Vísir - 17.10.1966, Page 8

Vísir - 17.10.1966, Page 8
8 V Í S I R . Mánudagur 17. október 1966. [pfCTfPj Otgefandi: Blaðaútgáfan VISIR ) Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson ( Ritstjóri: Jónas Kristjánsson ) Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson \ Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099 / .VigheíCsla: Túngötu 7 j Sitstjóm: Laugavegi 178. Síml L1660 (5 Unur) ( Askriftargjaid kr. 100.00 á mánuði innanlands ) ( iausasölu kr. 7,00 eintakið \ Prentsmiðja VIsis — Edda h.f II wmmmmmKmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmrnmmmmmmm j Átti ekki að gera þetta? JJvar sem er á landinu brosa menn yfirleitt eöa hrista J bara höfuðið, þegar minnzt er á „hina leiðina“ hans ) Eysteins Jónssonar. Formaður Framsóknarflokksins \ var sérlega óheppinn, þegar hann ætlaði að marka ( flokksmönnum sínum stefnu og vísaði þeim „hina / leiðina“! En formaðurinn er þrár og hefur ekki enn ) viljað viðurkenna þessa óheppni sína eða klaufaskap ) í flokksforustu. í sumar reyndi Tíminn að komast úr ) sjálfheldunni og fór að skrifa um, að Framsóknar / menn vildu fara „aðra leið“, — en á þeirri leið hefur ) verið gefizt upp. ) Ræða Eysteins Jónssonar á Alþingi um stefnuyfir- j lýsingu ríkisstjórnarinnar er birt undir fyrirsögninni: ( „HIN LEIÐIN“. Og svo er vitnað í meginefnið í ræð- unni: „Það verður að finna aðferðir til þess (enn / ófundnar?), að það sitji fyrir, sem nauðsynlegast er“. )/ Það er ekki í fyrsta skipti sem formaðiir Fraip^pknar- i) flokksins héiur þessa einu skýringu að gefa á því, \j hvað „hin leiðin'* sé. Raða verkefnum segir hann, og í\ þar á hann við að setja nefndir, setja ráð, leyfi, eða , ekki leyfi, — höftin verða að vera tiltæk. / En er ekki kominn tími til, að formaður Framsókn- ) ar fari þá að gera mönnum grein fyrir því, sem ekki j hafi átt að gera í tíð núverandi ríkisstjórnar? j Átti ekki að gera allsherjar úttekt á þjóðarbúskapn- \ um eftir gjaldþrot vinstri stjórnarinnar, skrá krónuna ( rétt í samræmi við þá gengisfellingu, sem orðin var í // efnahagsöngþveiti vinstri stjórnarinnar? ) Átti ekki að rétta við þrotið f j ármálatraust er lendis? , Átti ekki að safna gildum gjaldeyrisvarasjóðum og j stuðla að því að gífurleg ný sparifjármyndun þjóðar- \ innar færi í varanlega verðmætasköpun í landinu? Átt* j ekki að gera júní-samkomulagið 1964 til þess að draga \ úr verðbólgunni og beina samkomulagi og gagnkvæm ( um skilningi launþega og vinnuveitenda inn á nýjar, ( farsælli leiðir? / Átti ekki að gera þjóðhags- og framkvæmdaáætlun )/ til fjögurra ára og átti ekki að endurskoða árlega )j þessa áætlunargerð, sem vissulega hefur ætíð verið \j við það miðuð, að hið hagkvæmasta og nauðsynleg- \\ asta sitji í fyrirrúmi? Á ekki að halda slíkri á,ætlana- í\ gerð áfram og auka hana, eins og vitað er, að verið er I( að gera? ) Átti ekki að gera Vestfjarðaáætlun til þess að efla ) jafnvægi í byggð landsins, með því að efla vegakerfi, \ hafnir og flugvelli í þessum landshluta? Á ekki að \\ halda þessari áætlanagerð áfram, eins og ráðgert er? t Átti ekki að byrja að vinm að Norðurlandsáætlun . og átti ekki að samþykkja lögin um atvinnujöfnunar- ,! sjóð, sem hefur það markmið að stuðla að jafnvægi í j byggð landsins á grundvelli vel undirbúinnar áætlana- j gerðar? \ Svona má lengi halda áfram. En kannski byrjar ( formaður Framsóknarflokksins fyrst að svara þessu. / Listir-Bækur-Menningarmál- Eirlkur Hreinn Finnbogason skrjfar bókmenntagagnrýni Davið Stefánsson frá Fagraskógi: Siðustu ljóð Helgafell — 308 blaðsiður á~kft er svo um bækur meö áður óprentuðum verkum látinna höfunda, að í þær er tínt sitthvað, sem annað hvort er ófullgert eða höfundur hefur aldrei ætlað sér að birta, en láðst. að fleygja. Er e. t. v. lít- ið við það að athuga, ef hugs- anlegt er, að slíkt auki eitthvað skilning á manninum að baki verkinu eða veiti upplýsingar um vinnubrögð hans. Þó vill flögra að manni viö Iestur slíks samtínings, að sæll sé sá höf- undur, sem brennir þau verk sín, sem honum finnast mis- heppnuö. Og viðkunnanlegra er að minnsta kosti, að einhver tími líði frá láti höfundarins og þangað til það, sem hann hefur skilið eftir sig, er birt. Má vera, að þessi orö séu ómakleg aö því er snertir hina nýju bók Dayíðs Stefánssonar. þVi áð ég skal játa, að í raun ög veru tók ég þessari bók feg- inshendi og naut þess að lesa hana, af því að mér hefur alltaf fundizt gott að fá nýjar bækur eftir þennan höfund. Geri ég ráð fyrir, að sama verði að segja um marga aðra aðdáendur hans. Þó ber hér skugga á: Ljóðin eru mun misjafnari í þessari bók en í fyrri bókum þjóðskálds ins, og fer varla hjá því, að hér sé ýmislegt, sem skáldið heföi sjálft aldrei látið frá sér fara i þeirri mynd, sem það stendur hér, Á það strax við um fyrsta Ijóðið í bókinni, Minn ingu Hallgríms Péturssonar, sem í sjálfu sér er merkilegt kvæði, ekki slzt til glöggvunar á trúarlífi Davíðs Stefánssonar sjálfs. En ég get ekki varizt þeirri hugsun, að betur hefði verið gengið frá því undir prent- un, ef höfundarins hefði notið við.Og önnur kvæði bókarinnar virðast bera það meö sér, að þau séu ort fyrir all-löngu, og ef það er rétt, þá eru þetta ljóö, sem skáldið hefur sneitt hjá við val i fyrri bækur Hvers vegna aö vera að flýta sér aö koma því á prent, þó að skáldið sé látið? En þrátt fyrir þetta eru í bökinni gull og gimsteinar, sem sanna, að Davíð Stefánsson hélt reisn sinni sem þjóðskáld íslendinga og sem maöur, unz yfir lauk. Svo er um mig, þegar ég les þessa bók, að það er eins og ég horfi fremur til mannsins að baki ljóöunum en til Ijóðanna sent slíkra. Býst ég viö, að svo verði um fleiri, Og það sem við kannski tökum fyrst eftir er hin afdráttarlausa hreinskilni og tilgeröarleysi. Enginn getur brugðið Davíö Stefánssyni um tilgerð. Hann kom alltaf til dyr- anna eins og hann var klæddur, hvemig svo sem umhverfið sner ist við þvi. Reyndar vakti hann hrifningu strax og hann kom fram á ritvöllinn, en einnig hef- ur veriö harkalega að honum vegið. En þó að þetta hafi ver- iö öðruvísi hefði það varia breytt miklu um. Hann var of heill og sjálfstæður til þess aö laga sig svo mjög eftir umhverf- inu. „Tveim skjöldum lék eg aldri“. átti við hann ekki sfður en Eyvind skáldaspilli sjálfan. Ef til vill vegna þessa sjálfstæð- is safnaöi Davíð Stefánsson aldrei um sig neinni hirð gagn- rýnislausra aödáenda. Hann var einbúi f samtíðinni án þess þó að vera einmana. Rétt er það, að fátt er mér fjær en fylgja ykkur að máliam, segir hann i kvæðinu Þið segið mig týndan. Og f kvæðinu um heiðabóndann segir hann: í fámenni nýt ég þess bezt að vera ég sjálfur, — og getur það ekki sfður átt við skáldið sjálft. Afar sterkur þáttur í Davíð Stefánssyni er samúð hans með þeim, sem miöur mega sín af einhverjum ástæðum. Við minn- umst þess, að hrafninn var fugl- inn hans. Hvers vegna? Sumum hvíla þau álög á aldrei fögrum tóni að ná,.. Vegna þessarar samúðar eöa kannski reiði fyrir hönd þess, sem hart veröur úti, ritaði hann einu skáldsögu sína, sem eflaust á eftir að lifá um sinn. Er í þessu sambandi skemmtilegt að sjá, hvað skáldið telur, þegar það gerist aldrað, eitt aðalatriði í sambandi við dauðann: En fyrir þann, sem áður var settur yztur, opna þær hliðið fyrst, hinar skyggnu systur. (í ljóöinu um Hallgrím Péturs- son) Sama hugsun kemur víöar fram í kvæðum þessarar bókar. Og um Árna Magnússon segir hann: Þótti ég stundum djarft viö danska mæla, dulbúin fífl ' og konunglega þræla, en þa var eins og þreytu minni létti, þegar ég vann aö smælingjanna rétti. Reyndar nefnir Davíð Stefáns- son sjaldan smælingja. Lftil- magnar hans voru engir smæl- ingjar í hans augum, hvorki Sól- on íslandus né aðrir. En honum hefur fundizt viðeigandi að nefna fslenzka lítilmagna á dög- um Áma Magnússonar smæl- ingja, enda voru þeir það óneit- anlega. Annars hef ég mætur á Ijóð- inu um Áma Magnússon, þar sem höfundur er að mfnum dómi ekki síður að yrkja um sjálfan sig en Áma. Um bóka- taanninn Áma segir bókamaður- inn Davíð: : Lesið var nóg — og lífið hvarf á meðan. Leita mun ég við brottför mína héðan margs, sem út í mánaskinið týndi meðan ég einn í dauðan bókstaf rýndi. Og Ijóðiö endar á þessa leið: Búinn til ferðar bið ég andann mikla blessa mín rit og gæta minna lykla. Fagnandi kveð ég furstans gullnu sali, fákurinn ber mig aftur heim i dali. Þaö var eftir Davíð Stefáns- syni að segja svo, skáldinu sem var svo samgróið íslenzkri náttúru íslenzkri byggð og þjóðsögum, að þetta glitrar sýknt og heilagt í flestum ljóöum hans og hefur sjálf- sagt ekki haft lítil áhrif á vin- sældir hans, eins og Siguröur skólameistari benti einu sinni á í grein. Halda mætti lengi áfram að ræða ýmis einkenni Davíðs Stef- ánssonar, sem koma á móti les- andanum í þessari bók, ein- kenni, sem áöur voru kunn, en eru árétt hér og verða oft ljós- ari en fyrr. Svo sem afstaða hans til íslenzka bóndans. Þaö er engan veginn landbúnaðurinn sem atvinnuvegur, sem skáldið er að hugsa um, þegar það yrkir um bændur, heldur sá þroski og sú menning, sem starfið — Framhald á bls. 7 mmmmmmmmmmmmmmmmrnm.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.