Vísir - 06.08.1966, Síða 2
Ahrífaleikir í 1. deild um helgina
Knattspyman verður efst
á baugi í íþróttakeimin-
um um helgina. Leiknir
verða tveir leikir í 1.
deild á morgun og jafn-
margir í 3. deild, auk
nokkurra leikja í yngri
flokkunum.
Tekst Akurnesingum
að sigra Val £ Laugardal?
Á morgun kl. 20 fer fram einn
af áhrifamiklu leikjunum í 1.
deild, en segja má að hver ein-
asti leikur sé enn mjög mikil-
vasgur, því öll liðin nema Þróttur
eiga möguleika á sigri, og Þrótt-
ur og KR geta lent í þvf að berj-
ast gegn fallinu f 2. deild.
Valsmenn náðu þvf í fyrra-
kvöld að setjast á toppinn í 1.
deild með 9 stig eftir 7 leiki, en
Akranes er í 3. sæti með 6 stig
eftir 5 leiki. Akranes eygir því
möguleika á að ná þessu saett
síðar, og sigur þeirra gegn Val
mundi ýta undir það. Þessi tvö
lið hafa löngum háð saman harða
leiki og ekki er að efa að svo
verður einnig nú. Valsmenn eru
sterkir um þessar mundir og eru
greinilega búnir að koma auga á
íslandsbikarinn sem f rauninni er
ekki svo langt undan, — vinni
þeir Akranes í leiknum annað
kvöld. Sigur Vals mundi því gera
þá mjög sigurstranglega í mótinu.
Keflavfk hefur einnig hug
á meistaratitlinum.
En Valsmenn eru ekki einir á
sprettinum eftir íslandsmeistara-
titli. Helztu keppinautar þeirra
eru Keflvíkingar, sem hafa 7 stig
eftir 6 leiki. Keflvíkingar undir
stjóm Reynis Karlssonar, hafa
sýnt miklar og ótrúlegar fram-
farir í allt sumar og er það álit
margra að Keflavík hafi sterk-
asta liðið í dag. Keppinautar
Keflavíkur á morgun kl. 16 í
Njarðvík eru Akureyringar. Lið
Akureyrar verður að teljast
veikara en Keflavíkurliðið, en
erfitt er þó að spá um úrslitin.
Þau geta eins orðið Akureyring-
um í vil, — en satt að segja yrði
það heldur óvænt.
KR—Þróttur á botninum
á mánudaginn.
Á mánudagskvöldið heldur 1.
deildin áfram í Laugardal og nú
eru það „vesturbæjarliðin“
Þróttur og KR, sem eigast við,
en bæði þessi lið eru enn í fall-
hættu í deildinni. Eflaust selja
Þróttarar sig dýrt, — þetta er
þeirra síðasta tækifæri má segja,
og takist þeim að vinna sér tvö
stig hefur þeim tekizt að ná KR
að stigum, hafa bæði liðin þá 4
stig eftir 6 leiki. Vinni KR hins
vegar em þeir nokkum veginn
úr hættu.
Fram—Breiðablik
f bikarkeppninni.
Bikarkeppni KSÍ heldur áfram
á morgun á Melavelli kl. 16 og
keppa þá Fram-a og Breiðablik.
Fram lítur óneitanlega sterkar
út, en samt sem áður hefur Fram
átt í erfiðleikum með 2. deildar-
liðin í sumar og ekki er að vita
hvemig þeim gengur með hina
haröskeyttu Kópavogsmenn.
3. deildin.
Tveir leikir fara fram i 3.
deild um helgina. Annar er i
Borgarnesi milli Borgnesinga og
Skagfirðinga kl. 16 á morgun
en hinn er á sama tíma' á Sel-
fossi milli Selfyssinga og ná-
granna þeirra Ölfusinga. — jbp
Staðan
* I. DEILD
Staðan í 1. deild er nú þessi:
Valur 7 4 12 17:11 9
Keflavík 6 3 12 13:8 7
Akranes 5 2 2 1 8:6 6
Akureyri 6 2 2 2 10:13 6
KR 5 1 2 2 7:8 4
Þróttur 5 0 2 3 5:14 2
HEILSAN FYRIR ÖLLU!
Spennandi augnablik í spennandl Ieik. Þeir eigast við í loftinu Ellert Schram og Bergsveinn Alfonsson,
en félagar Bergsveins f Val, Sigurjón Gfslason og Bjöm Júlíusson horfa á.
NEYZLUV ÖRUR
4.—11. 9. 1966
KAUPSTEFNAN
LEIPZIG
LtJPZl Upplýsingar
Sambönd
Viðskipti
LEIPZIG býður yður að sjá:
★ 800.000 sýningarmuni, hver um sig hið nýjasta og
bezta óviðjafnanlegt framboð neyzluvarnings sýnt
í 30 vöruflokkum í 17 sýningarskálum - auk fjölda
upplýsingaskrifstofa fyrir innflutning og útflutning
iðnaðarvamings.
★ Sérstakt tækifæri til samanburðar á framboði 6500
framleiðenda frá 60 löndum og til að hitta að máli
málsmetandi fulltrúa á sviði viðskipta, iðnaðar, vís-
inda og tækni frá AUSTRI og VESTRI.
Notið tækifærið og heimsækið LEIPZIG. - Allar upp-
lýsingar og Kaupstefnuskírteini fást hjá Kaupstefnunni
- Reykjavík, Lækjargötu 6, símar 11576 og 24397 eða
við landamæri Þýzka alþýðulýðveldisins.
Þýzka alþýðulýðveldið