Vísir - 10.05.1966, Qupperneq 4
4
V f SIR . Þriðjudagur 10. maí 1966.
btórmot Lionsmanna naiaio ner.
V
Stórmót Lionsmanna / Reykjavfk
Stórmót Lionsmanna stendur
yfir hér í Reykjavík þessa dag-
ana. í gær kom saman sam-
starfsmót umdæmisstjóra Lions
á Norðurlöndum, og taka þátt
í því um 20 umdæmisstjórar
frá Danmörku, Finnlandi, Nor-
egi og Svíþjóð auk íslenzka
umdæmisstjórans og fyrrver-
andi ísl. umdæmisstjóra.
í dag verður sétt að Hótel
Sögu umdæmisþing íslenzkra
Lionsklúbba, en þeir reu 33 viðs
vegar um landið. Lionsmenn á
íslandi eru nú orðnir eitthvað
á annað þúsund.
Meðal hinna erlendu gesta,
sem hér dvelja eru margir nafn-
kunnir menn. Þeir dvelja hér
fram á sunnudag og ferðast eitt
hvaö um suðvesturland og til
Þingvalla.
Umdæmisstjóri íslenzka
Liónsumdæmisins er Eyjólfur
K. Sigurjónsson, löggiltur end-
urskoðandi.
Myndin er tekin á Hótel Sögu
í gær, er samstarfsmót Norður-
landaljónanna stóð vfir.
NIÐURSTIGNING KRISTS
Hann var að vísú deyddur að
líkamanum til, en lifandi gjörður
sem Andi. í Andanum fór Hann
einnig og prédikaði fyrir öndun-
um í varðhaldi, sem óhlýðnast
höfðu fyrrum, þegar langlyndi
Guös beið eftir betrun þeirra á
dögum Nóa og ö.rkin var í smíð-
(um, sem fáeinar — það er átta
— sálir, frelsuðust í, og áttu það
vatninu að þakka. (1. Pét. 3. 18.
—23.) Tákn vorrar kristilegu
skímar.
„Eftir dauóa sinn, fór Jesús
eigi aðeins í félag guðhræddra
sálna f Paradís, heldur birtist
Hann einnig í heimkynni fyrir-
dæmdra," en enginn veit hvað
Hann hefir fyrir þeim prédikað.
Því er hvergi haldið fram, aö
þessar sálir hafi látið frelsast
við prédikun Jesú eða Hann
hafi haft þessar sálir burt með
sér úr Helju. Álít ég það því
varhugavert, að draga þá álykt-
un af niðurstigning Krists til
Heljar, að um frelsun sé að ræða
eftir dauðann, því eftir dauðann
kemur dómurinn. Hebr. 9. 27.
Því ekki þyrmdi Guð englun-
um, er þeir syndguðu, heldur
steypt; þeim niður í undir-djúp-
m og setti þá í myrkra hella, til
pess að þeir varðveittust til
dómsins. Ekki þyrmdi Guð hin-
um foma heimi, heldur varð-
veitti Nóa prédikara réttlætisins
við áttunda mann, er Hann lét
vatnsflóð koma yfir heim hinna
óguðlegu og er það ritaö til við-
vötnnar þeim er síðar lifðu óguð
lega. 11. Pét. 2 .4.—6.
Munu þeir nú sem óhlýðnast
Jesú Kristi, afneita Hans eilífa
guðdómi og friöþægingu og end
ur-lausn, nokkuð fá mildari dóm
en það sem óhlýðnaðist Nóa?
Nei, miklu þyngri.
Hver sem trúir á Soninn, hefir
eilíft líf, en sá sem óhlýönast
Syninum, skal ekki sjá lífið,
heldur varir reiði Guðs yfir hon
um. Jóh. 3. 36.
Þessir andar eða sálir, sem
Jesús fór til að prédika fyrir,
voru í varöhaldi bak dauöans.
Það sýnir oss að framliönir geta
ekki náö til vor, heldur illir and-
ar, sem stíga frá undir-djúpun-
um fyrir milligöngu miðlanna,
sem eru undir áhrifum þessara
anda, sem leiknir eru í því, að
taka á sig mynd og málfæii lát-
inna manna, til aö leiða í villu
og glötun.
Allt sem andatrúarmenn og
guðspekingar segja um lífið eftir
dauðann er villa og blekking.
Það getur enginn sagt oss um
þaö, nema Hann sem kom úr
himna dýrð, Jesús Kristur, ein-
getni Sonur Föðurins, sem er
Guð sjálfur, blessaður að eilífu
Hann hefir opinberað oss það
fyrir orðið og Heilagan Anda.
Það er eins og ritað er: Það
sem auga sá ekki og eyru
heyrðu ekki, og ekki kom upp í
hjarta nokkurs manns, allt það
sem Guö fyrirbjó þeim er elska
Hann. En oss hefir Guö opinber-
að hana fyrir Andann, því And-
inn rannsakar allt, jafnvel djúp
Guðs. 1. Kor. 2. 6—10.
„Allt fram andlátið undir
oss býðst Hans hjálparráð".
Davi'Ö sagði undir persónu
Messíasar: Þú munt ekki eftir
skilja sálu mína í Helju og eigi
heldur munt þú láta þinn Heil-
aga sjá rotnun. Sálm. 16. Post.
2. 27.
Þessi orð hjá Davíð rættust
bókstaflega á Jesú, því ekki var
Hans dýrlega og guðdómlega sál
eftir skilin í Helju, og eigi held-
ur sá Hans heilagi líkami rotn-
un.
í upprisunni frá dauðum, sam-
einaðist Hans blessaða sál aftur
sínum blessaða líkama, sem í
upprisunni ummyndaðist í dýrð-
arlíkama, upphafinn yfir alla
himna, og meö þvi sýnt oss og
sannaö eiiífan guðdóm sinn og
fullt gildi friðþægingar sinnar
og endurlausnar, og dýrlega upp
risu Guðs barna á efsta degi, í
nafni Hans og mætti. Post. 4. 2.
—3.
Jesús sagði: Sá sem etur mitt
hold og drekkur mitt blóð, hefir
eilíft líf, og ég mun uppvekja
hann á efsta degi. Jóh. 6.
„Þótt líkaminn deyi og verði
að moldu, verður hann eigi að
engu, heldur á hann fyrir hönd-
um að rísa upp aftur og sam-
tengjast sálinni og verður þá
ódauðlegur. Bæði gúðhræddir og
óguðlegir rísa upp aftur“. H. H.
Og margir þeirra, sem sofa í
dufti jarðarinnar, munu upp
vakna, sumir til eilífs lífs, sumir
til smánar, til eilífðrar and-
Hvenær mun þeta veröa? Á
efsta degi er Kristur birtist í
dýrð sinni, í skýjum himinsins.
(Matt. 24. 30.31. Jóh. 6. 54.) En
vér vitum eigi hvenær sá dagur
styggðar. Dan. 12. 2. Jóh. 5. 28.
—29.
muni koma:
Komið til Jesú, allir þér er
hólpnir viíja verða, og látið frels
ast í blóði Hans, svo hjörtu yðar
verði óaðfinnanleg í heilagleika
frammi fyrir Guöi og Föður vor-
um við komu . Drottins vors
Jesús ásamt öllum Hans heilögu.
1. Þessl. 3. 11,—13.
Þú, Jesús, ert sannleikur,
lát oss fá lært.
Ei lyginnar röddum að hlýða
En veit, að oss öllum sé
indælt og kært
Af alhug þitt sannleiks orð
blfða.
H. H.
Krlstján Á. Stefánsson
Frá Boiungarvík
Framh. af bls. 7
blindar og skapar önnur umferðar-
I vandræði.
„Strandgatan er hættulegasta
gata í heimi“, sagði hafnfirzkur
borgari, „eins og dæmin sanna. Það
verður að ráða bót á þessu hið
allra fvrsta"
Kona með barn í kerru og annað
lítið, sem ók með, kom eftir gang-
stéttinni. Hún átti leið inn í bíla-
kösina hinum megin við bíóið, þar
sem sumir flýta sér ekki nógu hægt
að bakka út úr „stæðinu" svo
nefnda.
• ÁSTFÓSTUR
NUNNANNA
Árum saman ráku nunnumar,
St. Jósephssystur í Hafnarfirði,
barnaskóla. Þessi skóli gat sér orð-
stír. Fyrir nokkrum árum neydd-
ust þessar fáliöuðu nunnur til að
leggja skólann niður, vegna þess að
þær treystu sér ekki til að reka
hann án styrks frá bæjarfélaginu.
Þetta þótti ýmsu góðu fólki ó-
skemmtileg ráðstöfun, einkum
fólki, sem á börn og hafði sjálft
gengið í þennan bamaskóla og
þekkti hann af eigin raun.
Nunnumar voru ekki af baki
dottnar, þótt þeim þætti súrt í
broti að geta ekki lengur hlúð að
ástfóstri sínu, sem þær höfðu kapp-
kostað að rækta öll þessi ár.
Þær settu á stofn föndur- og leik-
skóla fyrir smábörn með tilheyr-
andi róluvelli, gæzluvelli. Systir
Lióba veitir skólanum forstöðu, og
henni til aðstoðar er systir Monika.
Þegar myndavélin nálgaðist böm-
in á róluvellinum, streymdu þau
að eins og litlu lömbin á vorin.
„Taktu mynd af mér, gerðu það“,
sögðu þau hvert í kapp við annað.
Hvítklædd nunna, þýzk, systir
Henrika sagði:
„Svona, svona, börnin góð ...“
„Þið megið ekki vera svona ná-
lægt — annars er ekki hægt að
taka af ykkur mynd“, segir gæzlu-
kona, sem líka er þýzk.
Börnin sögðu, að það væri gaman
í leikskólanum.
Systir Monika sýndi undirbún-
ingsskólann fyrir 6 ára bömin, sem
eiga að byrja i barnaskólanum í
haust.
Þau voru að reikna.
„Systir — er þetta rétt hjá mér?“
segir prakkaralegur peyi, sem gekk
til systur Moniku með dæmabókina
sína. Hún gnæfði yfir nemandann
eins og heilagt fjall, og með mildri
hendi strauk hún honum um snögg-
klipptan kollinn og sagði:
„Þetta er alveg rétt“.
Sjálfboðaliðar!
Sjálfstæðisflokkinn vantar fjölda sjálfboðaliða
við skriftir í dag og næstu daga. Þeir, sem vilja
leggja til lið sitt, hringi í síma 22719—17100 eða
komi á kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins
Hafnarstræti 19. 3. hæð (hús HEMCO).
Bílar
• •
ÞEIR tuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, sem lána vilja
flokknum bifreiðir sínar á kjördegi 22. mai eru beðnlr að
hafa samband við skrifstofu bilanefndar i Valhöll.
Skrifstofan er opin daglega frá kl. 13 — 19 alla virka
daga. Símar 15411 og 17103.
Stjóm bíianefndar Sjálfstæðisflokksins.