Vísir - 02.05.1966, Page 11
n
VfSIR . Manudagur 2. maf 1966
RITSTJÓRI: JON BIRGIR PETURSSON
FH ISIA NDSMEIS TARI
yf- FH varð fslandsmeistari í handknattleik karla 1966
eins og skýrt var stuttlega frá í blaðinu á laugardaginn.
Fram reyndist þess ekki megnugt að halda i við FH
sem lék betur í sókn og vöm, en fyrir viku
var það Fram sem hafði töglin og hagldimar.
Stórglæsflegur leikur FH í seinni hálfleik færði
stærri sigur, en jafnvel þeir bjartsýnustu í hópi stuðn-
ingsmanna liðsins hefðu þorað að vona. FH vann því ís-
landsbikarinn í 7. sinn, en Valur er eina félagið, sem
oftar hefur unnið bikarinn, eða 8 sinnum.
HSlogaland var enn einu sinni
vettvangur stórátaka þessara liða.
Virðist það furðulegt að íþrótta-
hðDin í Laugardal skyldi ekki
fengin til að hýsa þennan stórleik,
sem allir áhugamenn höfðu hug á
að sjá. Er ekki vafí á að ef leik-
urinn hefði farið fram f Laugardál
hefði húsfyllir einnig verið þar. Ef
satt er að handknattleiksráðið
hafi ekki ráðið því sjálft hvort
leikurinn færi fram þar eða á Há-
logalandi heldur félögin, sem í
hhit áttu, verður ekki annað sagt
en að málum sé undarlega komið.
En hvað um það, leikurinn var
hmn skemmtilegasti og greinilegt
var frá byrjun að frá Hafnarfirði
höfðu FH-piltamir komið til að
sigra. Það var ekki sami drungi og
deyfð yfir liðinu og f leiknum
sunnudagskvöldið áður gegn Fram
og strax í fvrstu sókn skoraði
öm með góðu skoti. Hjalti varði
strax mjög vel og Öm skorar enn
2:0 á 5. mfn. leiksins. Fram tókst
að jafna og allan hálfleikinn var
leikurinn mjög jafn. en FH tókst
þó að ná 3 marka forskoti 7:4 á
17. mín., en Fram jafnaði 8:8 und-
ir lok hálfleiksins.
1 seinni hálfleik var það að
yfirburðir FH komu skýrlega í
ljós. Þeir náðu 3 marka forskoti
á ný, en glopruðu nú ekki niður
því sem áunnizt hafði, en bættu
heldur við og komust f 5 marka
forskot. Leikur Fram varð vonleys-
islegur, skot á skot ofan, sem vöm
FH annað hvort varði eða að
boltinn hafnaði í höndum Hjalta
markvarðar. Töluverð harka var f
Ieiknum og hvað eftir annað þótti
Reyni Ólafssyni, ágætum dómara
í þessum leik, ráðlegast að „kæla“
menn í 2 mínútur.
1 FH-liðinu var margt um góða
drætti, liðið í heild var eins og
vel smurð maskína, leikurinn fyrir
utan léttur og leikandi með Ragn-
ar og Geir sem virkustu menn og
var það sannarlega mikils virði að
fá Ragnar nú aftur með, að þvf er
virtist f sínu bezta formi. Línu-
mönnum tókst nú betur að opna
en í fyrri leiknum gegn Fram og
skotmennimir létu ekki á sér
standa. Þá var vömin mjög góð
og Gunnlaugur átti f höggi við erf-
iðan mann þar sem Einar Sigurðs-
son var til að gæta hans. FH lék
tvöfalda vöm og tókst þó að koma
í veg fyrir línuspil Fram, sem
hefði getað orðið eina svarið.
Hjalti varði afburða vel í mark-
inu sem fyrr segir og Örn Hall-
steinss. hefur líklega ekki átt betri
leik í vetur en nú. Þá vom þeir
Birgir Bjömsson og Auðunn Ósk-
arsson mjög góðir f vöminni.
Framliðið lék ekki lélegan leik
að þessu sinni, — bara ekki eins
góðan og FH. Liðið virtist hins
vegar ekki mæta mótlætinu í seinni
hálfleik eins og vera bar, — gafst
nær þvf upp og byrjaði að skjóta
í ákafa. Þorsteinn markvörður
varði allvel f þessum leik, en Gylfi
Jóhannsson var sá maðurinn ,sem
FH átt erfiðast með í byrjun, stökk
upp yfir vöm FH og skoraði tví-
vegis í byrjun og allan tfmann
ógnaði hann mest í framlfnunni, en
minna fór fyrir Gunnlaugi í umsjá
Einars en hér var Gunnlaugur
frammi fyrir sínum fyrsta íslands-
bikar og enn einu sinni slapp sá
bikar við Gunnlaug og Gunnlæ.igur
við bikarinn.
j Dómari var Reynir Ólafsson og
dæmdi vel.
| Undanleikur þetta kvöld var
milli Víkings og Þróttar, einn þriggja
leikja um sæti í 1. deild. Víkir.gur
vann auðveldan sigur og situr f
1. deild næsta vetur, vann Þrótt
27:15. — jbp —
JON ARNASON VANN 3
fSLANDSMEiSTARATITLA
Jón Ámason TBR, vann þrjá
íslandsmeistaratitla í badmin-
ton um helgina, vann Óskar
Guðmundsson, KR, í einliðalelk
með 15:8 og 15:11, vann tví-
liðaleikinn méð Óskari eftir
hörkukeppni og vann loks á-
samt Lovísu Sigurðardóttur
tvenndarkeppnina. Ein grein
var því eftir og hana gat Jón
ekki unnið, en Lovísa vann þá
grein ásamt Huldu Guðmunds-
dóttur, tvfliðaleik kvenna.
1 1. flokki vann Sigurður
Tryggvason, TBR, einliðaleik-
inn og flyzt því upp f meist-
araflokk. Tvíliðaleikinn unnu
KR-ingarnir Sveinn Bjömsson
og Pétur Kristjánsson, sund-
maður, en tvíliðaleik kvenna
unnu Álfheiður Einarsdóttir og
Svava Aradóttir, en tvenndar-
keppnina Álfheiður og Jóhannes
Ágústsson.
Keppt var f unglingafloldd
og vann Haraldur Kornelíusson
einliðaleikinn en í tvíliðaleik
vann Haraldur ásamt Finnbimi
Finnbjömssyni.
Vegna rúmleysis verður að
segja nánar frá keppninni síðar.
Islandsmeistarar FH. Hallsteinn Hinriksson er lengst til vinstri, þá Gísli, Guðlaugur, bræðumir Om og Geir, Ámi, Jón Gestur,
Hjalti, Birgir fyrirliði með bikarinn, Kári, Páll Auðunn, Einar, Ragnar, Einar Th. Mathlesen, stjómarmaður FH, og Þorsteinn.
Rafsubumenn
óskast strax.
RUNTAL-OFNAR Síðumúla 17, sími 35555
Til sölu Regna búðarkassi
handknúinn notaður en nýyfirfarinn. Tæki-
færisverð. Uppl. í síma 36570.
Spegilsólgleraugun
eftirspurðu, margir litir. Einnig sólgleraugu
barna. — Sólgleraugu í úrvali.
VERZLUNIN ÞÖLL, Veltusundi 3
(Gegnt Hótel íslands bifreiðastæðinu)
Frumvörp —
Framhald af bls. 1.
skip. — Neðri deild samþykkti
fjögur stjórnarfrumvörp sem
lög. Var það frumvarpið um
rikisreikninginn fyrir árið 1964,
Alþjóðasamning um lausn fjár-
festingardeildna, frumvarp um
breytingu á lögum um iðn-
fræðslu, en það frumvarp gerir
ráð fyrir miklum brevtingum á
iðnfræðslukerfinu, og frumvarp
ið um veitlngu rfkisborgara-
réttar sem felur í sér að 38
einstaklingar fái ríkisborgara-
rétt.
MINKURINN FELLDUR.
Þá gerðist það markvert utan
þess sem aö ofan hefur verið
getið, að frumvarpið um loð-
dýrarækt var fellt við aðra
i.mræðu málsins í efri deild á
laugardag, en meiri hluti land-
búnaðamefndar deildarinnar
hafði mælt gegn samþykkt frum
varpsins. Neðri deild hafði
samþykkt þetta frumvarp
Karlmaður óskast
f sveit. Einnig unglingspiltur. Uppl. í síma 16585.
Sumarbúðir
Heimatrúboðsins
Telpur á aldrinum 6—10 ára verða teknar til
dvalar að Lækjamóti í Mosfellssveit mánuð-
ina júní — júlí. Uppl. í síma 16279 frá kl. 5
—7 e. h.
POP kjólar
Ný sending glæsilegt úrval Odelon kjólar
léttir þægilegir. Stærðir „38—46“
FATAMARKAÐURINN Hafnarstrætl 3