Vísir - 25.07.1967, Blaðsíða 1

Vísir - 25.07.1967, Blaðsíða 1
57. árg. - Þriðjudagur 25. júlí 1967. 167. Unnu spjöli á Lákahnúkum en högnuðust lítið Mikil náttúruspjöll hafa verið unnin á Lákahnjúkum á Hellisheiði rétt við skíða- skálann í Hveradölum. Hlíð- inni upp af svonefndum Hafn arfjaröarskála hefur verið bylt við á löngum kafla og miklar gjár verið grafnar inn í hlíðina á tveimur stöðum. Mestu spjöllin hafa verið unn Hlíðinni fyrir ofan Hafnarfjarðarskálann hefur verið umturnað á stóru svæði eins og myndin sýnir. Náttúruspjöllin ná yfir þvera myndina. Myndin er tekin úr fjallinu fyrir ofan Skfðaskálann í Hveradölum. in í sumar. þó að eitthvað hafi verið farið að hreyfa við hlíðinni fyrr. Tveir vörubflstjórar hafa stað- ið fyrir skemmdunum í sumar, en þeir hafa leigt sér leyfi til að taka gjall i hiíðinni af Hjalla- torfubændum í Ölfusi, en svo nefnast nokkrir bæir í Ölfusi, þar á meðal Hjalli, sem eiga land þarna sameiginlega. Vöru- bílstjóramir tveir eru þó hættir að taka gjallið, enda mun fyrir- tækið ekki hafa borgað sig. — Þegar þeir voru búnir að taka efsta gjalllagið í hlíðinni, reynd- ist vera hart undir og erfitt að vinna á gjallinu. Vísir hafði tal af Birgi Kjar- an, formanni Náttúruverndar- ráðs, til að spyrja hann hvort tilraun hefði verið gerð til að stöðva þessi náttúruspjöll. Hann sagði, að litið væri hægt að gera þegar efnistaka væri annars veg ar og einhverjir fjármunir væru blandaðir í málin. Náttúruvernd arráð gæti ekki bætt þá tekju- skerðingu, sem viðkomandi yrðu fyrir, ef þeir létu af því að taka efni í landi sínu, þar sem ráðið hefur lftið fjármagn með hönd- um og hefði því ráðið ekki önn- ur ráð en að æskja þess við við- komandi að hafa náttúruvernd f huga. — Birgir sagðist að vísu ekki hafa heyrt um náttúruspjöll in við Skiðaskálann, en gjalltaka í nágrenni Reykjavíkur væri orð in mikið vandamál. — Það, sem er verst, sagði hann, er, að menn viröast hafa litla hugsun á því að taka gjallið helzt þar sem Framhald á bls. 10. Islendingar unnu Ungverju í fjórðu umferð Synjað um leyfi til að reisa nýja. hvalveiðistöð — og eru nú i 3-4 sæti — Bandarikin efst i A-riðli íslenzka svei' u á stúdentaskák mótinu í Tékkóslóvakíu stöð sig með mikilli prýði, er hún í 4. um- ferð úrslitakeppninnar sigraði ung varsku sveitina, sem að öllum iík- indum er sú sterkasta í þessum riðli. Úrslitin urðu 2'/2—ll/2 Is- landi í vii. Trausti geröi jafntefli á 1. borði, Guömundur Sigurjónsson sem teflir á 2. borði vann sína skák, Jón Þ. Þór geröi jafntefli á 3. boröi og Bragi Kristjánsson gerði einnig jafntefli á 4. borði. Verður þetta að teljast mjög góður árangur hjá íslendingunum, og við þetta færð- ist íslenzka s- eitin úr 4—6 sæti i 3—4 sæti, en Ungverjar og Austur ríkismenn eru fyrstir og jafnir með 9y2 vinning hvor sveit. í A-riðli eru Bandaríkjamenn efstir. Úrslit í B-riðli úrslitakeppninnar uröu annars sem hér segir: island—Ungverjaland 2y2—ll/2 Austurrfki—Skotland 2l/2—iy2 Holland—Kúba 2—2 Finnland—írland 3—1. 'itaðan í riölinum er þá þessi: 1.—2. Austurríki og Ungverja- land 91/2 vinning hvor sveit. Framhald á bls. 10 Verzlun Ó. Jóhannessonar á Vatns eyri við Patreksfjörð sótti nýlega um leyfi til að byggja nýja hval-: veiðistöð á Vatnseyri til atvinnu- j málaráðuneytisins, en samkvæmt lögum frá 1949 er leyfilegt aö reka tvær hvalveiðistöðvar hérlend. is, með þeim fyrirvara að ráðherra leiti til Fiskifélags Islands og Haf j rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins áöur en leyfið er veitt og þessar. stofnanir báðar telji, að ekki veröi j gengið á hvalastofninn með nýrri hvalveiðistöð. IHl* ÞRiR PILTAR OLLUMIKLU TJÓNI I ELLEFU INNBROTUM Fyrir nokkru handtók lögregl an tvo pilta að næturþeli, sem báru á sér heilt safn innbrots- verkfæra. Málið hefur verið f rannsókn siðan og hafa piltarnir játað að hafa framiö 11 meiri háttar innbrot og þjófnaði, en auk bess nokkur minniháttar. Tveir lögreglumenn voru á eftirlitsferð ■' Þverholtinu nótt- ina fyrir 12. júlí, urðu þeir var- ir ferða tveggja pilta seint um nóttina. I hessu hverfi hafði ver ið talsvert um innbrot um þaö íeyti og því tóku þeir piltana tali og grennsluðust fyrir um ferðir þeirra. Þegar piltunum vafðist tunga um tönn og svöruðu að- eins út f hött, voru þeir færðir niður á Iögreglustöð til frekari athugunar. Kom þá í ljós, þegar leitað var á þeim, að annar þeirra bar á sér heilt safn innbrotsverk- færa, konungslykla, skrúfjárn o.fl. Voru piltarnir settir í geymsiu og síðan færðir til rann sóknarlögreglunnar til frekari yfirheyrslu. Eftir talsverðar yfirheyrslur játuöu þeir í yfirheyrslu hjá Hauki Bjarnasyni, sem hafði mál iö til rannsóknar, að þcir hefðu brotizt inn á nokkrum stöðum i borginni og stoliö talsverðu fé í nokkur skiptin. Böndin bár- ust að þriðja piltlnum, sem var handtekinn nokkru sfðar og ját- aði hann aö hafa átt hlutdeild í 4 innbrotum með hinum. Alls játuöu piltarnir á sig 11 meiri háttar innbrot og þjófnaði og nokkur minni. Mesta þýfið, sem þeir höfðu haft á brott með sér af einum stað, nam 14.600 kr. en hjá því fyrirtæki höfðu þeir brotizt inn þrisvar sinnum og stolið peningum í öll skiptin. Víðast höfðu þer þó minna upp úr krafsinu og sumsstaðar ekk- ert. Skemmdir sem piltamir ollu i þessum þjófaleiðöngrum sínum, námu margfallt meiri upphæð, en nokkum tíma þýfið. Stærsta bótakrafan, sem gerð var á hend ur þeim, eftir að málið upplýst- ist hljóðar upp á 40.000 kr. l Allir hafa þessir piltar komið við sögu lögreglunnar áður. Einn hafði á sér 15 mánaða fang elsisdóm. Annar hafði biðdóm og sá þriðji viðriðinn mál, sem var í rannsókn hjá lögreglunni. Stofnanirnar töldu báðar óráð- legt að leyfa nýja hvalveiðistöð og á grundvelli þess var Vatnseyrar fyrirtækinu synjað um leyfið. Fyr irtækið fékk leyfi til að reka hval- veiðistöð árið 1949, sem gilti til 10 ára, en að því er Torfi Þórðarson fulltrúi í atvinnumálaráöuneytinu sagði Vísi í morg i, eru forsendur leyfisins nú brostnar með nýju mati á hvalastofninum. Forstjóri Verzlunar Ó. Jóhannessonar er Friðjón Jóhannesson, annar Vatnseyrarbróðirinn, en hann rit aði undir umsóknina um leyfið. 25 laxar á eina ístöng í Laxá í Kjósj Mjög góð veiði hefur verið1 ' í Laxá i Kjós aö undanfömu j »eins og flestum laxveiðiám á i * Suður- og Vesturlandi, enda eru j ! laxagöngu^ nú miklar. Siðastlið-, i inn fimmtudag komu 50 laxar á < »land í ánni, en þar af fengust J j 25 laxar á eina stöng, sem er j veiðimet í sumar. 15 laxar feng [ ust á aðra stöngina þennan dag ( > en 10 laxar á þriðju stöngina. • Tveir menn voru um stöngina, I sem mest fékk, þeir Guðbjartur j i Franzson og Svavar Magnússon ■ [ Laxamir voru flestir 4 — 8 pund. , Næstbezta daginn í Laxá í Kjós i í sumar fengust 40 laxar yfir | daginn. Um næsUíðustu helgi voru komnir 450 laxar á land í [ ánni, svo að búast má við að nú i séu þeir komnir upp undir 600. uom

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.