Vísir - 21.05.1966, Side 13
V í SIR . Laugardagur 21, maí 1966.
13
Burt meb allat' '^7
áœílanir 'ihaldsins í
Í É</ er sa/fmbi,
vfl aZeins byogn
cfeðdeildir fyrir
\Reykvikinga.^
‘ £ýerá móti
Mi klubrautinni
ÆTt-UN
WÆTLUN
, Écj hef yerii
atvinnu/uuí
’ 1 rnorg ar X
~Éý er Marllyn 'Thorhcius
Ma éý bjóha póstkort c
’.ri ; -í : viirnflsite £ iqqU j WRl&ijdtUÍt' j rtt^n emar - i
Ef þeir næða völdum í höfuðborgimi!
rj'eikning eins og sú, sem birtist hér á síðunni,
væri í daglegu máli kölluð skopmynd. Með
henni dregur teiknarinn upp með fáum línum það
svipmót, sem hægt er að hugsa sér að yrði yfir
borgarstjóm Reykjavíkur ef sá draumur minni-
hlutaflokkanna rætist, að þeir geti tekið völdin í
höfuðborginni.
En öllu skopi fylgir nokkur alvara.
Minnihlutaflokkarnir hafa aðeins talað um það
í kosningabaráttunni, að þeir ætli að veita Sjálf-
stæðismönnum aðhald í borgarstjórn. Þetta telja
þeir nú auðveldustu leiðina til að tala kjósendur
til fylgis við sig. Þannig vonast þeir til að komast
inn um bakdymar og ná völdunum gegn vilja
kjósendanna.
Það er einnig þeirra leið til að þurfa ekki að
svara áleitnum spumingum um það, hvemig þeir
ætla að stjóma málum borgarinnar, ef þeir kom-
ast til valda.
Lítum á teikninguna hér fyrir ofan, hún sýnir
í táknmáli viðfangsefni í þessum borgarstjómar-
kosningum.
Hún sýnir okkur fremst þann frambjóðanda,
sem hefur átt að verða beita fyrir kvenþjóðina á
Iista Framsóknarmanna. Vikum saman hefur lof-
inu um þennan kvenframbjóðanda verið hlaðið upp
méð mærðarfullum orðum, líkt og í auglýsingum
um kvikmyndastjörnur. En hvað er það i raun-
inni, sem þessi kvenframbjóðandi Framsóknar
hefur unnið sér til ágætis? Það eitt að hafa verið
blaðamaður við Tímann í nokkur ár.
Reykvíkingar vita það glöggt, að vinstri borg-
arstjórn mun aldrei geta veitt borginni þá ör-
uggu og samhentu og heiðarlegu stjóm, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn býður henni „áfram“!
yið höfum fylgzt með því, hvernig einn af fram-
bjóðendum kommúnista hefur opinberað ótrú-
legan menntahroka sinn, lýst yfir fyrirlitningu
sinni á heilli stétt þeirra manna, er „aðeins“ hafa
lokið bamakennaraprófi og gerzt ber að því sem
sérfræðingur í sálfræði, að einblína nær því á
byggingu geðdeilda í hinni „hættulegu borg“, eins
og hann kallaði Reykjavík.
Við vitum einnig, að með nýju kjörtímabili
stöndum við á morgni nýs stórmikils fram-
kvæmdadags borgarinnar. Þær áætlanir um ný
afreksverk borgaranna í uppbyggingu og stór-
framkvæmdum hefur flokkur Sjálfstæðismanna í
borgarstjóm lagt. En við hljótum um leið að
spyrja, hvemig verða þessar áætlanir framkvæmd-
ar, ef vinstri flokkarnir með sundmngu sinni og
margvíslegri sérhagsmunastreitu eiga að taka
völdin? Við höfum fengið aðeins forsmekkinn að
því í fráleitri gagnrýni Framsóknarmanna á heild-
arskipulagi borgarinnar, útúrsnúningum þeirra um
Miklubrautina, - og þó höfðu þeir sjálfir ásamt
öllum öðrum þegar samþykkt þetta skipulag!
yið vitum það glöggt, góðir Reykvíkingar, að
vinstri sigur í Reykjavík yrði á þessum tíma-
mótum ógæfa fyrir hina fögm borg okkar.
Hitt vitum við ekki, hver er borgarstjóraefni
vinstri flokkanna ef þeim tækist að ná völdum í
Reykjavík. Þeirri spurningu hafa þelr ekki svarað.
En teikningin hér fyrir ofan sýnir nokkra tákn-
mynd þess, hvem þeir hafa helzt orðað við það
mikilvæga embætti borgarbúa.
Qóðir Reykvíkirvgar, forðið frá þeirri ógæfu.
Gangið að kjörborðinu á morgun og stuðlið
að því að borg ykkar njóti áfram samhents og
ömggs meirihluta.
Kjósið því D-listann.
Auglýsingadeild VÍSIS
ER NÚ FLUTT í ÞINGHOLTSSTRÆÆTI 1 (beint á móti Álafossi).
Vegna þess hve blaðið kemur snemma út á mánudag með kosningaúrslitin þurfa auglýsingar
fyrir mánudag að berast á laugardag. Er tekið á móti auglýsingum til kl. 3 síðdegis í dag.
DAGBLAÐIÐ VÍSIR, auglýsingadeild.