Vísir - 29.09.1966, Page 6
6
V1SIR . Fhnmtudagur 29. september 1966.
- Sólheimabúbin auglýsir:
Japönsku stretchbuxumar einlitu margeftirspurðu
komnar aftur.
Hvftir fimleikaboiir fyrir gagnfrœðastigið.
Bláar fimleikabuxur telpna
Hlvítar og svartar fimleikabuxur drengja, einnig mikið
af ódýrum nærfötum telpna og drengja.
ódýrt sængurveraléreft mislitt.
Hvitt og mislitt damask í miklu úrvali.
Sólheimabúðin, Sólheimum 33.
Siml 34479.
Húsbyggjendur
Nýkomið eikar- og belingaparkett 15 og 20
m.m. massívt.
Fáum innan skamms hinn ódýra trysil plötu
panel í 20 cm breidd, verð frá kr. 75 platan.
ÍSPLAST H.F.
Skóiavörðustíg 1A, sími 24940
Tilboð óskast í
Moskvitch 408
árg. 1966 í því ástandi sem bifreiðin er eftir
árekstur. Bifreiðin er til sýnis í bifreiðaverk-
stæði Tómasar Guðjónssonar Laugarnes-
tanga. Tilboðum skal skilað á skrifstofu
vora fyrir kl. 12 laugard. 1. okt.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem
er eða hafna öllum.
ÁBYRGÐ H.F., Skúlagötu 63
Garðhús við Hraunbæ
5 herb. endaíbúð
*
Höfum til sölu 140 ferm. garðhús fokhelt við
Hraunbæ. 4 svefnherbergi, 1 stór stofa þvotta
hús, geymsla, bað og w.c. Allt á sömu hæð.
Hagstætt verð og útb. Verður tilbúið eftir
hálfan mánuð. Bílskúrsréttur.
5 herb. endaíbúð í blokk við Laugarnesveg
115 ferm. Mjög góð íbúð. Laus fljótlega. Út-
borgun 750 þúsund krónur.
Austurstræt) 10 a, S.
hæð.
Simi 24850.
Kvöldsimi 37272.
Verzlunarhúsnæði
Verzlunarhúsnæði í miðbænum til leigu strax
Tilboð merkt: „1. okt. 202“ sendist augl.d.
Vísis fyrir föstudagskvöld.
Herbergi til leigu
Stórt herbergi til leigu strax í miðbænum.
Algjör reglusemi áskilin. Tilboð sendist augl.
d. Vísis merkt: „Herbergi 205“ fyrir föstudags
kvöld.
Minni dýralæknaskortur
Aðeins 5 emhætti í héraði ósett
Dýralæknum hefur fariö heldur
fjölgandi hér á landi hin síðari ár.
Er nö svo komið, að aðeins er ó-
Þotft —
Framhald af bls. 1.
smiðjum. Þrettándu hverja sekúndu
er Boeing-þota að lenda eða í flug-
taki og alls eru þoturnar frá verk-
smiöjunum orðnar 826 talsins hjá
57 flugfélögum og nokkrum aðil-
um öðrum.
Hvað um íslenzku þotuna, er
smíði hennar hafin?
„Vélin er enn ekki komin á færi-
bandið hjá okkur. En smíði hennar
er samt hafin í hinum ýmsu sér-
deildum, en í janúarmánuði n. k.
er ráðgert að hlutirnar komi á
færibandið og samsetning hefjist".
Að lokum sagði hann:
„Ég er ekki í nokkrum vafa um
að þetta er vélin sem hentar hér.
Ég kom sjálfur með „sexunni“ ykk-
ar í gærkvöldi frá Kaupmannahöfn.
Ég naut flugsins að vísu allvel, þó
vélin væri allt of full og flughrað-
inn lítill, en ég held að allir muni
njóta 727 betur, svo hröð er hún,
hljóðlítil og rúmgóð. Þetta veröa
mikil viðbrigði.
Eins og kunnugt er kostar þessi
fyrsta íslenzka þota um 300 millj.
króna og eru varahlutir, þjálfun og
hinar viðamiklu handbækur o. fl.
innifalið.
Sex áhafnir verða á flugvélinni
og þurfa Flugfélagsmenn sennilega
að senda utan til þjálfunar 12
flugmenn, 6 vélamenn, 24 flug-
freyjur, nokkra flugumsjónarmenn
og hluta af flugvirkjaliði sínu.
Vörugeymsla
100 — 200 ferm. vörugeymsla
óskast til áramóta. Sfmi 12800.
KARATÉ
Kerfisbundin sjálfsvörn fyr
ir sjálfstraust og ákveðni
í vöm.
Nánari upplýsingar í síma
16188, Suðurgötu 14.
Eldhúsið, sem allar
húsmœður dreymir um
Hagkvcemni, shlfegurð
og vónduð vinna á öllu.
ALBERTSSON C HANNESSON
P.O. BOX 571, REYKJAVÍK
SÍMI: 1-93-44
sett í 5 dýralæknaembætti af 20.
Vantar enn dýratækna á Vestf jörð-
um, Skaftafellssýslum og á Norð-
austúrlandi.
— Það er auðveldara að sætta
sig við dýralæknaskortinn en
læknaskortinnn í dreifbýlinu, vegna
þess að dýralæknar eru hreinlega
ekki fyrir hendi til að senda út í
dreifbýlið, sagði Páll Agnar Páls-
son yfirdýralæknir í viötali viö
Vísi. — Dýralæknum fjölgar þó
ári frá ári og engin vandkvæði
virðast vera á því að fá þá til að
setjast að í dreifbýlinu.
Um þessar mundir eru 9 stúd-
entar við nám í dýralækningum,
en óvíst er að þeir skili sér allir.
Námið er erfitt og dýrt og heltast
því margir úr lestinni. — Tveir er-
lendir menn stunda dýralækning-
ar hérlendis, Karl Kortsson á Hellu,
sem hefur fengið íslenzkan ríkis-
borgararétt, og Per Knudsen á Ak-
ureyri sem er Norömaður. Hefur
hann nú starfað hér á landi í liö-
lega 14 ár
Páll Agnar sagði, að allir dýra-
læknarnir hefðu nóg að starfa.
Þegar bændur kynntust þvi, hvað
þeir kynnu og gætu, leituðu þeir
Upp keim! um
skortgripnsmygl
Sakadómaraembættinu barst
fyrir tveimur dögum bréf frá
Ólafi Jónssyni tollgæzlustjóra,
þar sem tolígæzlustjóri skýrði
frá því að hann hefði rökstudd
an grun um að íslenzk kona
hefði keypt skartgripi fyrir lið-
lega 60.000 kr. erlendis og flutt
þá hingað til iands án þess að
skýra frá því í tolli. Rannsókn
arlögreglan tók þegar við rann
sókn málsins og í gær játaði um
rædd kona að hafa smygiað inn
skartgripum.
Skilaöi hún skartgripunum á-
samt reikningi fyrir þá, sem
hljóðaöi upp á rúmlega 60.000
krónur í erlendum gjaldeyri.
Hafði hún ekki enn selt neitt af
skartgripunum, sem aöallega
voru skarthringir úr gulli og
silfri. Pakkinn, sem skartgrip-
imir voru í vó ekki nema um
500 grömm og hefur því verið
tiltölulega auðvelt fyrir konuna
að komast með smyglvaming-
inn í gegnum tollinn.
Tollur á skartgripum úr dýr
um málmum er 100% hér á
landi. Þegar söluskattur og ann
að bætist við, lætur nærri aö
álagning'.n verði um 116%.
til þeirra með vandamál sín. —
Margir bændur hefðu þó svo lengi
þurft að bjarga sér upp á gamla
mátann, að það tæki nokkum tíma
fyrir þá að venjast dýralæknum.
— Þaö er nauðsynlegt fyrir hverja
þjóð, sem vill kallast landbúnaðar-
þjóð, að hafa fullnægjandi dýra-
læknaþjónustu, sagði yfirdýralækn-
ir að lokum.
Hellisheiði
Framh at bls. 1.
Verður hraðbrautin af sömu
gerð og Keflavíkurvegurinn með
föstu slitlagi 7% m á breidd og
með öxlum 2 metmm á hvorn
veg. Verður þessi vegarspotti í
beinu framhaldi af Þrengslaveg-
inum, sem núna er verið að
hækka og breikka og ganga end-
anlega frá.
Talaöi blaðið í morgun við
Sigfús örn Sigfússon hjá Vega-
málaskrifstofunni, sem sagði að
vegarspottinn, sem nú er veriö
að vinna við sé á kaflanum frá
Svínahrauni niður að Lækjar-
botnum. Sagði Sigfús, að sam-
kvæmt aðalskipulagi Reykjavik
ur, sem samþykkt var í fyrra,
byrjaði hraöbrautin við nýju
Reykjanesbrautina, eða við
Blesugrófina. Heldur brautin sið
an upp meö Elliöaánum að sunn
an rétt norðan við Rauðhóla og
þaöan beint að Lækjarbotnum
þar sem hún mun skera gamla
veginn. Veröur brautin síðan
norðan við gamla veginn frá
Lækjarbotnum upp í Svína-
hraun. Reiknað væri með hrað-
braut alla leiö austur að Skeiða
vegamótum, 15—16 km austan
við Selfoss.
Hefur Vegamálaskrifstofan nú
til umráða 7—8 milljónir kr.,
sem lagöar verða m. a. í undir-
byggingu nýja vegarspottans og
einnig í lagfæringu og endur-
byggingu Þrengslavegarins, sem
fyrrgreint er, en endarlega verð
ur gengið frá honum í haust.
Hafa fimm ýtur og valtari unn-
ið undanfarið í Svinahrauninu
við undirbyggingu vegarins og
talsvert hefur orðið að sprengja
fyrir undirlaginu.
Leiðrétting
I fréttinni af góðakstrinum í olaö
inu í gærdag sagði, aö sigurvegar-
inn Hannes Wöhler væri starfs-
maður hjá íslenzk-erlenda verzlun-
arfélaginu. Þetta er rangt. Hið
rétta er hins vegar, að hann starf-
ar sem verzlunarmaöur hjá ís-
lenzka verzlunarfélaginu h.f.,
Laugavegi 23.
Herbergi óskast
Þrjú herbergi, helzt með húsgögnum, óskast
fyrir þrjá Svía, sem vinna við Sundahöfn. —
Ákjósanlegast í norð-austurhluta borgarinnar.
Skrifleg tilboð sendist augld. Vísis merkt
,,Sundahöfn“' eða í síma 17339 fyrir föstu-
dagskvöld.
Pósthólf
Óska eftir pósthólfi á aðalpósthúsinu við Póst-
hússtræti. Tílboð leggist inn á auglýsingadeild
blaðsins merkt „3299“.