Vísir - 12.10.1966, Blaðsíða 6
6
V1SIR • Miðvikudagur 12. október 1966,
O Alþingi kaus í gær forseta
Sameinaðs þings og deilda. Voru
þeir allir endurkjömir frá síö-
asta þingi. Birgir Finnsson verö-
ur forseti Sam. Alþ., Siguröur
Ágústsson 1. varaforseti Sig.
Ingimundarson 2. varaf. 1 neöri
deild: Forseti Siguröur Bjama-
son, 1. varaforseti Benedikt
Gröndal, 2. varaf. Jónas G. Rafn
ar. Efri deild: Forseti Sigurður
Ó. Ólafsson, 1 varaf. Jón Þor-
steinsson, 2. varaf. Þorvaldur
G. Ilristjánsson. Skrifarar vom
kjömir: Sam. Alþ. Ólafur Bjöms
son, Skúli Guðmundsson. Neöri
deild: Axel Jónsson, Bjöm Fr.
Bjömsson. Efri deild: Bjartmar
Guömundsson, Karl Kristjáns-
son.
O í gser voru lögö fram þessi
frumvörp og þingsályktunartil-
lögur: Frumvarp um breytingu
á lögum um bann gegn botn-
vörpuveiðum, frumvarp um
breytingu á lögum um lax og
silungsveiöi, frumvarp um heim-
ild fyrir ríkisstjómina til að á-
byrgjast lán til kaupa á síldar-
flutningaskipi, frumvarp um
breytingu á lögum um heimild
fyrir ríkisstjómina að ábyrgiast
lán fyrir Flugfélag íslands h.f.
til k'upa á millilandaflugvél og
frumvarp um innheimtu ýmissa
gjalda með viðauka, öll stjómar-
frumvörp.
O' Eftirfarandi þingsályktunar-
tillögur voru lagðar fram: Um
endurkaup Seölabanka á fram-
leiðslu- og hráefnisvíxlum iðn
aðarins (ÞÞ, IG, HES — F), um
að framfylgt verði lögum um
það hlutverk Seðlabankans að
tryggja atvinnuvegunum hæfi-
legt lánsfé (ÞÞ, IG, HES — F).
O Loks kom fyrirspum frá Jón-
asi G. Rafnar (S) til mennta-
málaráðherra: Hvenær er ráð-
gert að sjónvarpið nái til Norð-
urlands?
Leiðrétting
í myndatexta undir mynd frá
setningu Alþingis í gær misritaöist
nafn eins af þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins. Óskar Leví var þar
sagður Óskar Jónsson. Eru hlutað-
eigandi beðnir velviröingar á þessu.
Var sföðvaður —
Framh. af bls. 1.,
sókn, en furðulegt má telja, ef
borgurum Reykjavikur verður I
framtíðlnni boðið upp á að hafa
sllka óhappamenn undir stýri i
umferðinni, enda er nóg fyrir
af skaðvöldunum.
Fékk æðsfa
þjónustuinerki
Dana
Fyrir nokkru var Börge Jónssyni
veitingamanni i Mjólkurbamum á
Laugavegi 162 í Reykjavík veitt
þjónustumerkið danska af fyrstu
gráðu með kórónu fyrir margvís-
ieg störf sín fyrir féiagsmál Dana
hér í Reykjavik.
Börge var sæmdur merkinu í
tilefni af 25 ára afmæli Dannebrog,
en þar var hann formaður um 8
ára skeið, en auk þess hefur hann
setið alllengi í stjórn Knattspymu-
félagsins Þróttar.
Börge kom hingað fyrst til lands
með farþegaskipinu Botníu 1927,
en það fór fyrir honum eins og
fleiri Dönum, að hann settist hér
að, var lagður á Landakot í botn-
Iangaskurð og fór siðan að vinna
á hótel Skjaldbreið. Nokkrum ár-
um síðar var Börge orðinn ís-
lenzkur ríkisborgari og kvæntur is-
lenzkri konu.
í dag er Börge 55 ára og efast
ég ekki .um að margir munu líta
inn til hans á hið„vistlega heimili
þeirra hjónanna að Meðalholti 15.
-jbp-
Sálsðarskýrsla —
Framhald af bls. 16
vík 6.634, Siglufjörður 20.836,
Ólafsfjörður 6.258, Dalvík 489,
Hjalteyri 8.628, (Þar af 3919 frá
erl. sk.), Hrísey 205, Krossanes
15.273, Húsavik 4.260, Raufar-
höfn 52.031, Vopnafjörður 23.
502, Borgarfjörður eystri 5.715,
Seyðisfjörður 118.139, (ar af 83
frá erl. sk.), Mjóifjörður 1.107,
Neskaupstaður 68.465, (Þar af
455 frá erl. sk.) Eskifjörður 43.
461, Reyðarfjörður 26.426, Fá-
skrúðsfjörður 28.333, Stöðvar-
fjörður 6.373, Breiðdalsvík 5.139
Djúpivogur 8.044, Vestmanna-
eyjar 413.
Aflahæstu skipin em:
Gisli Ámi 8.495, Jón Kjartans
son 7.636, Jón Garðar 6.392,
Lómur 6.198, Sigurður Bjarna-
son 6.125, Helga Guðmundsdótt-
ir 5.716, Asbjöm 5.715, Þórður
Jónasson 5.606, Dagfari 5.602,
Ingiber 5.519, Snæfell 5.445,
Seley 5.436, Ólafur Magnússon
5.388, Jörundur 2. 5.374, Barði
Hafnarfjörður
Kona óskast til að gæta 5 og 9 ára ba'ma frá
kl. 1—7 á daginn. Uppl. í síma 50397.
Húsnæði
Vill ekki einhver góð kona leigja rólegum,
eldri manni í góðri atvinnu eitt herbergi og
selja fæði um helgar?
Þær, sem vildu sinna þessu, leggi nafn og
síma inn á augld. Vísis fyrir 16. þ. m. merkt
„Góð“.
5.314, Óskar Halldórsson 5.298,
Heimir 5.200, Reykjaborg 5.153,
Hannes Hafstein 5.137, Bjartur
5.027.
íþróttir —
Frh. af bls. 2:
son út af eftir 7—8 mínútur
og kom hann aftur inn 10 mín-
útum síðar, en var alls ekki í
standi til að gegna miðvarðar-
stöðunni áfram og fór ég þá
aftur í hans stööu. Þó tókst okk-
ur að skora mark meöan við vor
um einum færri og skoraði Bald-
vin Baldvinsson það með harð-
Benz 190 ’62. Skipti.
Land Rover diesel ’62.
Saab ’64.
Opel station ’63.
Volkswagen 1600 ’63.
Simca Ariane ’64.
Rambler American ’65, ekinn
47 þús. km. Skipti.
Volkswagen.
Opel Rekord ’62.
BlLASAUNN V/ VITATORG
BALLEJT
LEIKFIMI
JAZZBALLETT
FRÚARLEIKFIMI
Búningar og skór í úrvali.
ALLAR STÆRÐIR
i,tf E R Z i U N I N
Simi 13076.
fylgi sínu, fylgdi vel eftir og
skoraði. Nú tóku Frakkar aftur
forystuna og skora 2 mörk með
stuttu millibili, en við skoruð-
um einnig og var þar að verki
Höröur Markan, sem lék á mark
vörðinn eftir að hafa fengið
ágæta sendingu frá Eyleifi Haf-
steinssyni. ‘Síðast í leiknum
fengu Frakkar vítaspyrnu á okk-
ur, en skutu í stöng.
— Frakkar léku rangstööu
taktík í þessum leik líkt og hér
heima, þegar þeir unnu okkur
3:2 og þetta skapaði hættuleg
augnablik fyrir okkur, því fram-
herjar okkar eru fljótir, þf ekki
skapaðist lík hætta og gegn
Akranesi á dögunum. Við átt-
um okkar tækifæri í þessum
leik ekki síður en Frakkamir
enda þótt þeir væru vel að sigr-
inum komnir. Baldvin komst til
dæmis í eitt skiptiö einn inn
fyrir en markvörður bjargaði
með góðu úthlaupi.
— Frönsku blöðin skrifuðu
öll mjög vinsamlega um okkur
daginn eftir og í sjónvarpinu var
15 mfnútna þáttur úr léiknum.
Þá var sjónvarpað af æfingu hjá
okkur fyrir leikinn, og sáum viö
þann þátt sjálfir okkur til mik-
illar skemmtunar.
Þetta sagði Ellert Schram um
þennan síðasta Evrópubikarleik
fslenzkra liða að þessu sinni.
KR stóð sig vel tapaði ekki illa,
hvorki heima né úti og meðan
frammistaðan er ekki lakari en
nú varð er ekki ástæða til ann-
ars en hvetja íslenzk lið enn að
taka þátt í þessari keppni, jafn-
vel þó um sé að ræða þraut-
þjálfaða atvinnumenn.
-jbp-
Laugarós —
Framh. af bls 9
Jón Vítalín, „dreifing er léleg
og æði kostnaðarsöm". Hann
sagði, að grænmetistorg ættu
erfitt uppdráttar vegna afstöðu
bæjaryfirvalda, sem halda þvi
fram, að þau séu hindrun fyrir
„smásalana". Vfdalín var spurð-
ur, hvort fólk hefði aðstöðu til
að hagnýta sér tómata sem
skyldi. Sagði hann, að því væri
ekki til að dreifa, þegar ekki
væri hægt að koma því við að
selja tómatana á mismunandi
þroskastigi. ellegar í því ástandi,
að hægara sé fyrir húsmæður að
nota tómatana til sultu- saft- og
safagerðar.
„Fólk mun ekki geta hagnýtt
sér tómatana”, segir hann, „á
meðan það hefur ekki aðgang
til að til að kaupa þá á skap-
legu verði.“.
Eins og kunnugt er, er garö-
yrkja grein af landbúnaðinum og
nýtur engra styrkja frá hinu op-
inbera og verða fslenzkir garð-
ávextir að keppa við niður-
greiddar landbúnaöarvörur.
Ýmsum fróðleiksmolum miöl-
aði Jón, m. a. að tómatar inni-
haldi jafnmikið A-vítamín og ís-
lcnzkt smjör og séu auöugir af
Riboflavin og meðalneyzla
þeirra á íslandi sé um tvö kíló á
mann.
■\7egna snöggrar yfirferðar um
~ Laugarás, var ekki lengur
dokað viö hjá Jóni garðyrkju-
manni og heilsað upp á tvo
aðra starfsbræður hans, Skúla
Magnússon, Austfirðing, og
Hjalta Jakobsson. Þvf miður
gafst ekki færi á því að hitta
hina tvo af garðyrkjumönnun-
um fimm í Laugarási, þá Pál
Dungal og Hörð Vigni. Allir eru
þessir menn alltaf að sá og upp-
skera, 1 náinni snertingu við
feita mold. Þrátt fyrir erfiðleika,
sem þeir eiga við að stríða
vegna markaðsaðstæðna og
dreifingar eins og Vfdalin gat
■
um virðast þeir ánægðir með
starf sitt í þessum sælunnar
reit, Laugarási, staö, sem þegar
stundir líða fram, verður æ
meiri og meiri lyftistöng héraðs-
ins.
________s t g r
IHMMIttl——aatMBE
Bílakaup
Sími 15812.
Vörubílar, langferðabílar, vöru-
flutningabílar, jeppabílar, fólksbíl-
ar, jarðvinnslutæki svo sem ýtu-
skóflur o. fl. Bílar við allra hæfi.
Kjör við allra hæfi.
Komið. — Skoðið. — Hringið.
Opið til kl. 8 á hverju kvöldi.
Bílakaup
Sími 15812.
Skúlagötu 55 — við Rauðará.
Notaðir
bílar
Höfum nokkra vel með fama
bfla til sýnis og sölu f bílageymslu
okkar að Laugavegi 105.
Opel Capitan árg. ’60.
Ford Zephyr 6 árg. ’62.
Morris 11 árg. ’63.
Cortina árg. ’64.
Volvo P. 544 árg. ’63.
Tækifæri til að gera góö bíla-
kaup. Hagstæð greiðslukjör. Bíla-
skipti koma til greina.
Ford-umboöiö
Sveinn Egilsson h.f.
Laugavegi 105, Reykjavfk
Sfmar 22466 og 22470.
FRAMKÖLLUM
FILMU^NAR
FLJÓTT OG VEL
CBVAFOTO
AUSTURSTR/ETI 6
MálnNtr
Allir brotamálmar nema járn
keyptir hæsta verði, stað-
greiðsla. Arinco, Skúlagötu 55
(Rauöarárport). Símar 112806
og 33821.