Vísir


Vísir - 07.09.1966, Qupperneq 9

Vísir - 07.09.1966, Qupperneq 9
V I S I R . Miövikudagur 7. september 1966. / i '' :■ wm L-.J V,..-'.U Fjölbreyttur íslenzkur um- buðaiðnaour Vís/r ræd/V v/'ð nokkra aðila, sem sýna framleiðsluvórur sinar i deild umbúða- iðnaðarins á Iðnsýningunni Iðnsýningin í dag er helguð umbúðaiðnaði. í deild þeirri, sem sýnir umbúðaiðnaðarfranr leiðslu landsmanna sýna 6 fyrirtæki, þ.e. Dósa- verksmiðjan h.f., Kassagerð Reykjavíkur h.f., Etna h.f., Plastprent h.f., Sigurplast h.f. og Stálumbúðir h.f. Miðað við, hve tiltölulega einhæft framleiðslu- svið hér er um að ræða, eru vörumar, sem þama era sýndar óírúlega fjölbreytilegar og sýningar stúkumar eru einnig til fyrirmyndar, varðandi smekkvísi og frágang. Vísir hefur snúið sér til nokk urra aðila, sem þama sýna framleiðslu sína og beð- ið þá að segja lesendum blaðsins frá framleiðslu sinni og eitthvað í sambandi við fyrirtæki þeirra. Kassagerð Reykjavíkur h.f.: Þreifum fyrir okkur með útflutning Við náðum fyrst tali af Agn- ari Kristjánssyni, framkvæmda stjóra í Kassagerð Reykjavíkur, en hjín er einn af stærri aðilum sem Býna framleiðslu sína á Iðn- sýningunni. Agnar sagði m.a.: — Við framleiðum allar öskj ur fyrir frystihús landsmanna og einnig framleiðum við alla bylgjupappakassa, sem notaðir eru á íslandi í dag. Við erum alltaf að vinna að framleiðslu þessara vörutegunda ásamt ann arri vinnu, sem pöntuð er hjá fyrirtækinu, svo sem gerð smá askja og annarra kassa. Hjá okk ur vinna nú um 130 manns, en tala verkafólks við verksmiðj- una er nokkuð mismunandi. Þá má einnig geta þess, að við höfum aðstöðu til að framleiða kassa undir neyzlumjólk, en fólk hér í Reykjavík hefur ekki fengið að njóta þeirrar aðstöðu að geta keypt mjólk I slíkum umbúðum ,en fólk á Keflavíkur flugvelli, á / ‘ vík aftur á móti getað gert það. Við fengum að vísu að nota það f einn dag á mötuneytinu hjá okkur hér en alls ekki lengur á þeim forsendum, að þá færu aðrir að heimta það sama, eða svo voru orð forráðamanna Mjólkursamsölunnar. — Eins og að framan greinir seljum við mest alla framleiðslu okkar á markað innanlands. Við höfum nú selt lítils háttar út til Færeyja af síldaröskjum og bylgjupappakössum. Við erum nú að kanna markaði fyrir öskj- ur í Danmörku og Þýzkalandi, einkum og sérílagi vegna þess, að framleiðslugeta öskjuverk- smiðju okkar er ekki nálægt því fullnýtt, ef aðeins er framleitt fyrir innanlands markað. Þá er og hagkvæmara að flytja út öskj ur en bylgjupappakassa, og er það vegna mismunar á flutnings kostnaði á þessum vörum. — Vélakostur fyrirtækisins er mjög fullkominn og gerist varla fullkomnari á Norðurlönd um. Margir útlendingar sem hingað koma undrast hinn ný- tízkulega vélakost fyrirtækisins og segja að hann sé fyllilega sambærilegur því sem bezt ger ist í Ameríku, en þarlendir eru fremstir á þessum sviðum. mjög vera til sóma. Þarna eru sýndar ýmsar vörur, sem ég gerði mér ekki grein fyrir, að framleiddar væru hér á landi og ég veit að þannig er ástatt um fleiri. Það er alveg sjálfsagt að kynna þjóðinni, hvað hægt er að framleiða hér og Iðnsýningin er forráðamönnum hennar til sóma. Það er gleðilegt til þess að vita, að fólk hér er farið að hafa meiri trú á íslenzkri iðnað- Krlstján Jóhann Krlstjánsson (t.v., forstjóri Kassagerðarinnar kvæmdastjóri hennar framan við sýningarstúku K assageröarinnar. og Agnar Kristjánsson frart- arframleiðslu og trúir því, að sú erlenda sé ekki endilega sú bezta. Stálumbúðir h.f.: Stálfunnur undir meðalalýsi Þá náðum við f Kristin Guð- jónsson, forstjóra Stálumbúða hf. Þess má geta til gamans að Kristinn hóf framleiðslu á fluor lömpum hér á íslandi árið 1942 og þá fyrstur allra í Evrópu. Framleiðsla þessi er ung að ár- um, var fyrst kynnt opinberlega á Heimssýningunni f New York árið 1939, og eins og fyrr getur hófst framleiðsla hennar hér áð- ur en hafið var að framleiða hana í öðrum Evrópulöndum. Kristján Guðjónsson, sagði okk- ur m.a.: — Við erum nú að vinna að framleiðslu stáltunna, sem nót- aðar eru undir meðalalýsi til út- flutnings, og eru allar slíkar tunnur, sem til þess eru notaðar hér, framleiddar hjá okkur. Þar að auki framleiðum við fluor- lampa, götuljósker, vaska úr ryðfríu stáli, og bakka af ýms um stærðum, en þessir bakkar eru notaðir fyrir matvælaiðnað landsmanna. Þess má geta, að við framleiddum alla fluor- lampa, sem notaðir eru á Iðn- sýningunni, alls 400-500 stk. — Vélakostur fyrirtækis okk ar er af fullkominni gerð, alveg 1. flokks. Þess má geta, að stærsta stálpressan, sem fyrir tækið hefur yfir að ráða, getur pressað vaskaskálar úr ryðfríu stáli og er sú eina sinnar teg- undar á landinu. Hjá fyrirtæk- inu vinna nú um 40 manns, en vinnuaflsskortur háir fyrirtæk- inu mest í dag. Verkefnin eru næg framundan, og framleiðslan hefur aukizt ár frá ári. Iðnsýningin, sem nú stendur yfir, hefur gengið mjög vel. Að sókn að henni hefur verið betri en menn þorðu að vona. Sýning in hlýtur að vera hvatning til íslenzkra iðnrekenda til vöru- vöndunar, en ég tel, að vöru- vöndun sé hið þýðingarmesta at riði, sem við verðum að leggja aðaláherzluna á, til að mæta samkeppni frá erlendri iðnaðar framleiðslu. Plastprent h.f. og Etna h.f.: Vaxandi eftirspurn Þá náöum við tali af Hauk Eggertssyni. sem er annar af framkvæhidastjórum fyrir Plastprent h.f. bg Etnu h.f. Framh 4 bls 6

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.