Vísir - 17.10.1966, Side 9
V1SIR . Mánudagur 17. október 1966.
9
-)< Vænt fé úr Hrunamannahreppi - Þéttur skögur af hoidi
- Þyngsti dilkurinn: Eign prestsins - Sauðkindinni fylgir
jafn-mikil blessun dauðri sem lifandi
í sláturtíð
að Laugarási
V)
V
,NÚ eru þeir byrjaðir
að drepa rollurnar“
sagði ungur athafnamað
ur úr framkvæmdaplássi
austanfjalls, um leið og
hann tróð inn í Litlu
kaffistofuna í Svína-
hrauni að kvöldlagi í
haust ásamt bílstjóra sín
um.
Hann bað veitingakonuna um
svið á stundinni, kjammarnir
ginu við á afgreiðsluborðinu,
eitthvað svo nýlegir þrátt fyrir
helstirðnaöan svip aftökunnar í
einhverju sláturhúsinu . ..
Athafnamaðurinn var að koma
úr henni Reykjavík. Hann var
orðinn soltinn eftir argaþras við
skiptanna þar, og nú byrjaði
hann að háma í sig og bryðja
kindasviðin af hjartans lyst.
Tyggjandi segir hann: „Þvilík
ógrynni sem þeir drepa af þess-
um blessuðum rollum hér á
hverju hausti, það eru víst ein
átta hundruð þúsund".
Hann bar ekki við að nota
sögnina að slátra.
Ánnar gestur í veitingastof-
unni segir:
„Og nú er líka sláturtíð í
Vietnam — skyldu þeir drepa
þar jafn-mikið af fólki og drep-
iö er hér af rollum?“
Enginn hafði hugboð um slíkt,
enda önnur saga.
Cemsagt hvorki meira né
^ minna en um átta hundruð
þúsund kindur eru leiddar til
aftöku í sláturhúsum landsins
nú í haust. Féð hefur verið rek-
ið ofan af fjalli, misfeitt, mis-
bragglegt, mislagðprútt, og nú
færa landsmenn sér í nyt gæði
sauðkindarinnar sinnar á ýmsa
vegu eins og þeir hafa gert frá
örófi aldar.
Sláturhúsum fjölgar eftir því
sem bændur auka við fjárstofn
sinn og stækka búin. Fyrir þrem
árum lét Sláturfélag Suöurlands
reisa slátursús aó Laugarási í
Biskupstungum, búið nýtízku
tækjum. í fyrra var slátrað þar
um 20 þúsund fjár, og í haust
er áætlað, að .það verði heldur
meira. í vikunni, sem leið, var
búið að slátra þar fé úr Hruna-
mannahreppi, en þaöan er talið
koma vænt fé. Áður en litið var
á húsið, var áö hjá konunum
fjórum í eldhúsi RKÍ á bama-
heimilinu, i því húsi er mötu-
neyti og svefnverur verkafólks
sláturhússins. Konurnar eru að
smyrja brauö og sneiða niður
álegg ofan í áttatíu manns eða
vel það. Þær voru glaölegar,
enda vinna þær þakkarvert
starf: að seðja verkafólkiö, svo
að það skili betri afköstum og
uni glaðara við sitt. Er mál
manna fyrir austan, að ráðskon-
unni, Guðnýju Guðmundsdóttur,
sem er potturinn og pannan í
þessu hlutverki, farist þetta svo
vel úr hendi, aö mötuneytið,
sem hún stjórnar með aöstoð
stallsystra sinna þriggja, sé einn
sterkasti hlekkurinn í starfsemi
sláturhússins í Laugarási: „Án
þeirra væri ekkert kjöt“, varð
náunga að orði, „án þeirra væri
ekki unnið hér sem skyldi..
Á sama hátt og gott mötuneyti
í skóla eða annarri ámóta stofn-
um getur stuðlað að því að
skapa jákvæðan anda, eins get-
ur mötuneyti sláturhúss riðið
baggamuninn um rétt vinnuvið-
horf og haft úrslitaþýðingu fyr-
t ir velgengni 1 rekstri fyrirtæk-
isins.
Rafvirkjameistari úr sýslunni
var með í förinni, kunnugur öll-
um hnútum staðarins. Ráðskon-
an beiddi hann að gera við bil-
aöan slökkvara. Rafvirkinn upp-
lýsti, að öryggisrofi væri i hús-.
inu (vegna eldhættu), og því
miður heföi viljað við brenna,
að þetta „varnarmeðal" væri
misnotað. Sú væri trú sumra
ungu mannanna, að ef rofanum
væri kippt úr sambandi á kvöld-
in og allt rafmagn færi af hús-
inu ykist rafmagn ástarinnar
heldur betur (Hins vegar getur
tiltækið eyöilagt ýmis raftæki
hússins, sem eru í sambandi). I
sláturhúsinu vinnur margt fólk
af báðum kynjum, sem langar
'oft til að bregða á leik að vel- .
unnu dagsverki loknu.
Þegar hér var komið, bauð
ráðskonan eðalgott kaffi...
Cláturhúsið í Laugarási er stíl-
fögur bygging og lítur óslát-
urhúslega út. Það ber svip menn
ingarstofnunar, þar sem geröar
eru kröfur til smekks og þar
Tveir dilkaskrokkar í Sláturhúsi SS í Laugarási sem gerðarleg stúlka
færir að vigtinni (myndir: stgr.)
sem búast má viö, að inni fyr-
ir sé hugnaður á ferðinni. Mörg
hús virðast teiknuð í samræmi
við innihald og tilgang þeirra,
þannig er þvi ekki farið með
þetta sláturhús.
Þegar inn kom, fyllti blóð-
lykt vitin. Hávaðinn var minni
en f mörgum verksmiðjum, fólk-
ið vann ekki með bægslagangi,
en ákveðið og með ánægjusvip,
að því er virtist. Á kjötloftinu
héngu dilkaskrokkamir og mynd
uðu þéttan skóg af holdi, og
nú voru þeir vigtaðir hver á
fætur öðrum af vigtarmannin-
um, Ingvari Þórðarsvni frli
Reykjahlíð á Skeiðum. ÞennaS
dag hafði þyngsti dilkur haust»
ins fram til þessa komið á vigt-
ina, eign séra Bemharðs Guð-
mundssonar á Skarði. Vó hvorki
meira né minna en 24 klló. Með-
aldilkur vegur kringum 13 kíló,
miðað við I—III flokk.
Mönnum fannst fara vel á
þvl, að prestur ætti jafn-vænan
dilk — það benti til þess, væri
eiginlega tákn þess, að „brauð"
hans sé „feitt“.
Nú var verið að vigta allt fé,
sem hafði verið slátrað daginn
áður.
Cláturhússtjóri I Laugarási er
^ Ólafur Jónsson frá Skeið-
„blóðboröið“, þar sem innmatur er útbúinn til sendingar suður til Reykjavíkur.
háholti kennari að Brautarholti
á Skeiðum. Hann sagði að ketið
yrði ekki gegnkalt fyrr en að
hálfum sólarhring liðnum frá
þvl, að kindinni er slátrað. Hann
sagði, að fyrsta skilyrði I slát-
urhúsi sé hreinlæti, góð loft-
ræsting, kjötið sé viðkvæmt I
meðferð frá byrjun. Ekki kvað
hann kjötið vera flokkað nóg.
Sá háttur er hafður á að flokka
það eftir fitumagni. Féð, sem
sláturhúsið fær tij plátrunar, er
ýmist rekið eða keyrt að. „Sést
varla hér marin'n skrokkur",
segir Ólafur. — Fjórir hreppar
leggja inn I sláturhúsið I Laug-
arási: Gnúpverjahreppur, Hruna
mannahreppur, Biskupstungur,
Skeið og ennfremur er örlltið
úr Grímsnesinu. Dýralæknir met
ur hvern einasta skrokk ásamt
yfirdýralækni, sem hefur með
höndum aðal-eftirlitið.
„Skilvrði fyrir góðum kjötaf-
urðum er, að ærnar hafi það
gott eftir sauðburð", segir slát-
urhússtjóri, „að þær séu al-
mennt fóðraðar vel, lömbin hafi
m. a. haustfitun, en vænlegast
til árangurs I haustfitun er, að
sáð sé fóðurkáli að vorinu og
borið I hána“.
Á hverjum morgni fara frá
Laugarási tveir flutningsbílar,
annar með 700 skrokka, og hinn
með 13—1400 gærur og hausa
og flytja þetta til Reykjavlkur.
Síðar um daginn fara aðrir tveir
bllar sömu leið, annar með af-
gang af kjötinu og hinn með inn
mat. Þannig gengur það glatt
dag eftir dag þennan mánuð
sem slátrað er. Og kjötvörumar
dreifast jafnt og þétt á markað-
inn.
I öðrum sal hússins voru kind
urnar leiddar á aftökupallinn,
skotnar I hausinn vélrænt og ó-
persónulega, deyddar af nauð-
syn, svo tók fláningin við og
hreinsun, allt fór þetta fram hnit
miöað og hratt. Einhver verður
að taka að sér þetta óhugnan-
lega starf, að aflífa sauðkind-
ina. Stundum getur hitzt svo á
að til starfsins veljist dýravinur,
sem getur undir venjulegum
kringumstæðum lagt llf sitt I
sölumar við að bjarga skepn-
unni, en eftir að dauöadómur-
inn hefur verið kveðinn upp, er .
viðhorfið annað: Skepnunni
fylgir jafnmikil blessun dauðri
sem lifandi, jafnvel meiri þegar
hún er öll.
s t g r