Vísir - 22.07.1967, Page 13
/
VlSIR. Laugardagur 22. júlí 1967.
13
r
FULLKOMIN ÞIONUSTA
Látið okkar hraðvirku vél, með sínum undra-
verða hraða, sjá um viðgerðir á ykkar
sprungnu hjólbörðum.
JEPPA-, WEAPON-
og SENDIBÍLAEIG-
ENDUR.
Extra transport
METZELER.
Mjúk og endingar-
góð.
Stærðir:
600 x 16“ 6 pl.
650 x 16“ 6 pl.
700 x 16“ 6 pl.
750 x 16“ 8 pl.
900 x 16“ 10 pl.
Höfum einnig
fyrirliggjandi
allar stærðir af
MET^ELER
hjólbörðum,
sem eru sér-
staklega
mjúkir og
sterkir.
Þá útvegum við með stuttum fyr-
irvara allar stærðir af öllum öðr-
um hjólbarðategundum, sem seld-
ar eru hérlendis.
Sendum út á land, hvert sem er, hvenær sem er
BiNZÍN- OG HJÓLBARÐA-
ÞJÓNUSTAN V/VITATORG
Sími: 14113
Opið daglega frá kl. 8,00—24.00
laugard. frá ki. 8.00—00.01
sunnud. frá kl. 10.00—24.00
Kristján Albertsson
— sjötugur 9. júl'i 1967 —
Enda þótt „jubllarinn“ hafi ósk-
a8 eftir því a6 afmælisdags hans
yrði ekki minnzt opinberlega,
getur undirritaður ekki stillt
sig um að láta eftirfarandi grein
birtast „post festum“. Það er
mikils virði þjóð vorri að skilja
samtíðarmenn sína rétt.
Afmælisgreinar verða oft á voru
landi fremur eins og skrifaðar um
höfund sjálfrar greinarinnar held-
ur en um þann, sem heiðra á. Þetta
er mjog skiljanlegt og afsakanlegt,
svo mjðg sem persónulegar endur-
miimingar hafa ætið áhrif á
aliar slikar frásagnir. Undirritaður
ieyfir sér að hefja mál sitt á afsök-
un i þessa átt og lofWði um að
leitast við að forðast framangreind-
an galla, þótt ekki verði alveg hjá
honum komizt.
Fyrstu kynni mín af Kristjáni
Albertssyni hófust er hann orti 14
ára gamall kvæði um föður sinn,
er þá var nýlátinn ungur að árum.
Við skólabræður hans, er marg-
ir vildu verða skáld eða listamenn,
vorum furðu lostnir af snilli þessa
kvæðis, er birt var í einu helzta
blaði Reykjavíkur. Við litum á
Kristján eins og „undrabarn", hið
fædda „geni“, og hann gerði sjálf-
ur þá þegar hinar mestu kröfur
til sín sjálfs og annarra.
Goethe sagði eitt sinn, að ef ung-
ur maður ynni sér eitthvað til
frægðar, þá sameinuðust hin ýmis-
legustu öfl til þess að hindra hann
frá því að gera það aftur. Það varð
Ifkt um Kristján. Hann gerði svo
miklar kröfur að hann lagði höf-
uðáherzlu á að útvega sér efnið
í listaverk og að kynnast mannlif-
inu : „GREIFT NUR HINEIN DAS
VOLLE MENSCHENLEBEN, WO
IHR ES PACKT, DA IST ES INT-
ERESSANT", sagði Goethe, og
þetta virtist verða takmark hins
unga Kristjáns Albertssonar. Ég
kynntist honum ekki verulega fyrr
en erlendis að loknu menntaskóla-
námi. Hann kom til mín að fyrra
bragöi.
Það virtist vera gáfa hans og
markmið að vita „hlutina", fremur
en að framkvæma þá. Hann minnir
mig mjög mikiö á þá listamenn,
forfeður vora, sem sögðu íslendinga
sögumar öldum saman áður en þær
voru skrifaðar. Hann er fæddur
„diplomat" og ráðgjafi. Engan veit
ég betur kunna „aðgát í nærveru
sálar" en einmitt hann.
Vafalaust varð hann frænda sín-
um og vini Ólafi Thors til mikils
gagns. Kristján varð ritstjóri Varð-
ar, eins helzta málgagns Sjálfstæð-
isflokksins nýja og markaði stefnu
íslenzkrar blaðamennsku á beim ár-
um. Forsfða blaðsins var oft öll
helguð listum og annarri menningu.
Einar Benediktsson hefir sjálfur
sagt svo frá, að á slíkri forslðu
hafi hann endanlega verið stað-
festur sem þjóðarskáld Islendinga.
Telja mætti fleiri dæmi um slíkt,
— en á ritstjórnarárum sínum
lagði Kristján Albertsson höfuðá-
herzlu á að berjast gegn þeim að-
ferðum áróðurs og rógs, er þá tíðk-
uðust I stjómmálabaráttu íslend-
inga, og vafalaust hefir Kristján
átt sinn þátt 1 því að menn urðu
ráðvandari og fágaðri í stjómmála-
skrifum sfnum sfðar.
Við Kristján vorum ósammála í
mörgum efnum. Hann var á skóla-
árum sínum „Heimastjómarmaður"
og mér finnst hann í rauninni hafa
verið það síðan, þótt hann sé eld-
heitur sjálfstæðismaður nú, og
finnst mér flokkurinn ekki meta
hann sem skyldi ennþá. — Bækur
hans, ritgerðir og leikrit, eru sum
skrifuð f stjómmálalegum anda, er
byggist á margra ára erl. reynslu.
Meira en helming ævi sinnar hef-
ur hann dvalizt erlendis og kynnzt
þar mörgum heimsfrægum rithöf-
undum listamönnum og stjórnmála
mönnur.i. Hann hefur þjónað sinni
þjóð sem sendiráðunautur erlendis
og sem fulltrúi íslands hjá Samein-
uðu þjóðunum.
Hann mun enn eiga eftir að
verða þjóð sinni til mikils gagns,
þótt það sé honum eiginlegra að
vinna 1 kyrrþey að tjaldabaki held-
ur en að láta á sér bera. Sérstak-
lega eftirminnileg er sú ræða hans
um ævarandi sjálfstæðisbaráttu Is-
lendinga, sem birtist í „Fróni",
tímariti íslendinga erlendis í sein-
asta ófriði. Hann er einhver hin
vandaðasta manntegund, sem ég
hefi kynnzt, og hann fyrirlítur all-
an ruddaskap og óheiöarleika.
Hann er einn af þeim fáu mönn-
um, sem geta ekki lifað án þess
að lesa stöðugt góðar bækur og að
hlusta daglega á vel flutta góða
tónlist. Mættum við njóta hans
lengi og eiga fleiri slika. Þökk sé
honum og hamingja fylgi honum.
5. júlí 1967
Jón Leifs.
HAUSTTÍZKAN
Tökum upp daglega næstu viku
glæsilegt úrval af HAUST- OG VETRAR-
KÁPUM í tízkulitum.
Einnig nýjustu tízku í alls konar KJÓLUM.
Fáið yður kjól og kápu. — Greiðið útborgun
eftir samkomulagi og afganginn eftir hentug-
leikum.
KJÖLABÚÐIN, Lækjargötu 2
___ KJÓLABÚÐIN, Bankastræti 10
LOKAÐ
vegna sumarleyfa frá 21. júK—21. ágúst.
KRISTINN JÓNSSON
Vagna- og bilasmiðja
HÚSBYGGiEKDUR!
punlal ofninn er sléttur
og áferðarfalleg-
ur.
rantef ofninn er fram-
l leiddur úr þykk-
asta stáli allra
stálofna.
BYGGiNGAMEISTARÁR!
EFLUM ÍSLENZKAN IDNAÐ
-ofninn má tengja eint við hitaveitukerfi.1
nunlal -ofninn er ódýrastur miðað við gæði ogj
rimfal
Síðumúla 17. - Sími 355S5.
-oftiar