útgáfa ýt-
■arlegs og vandaðs afmælisrits
Fóstbræðra, sem þeir Haraldur
Hannesson hagfræðingur og
Jón Þórarinsson tónskáld munu
hafa mestan veg og vanda af.
Ckortur á hentugu húsnæöi til
æfinga og félagsstarfsemi
hefur löngum verið kómum til
mikils baga, en vonir standa til
að úr þeim vanda rætist í ná-
inni framtíð. Borgarráð Reykja
víkur úthlutaði kórnum fyrir
nokkru byggingarlóð á homi
Langholtsvegar og Drekavogs,
þar sem Fóstbræður áfopna að
reisa stórhýsi í félagi við fleiri
aðila og tryggja sér þar með
húsnæði fyrir félagsheimili, er
fullnægi þörfum kórsins um
langa framtíð.
Byrjunarframkvæmdir við
byggingu þessa húss munu að
öllu forfallalausu hefjast innan
fárra vikna.
Þorlákshöfn —
Framhald af bls. 1.
ið í Þorlákshöfn fram til dagsins í
dag. Segir þar aö alls munu fram-
kvæmdir þær er lokiö var við í árs
lok 1960, hafi kostaö um 14 millj.
kr. En þá hafi oröið þáttaskil í
byggingarsögu staðarins, þar sem
ákveðið hefði verið að taka stór-
lán til nýs átaks í hafnargerðinni.
Síðan segir orðrétt í greinargerð-
inni:
Þegar núverandi framkvæmdir
hófust í Þorlákshöfn, var þar ein
140 m. löng bátabryggja (Norður-
garður), með dýpi meira en 2 m
á yztu 25 m og einnig brimbrjót-
ur (Suöurgarður) um 200 m. langur,
rneð dýpi yfir 2 metra á yztu 85
m. og var því rúm fyrir eitt lítið
flutningaskip.
Að undangengnum undirbúnings-
rannsóknum á vegum vitamálaskrif
stofunnar var stækkun Þorláks-
hafnar boðin út árið 1961.
Samkvæmt útboði skyldi Suður-
garðurinn lengjast um 75 m með
12.5 m breiðum steinkeragarði og
á honum vera 2 m. hár skjólveggur
Norðurgarðurinn skyldi lengjast
um 100 m og þvert á hann koma
88 m. langur þvergarður tfl suð-
urs, og þannig myndast 1900 ferm.
bátakví.
Þrjú tilböð bárust, þar af eitt
frá Efrafalli s.f., er gerði ráð fyrir
annarri gerð mannvirkja en þau,
sem boðin voru. Var því tilboði tek
ið og á grundvelli þess gerður
verksamningur, er undirritaður var
í maí 1962, og hófust framkvæmd
ir skömmu síöar.
Með viðbótarsamningi er undir-
ritaður var 1963, var ákveðið að
verksali skyldi hafa lokið Suður-
garði eigi síðar en 1. janúar 1965
og Norðurgaröi eigi síðar en 1.
janúar 1966. Af tæknilegum ástæð-
um var ákveðið að auka breidd Suð
urgarðsins úr 12.5 m. í 14.5 m. og
Norðurgarður lengdur í 115 m. og
þvergarður í 95 m. og hafnarsvæð
ið stækkað þannig um 2000 ferm.
Var sú breyting gerð með tilliti til
breytinga þeirra, er orðið hafa á
bátaflota landsmanna hin seinustu
ár.
Hafizt var handa um byggingu
Suðurgarðsins, og var hann allur
orðinn nothæfur fyrir skip 10.
marz 1965 og fullfrágenginn á því
sumri og var síðan formlega af-
hentur hafnarstjórn 10. nóvember
1965.
Á því sumri var hafizt handa
um byggingu Norðurgarðsins og
var ákveðið að framlenging á 1.
áfanga skyldi vera 53 m.
Enn eru mikil verkefni óleyst
við hafnarframkvæmdir í Þorláks-
höfn og kostnaður við þær skiptir
tugum milljónum króna. Að ljúka
þeim áfanga, er boðinn var út
1961 telur vita- og hafnamála-
stjóri kosta um 30 rriillj. kr. miðað
við verðlagið í dag.
Sjónvorp —
Framhald af bls. 1.
klefa salarins, en hljóðeinangr-
un hans var að mestu lokið.
Þessi salur og stjómklefamir
eiga að vera tilbúnir til notkun
ar í júnf.
Málarar voru að ganga frá
vistarverum tæknimanna sjón-
varpsins, en kvikmyndadeildin
var skemmra á veg komin, —
þar voru múrarar að verki. Ekki
hefur enn verið byrjað að stúka
þingsjá Vísis
niður vistarverur dagskrárstarfs
manna, en til bráðabirgða eru
þeir í þeim hluta byggingarinn
ar, þar sem almenn skrifstofa
sjónvarpsins verður í framtíð-
inni.
Starfsmenn sjónvarpsins eru
nú orðnir 21. Tæknimenn hafa
verið ráðnir 11, dagskrárstarfs
menn 6 og annað starfsfólk 4.
Margt af þessu fólki er um
þessar mundir á námskeiðCm
erlendis. Ráðgert er, að sta.'fs
menn sjónvarpsins verði allt að
30 talsins, þegar þaö tekur til
starfa — væntanlega í sumar.
Róðherra —
Framhald af bls. 16.
hendi daglega sölu á mjólk og
rjóma til neytenda, skulu þau
þá, ef framleiðsluráð ákveður
lúta sameiginlegri vfirstjórn,
sem nefnist samsölustjóm. —
Heimilt er að taka sérstakt gjald
verðjöfnunargjald, af allri
neyzlumjólk, sem samsalan sel-
ur á svæðinu. Verðjöfnunargjald
þetta skal vera til verðuppbótar
á þá mjólk, sem notuð er til
vinnslu á viðurkenndum mjólk-
urbúum, sem starfa á mjólkur-
svæðum. Verðjöfnunin á hverju
svæði skal jafnan miðuð við
það, eftir því sem við verður
komið, að mjólkurframleiðend-
ur á mjólkursvæðinu fái sama
verð fyrir mjólk sina komna á
móttökustað. Þar sem samsölu-
stjóm er starfandi, skal öll sala
og dreifing á neyzlumjólk,
rjóma og nýju skyri fara fram
undir yfirstjóm hennar. Ef upp
kemur deila milli mjólkurbúa og
framleiðenda á einhverju sölu-
svæði um móttöku mjólkur eða
önnur atriði varðandi sam-
skipti þessara aðila, skal
framleiðsluráð leitast við að
jafna ágreininginn og úrskurða
ef með þarf.
Um verðlagsgrundvöllinn seg-
ir í frumvarpinu:
„I verðlagsgrundvelli skal, sbr.
ákvæði 6. gr., tilfæra ársvinnu-
tima bóndans, skylduliðs hans
og hjúa á búi af þeirri stærð,
sem miðað er við hverju sinni,
og virða vinnutíma til samræmis
við kaupgjald verkamanna, sjó-
manna og iðnaðarmanna, eins
og það er við upphaf hvers verð
lagstimabils. Eigi skal þó taka
til viðmiðunar ákvæðisvinnu
verkamanna og iðnaðarmanna
né aflahlut sjómanna.
Til kaupgjalds teljast hvers
konar samningsbundin fríðindi“.
þ i n g s j á V í s i s
A.B. —
Framh at ols 16
Ennfremur eru þættir m.a. um
Bjarna Thorarensen, Stephan G.
Stephanson og Guðmund Friðjóns
son á Sandi, Gunnar Gunnarsson
og Sigurð Nordal. í snjallr; ritgerð
um Njálsssögu gerir hann grein
fyrir byggingu og stí! sögunnar og
í tveimur öðrum ritgerðum gengur
hann á vit gamalla minja á Snæ-
fellsnesi með eftirminnilegum lýs-
ingum frá þeim stöðum. 1 bókinni
eru einnig ræður eftir Þorkel og að
lokum ritskrá hans.
Bókin er febrúarbók AB og er
350 bls. að stærð, prentuð í Víkings
prenti h.f., en bundin hjá Félags-
bókbandinu h.f. Kápu hefur Torfi
Jónsson teiknað.
Mannshugurinn er fjórða bókin
í Alfræðasafni AB, en áður eru
komnar bækurnar Fruman, Manns-
líkaminn og Könnun geimsins.
Sagt hefur verið, að merkasta
viðfangsefni mannsins væri mað-
urinn sjálfur. Á starfsemi manns-
hugans, hugviti og hæfileikum,
byggjast allar framfarir og þekk-
ing í tækni og vísindum og er
því eðlilegt að um mannshugann
sé fjallaö í bókaflokki um þau efni
Bókin Mannshugurinn kannar og
skýrir flóknasta líffærið: hug
mannsins. Heilinn er miðstöð skiln
ings og skynsemi, en hvernig er
starfsemi hans háttað? Hvaö er
vitaö um orsakir eðlishvatanna,!
starfsemi heilafrumanna, stjórn |
heilans yfir líkamanum og eðli
minnisins og getunnar til að læra. t
Þessum spurningum og ótalmörg- |
um öðrum er leitazt við að svara |
í bókinni.
Bókina hefur Jóhann S. Hannes-
son skólameistari á Laugarvatni
íslenzkað. Er bókin 200 bls. að
stærð með 110 myndasíðum. Atrið
isorðaskrá fylgir. Bókin var sett
í Prentsmiðjunni Odda h.f., filmur
af texta gerðar í Litbrá h.f., en bók
in prentuð og bundin hjá Smeets-
offset, Weert í Hollandi.
Sólin —
Framh af bls. 16
en alls var leikritið þá sýnt 25
sinnum vegna aðsóknarinnar.
Sagði þjóðleikhússtjóri ennfremur |
að Silfurtungl Laxness hefði verið j
sýnt hjá Þjóðleikhúsinu 1952, og j
Strompleikur árið 1961 svo að j
Prjónastofan Sólin væri fjórða leik i
rit Nóbelsskáldsins, sem sýnt væri
hjá Þjóðleikhúsinu.
Prjónastofan Sólin er 1 þrem þátt I
um og þrem leikmyndum og er sýn
ingartími með hléi tveir og hálfur
tími. Aðalhlutverkin eru leikin af
Helgu Valtýsdóttur, sem hefur
hlutverk prjónakonunnar Sólborg-
ar, Lárus Pálsson leikur Ibsen Ljós
dal, Róbert Arnfinnsson fer með
hlutverk fegurðarstjórans;. Ríirik
Haraldsson leikur Sine Manibus
og Þrídlsi leikur Sigríður Þorvalds
dóttir.
Önnur smærri hlutverk eru í
leiknum og má þar á meðal nefna
Moby Dick, sem leikinn er af „ó-
nefndri stjörnu“. Leiksviðsmyndir
gerði Gunnar Bjarnason, en tón-
listina, sem er í leikritinu, tók
Magnús Bl. Jóhannsson upp á seg-
ulband. Eru þar á meðal lög, sem
skáldið samdi sjálfur.
Tók Laxness til máls og sagði
m. a.: — Það er ekki neitt sérstak-
Iega gott fyrir höfund að byrja að
útskýra verk sitt, að gera grein fyr-
ir því I formúleringu sem getur orð
ið eins löng og verkið sjálft. Það
verður erfiðara fyrir áhorfendur að
átta sig á öllum þeim útskýringum,
en verkinu sjálfu.
Ýmsir breytingaviðaukar voru
gerðir á ýmsum atriðum verksins
til þess að gera áhorfendum auð-
veldara fyrir að skilja ganginn í
verkinu. Það eru ekki beinlínis við-
aukar heldur langar replikur, sem
voru brotnar niður og skipt á milli
leikaranna. Á einum stað er bætt
inn í fígúru, sem ég hafði uppruna-
lega með og ég flikkaði upp á kveð
skapinn, sem sunginn er á tveim
stöðum.
Furðujeppi —
Framhald at bls. 16.
og sama er að segja um Ijósa-
kerfiö. Mælaborðið er Mer-
cury Comet. Stefnuljósin eru
þau fullkomnustu og öruggustu
í heiminum í dag og aðeins til
á einni bifreiðartegund, Tund-
erbird árgerð 1965 og 1966.
Þau eru þrískipt þau færast til
og hlaupa alltaf til og blikka
svo að enginn vafi leikur á því
þegar bíllinn ætlar að beygja
eða tekur beygju. Allar hurðir
eru með öryggisljósum og sæt
in eru ein þau beztu, sem þekkj
ast.
— Ég byrjaði að smíða undir
vagninn og vélina fyrir sex mán
uðum, en allt í allt tók
smíöi bílsins fimm mánuði. Til
hvers er ég að þessu? Til þess
að fá góðan jeppa og svo er
gaman að malla svona.
' 0
þingsjá Vísis
Fundir voru í báöum deildum
Alþingis í gær, og voru 17 mál
á dagskrá. í neðri deild varð
stjórnarfrumvarpiö um lánasjóð
sveitarfélaga að lögum, og af-
greitt til ríkisstjórnarinnar.
Önnur mál í
neðri deild.
Stiórnarfrumvarpið um stofnlána
deild verzlunarfyrirtækja var sam
þykkt til þriöju umræöu. Stjóm
arfrumvarpið um útvarpsrekstur
ríkisins var og samþykkt til þriðju
umræðu, og svo var einnig um
frumvörpin um matreiðslumenn
á skipum og Stýrimannaskólann í
Reykjavík, sem einnig eru stjórn
arfrumvörp. Stjórnarfrumvarpið
um Framkvæmdasjóð IslanJs var
tekiö til armarrar umræðu, og var
umræðu lokið, en atkvæða-
1 greiðslu frestað. Þá hófst einnig
umræða um verðtryggingu fjár-
skuldbindinga, og stóð lengi dags.
Efri deild.
Tekjustofnar
sveitarfélaga.
Frumvarpið um tekjustofna
sveitarfélaga var tekið til annarr
ar umræðu í efri deild f gær.
Auður Auðuns (S) mælti fyrir
nefndaráliti heilbrigðis- og félags-
málanefndar
deildarinnar, sem
mælir með sam-
þykkt frumvarps-
ins, en flytur við
þaö eina breyting
artillögu. Sagði
framsögumaður
. ræöu sinni, að
nefndin hefði rætt frumvarpiö á
nokkrum fundum sínum og sent
það til umsagnar Sgmbands ísl.
sveitarfélaga. Einnig hefðu ráðu-
neytisstjóri félagsmálaráðuneyt-
isins Hjálmar Vilhjálmsson og
form. Sambands Isl. sveitarfélaga,
Jónas Guðmundsson mætt á fund
um nefndarinnar. Nefndin væri
sammála um að mæla með sam-
þykkt frumvarpsins með þeirri
breytingartillögu, sem hún flytti
við það.
Alfreð Gislason (K) mælti fyrir
breytingartillögu, sem hann flyt-
ur við frumvarpið á þá leið, að
landsútsvör st'ofnana sem um get
ur I 17 gr. skuli renna að hálfu
til sveitarfélags þess, þar sem
rekstur fvrirtækis eða verksmiðiu
fer fram. Fjórðungur annarra
landsútsvara, sem til fellur f
hverju sveitarfélagi, skal korna 1
hlut þess.
Urðu út af þessari tillögu nokkr
ar umræður milli flutningsmanns
og Magnúsar Jónssonar, fjármála-
ráðherra, sem sagði, að varhuga-
vert væri, að Alþingi færi út I
þessa grundvallarbreytingu á
frumvarpinu, án þess að Sam-
band ísl. svéitarfélaga tæki
nokkra afstöðu til hennar.
Mat á sláturafurðum.
Sigurður Ó. Ólafsson (S) mælti
fyrir nefndaráliti landbúnaðar-
nefndar deildarinnar um stjómar-
frumvarpið um
meðferö, skoðun
og mat á slátur-
’l'urðum, en
efndin mælir ein
óma með sam-
þykkt þess og tel-
ur, að hér sé um
mikilsvert mál að
ræða. Var frumvarpið slðan sam-
þykkt til þriðju umræðu I einu
hljóði.
1. maí lögboðinn
frídagur.
Stjórnarfrumvarpið um að lög-
bjóða 1. maí sem almennan frí-
dag var samþykkt við þriðju um-
ræðu 1 deildinni og sent til neðri
deildar.
Sala Selárdals
í Súgandafirði.
Sjami Guðbjörnsson (F) mælti
fyrir frumvarpi Hermanns Jónas-
sonar (I forföllum hans) um heim-
ild fyrir ríkisstjórnina til að selja
Ólafi Þ. Þórðarsyni kennara Stað
I Súgandafirði eyðijöröina Selár-
dal I Súgandafirði og var frum-
varpið samþykkt til annarrar um-
ræðu og nefndar.
xss