Vísir - 15.08.1966, Side 7

Vísir - 15.08.1966, Side 7
V Í.S I R. Mánuðagur £5. ágúst 7 Ævintýri úr Eyjum Þrjátíu og fimm ára gamall spádómur riíjast upp. Á páslcum 1931 var ég stadd- ur í litlum verlcsmiðjubæ í Mið- Svíþjðð, Surahammar í grertnd við Vtesterðs, £ boffi skédaforðð- ht mías og toerbergisfStoga, sem þar var borirm og bamfæddur. Þarna í Snrahammar eru jám- bræðsiur mðdar og jSmsteypu- sithSjue, og er það sérgrem iön- aðarmanna þar að framieiða hjtíí og öxla andir jámbrantar- vagna, og er enn. Átti ég þama hið skemmtSegasta páskaieyfi á forelðraheimiíi skðtebnSður míns, en vfð höfðum verið göð- ir féiagar aBan veturinn. Em- hvem tftna bafði hann sagt mér frá því — í trúnaðí — að móður sinni væri geffnn sá hæfileiki að sjá fyrir foriög manna, en fiíkaði því Ktt, og heyrðist mér á honum aö feríð væri með þetta eins og dutoáí inmn fjöl- skyldunnar og að bann gerði hvorki að rengja þennan hæfi- leika móöurinoar eða trúa á hann, og þætti háift £ hvoru miður að hún skyldi vera gædd honum — ef hón þá væri þaö Ekki man ég greinilega hverju ég svaraði, en fyffiiega mun ég hafa gefið í skyn, að ég væri harla vantrúaður á allt þess háttar, en þó með vægú orða- lagi, því að ekki vðdi ég særa hann. Og svo gerðist það síðla kvölds á annan dag páska, að félagi minn kom að máli við mig þar sem ég stóð fyrir dyr- um úti og virti fyrir mér bjarm- ann úr járnbræðsluofnunum, sem bar við náttmyrkan him- in. Var hann venju fremur hik andi í orði, þegar hann sagði mér að móður sína langaði til að tala við mig. „En farðu gætilega, og láttu hana ekki verða þess vara að þú leggir ekki trúnað á það, sem hún segir þér“, mælti haim iágt. „Þú manst hvað ég sagði þér einu sinni í vetur...“ Þá vissi ég hsrers kyns var. í rauninni þótti mér fyrir því, að til þess skyldi koma, því að þessi lágváxna, hlédræga og vingjamlega kona hafði strax tekið mér af svo innilegri hlýju, að mér fannst ódrengilega laun- að af minni háifu hvort held- ur ég léti sem ég tryði á um- ræddan hæfileika, hvað ég ekki gerði, eða léti í Ijós breinskiln- islega að ég legði engan trúnað á hann. Ekki rek ég hér það, sem hún FYRRI GREIN sagði mér um framtíð mína, nema hvað eitt atriði snertir. Hún talaði mikið um eyju, þar sem hún kvað margt ráðast um forlög mín, mundi ég setjast þar aö um alllangt skeið, en hverfa þaðan aftur, og lýsti hún eyju þessari þannig, aö þar væri hömrótt mjög og veðra- samt — og þar væru mikil eld- - gos. Og þar sem þetta gat allt átt við mitt eigið land, var mér auðvelt að leggja trúnað á það ... og að ég hleypti aftur heimdraganum eftir árabil og settist að erlendis — því skyldi það ekki geta átt fyrir mér að liggja? En það átti ekki fyrir mér að liggja að skilja þennan spá- dóm hennar fyrr en þrjátíu og Þorskurinn, mesti nytjafiskur á miöum við Eyjar, vlrðist kunna prýöilega við sig i sjóbúri á hinu nýja náttúrugripasafni í Eyjum, en frá því verður sagt í síðari grein. Ljósmynd: Friðrik Jesson. fiinm árum síðar, eða nánar tíl- tekið laugardagsmorguninn þann 6. ágúst sl., þegar ég stóð úti á Hamrinum á Heimaey og horfði til gosstöðvanna úti við Surtsey. Á þeirri stundu rifj- ■ % j ; t ' og - átti þar heima í tólf ár sam- fleytt, en hvarf svo þaðan heim á fastalandið. Ég bið gömlu kon una í Surahammar afsökunar á því í gröf sinni, að ég skyldi ekki aðeins vefengja þann hæfi Séð til útevia, Álfsey næst, fjærst sést t»l gosstöðvanna, en þar er með rólegasta móti þegar myndin er tekin. Ljósmynd: Loftur Guðmundsson. i aðist spádómur gömlu konunn- ar upp fyrir mér, svo að segja orði til orðs. Hún hafði sagt mér, að ég sæi eða kæmi við á þessum fyrirhugaða dvalar- stað mínum á leiðinni heim, ég hafði einmitt gengið á land í Heimaey, þegar ég kom heim með gamla „Gullfossi" úr náms- dvöl minni erlendis, og þó aö mig óraði ekki fyrir því þá, settist ég þar að rúmu ári síðar Siglt fyrir klettinn, Guömundsson. Vestmannaeyjakaupstaður blasir við með Helgafell f baksýn. Ljósmynd: Loftur leika hennar að sjá fyrir ör- lög manna, heldur og misskilja spádóm hgnnar £ öll þessi ár. Að vísu hef ég það mér til af- sökunar að ég gat ekki séð það fyrir að eldgos myndu verða í grennd við Heimaey eða meö öðrum orðum, að ég sá ekki fram í tímann eins og hún. En það er fleira, sem rifjast upp fyrir mér þennan sólfagra laugardagsmorgun, þegar éinn af mínum gömlu skólanemend- um sýnir mér það þakklætis- bragð að aká mér í bíl sínum •um eyna. Það er ekki einung- is eldgosið úti við Surtsey, sem telja má til þeirra atburða er orðið hafa í Vestmannaeyjum, er ég sá ekki fyrir þessi tólf ár, sem ég dvaldist þar, og nú eru ævintýri líkust í endurminn- ingunni. Framsækin þjóð. Eitt var það, sem mér þótti undarlegt í fari surhra Eyja- skeggja fyrst eftir að ég settist að á meðal þeirra — þeir virt- ust hálft í hvoru skoða sig sem sérstaka þjóð. Einkum þeir eldri. „Meginlandsmaður“ gat litið á það sem átthaga- gorgeir, en svo var þö ekki. Þetta sjónarmið átti fyrst og fremst rætur sínar að rekja til þeirrar einangrunar, sem Eyja- skeggjar höfðu átt við að búa öldum saman. Samgöngum við meginlandið var þannig hagað, að margt af eldra fólki í Eyjum hafði aldrei þangað komið. Þótt ótrúlegt kunni að virðast, þá kynntist ég þar íullorðna fólki, sem flutzt hafði um skeið tíl Ameríku og snúið heim aftur en aldrei stigið fæti sínum á „ísland“, eins og sumir nemend- ur mínir í bamaskólanum orð- uðu það. Ðugmikill og harðsæk- inn formaður, sem ég þekkti, 'haföi að vísu flutt fólk upp í Landeyjasand — en rennandi vatn sá hann ekki fyrr en hann hleypti heimdraganum í sam- bandi við Alþingishátíðina 1930 og ók um brúna á Elliðaánum á leið til Þingvalla, en þá var hann kominn hátt á sextugs- aldurinn! Nú er þessi einangrun úr sög- unni. Vestmannaeyingar hafa skip í áætlunarferðum til megin landsins oft í viku, og auk þess er flogið þangað þegar veður leyfir, stundum oft á dag — og kringum þjóðhátíðiná má með sanni segja að gerð sé loftbrú til Eyja, eins og til Berl- ínar á algleymistímum kalda stríðsins. Flugvöllurinn, hin mesta samgöngubót sem gerð hefur verið £ Eyjum, hefur nú verið stækkaður og endurbætt- ur, svo að flugskilyrðin eru betri og öruggari en nokkru sinni fvrr. Og nú hafa Vest- mannaeyingar ekki aðeins sitt eigið skip, „Herjólf", í áætlun- arferðum til meginlandsins, held ur og sínar eigin flugvélar. Það síðarnefnda hefði að minnsta kosti þótt ótrúlegur spádómur, árin sem ég dvaldist í Eyjum. Og það er fleira, sem þar hefur gerzt að undanförnu og til milcilla framfara horfir, sem engan 'gat órað fyrir þá — fyr ir aðeins 25—30 árum. Vest- mannaeyingar eru framsækin þjóð á öllum sviðum, þeir unna þessu litla landi sfnu heilshug- ar og trúa þvi og treysta að þeim megi takast að búa sér og afkomendum þar svo góð lífs- skilyrði, að þe'ir þurfi ekki það- an aö leita. En þeir gera sér líka ljóst að slíkt kostar áták, og séu nokkrir menn ófeimnir við að takast á við örðugleik- ana, þá eru það Vestmannaey- ingar. Hinn gjöfuli en marglyndi sjór, sem umlvkur byggð þeirra, hefur kennt þeim stórhug og áræði. Og það er blátt áfram heilsusamlegt að lcoma þangað úr barlómnum og lcvíðanum, sem einkennir okkur höfuðstað- arbúa, sem þó höfum allt til alls, og kynnast kjarki og bjart sýni Eyjaskeggja og trú þeirra á framtfðína. „Hér ríkir almenn Frh á bls. 4 i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.