Vísir - 25.07.1967, Qupperneq 5
V í S IR . Þriðjudagur 25. júlí 1967.
Neyzla á grænmeti og ávöxt-
um fer stöðugt vaxandi hér á
landi og alltaf bætast við nýjar
grænmetis og ávaxtategund-
ir á markaðinn. Púrrur,
grænn pipar, ferskjur, plóm-
ur, allt hefur þetta komiö
á markaðinn á síðustu árum. Nú
fer senn að nálgast sá tími, að
krækiber, bláber og rifsber
veröa fullþroska og alltaf eykst
áhugi húsmæðra á að not-
færa sér þessa hollu og góðu
fæðu. Við höfum gert smá könn
un á grænmetiskvörnum,
berjapressum og rifjárnum sem
hér eru á markaðnum og kom-
umst við að raun um að tölu-
vert fjölbreytt úrval er af þess
um vörum hér í verzlunum.
Einna mesta athygli hjá okkur
vakti lítil og handhæg kvörn,
sem kostar 158 krónur (stærri
gerð væntanleg á 298 kr.).
Kvöm þessi kallast NEM og er
dönsk eins og nafniö gefur til
kynna, og er úr ryðfríu; stáli.
NEM hefur fengið sérlega góða
dóma hvarvetna fyrir hve ein-
föld hún er í notkun og upp-
þvotti. Það má næstum segja
að hægt sé að hakka allt I henni
kjöt, grænmeti, hnetur, súkku-
laði, brauð, appelsínubörk o. fl.
Sérstaklega má mæla með
kvörninni fyrir konur með lítil
börn, sem þurfa brytjaðan mat
því sérstaklega fljótlegt er að
nota hana. Hún er ekki fest á
borð og er hægt að hakka beint
á diskinn. Af stærri kvömum
sáum við '^t.d. franskar kvamir,
sem standa á borði og eru þær
meö mismunandi plötum, sem
settar eru í kvarnirnar eftir því
hvað á að hakka. Ein geröin sem
kallast MOULIN-LEGUMES og
kostar 148 og 230 krónur (eftir
stærð), er með sérstakri plötu
fyrir ber og smágerða ávexti, og
er hún notuö mest sem berja-
pressa. MOULI-JULIENNE kost
ar 105 og 195 krónur og er gerð
sérstaklega fyrir hrátt grænmeti
og ávexti og- er mjöf afkasta-
mikil og tilvalin fyrir stór heim
íli. Einnig eru fáanlegar sér-
stakar berjapressur, mjög hand-
hægar og þægilegar á kr. 117,00,
ost og brauðmýlsnurifjám á
51,70 og einnig sáum við sér-
staka möndlukvörn á fæti, sem
kostar 213,00 kr. Mjög margar
gerðir erú fáanlegar af ýmiskon
ar rifjámum og er veröiö allt
frá 15 kr. og upp I 60 krónur.
Að lokum örfáar ábendingar
í sambandi við grænmetisnotk-
un: Munið að þvo grænmetið
Framh á bls 13.
Síður samkvæmiskjóll úr hvítu
ullarkrepi. Sniðið er mjög ein-
falt og eina skrautið er perlu-
saumur í hálsmálinu.
Dagkjóll úr þunnu ullarjersey.
•vyjíí!
Islenzk fízkusýningarstúlka
kynnir hausttízkuna
;
Nú er hausttízkan óðum að
koma fram í dagsins ljós, og
erlendis má gera ráð fyrir að
hvað úr hverju fari vetrarfatn-
aðurinn að koma í verzlanir, en
hingað kemur hann yfirleitt ekki
fyrr en í september. Hápunktur
hausttízkunnar er samkvæmis-
klæðnaðurinn, og' bíða margar
konur með eftirvæntingu eftir
fréttum af fyrstu tízkusýning-
unum, þar sem hann er sýndur.
Hérlendis hafa samkvæmiskjól
ar oft setiö á hakanum enda var
það svo til skamms tíma, að á
aöeins örfáum stórhátíðum og
stórdansleikjum var boðaður
samkvæmisklæðnaður. Nú fær-
ist sífellt í aukana að konur
noti samkvæmiskjóla í matar-
boðum og almennum dansleikj-
um um helgar ,enda er hverri
konu nauðsynlegt að finna sér
af og til tækifæri til að klæða
sig reglulega upp. Auk þess eru
t.d. síðir samkvæmiskjólar allra
kjóla klæöilegastir, flest snið
njóta sín mikið betur á síðum
kjólum, og það er eftirtektar-
vert hvað konur fá mikið meiri
reisn og tign yfir sig.
Hérlendis er nú stödd íslenzk
tízkusýningarstúlka, Björk Guð
mundsdóttir, búsett í Svíþjóð og
hefur hún meðferðis allmarga
kjóla frá ‘frægu dönsku kjólafyr
irtæki, „Racell“, en hún hefur
sýnt mikið fyrir fyrirtækið í
Svíþjóð. Kjólar þessir eru seldir
á öllum Norðurlöndunum, nema
á íslandi, og ef markaður reyn-
ist fyrir þá hérlendis, þá mun
fyrirtækið senda mann hingað
upp til að gera frekari samn-
inga. Við heimsóttum Björk og
fengum að líta á kjólana, og
gátum ekki betur séð en þetta
væru sérstaklega vandaðir og
vel frágengnir kjólar, þarna eru
bæði samkvæmiskjólar og léttir
kvöldkjólar, t.d. úr ullarkrepi.
Allir eru kjólarnir alfóöraöir
með nælonfóðri, en efnin 1 kjól
unum eru mjög mismunandi,
silki, chiffon og margar gerðir
af skemmtilegum þunnum ullar-
efnum. Kjólarnir eru allir gerðir
samkvæmt hausttízkunni, enda
tekur fyrirtækið alla eldri kjóla
af sýningarskránni vor og haust.
Ekki virðist um neinar stórbreyt
ingar frá í fyrra vera aö ræða
í samkvæmistízkunni, einfald-
leikinn er allsráðandi og bein
eða útsniðin pils eru á flestum
kjólunum. Indverski stíllinn er
mjög ríkjandi, og fylgja honum
ýmiss konar gyllt bönd og legg-
ingar. Samkvæmisbuxnadragtir
eru enn mjög mikið í tízku, þótt
ekki hafi þær slegiö virkilega
í gegn hérlendis ennþá. Kannski
eiga þær eftir að verða vinsæl-
ar hér næsta vetur, en þess má
þó geta aö þær kretjast yfir-
leitt sérlega góðs vaxtarlags.
Vonandi eiga þessir fallegu kjól
ar eftir aö koma hér í verzlan-
ir, en samkvæmt því, sem Björk
sagði okkur verða líklega flestir
á 2 til 3 þúsund út úr verzlun.
Það vakti sérstaka athygli
iilii
Hér er buxnadragt úr ljósrauðu
silki. Jakkinn er nokkuð síður
eins og við sjáum, en það er
mjög mikið í tízku, bæði við
buxur og pils.
okkar, að kjólarnir heita all-
ir nöfnum, og eru það til dæmis
nöfn eins og Helga, Ragna, Sól-
veig og Gyða, pg ættu því ein
hverjar íslenzkar stúlkur að geta
fundið „nöfnu sína“ meðal þess
ara kjóla.
NEM kvörnin er sérstaklega handhæg og aðeins samansett úr
þremur lilutum og því mjög þægileg í uppþvotti.