Vísir - 22.07.1967, Blaðsíða 7

Vísir - 22.07.1967, Blaðsíða 7
VtSPR. Laugardagur 22. júlí 1967, 7 HÆSTU TURNAR 1 HEIMI Bcmdarískur verkfræðingur ráðgerir að byggja turn, sem verður mila á hæð Cjálfsagt að byggja — alltaf 95^ -hægt að nota hús til ein- hvers“, var haft eftir hugmikl- um athafnamanni í uppgangs- plássi úti á landi. Þótt nokkur sannleikur sé fólginn í þessum orðum, og vafalaust meiri en samplássmenn hans gerðu sér grein fyrir, mun það harla fá- títt, hér og annars staðar, að reistar séu byggingar án þess að þeim sé ætlað að gegna neinu hlutverki — að minnsta kosti ekki meiri háttar byggingar. Þó er það til. Ein kunnasta bygging í heimi var í rauninni einvörðungu reist til þess að sýna og sanna að unnt væri að reisa hana. Sú bygging stendur enn og er enn fræg — Eiffel- turninn franski, hinn 300 metra hái stálgrindartum, sem verk- fræðingurinn Eiffel reisti í sam- bandi við heimssýninguna miklu í París, fyrir 78 árum. Sú bygg- ing var lengi hæst í heimi, og enn lengur hæsti tum í heimi. Þótt hærri skrifstofu- og hótel- byggingar risu af grunni vestur í Bandaríkjunum, voru hvergi byggðir hærri turnar lengi vel, því að þeir þjónuðu engum til- gangi. En það sjónarmið hefur breytzt með síaukinni tækni á undanfömum árum eins og'allt annaö. Fyrst og fremst er það tilkoma sjónvarpsins, sem veld- ur því, að nýtt sóknarskeið er hafið á sviði hárra turnbygg- inga. Og þar með hefur Eiffel- turninn í París líka fengið sinn tilgang, og sannast þar orð at- hafnamannsins. Ekki er það þó fyrr en á ’ v-,, liæsta hygging i heiini. Turstami? í Austur- og Vestur-Berlín og sjónvarps- turninn mikli í Moskvu síðustu árum, að turn-hæöar- met Eiffels kemst í verulega hættu. Sjónvarpstuminn í Aust- ur-Berlín verður 360 m hár, og sjónvarpstuminn mikli í Moskvu hefur þegar teygt sig stómm mun hærra. Hann verð- ur þó ekki fuligerður fyrr en I haust — það stendur sumsé til að vígja hann á 50 ára af- mæli októberbyltingarinnar. En þá verður hann iíka orðinn 520 m á hæö og hæsta by^ging í heimi. Að minnsta kosti 1 bili. Sjónvarpsturninn í Austur- Berlín stendur svo til i miðri borg, eða á svæðinu milli Brand enborgar-hliösins og Alexander- platz, og létu yfirvöldin þar sem þau heyrðu ekki mótmæli yfir- valdanna í Vestur-Berlín, sem öldu að slík bygging á þeim að skapaði mikla hættu í sam- andi við flugsamgöngur til V- arlínar. Og nú hafa yfirvöldin i Vestur-Berlín ákveðið að reisa jafnháan sjónvarpstum, en á þeim stað sem álitið er að hann dragi ekki úr öryggi í flugsam- göngum. Hingað til hafa sjónvarpsturn ar flestir verið byggöir í líkingu viö súlur, en nú hefur þýzkur verkfræöingur, H. P. Dollinger, fullunnið teikningar aö sjón- varpsturni af nýrri og lýstár- legri gerð. Áður hefur hann teiknað og reist sjónvarpsturna með súlulagi, t. d. sjónvarps- turninn í Stuttgard, sem þykir meö afbrigðum stílhrein bygg- ing, en er „aðeins“ 210 m á hæö. Það var þegar Dollinger var beöinn að teikna sjónvarps- tum er ráðgert var að reisa í Casablanca, hafnarborg Mar- okkó, sem honum kom þessi nýja gerð í hug. Þessi nýja turn- bygging er mynduð af þrem víð- um og háum stálhólkum, sem hornstoðum í þröngum þríhyrn- ing. Kúlu mikilli er komið fyr- ir á milli þeirra í ca. 270 m hæð, er hún gerð úr stáli og gleri, svo þar verður óhindrað ötsýni til allra átti, enda hugs- ar verkfræöingurinn sér kúlu þessa sem útsýnis- og veitinga- stað fyrir ferðalanga. Vinnu- og vélasalir verða í kringlu mik- illi, sem byggð verður á milli og út fyrir stálhólkana í 100 m hæð, en um hólkana ganga hraðskreiöar lyftur. bæði þang- að og upp að útsýniskúlunni. Verkfræðingurinn telur að þessi gerð sjónvarpsturna hafi mikla kosti fram yfir þá eldri m. a. fyrir aukinn stöðugleika Sam- kvæmt teikningu þeirri, sem Dollinger hefur gert, verða sendinet turnsins í 300 — 350 m hæð, en hann telur ekki neina örðugleika á að reisa 550 m háan turn af þessari gerð ,og mundi hann þó ekki kosta nema brot af því, sem viðlíka turn af eldri gerðinni mundi kosta. „Menn byggðu tuma þegar í forneskju", segir H. P. Dolling- er .„Þeir fyrstu munu hafa ver- ið reistir £ sambandi við átrún- að. Síðari byggöu menn varö- turna, skotturna og turna til að fylgjast með hugsanlegum árás- um ,eða I hernaðarlegum til- gangi. Brátt tóku menn #g að byggja vitaturna, þar sem kynnt ir voru eldar efst uppi til leið- beinirigar skipum. Því næst tóku við kirkjuturnar og ráðhústurn- ar, og fleiri gerðir tuma mætti telja . . . Á okkar tækniöld er og mik- Hin nýja gerð sjónvarpsturna, sem H. P. Dollinger, þýzkur verkfræðingur, hefur teiknað. ið um turnbyggingar — vita- turnar, fyrir siglingar og flug, bæði ljósturnar og radíóturnar, flugumsjónarturnar og loks út- varps- og sjónvarpsturnar. Þá er og hafinn undirbúningur að byggingu eldflaugaturna, og nokkrir hafa jafnvel þegar ver- ið reistir, en þaö er í rauninni önnur saga ... Fyrstu turnarnir voru gerðir úr höggnu grjóti, síðar úr brenndum leirsteini, og efsti hlutinn stundum úr viði. Svo kom steinlímið og stálið til sög- unnar og með því nýr byggingar stíll og nýjar aðferðir, og er Eiffel-tuminn glæsilegt bvlting- arafrek á því sviði. Nú eru ný byggingarefni enn komin til sög unnar og önnur á næstu grös- um, mun léttari en stálið og steinsteypan. Þaö er ekki að vita, nema bandaríska verk- fræðingnum Frank Lloyd Wright takist að framkvæma þá fyrirætlun sína að byggja míluháan turn vestur þar. Með þeirri tæknikunnáttu, tækjum og byggingarefnum, sem menn hafa nú yfir að ráða, er í #aun- inni ekkert því til fyrirstööu að reisa tum s^h væri 2000 metrar á hæð“, segir verkfræð- ingurinn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.