Vísir - 12.10.1966, Page 1
VAR STOÐVAÐUR AF RAD
VISIR
56. árg. — Miðvikudagur 12. október 1966. — 233. tbl.
ARLOGREGLU
ók 4 min. s/ðor á konu á miklum hraða
Furðulegur ökirferill leigubilstjóra
Fjárlagofrumvarp ársins 1967 var lagt fram á Alþingi í gær:
BNGIR NÝIR SKA TTAR EN MIK-
ILL GREIÐSL UA FGA NGUR
Rekstrarafgangur rík-
isins árið 1967 er áætl-
aður 381 milljón króna
og greiðslujöfnuður rúm
lega 150 milljónir króna.
Heildartekjur ríkissjóðs
eru áætlaðar um 4,6
milljarðar króna, sem er
22.4% hækkun, og heild-
arútgjöldin um 4.2 millj-
arðar króna, sem er 18%
hækkun. Þessar tölur
koma fram í fjárlaga-
frumvarpi ársins 1967,
sem lagt var fyrir Al-
þingi í gær. Þrátt fyrir
greiðsluafganginn gerir
frumvarpið ekki ráð fyr-
ir neinum nýjum skött-
um.
Meginstefna fjárlaganna er ó-
breytt frá því í ár. Lögbundn-
ar fjárveitingar eru um 75% af
heildarútgjöldunum. í frumvarp
inu er gert ráö fyrir, að fjár-
festingarfé verði aukið, einkum
til framkvæmda, sem eru langt
komnar. Þetta fjárlagafrumvarp
er hið fyrsta, sem samið er á
vegum nýrrar fjárlaga- og hag-
sýslustofnunar, sem sett var á
stofn fyrr á þessu ári í fjármála-
ráðuneytinu.
Nánar er sagt frá frumvarp-
inu á bls. 8 í VIsi f dag.
Ökumaður einn var stöðvaöur
í fyrrakvöld af Iögreglumönn-
um umferöardeildar, sem höfðu n
staðið manninn að ólöglegum s.
ökuhraða í hinu slæma skyggni,
sem var þetta kvöld af völd-
um rigningarinnar. Var þetta í
Borgartúni.
Eftir að lögreglan hafði rætt
við manninn hélt hann för sinni
áfram austur Borgartún. Næsta
sem gerist er að lögreglunni er
tilkynnt um slys á mótum Hrísa-
teigs og Sundlaugavegar. Kom
í ljós, að hér var sami ökuþór
að verki.
„Mér datt satt að segja ekki
í hug annað en hér væri um
stórslys að ræða“, sagði Borg-
þór Jónsson í rannsóknarlög-
reglunni í morgun, „en sem bet-
ur fer hafði kona meiðzt furðu
lítiö". Bremsuför nýja ameriska
leigubflsins reyndust vera 20 og
19 metrar.
Blaöið hefur fregnað, að maö-
ur þessi hafi á undanfömum ár-
um hvað eftir annað verið vald-
ur a3 ýmsum umferðaróhöppum
og mun eiga sök á a. m. k. 6
árekstrum og hvað eftir annað
verið tekinn fyrir allt of hraðan
akstur.
Mál mannsins er nú f rann-
Framh. á bls. 6
Drengur fyrir bíl
í morgun
í morgun um níuleytið varö 9
ára gamall drengur á reiðhjóli fyrir
bifreið á Reykjanesbraut skammt
frá bensinafgróiðslu Skeljungs. Of
hraður akstur virðist hafa verið
meginástæðan fyrir óhappinu, því
hemlaförin vom 27 metra löng,
enda þótt ökumaður teldi sig hafa
ekið á 40 km hraða. Menn bif-
reiðaeftirlitsins reyndu hemlana á
þessum hraða og þá reyndust förin
aðcins 7 metrar!
Drengurinn, Ellert Jón Þorgeirs-
son til heimilis að Stigahlíð 28,
meiddist furðu lítið, skrámaðist að-
eins lftilsháttar.
Samningar um
fyrsta áfanga
Sundahafnar
í morgun kl. 11:45 voru á
skrifstofu Hafnarstjóra í Reykja ‘
vík imdirritaðir samningar um,
byggingu 1. áfanga Sundahafn-1
ar. Eru samningamir mllli ]
Reykjavíkurhafnar annars vegar ,
og fyrirtækjanna Skaanska Cem 1
entsgjuteriet, Malbikun hf. og '
Loftorka hf.. Fyrlr hönd Reykja .
vikurhafnar undirrituðu samn-1
ingana þeir Geir Hallgrímsson,'
borgarstjóri og Gunnar B. Guð .
mundsson, hafnarstjóri. Gert er 1
ráð fyrir, að lokið verði við ]
framkvæmdir við 1. áfangann á <
22 mánuöum. Framkvæmdir1
munu hefjast mjög bráölega.
BorgardómaraembættiS
flytur I HallveigarstaSi
Þrir dómsalir, einn útbúinn á þann hátt
flýtt geti vitnaleiðslum og dómum
að
Um áramót flytur Borgardóm
araembættiö væntanlega úr hús-
næðinu, sem það hefur haft-
að Laugavegi 13 £ nýtt húsnæði,
Hallveigarstaði á mótum Tún-
götu og Garðastrætis. Stórbatn-
ar öll aðstaða embættisins við
þessa flutninga. Hingað til hafa
bæjarþing t. d. verið haldin í
Hegningarhúsinu viö Skólavörðu
-«>
Bátur strandar vest-
an við Dyrhólaey
Vélbáturinn Öölingur frá Vest-
mannaeyjum strandaði í nótt á
söndunum 2 til 3 mílur vestan við
Dyihólaey, einhvem tíma milli kl.
2 og 4. Sat báturinn þar fastur á
sandi í morgun, en Lóðsinn var á
leið austur þangað og björgunar-
leiöangur lagði af stað úr Reykja-
vik í nótt. Verður reynt að ná
bátnum út á flóðinu í dag.
um
borð í
neinni hættu,
logn og
Skipverjar eru allir
Öðlingi og ekki í
enda er veður mjög gott,
sjólaust.
Báðurinn, sem er eign Fiskiðjunn
ar í Vestmannaeyjum, hefur verið
á togveiðum við Suðurland í sumar.
Ekki er vitað um orsakir strands
ins, né hvort báturinn er mikið
skemmdur.
stíg og ennfremur hefur einn
borgardómaranna haft skrifstofu
sfna að Laugavegi 18. Með til-
komu nýja húsnæðisins verður
allt embættið á sama stað.
Talaði blaðið í morgun við
Magnús Thoroddsen fulltrúa hjá
embættinu og sagöi hann aö í
nýja húsinu yrðu réttarsalirnir
miklu betri en verið hefur. Gert<5>
væri ráð fyrir þrem dómsölum
og væri hægt að-halda almennt
bæjarþing í þeim. Ennfremur
væri verið að ræða um þaö að
með tilkomu nýja húsnæðisins
yrði hægt að taka upp ýmsa
tækni í þjónustu embættisins.
Meðal annars með því aö taka
vitnaleiðslur upp á segulband en
fram að þessu hafa þær verið
bókaðar. Ætti það að geta flýtt
fyrir vitnaleiðslum; ef væri not-
að að ráði. Væri einn salurinn
sérstaklega útbúinn í þeim til-
gangi. Þegar vitnaleiðslur færu
fram á þennan hátt væru vana-
lega hljóðnemar í salnum og seg-
ulband í næsta herbergi, sem
tæki upp. Væri dómari með einn
hljóðnemann hjá sér en hinir
hjá lögreglumönnum og vitni.
Gæti dómari stjórnaö upptök-
unni með tökkum í borðinu hjá
sér. Ennfremur hefði verið talað
um það að dómarar töluðu dóma
inn á segulbönd, sem vélritunar-
stúlkur tækju síðan upp og ættu
dómar að geta gengið hraöar
með því móti.
Biðröð húsmæðra
að taka slátur
í dag lýkur slátursölunni hjá 1
tveim aðilum af þrem, sem að ,
henni standa, Afurðadeild SÍS <
og Verzlanasambandinu en hjá ]
Sláturfélagi Suðurlands stendur (
hún út alla þessa viku.
Eru því síðustu forvöð fi-.r ’
húsmæður að taka slátur núna i
og mynduðust í morgun biðraðir 1
við þá staði, sem slátursalan fer (
fram. Var komin all álitleg bið-
röð fyrir framan Ás á Laugavegi '
160 snemma í morgun. Er ekki (
óalgengt að húsmæður hafi stað- 1
ið tvo tíma í biðröð áður en þær ]
] komust að en allar vilja þær
, taka daginn snemma i slálurtíð
Helgi V. Jónsson settu<
borgarendurskoðandi
Helgi V. Jónsson, hdl., sem gegnt
hefur starfi skrifstofustjóra borg-
arverkfræðings, hefur nú verið sett
ur borgarendurskoðandi, skv. til-
lögu borgarráðs, sem borgárstjórn
samþykkti.
Helgi V. Jónsson er þrítugur að
aldri. Lauk stúdentsprófi frá Verzl-
unarskóla Islands og síðan lög-
fræðiprófi frá Háskóla íslands ár-
ið 1960. Að því loknu starfaði
hann á endurskoðunarskrifstofu
sér í borg, og síðan sem skrif-
stofustjóri borgarverkfræðings.
Jafnframt þessari tillögu borgar-
ráðs um setningu Helga V. Jóns-
sonar í fyrrgreint embætti, fól það
honum og Kristjáni Kristjánssyni,
borgarbókara, að taka bókhalds-
kerfi borgarsjóðs og borgarstofn-
ana til endurskoðunar og gera til-
lögur um skipulag þess.