Vísir - 07.09.1966, Blaðsíða 3
V í S T R . Miðvik»^!a*r^r 7. scptember 1966.
Q
?
*
í þessum mánuöi rætist marg-
ra ára draumur Ólafsfiröinga
og fleiri sem eiga hags að gæta
í sambandi viö lagningu Múla-
vegar frá Dalvík til Ólafsfjarö-
ar. Vegurinn veröur opnaður fyr
ir almenna umferð í mánuöin-
um.
Vegurinn sjálfur er 15 km.
liggur frá Karlsvík fyrir utan
Dalvík og að Brimnesá skammt
utan viö kaupstaðinn í Ólafs-
firöi. Leiðin aftur á móti frá
t.d. Akureyri til Ólafsfjaröar
styttist úr 212 km. í 63 km.
eöa um 150 km.
Vegaframkvæmdimar hófust
Af Múlaveginum sést niður og inn til Ólafsfjarðar
I
MÚLAVEGUR opnaður í jiessum mánuði
1956, en næsta sumar á eftir
var ekkert unnið við veginn.
Voru framkvæmdir hægfara öll
árin til 1962 og aðeins veitt
frá 200-400.000 krónum ún fjár-
Iögum f veginn á ári, en síðan
1962 hefur verið unnið af full-
um krafti. Eftir 1962 var hægt
að taka lán til vegaframkvæmd
anna samkvæmt framkvæmda-
áætlun ríkisstjómarinnar. Er
reiknað meö að um næstu ára-
mót muni vegurinn hafa kost-
aö rétt liðlega 18 milljónir kr.,
en af því eru um 10 millj. kr.
lán til langs tíma.
Frá hendi Vegagerðarinnar
er vegurinn að mestu leyti til-
búinn, aðeins er eftir að mal-
bera stuttan kafla f honum fyr-
ir utan merkingar og öryggis-
skinnur, sem verða reistar með
vegbrúninni þar sem hún er
hættulegust. Verða vegskinnurn
ar eitthvað á 2. km. á lengd.
Er beöið með að opna veginn
fyrir umferð þangað til Lands-
síminn hefur lagt símakapal f
kverkinni milli vegarins og
fjallshlíðarinnar, en með þess-
um símakapli fá Ólafsfiröingar
sjálfvirkan síma.
Erfitt er að áætla nákvæm-
lega hversu lengi á ári hverju
hægt er að halda Múlaveginum
opnum, en ekki er ástæða til
að halda að hann burfi að vera
lokaöur nema í mesta lagi 2-3
mánuði yfir veturinn og ef til
vill ekki einu sinni það. Þaö
sem veldur því, að vegurinn
in- iokast, er hættan á snjó-
flj ,.n.
1 fyrravetur var mjög snjó-
þungt fyrir norðan og féll þá
fjöldi snjóflóða á veginn, sem
skiljanlega er mjög hættulegt
fyrir alla umferð. Það verður
því ekki leitazt við að halda
veginum opnum á þeim tímum,
sem hætta er á snjóflóðum.
Af Múlavegi er mjög fallegt
útsýni f góðu veðri, mjög víö-
sýnt um utanverðan Eyjafjörð
og til hafs, en f fjarska sést til
Grímseyjar. Þar má greina
byggð með sjónauka. Einnig er
mjög ánægjulegt að njóta sól-
seturs og sólarupprásar frá veg
inum, þar sem hann er f 200
metra hæð yfir sjávarfleti.
Sigurbjöm Bjarnason skrifstofustjóri Vegagerðarinnar á Akureyri kemur með kaupið vikulega í að-
setursstað vegagerðarflokksins. Með honum á myndinni til vinstri eru Sveinn Brynjólfsson og Guð-
mundur Arason deildarverkfræðingur.
mmmmmwmmrmmmm. «*» I - i
Vegagerðarbifreiðir við vinnu í veginum.
Við Ófærugjá var ein erfiðasta torfæran á veginum.