Vísir - 25.08.1966, Blaðsíða 4

Vísir - 25.08.1966, Blaðsíða 4
4 V í S I R . Fimmtudagur 25. ágúst 1966 ...................• RADDMYNÐIR í STAÐ FINGRAFARA 1 svona frystihúsum er þýzka smjörfjallið geymt. Myndin frá Hamborg. „Já, ég kastaði sprengjunni i búðargluggann og vinur minn kastaði annarri aftur í búð. Við tókum allt, sem var í búðinni, og síðan sungum við, brennum, brennum, brennum“. Svertingjaunglinguririn játaði þetta opinskátt fyrir frétta- manni ameríska sjónvarpsins C.B.S. Hann lýsti nákvæmlega þátttöku sinni í óeirðunum í negrahverfum Los Angeles í ágúst í fyrra. Hann rændi búðir og kveikti I þeim. Lögreglan í Los Angeles Þjóöverjar eiga sitt smjörfjall Það eru fleiri þjóðir en Is- lendingar, sem eru í vandræð- um með smjörið sijtt. V.-þýzkir bændur hafa náð því sam- STOR LANDSMOT LÚÐRASVEITA Fimmta landsmót S.Í.L. var haldið á Selfossi dagana 24. til 26. júní s.l. og sóttu það 12 lúðra- sveitir víðs vegar að af landinu. Mótið hófst með kvnningarkvöld vöku í Selfossbíói, föstudagskvöld ið 24. júnj óg. voru þá flestar lúðra- sveitirnar mættar, en hreppsne'fnd Selfosshrepps bauð til kaffidrykkju á kvöldvöku þessari, sem fór mjög skemmtilega fram, en stjórnandi hennar var Árni Guðmundsson, Selfossi. Fóru þama fram ýmis skemmti- atriði, sem félagar lúðrasveitanna lögðu fram. Þá voru og tilkynnt úrslit í marsasamkeppni þeirri, er S.Í.L. hafði efnt til, og hlaut 1. verðlaun, kr. 10.000.00, lagið „Gamlir félagar", en höfundur þess reyndist vera Ámi Bjömsson, Hörgshlíð 10, Reykjavík. II. verð- laun kr. 5.000.00 hlaut lagið „Vor- þeyr“, en höfundur þess reyndist vera Bjarni Gíslason, Keflavík. Laugardaginn 25. kl. 10 árd. var í, Selfossbíói sameiginleg æfing allra lúðrasveitanna, en kl 13.30 gengu svo allar lúðrasveitirnar fylktu liði til Tryggvagarðs, þar sem þær léku nokkur lög hver, og einnig allar saman og mun það stærsta hljómsveit, er á íslandi hef ur leikið, eða um 230 manns, og lauk þessum hljómleikum um kl. 18.30. Um kvöldið var dansleikur í Sel- fossbíói. Kl. 10 árd. sunnudag 26. júní var settur aðalfundur S.I.L. í fundarsal K.Á. Formaður Halldór Einarsson, Reykjavík setti fundinn og stjómaði honum og flutti skýrslu um störf sambandsins á liðnu starfsári. Nefndi hann sér- staklega námskeið á s.l. hausti, sem haldið var fyrir stjórnendur lúðrasveita á Islandi og þótti heppnast vel. Ennfremur skýrði hann frá því að 25. ágúst kæmi til Islands frá Bandaríkjunum mjög kunnur túbu- leikari, Roger Bobo að nafni, en hingað kemur hann á vegum ríkis- útvarpsins og S.I.L. Svo hefur um samizt, að Roger Bobo mun halda 10 daga námskeið á vegum S.I.L. fyrir túbuleikara lúðrasveitanna, og er mikill fengur að slíkum afburða listamanni. Gjaldkeri, Eiríkur Jóhannesson, las síðan reikninga og skýrði þá, og vom þeir samþykktir. Halldór Einarsson, Reykjavik var endur- kjörinn formaður S.I.L., en ritari Karl Guðjónsson, Reykjavík og gjaldkeri Eiríkur Jóhannesson, Hafnarfirði, báðust eindregið und- an endurkosningu, og voru i þeirra stað kosnir Ámi Guðmundsson, Sel fossi ritari og Jóhann Gunnarsson, Reykjavík gjaldkeri. Eftir hádegi, að aðalfundi lokn- um, var haldið til Þingvalla og þar léku allar Iúðrasveitimar nokkur lög sameiginlega, en síðan bauð stjórn S.I.L. landsmótsgestum til kaffidrykkju í Valhöll og fóru þar fram mótsslit. Er þetta fimmta landsmót S.I.L., sem Lúðrasveit Selfoss sá um und- irbúning og framkvæmdir á, hið langfjölmennasta, sem haldið hef- ur verið. komulagi við ríkisstjórn lands- ins, að hún kaupi allt afgangs- smjör á föstu verði, sem er dá- Iítið lægra en smjörverðið á almennum markaði. Upphaflega var þetta gert til þess að brúa bilið, frá því að smjörið var framleitt og þangað til bænd- urnir fengu tekjurnar af sölu þess. En nú hefur smjömeyzla minnkað í Þýzkalandi, um leið og smjörframleiðsla hefur auk- izt verulega. Þýzka ríkið hefur byggt kælihús sem smjörið er geymt í við -4-12° hita, í 4 eða 6 mánuði. Þessi frystihús eru á 22 stöðum í V.-Þýzkalandi. Þegar séð var, að geymslugeta frystihúsanna yrði senn allt of lítil, var gripiþ. ^il; þ,egs selja 59 þús. tonn af "þessu smjöri á útsöluverði. Það rann út eins og heitar lummur, en i stað þess minnkaði sala á nýju smjöri um 38 þús. tonn. Þessi 38 þús. tonn varð að frysta og vítahringurinn var fullkomnað- ur, og nú sitja landbúnaðaryf- irvöld í Þýzkalandi og brjóta heilann um, hvað þau eigi að gera við smjörfjallið sitt. Öryggisbíll framtíðarinnar? I þessum mánuði verður lokið við að smíða fyrsta eintakið af nýstárlegum bíl. Það eru fiugvélaverksmiðjurnar Republic Aviation, sem smíða þennan bíl samkvæmt samkomulagi við New York-borg. Þessi bfll er gerður í því augnamiði að skapa sem mest öryggi fyrir farþegana. í honum eru 134 öryggis- ráðstafanir, en af slíku geta hvorki Mercedes Benz né Rolls Royce státað. Markmiðið er að gefa farþegunum a. m. k. 50% meiri líkur til að lifa af alvarlegan árekstur. fylgdist, eins og aðrir, af ákafa með sjónvarpsútsendingunni. Þeir vonuðust til að þekkja ræningjann á sjónvarpsskerm- inum, en það var árangurslaust. Sjónvarpsmennirnir höfðu gætt þess að sýna unglinginn aðeins tlft -<S> 5 í ■■ '• ..'/■'í.sí+ííiWi'f* . p'/fr. ••í vj Sýnishorn af raddmyndum. aftan frá eða ógreinilega, þann- ig að ekki var hægt að þekkja hann. Samt er unglingurinn núna kominn fyrir rétt. Að vísu héldu sjónvarpsmennirnir loforð sitt um að hilma yfir honum ef hann gæfi þessar upplýsingar, en lögreglan gat samt fundið hann og þekkt hann á röddinni. Lögreglan tók sér til aðstoðar nýtt hjálpartæki, sem símafyrir- tækið Bell hefur framleitt. Tækið býr til raddmyndir af hverjum manni, alveg eins og fingraför eru tekin. Þessar raddmvndir eru eins hjá hverj- um manni, en ólíkar raddmynd- un allra annarra manna. Glæpa sérfræðingar, dómarar og lög- fræðingar telja þetta tæki vera byltingu á sínu sviði. Það tók eðlisfræðinginn Lor- enz G. Kersta 4 ár að smíða þetta tæki. Það byggist á því, að raddbönd, munnhol, tunga, háls og höfuðvöðvar hreyfast á sérstakan hátt hjá hverjum manni. Það er sama hvort hann talar lágt eða hátt, hranalega eða mjúklega og jafnvel er sama hvort hann reynir að breyta rödd sinni. Raddmyndin, sem tækið býr til.sýnirskrýtnar bylgjulínur og hringi. Og það hefur komið í ljós að engir tveir menn segja orðið „þú“ á sama hátt. Þannig er hægt að þekkja hvern mann á rödd sinni. Kersta álítur að hægt sé að nota tækið á rannsóknum á glæpum t.d. við að greina menn sem hringja hótanir í síma, fjár- kúgara og mannræningja og einnig verður hægt að smíða fjárhirzlur og peningaskápa, sem opnast aðeins við rödd eiganda sins, en einskis manns annars. Vogakoffi ný veitinga- stofa Vogakaffi, ný veitingastofa var opnuð nýlega að Súðarvogi 20. Eigendur hennar eru þrír af eig- endum Múlakaffis, þeir Kjartan Ólafsson, Stefán Ólafsson og Tryggvi Þorfinnsson. Verður nýja veitingastofan rekin sjálfstætt og ekki í neinum tengslum við Múla- kaffi. Margir fjölmennir vinnustaðir eru í nágrenni nýju veitingastof- unnar, og er henni fyrst og fremst ætlað það hlutverk að geta séð því fólki, sem vinnur í ná- grenninu og kemst ekki heim til sín í mat, fyrir málsverði. Veitingastofan er f vistlegu hús- nteði og tekur 100 manns í sæti. Verður hún fyrst um sinn opin frá kl. 7 á morgnana til 6 að kvöldi. Á matseðlinum verður aðeins einn fastur réttur hverju sinni, en hægt verður að fá keypta sérrétti, ef óskað er. I Bandaríkjunum láta árlega um 50 þús. manns lífið f bif- reiðaslysum, og er þetta talið meiri háttar vandamál í land- inu. Margir telja, að þessar töl- ur megi lækka verulega. Reikn- að hefur verið út, að u.þ.b. 45% þeirra, sem farast í bifreiðaslys- um, mundu hafa komizt líf af ef bíllinn hefði verið heppilega útbúinn. Höfuðástæðumar fyrir dauðaslvsum í umferðinni eru tvær. Önnur er, að farþegarnir þeytast út úr bílnum við á- rekstur, en hin er að þeir rek- ast á stýrið, mælaborðið, fram- rúðuna eða gluggapóstana. Nýlega Kom út bók f Banda- ríkjunum um öryggisleysi bíl- anna og vakti þessi bók mikla athygli. Opinber rannsókn var skipuð í málinu og varð hún til þess, að gerðar voru auknar kröfur um öryggi í bandarísk- keppast tæknifræðingar nú við að innrétta venjulega bíla þann- ig, að það gefi meira öryggi. Ein af þeim hugmyndum, sem menn hafa leikið sér að, er að útbúa plastefni þannig, að á þremur hundruðustu hlut- um úr sekúndu blási það upp fyrir framan ökumanninn og myndi vegg milli hans og mæla- borðs og framrúðu. Langsamlega mestu öryggis- ráðstafanir eru þó í hinum nýja bíl flugvélaverksmiðjanna Repu blic. Hann hefur drif á öllum hjólum og diskabremsur á öll- um hjólum, og sérstakt tæki sem jafnar hemlunarstyrkinn. Flugvélaverkfræðingarnir hafa líka hugsað alls konar aðferðir til að tryggja öryggi ökumanns og farþega. Með sérstökum um bílum. Bæði þar og í Evrópu spegiltumi getur ökumaðurinn séð vel bílana, sem koma á eftir, og einnig yfir þá, sérstök ljósmerki gefa til kynna, hvort bíllinn er að auka hraðann eða minnka hann. Allar hliðar bílsins eru sér- staklega gerðar til að minnka hættuna af árékstrum. Vélinni er þannig fyrir komið, að hún rekst ekki inn f farþegarýmið við árekstur, heldur dettur niður á götuna. Sætin í bílnum eru bæði þykk og djúp og ör- yggisbelti eru, bæði til að hafa yfir magann og axlirnar. Allir takkar í mælaborðinu Iiggja djúpt í mjúku efni. Ekki hefur enn verið hafin fjöldaframleiðsla á neinum ör- vggisbíl, og ástæðan er sú, að þeir eru ekki taldir borga sig. Þeir, sem teiknuðu Republic- Framh. á bls. 6 Öryggisbfllinn, sem Republic Aviation hefur smíöað. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.