Vísir - 10.05.1966, Síða 5

Vísir - 10.05.1966, Síða 5
VlSIR . Þriðjudagur 10. maí 1966. 5 Ósannað að Kínverjar hafi sprengt vetnissprengju Fréttir bárust um þaö í gær, að Kínverjar hefðu sprengt vetnis- sprengju í lofti yfir Vestur-Kína, og mundi sprengjumagn hennar hafa verið álíka og tveggja kjarn- orkusprengna, sem þeir áður sprengdu, en þeirra sprengjumagn hvorrar um sig var álíka og sprengj unnar, sem varpað var á Hírósíi„a. Síðar í gærkvöldi fóru fréttir að bera meö sér, að það væri vafa bundið, að sprengjan sem sprengd var í gær hafi verið vetnissprengja, en í frétt frá Kína hafði verið sagt, að í henni hefðu verið sömu efni og í vetnissprengjum. Bandaríkjamenn sem sögðu fyrir um allar þrjár sprengjumar og hvenær þær yrðu sprengdar segja, ab ekkert liggi fyrir opinberlega um Stadarar í siúkraflugvélar í athugun er nú hjá Slysavama- félaginu hvort kaupa eigi radar í sjúkraflugvél félagsins TF-VOR og ennfremur hvort veita eigi fé f sama tilgangi til sjúkraflugvélar- innar á Akureyri. Myndi Slysavarnafélagið þá greiða 60% af kaupverði radaranna eða í hlutfalli við eign sína í sjúkra flugvélunum TF-VOR og TF-HÍS en Flugfélag íslands á hin 40%. Sem kunnugt er flýgur Bjöm Páls- son þessum vélum. Verður látin fara fram rannsókn á því hvort radarar þessir veiti verul. öryggi í sjúkraflugi áður en kaupin verða gerð, en mjög skipt- ar skoðanir em um öryggi þeirra. Telja sumir að radarar þessir séu of litlir og veiti ekki nægilega leiðbeiningu, þegar um blindflug er að ræða. Vinnum við bikar Olafs konungs í sundkeppninni? Norræn sundkeppni fer fram f sumar og er þaö í sjötta skipti sem hún er haldin. Það er samdóma álit manna að keppni þessi hafi veru !ega orðið til að auka áhuga manna á sundíþróttinni. Keppnin er í bvf fólgin að hvetja sem allra flesta til að synda 200 metra vegalengd. f öllum keppnunum ’ hefur ísland verið langhæst að hlutfallstölu, svo ið ef hún hefði ein verið látin gilda, þá hefði ísland jafnan átt að fá verðlaunin. Því hefur þótt sjálf sagt að miða hverju sinni við hlut- fallslega hækkun frá síðustu keppni. Mest var þáttakan hér á landi í annarri keppninni 1954 þegar rúm lega 38 þúsund íslendingar syntu 200 metrana eða um 25,2% þjóð- arinnar. I síðustu keppni fyrir þrem ur árum syntu 31.349 eða 17,5%. Ef íslendingar tækju sig nú til og íyntu jafnmargir og árið 1954, þá væri sigar þeirra vís. Það er því í rauninni lítill vandi að halda uppi bjóðarheiðrinum. Keppnin stendur yfir tímabilið 15. maí til 15. sept. Sigurverðlaun in i ár verða silfurbikar, sem Ólaf ur Noregskonungur hefur gefið. I framkvæmdanefnd keppninnar eru: Erlingur Pálsson, Erlingur Jó- hnnnsson, Ragnar Steingrímsson, Stefán Kristjánsson, Ingvi R. Bald vinsson, Þorgeir Sveinbjarnarson, "’orgils Guðmundsson og Þorsteinn ""narsson. það, að um vetnissprengju hafi ver ið að ræða, og muni þeir bíða með allar fullyrðingar um slíkt, þar til rannsókn á ryki sem fellur til jarðar eftir sprenginguna hefur ver ið rannsakað. Er enn ósannað með öllu, að það hafi verið vetnis- sprengja, sem sprengd var. Samkomulag er sem kunnugt er um það milli stórveldanna, að sprengja ekki kjarnorkusprengjur i lofti í tilraunaskyni, og er mjög j harmað, að Kínverjar halda áfram ' tilraunum sínum með kjamorku- vopn. Var í gær í fréttum sagt að vísindamenn og stjórnmáláleiötog- ar í Lundúnum, Washington og Tok io hefðu vítt það að Kínverjar haldi áfram þessum tilraunum, og svipaðar raddir heyrðust á afvopn unarráðstefnunni í Genf. Japahska stjórnin hefur sent kínversku stjóm inni mótmælaorðsendingu. Jafnvel þótt satt reyndist, að Kín verjar hafi framleitt vetnissprengju eiga þeir enn langt i land með að geta notað sér slíkt vopn í hem aði. SEÐLABANKI ÍSLANDS UTBOÐ Fjármálaráðherra hefur á- kveðið að nota heimild í lögum frá 6. maí 1966 tií þess að bjóða út 50 milljón króna innlent lán ríkis- sjóðs með eftirfarandi skil- málum: SKILMÁLAK fyrir verðtryggðum spari- skírteinum ríkissjóðs, sem gefin eru út samkvæmt lögum frá maí 1966 um heimild fyrir ríkisstjórn- ina til lántöku vegna fram- kvæmdaáætlunar fyrir ár- ið 1966. 1. gr. Hlutdeildarbréf láns- ins eru nefnd spariskír- teini, og eru þau öll gefin út til handhafa. Þau eru í tveimur stærðum, 1.000 og 10.000 krónum, og eru gefin út í töluröð eins og segir í aðalskuldabréfi. 2. gr. ’Skírteinin eru Iengst til 12 ára, en frá 2Ö. sept- ember 1969 er handhafa í sjálfsvald sett, hvenær hann fær skírteini inn- leyst. Vextir greiðast eftir á og í einu lagi við inn- lausn. Fyrstu 4 árin nema þeir bc/o á ári, en meðal- talsvextir fyrir allan láns- tímann eru 6% á ári. Inn- lausnarverð skírteinis tvö- faldast á 12 árum og verð- ur sem hér segir að með- töldum vöxtum og vaxta- vöxtum: Skírteini 1.000 10.000 kr. kr. Eftir 3 ár 1158 11580 — 4 ár 1216 12160 — 5 ár 1284 12840 — 6 ár Í359 13590 — ’ 7 ár ' 1443 14430 — 8 ár 1535 15350 — 9 ár 1636 16360 — 10 ár 1749 17490 — 11 ár 1874 18740 — 12 ár 2000 20000 Við þetta bætast verðbæt- ur samkvæmt 3. gr. 3. gr. Við innlausn skír- teinis greiðir ríkissj óður verðbætur á höfuðstól, vexti og vaxtavexti í hlut- falli við þá hækkun, sem kann að hafa orðið á vísi- tölu byggingarkostnaðar frá útgáfudegi skírteinis til gjalddaga þess (sbr. 4. gr.). Hagstofa Islands reiknar vísitölu bygging- arkostnaðar, og eru nú- gildandi lög um hana nr. 25 frá 24. apríl 1957. Spari- skírteinin skulu innleyst á nafnverði auk vaxta, þótt vísitala byggingarkostnað- ar lækki á tímabilinu frá útgáfudegi til gjalddaga. Skírteini verða ekki inn- leyst að hluta. 4. gr. Fastir gjalddagar skírteina eru 20. septem- ber ár hvert, í fyrsta sinn 20. september 1969. Inn- lausnarfjárhæð skírteinis, 7. maí heimild í nefndum lögam um lántöku þessa, 7. gr. Handhafar geta fengið spariskírteini . sín nafnskráð í Seðlabahka Is- lands gegn framvísun þeirra og öðrum skilríkj- um um eignarrétt, sem bankinn kann að áskilja. 8. gr. Innlausn spariskrr- teina fer fram í Seðla- banka Islands. Eftir loka- gjaEfdaga greiðast ekki vextir af skírteinum, og engar verðbætur eru greiddar vegna hækkunar vísitölu byggingarkostnað- ar eftir 20. september 1978. 9. gr. Allar kröfur sam- kvæmt skírteini þessu fyrnast, sé þeim ekki lýst hjá Seðlabanka Islands innan 10 ára, talið frá 20. september 1978. 10. gr. Aðalskuldabréf lánsins er geymt hjá S’eðla- banka Islands. sem er höfuðstóll, vextir og vaxtavextir auk verð- bóta, skal auglýst í júíí ár hvert í Lögbirtingáblaði, útvarpi og dagblöðum, í fyrsta sinn fyrir júlílok 1969. Gildir hin auglýsta innlausnarfjárhæð óbreytt frá og með 20, september þar á .eftir í 12 mánuði fram að næsta gjalddaga fyrir öll skírteini, sem inn- leyst eru á tímabilinu. 5. gr. Nú rís ágreiningur um framkvæmd ákvæða 3. gr. um greiðslu verðbóta á höfuðstól og vexti, og skal þá málinu vísað til nefnd- ar þriggja manna, er skal þannig skipuð: Seðlabanki Islands tilnefnir einn nefndarmanna, Hæstirétt- ur anrian, en hagstofu- stjóri skal vera formaður nefndarinnar. Nefndin fell- ir fullnaðarúrskurð í á- greiningsmálum, sem hún fær til meðferðar. Ef breyting verður gerð á grundvelli vísitölu bygg- ingarkostnaðar, skal nefnd þessi koma saman og ákveða, hvernig vísitölur samkvæmt nýjum eða breyttum grundvelli skuli tengdar eldri vísitölum. Skulu, slíkar ákvarðanir nefndarinnar vera fullnað- arúrskurðir. 6. gr. Skírteini þetta er undanþegið framtalsskyldu og er skattfrjálst á sama hátt og sparifé, samkvæmt 1966. Spariskírteinin verða til sölu í viðskiptabönkum, bankaútibúum, . stærri sparisjóðum og hjá nokkr- um verðbréfasölum í Reykjavík. Vakin er at- hygli á því, að • spariskír- teini eru einnig seld í afgreiðslu Seðlabankans, Ingólfshvoli, Hafnarstræti 14. Salan hefst 11. mai n.k. INNLENT LÁN RlKISSJÓÐS ÍSLANDS1966, LFl

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.