Vísir - 28.01.1967, Blaðsíða 16
VISIR
Laugardagur 28. janúar 1967.
Delerium Búbónis
í Reykjavík
1 tilefni af sýningu þessari boö
-ði Sveinn Einarsson leikhússtjóri
.Véttamenn á sinn fund og sagði
eim frá þeirri ákvörðun Leikfé-
igs Reykiavíkur, að liá ungmenna
félaginu húsið fyrir sýninguna, en
fyrra bauð félagið Leikfélagi Ak
ureyrar að sýna í Iðnó, en þá var
:.ýnt leikritið Bærinn okkar.
Sveinn sagði að Ungmennafé-
lagið Skallagrímur hefði slegið öll
sín fyrri aðsóknarmet með þessum
sýningum, það hefði sýnt tvisvar
á Akranes; og mundi sýna þar
einu sinni ennþá. Af leikendum
Framh. á bls 10
imbættisprófum
lokið
Embættisprófi og kandidatsprófi
í lögfræði og viöskiptafræði lauk
við Háskólann í gær. í lögfræðinni
luku 8 embættisprófi en í viðskipta
fræðinni 5.
Þessir luku prófum. Lögfræði:
Erlingur Bertelsson, Helgi puð-
r-iundsson, Ingimundur Sigfússon,
Jóhann J. Ólafsson, Birgir Már Pét
ursson, Ólafur Stefánsson, Sigurð
ur Gizurarson, Þorfinnur Egils-
son. Viðskiptafræði: Eiður H. Ein-
arsson, Lúðvíg Bjöm Albertsson,
Ólafur Karlsson, Sigfús K. Erlings
son, Steinar Berg Bjömsson.
Magnús Jónsson fjármálaráðherra stingur fyrstu skóflustunguna að nýja tollhúsinu. Við hlið hans stendur Torfi Hjartarspn tollstjóri.
, /. .; '1 ' ■ i • i ' ... • • 'i • ■
Nýstárlegt tollvöruhús rís við höfnina
Á annarri hæð jbess verða bilastæði fyrir 105 bila — Jafnhliða húsinu
verður hafin bygging umferðarbrúar á súlum meðfram hafnarbakkanum
Klukkan briú í gær söfnuð-
ust fyrirmenn tollgæzlunnar
saman á lóð beirri á hafnar-
bakkanum í Reykjavík, sem toll
stjóraembættið hefur fengið und
ir nýia tollmiðstöð í Reykjavík..... ,,,
Þegar fjármáiaráðherra hafði
stungið fyrstu skóflustunguna
að hinu nýja tollhúsi tóku stór
virkar vélar til starfa á lóðinni.
Toilhúsiö mun rísa af grunni á
rústum gömlu nakkhúsa Eim-
skipafélagsins og Sameinaða,
rnilli Tryggvagötu og Geirsgötu
Húsið vcrður fjórar hæðir,
grunnflötur þess 3780 fer-
metrar. Samkvæmt lauslegri
áætlun verður grunnur þess
fuilgerður um mitt sumar, en
húsið síðan steypt upp á 10-12
mánuðum.
Jafnhliða húsinu veröur steypt
ur fyrsti spottinn af væntan-
legri umferöarbrú meðfram hafn
arbakkanum þar sem nú er
Geirsgata. Umferðarbrú þessi
verður steypt á tvöföldum
stólparööum meðfram endilöng-
um hafnarbakkanum í tæplega 6
metra hæð. Undir þessa um-
Framh. á bls 10
Hnífaslagur við
ÞÓRSKAFFI
Tuttugu og þriggja ára maður
úr Réykjavík gerði sig sekan
um glæfralegt athæfi fyrir utan
Þórskaffi fyrir fáeinum kvöld-
um.
Hann gerði líkamsárás á mann,
sém hann þekkti ekkert, sló hann
þungt högg í andlitið og þegar sá,
sém fyrir árásinni varð, snerist til
várnar, greip árásarmaðurinn til
hnífs, sem hann bar á sér, og ot-
aði til hans. Svo hörfaöi hann.
Maðurinn, sem varg fyrir hnífa
árásinni, tókst á við unga maiininn
og féllu báðir á jöröina. Greip ungi
árásarmaðurinn aftur til hnífsins
og var allt útlit fyrir, að hann
mundi yfirbuga hinn manninn,
þegar skorizt var í leikinn, fyrst
Framh. á bls 10
Líkan af toligeymslurini við hafnarbakkann. Næst hafnarbakkanum er akbraut á „annarri hæð“.
BÖRN FALLA
í TJÖRNINA
Algengt er að börn detti í
Reykjavikurtjöm, þegar þau eru
að leika sér á skautum þar. í
gær féllu nokkur böm í vakir
á isnum, eftir þvi sem gæzlu-
kona i fatageymslu 'Tjamar-
gesta sagði fréttamanni blaðs-
ins. Sem betur fer hafa ekki
hlotizt slys af.
Blaðið frétti af einu slíku til-
felli, er sjö ára drengur varð
ið i :3a holdvotur langan tíma
niðrí við Tjörn. Ellefu ára bróð-
ir hans ætlaði að fá að sima
heim til sín úr gæzluhúsinu við
Tjömina, en fékk það ekki, því
gæzlukonunum hafði verið bann
að að lána símann, Þær vissu
ekki hvernig ástatt var fyrir
bróður hans. Fór þá eldri bróðir
inn út í Lækjargötu til aö
hringja úr sjálfsalanum þar, en
hafði þá ekki peninga til að
setja í hann. Síðan fór hann út
í gömlu slökkvistöðina við
Tjamargötu og fékk að hringja
þaðan heim. Þegar hann kom í
gæzluhúsið aftur höfðu krakk-
ar sagt konunum frá því, að sjö
ára drengurinn væri holdvotur
og höfðu þær þá hleypt honum
inn í hlýjuna. Hafði hann þá
skolfið fyrir utan drjúga stund.
Voru dr'engimir síðan sóttir.
Körfuknattleikur:
LANDSLEIKUR VIÐ DANI
Á K VEÐINN
Eins og sagt var frá hér í blað-
inu fyrr í vikunni hafa staðið yfir
samningar milli Dana og íslend-
inga varðandi landsleik þióðanna í
körfuknattleik og yrði leikurinn
háður hér á landi. í gær barst svar
skeyti frá danska körfuknattleiks-
sambandinu l>ar sem bað tjáir sig
fúst til að koma til landsleiks hér
á íslandi og í skeytinu taka Dan
ir algerlega tilboði því sem ís-
lenzka sambandið gerði.
Danska liðið mun koma hingaö
laugardaginn 1. apríl og leika lands
leik í Laugardalshöllinni sunnu-
daginn 2. apríl. Mánudaginn 3. apr
íl er síðan fyrirhugaður landsleik-
ur við Islandsmeistarana og verö
ur sá leikur éinnig háöur í íþrótta
höllinni. Þessi landsleikur veröur
fyrsti leikur þessara þjóða hér á
landi, en sá sjötti í röðinni. Hafa
íslendingar sigrað í síðustu þrjú
skiptin, en í tvö fyrstu skiptin sigr
uðu Danir. Siðustu leikir þessara
þjóða hafa verið mjög spennandi
og úrslit ekki fengizt fyrr en á síð
ustu mín. leikjanna. 1964 sigruðu
íslendjngar 56-55 og um páskana í
fyrra sigruðu íslendirigar enn 68-
67 og þá eftir framlengdan leik.
Er því búizt við mjög spennandi
Ieik hér og er leikurinn mikill feng
ur öllum íþróttaunnendum. Leikir
Islendinga og Dana vekja alltaf
ipikla athygli og þess má geta, að
körfuknattleikurinn er eina knatt
leiksíþróttin sem getur státað af
sigri yfir Dönum. Það má því búast
við fjölménni í Höllinni er íslend
ingar og Danir leiða saman hesta
sína 2. apríl n.k.
ÍSÍ 55 ára
1 dag er íbróttasamband islands
55 ára, en bað var stofnað 28. jan
úar 1912. 1 tilefni afmælisins mun
stjórn félagsins taka á móti gestum
í Tiarnarbúð kl. 3.30-5.00 í dag
Stiórri ÍSÍ skipa nú: Gisli Hall
dórsson, formaður Guöión Einar
son .varaformaður. Sveinn Björns
son ritari Gunnlaugur J. Briem
gjaldkéri og Þorvarður Árnason
fundarritari. Framkvæmdastjóri er
Hermann Guðmundsson.
Ungmennafélagið Skallagrímur í
Borgarnesi hefur nú sýnt leikritið
Deleríum Búbonis 19 sinnum. fyr-
ir fullu húsi. Tuttugusta sýning fé
•agsins verður í Iðnó á morgun kl.
/