Vísir - 12.10.1966, Blaðsíða 15
75
VlSIR . Miðvikudagur 12. október 1966.
>f
J. B. Prh'
Næturgestir
smmmmammmmmmmmmmmammm
— Þaö er rammasta alvara, Bill
en þér má vera fjandanum sarna.
Þú ert lika alltof skikkanlegur. Þú
aettir að gleðjast yfir þessu.
— Ætti ég það? Ja, þú ert ekki
að tvínóna við hlutina, verð ég að
segja. Og er þetta gagnkvæmt, ef
ég má spyrja? Hvað segir hann?
Hún kinkaði kolli alvarleg á svip
Svo bjarmaði allt í einu af andliti
hans, og af því að það eimdi enn
eftir af einhverju, sem var við-
kvæmt og fagurt í huga Sir Willi-
ams fannst honum að hann væri að
horfa á sólarlag í heimi, sem ekki
væri vert að lifa í.
— Ég get nú ekki farið að segja
þér ... byrjaöi hún
— Vertu þá ekki að því. v
Svo varð hann blíðmálli.
— Láttu það bara koma —
komdu með alla söguna.
— Þaö er ekki tími til þess, en
hlustaðu nú á mig Bill. Það er al-
veg ástæöulaust fyrir þig að reið-
ast. Og þótt þú þættist vera það
veit ég vel, að það er uppgerð.
Þér er alveg sama. Hann kemur
með mér til borgarinnar. Ég vil að
hann taki sig á, hefjist handa, komi
sér áfram og það hefur vaknað vilji
hjá honum til þess. Þú sást hve
leiður hann var á öllu — en nú
ætla ég aö hafa hönd f bagga...
— Gamla sagan, sagði hann og
hló hæönislega. Þú ætlar sem sagt
að koma honum á réttan kjöl. Og
þér er alvara með þetta?
— Já, og okkur mun vel farnast.
Og þú gætir hjálpaö til — útvegað
honum eitthvað að gera.
— Nei, þetta finnst mér vera há-
mark frekju ... og þú ímyndar þér
í raun og veru að þú sért ástfang-
in?
— Talaöu ekki eins og bjálfi.
Það er ekki frekja og það veiztu vel
— og hann er fyrirtakspiltur, fullur
af lífsfjöri. Flýttu þér nú að segja
að þú ætlir að leggja okkur lið,
því aö nú kemur hann.
— Við sjáum nú til, sagði hann,
og hún leit þakklátlega til hans.
— En ég verð að tala við hann
sjálfur fyrst, bætti hann við —
Jæja, þá byrjar lífið aftur, kallaði
Penderel glaðlegri röddu — þið
þama, Gladys og Sir William, ég
er kominn í þurra sokka og brækur
— og er sem nýr og betri maður. En
það var koldimmt í þessu herbergi
og ég stóð þarna rétt innan dyr-
anna og h>'J’ ekki hugmynd um
hvað er í ' :rginu. En — það er
svo sem degmum ljósara hvað þið
hafiö verið að gera — að tala um
mig. Þögnin skýrir allt. Og ég get
getið mér til hvað sagt var. Og hér
er sönnunin: Sir William er fylli-
lega ljóst, að þótt hann sé fús —
þá er ég það ekki.
— Þú hefur staðiö á hleri, sagöi
Gladys reiðilega.
— O, ég heyrði bara þrjú orð —
og um hitt hef ég hugboð. En snú
um okkur að ööru: Fyrsta hlutverk
mitt í þessu nýja lífi er að finna
Waverton dg frú, ög' ef naiiösýn
krefiir læðumst við um allt húsið
þar til við heyrum hroturnar í
Waverton. Svo svæfum við Sir
William meö vögguvísu og við
Gladys finnumt eitthvert horn, þar
sem við getum haldið áfram að
masa saman — vafalaust sofnar
hún út frá því ,en ég masa vafa-
laust áfram þar til dagur rennur.
Þá kemur herra Femm niður með
morgunteið — ef þá á annaö borð
er hægt að gera sér vonir um að fá
tesopa í þessu húsi. Reynið að
hugsa þá hugsun til enda.
— Það get ég ekki sagði Gladys
Og ég hata þetta hús.
Passamyndir
Teknar í dag — Tilbúnar á morgun.
Sér tímar eftir samkomulagi.
Ljósmyndastofa Péturs Thomsens
Ingólfsstræti 4. Sími 10297, eftir kl.
7 sími 24410.
— Já, skemmtilegt er það ekki,
sagði Sir WiIIiam.
Penderel horfði nú rannsakandi
augum á Gladys, sem gekk fram og
aftur um gólfið.
— Þetta er það versta greni,
sem ég hef komið í, sagði hún og
hefur maður þó séð sitt af hverju
— og svo er þessi lykt — eins og
rotnunarlykt.
Hún gekk að stiganum.
Sir William dró Penderel til hlið
ar.
— Vitanlega kemur það mér ekki
við, sagði hann, en hvað er þetta
á milli ykkar Gladysar?
— Sjálfsagt að segja yður frá
öllu, sagöi Penderel, jafnkátur og
áður, en annars er þetta fram úr
máta kyndugt. Við ættum í raun-
inni að fara hjá okkur, stama og
vera hlédræg ...
— Ágætt, þannig lít ég einnig á,
en við skulum bara fá þetta frá.
— Ja, hérna — en það gleður
mig. Og þá kemur það: Ég ætla að
ganga að eiga Gladysi — það er að
segja ef hún vill mig, því að ég
er ekki búinn að spyrja hana. Þetta
er öll mín saga.
— Fléstir mundu segjá, að ekki
gæti verið um nema tvennt að
ræða: Annað hvort að þér séuð
framúrskarandi hugrakkur maöur
eða kolbrjálaður.
Sir William sagði þetta allþung-
lega. Hann vildi gjaman koma fram
af sanngirni við þennan unga mann
sem virtist úr flokki þeirra sem
flöktandi eru, en sem maður get-
ur þó ekki annaö en haft samúð
með.
— Ég tek ekki undir það, sem ég
tel mundi vera almennt álit, sam-
anber það sem ég áður sagði. Lík-
lega gæti ég skrifað undir hvort
tveggja, að þér væruð bæði hug-
rakkur og brjálaður. En líklega
er þetta eitt mesta og bezta dags-
verk yðar á ævinni.
— Já, meö því er nú ekki mikið
sagt, sagði Penderel hógværlega, en
ég skil hvað þér eigið við. Þó get
ég ekki sagt annað en að ...
— Ég heyri einhvern tala þama
uppi kallaði Gladys. Hún stóð enn
við neðsta stigaþrepið.
Penderel gekk tvö eða þrjú skref
í áttina til hennar.
— Það hljóta að vera Waverton-
hjónin, hélt Gladys áfram. Kannski
þau hafi farið þarna upp til þess
að halda áfram að spila „Sannleik-
ann“ og glápa hvort á annaö.
Hún lyfti hendi sinni eins og f
aðvömnarskyni.
| — Uss, hvíslaöi hún. Þau eru að
| koma niður, en hvað er þetta ...?
! Gladys horfði orðlaus á þau æða
niður stigana, föl og skefld á svip
föt þeirra rifin.
— Hlustið á mig, sagði Philip og
hljóp til þeirra Sir Williams og
Penderels, en Gladys þreif í Marga-
ret Waverton og spurði:
— Hver þremillinn gengur á —
flýtið yður að svara?
Gladys var allt í einu gagntekin
ótta af tilhugsuninni um hvaö nú
mundi ske. Henni fannst eins og
allt væri að hrynja í rúst.
— Það er brjálaður maður þarna
uppi, sagði Margaret. Hann var
læstur inni, en Morgan hefur sleppt
honum út. Hann er hættulegur —
það eru þeir báðir.
— H 'ar er hann nú?
Það var þá komið í ljós sem hana
hafði gmnað allt kvöldið, að eitt-
hvað ógurlegt væri í aðsigi.
— Þarna uppi — einhvers staöar
Hún benti upp eins og í algeru
vonleysi.
— Kannski koma þeir niður.
— Við verðum þá öll að læsa
okkur inni einhvers staöar.
— Hann gæti kveikt í húsinu —
hann hefur reynt það fyrr.
— Þeir ættu að geta komið í
veg fyrir það — þeir eru þrfr.
Gladys leit allt í einu til þeirra
og svo var eins og henni og Marga-
ret hefði dottið það sama f hug.
Þær flýttu sér báðar til þeirra.
— Þótt hann sé sá jötunn sem
sagt er ættum við þrír aö geta
ráðið við hann, sagöi Penderel.
Hann var kaldur og rólegur og
öllum hinum til undrunar virtist
hann hinn hugrakkasti.
— En svo er Morgan, gleymið
iformaf
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTjNGAR
úr harðplasti: Format innréttingar bjóða upp
á annaS hundraS tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar með baki.og borðplata sér-
smið'uð. Eldhúsið faest með hljóðcinangruð-
um stólvaski og raftækjum af vönduðustu
gerð. - Sendið eða komið með mól af eldhús-
inu og við skipuleggjum eldhúsið samstundis
og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlega hag-
stætt verð.Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra greiðsluskilmóla og |C\.|.|.
lækkið byggingakostnaðinn. JKírafTæki
HÚS & SKIP ,hf.- lAUOAVtGI H • SIMI Í15IJ
T
A
A
VOU CKUSH
MV JAW-I SHANT
BE ABLE TD GtVE
YOU THE StMPLB
EXPLANATION/
— Peter! ,
— Tarzan! Ekki hélt ég að þú saknaðir
mín svona mikið.
— Hvers vegna drapstu fílinn?
— Vertu rólegur, gamli minn. Ég varð að
gera þaö.
Ef þú brýtur á mér kjálkann
ekki skýrt þetta út fyrir þér.
honum ekki, sagðí Philip, ég varð
að takast á við hann þarna uppi,
og það varð mér til bjargar aö ég
gat b. ..göið fæti fyrir hann. Hann
er sterkur sem naut. Ég veit ekki
í hvaða ástandi hann er nú, en
hann er búinn að drekka mikið.
— í versta tilfelli gætum við lagt
á flótta, sagði Sir William oz
kannski væri það bezt fyrir alla,
að við kæmum okkur af stað;
— Þér gleymiö hvað Waverton
sagði, sagöi Penderel. Hann gæti
kveikt í húsinu.
Orösending
til bifreiöa-
eigenda
Nú getið þið nýtt hjólbarða
ykkar til fullnustu með því að
láta okkur dýpka eða skera nýtt
munstur í hjólbarða ykkar. —
Opið virka daga kl. 8-12.S0 og
14 - 20, laugardaga frá kl. 8 -
12.30 og 14 -18, og sunnudaga
eftir pöntun í síma 14760.
MUNSTUR OG
HJÓLBARÐAR
Bergstaðastræti 15
(gengið inn frá Spítalastíg)
METZELER
hjólbarðarnir eru sterkir og
mjúkir, enda vestur-þýzk gæða-
vara.
Hjólbarða- og benzinsalan
við Vitatorg. Sími 23900
Barðinn h.f.
Ármúla 7. Sími 30501
4 ”-nna Verzlunarfélagið h.f.
Skipholti 15. Sfmi 10199 |