Vísir - 25.07.1967, Síða 13

Vísir - 25.07.1967, Síða 13
V1SIR . Þriðjudagur 25. júlí 1967. 13 Danir vinna sigur á ryðinu Siðan jámöld hófst í heimin um hefur ryð verið hinn mesti skaðvaldur. Menn hafa gert ýmis legt til að koma í veg fyrir að ryð settist á málmhluti. en með misjöfnum árangri, og begar ryð ið einu sinni var búið að kom- ast í hlutinn var ákaflega erf- itt að ná fyrir útbreiðslu þess. Fyrir nokkru síðan sendi dansk ur efnafræöingur, Thorleif Fritz, frá sér nýtt efni, sem hann kall ar Iropast ,og hefur það vakið óhemju athygli, enda reynzt frá bærlega vel til að ná ryði, og þá eingöngu ryöi, þvi lakk og málningu eða öðrum cfnum ger ir það ekki neitt, aðeins ryðið hverfur' og það gjörsamlega. Blaðamaður Vísis reyndi þetta nýja efni nýlega, en það hefur nú verið flutt inn í fyrsta sinn, enda ekki vanþörf á hér, þar sem sjávarseltan veldur oft miklu ryötjóni. Efnið er kvoðu kennt og er þvi smurt á ryð- flötinn og síðan látið bíða þar til þaö er þurrt og þá skolað af með volgu vatni og l'löturinn þveginn og þurrkaöur og er nú tilbúinn undir grunnmálningu. Mörg erlend fyrirtæki hafa reynt. Iropast og liafa gefið því hina beztu einki«n. Má þar nefna firmu eins og Ford, ýmsar danskar rannsóknarstofur og fyr irtæki í járniðnaðinum. Danir gera sér nú miklar von ir með þetta nýja efni próf. Fritz, sem hefur komið sér fyr- ir í gömlu mjólkurbúi, sem hafði verið lagt niöur i Fjellerad á N-Jótlandi. ÚLFAR í ÞÓRSMÖRK — og lækkar fargjöldin Ferðaskrifstofa Úlfars Jacobsen, mun nú sem endranær fara móp- ferð í Þórsmörk um verzlunar- mannahelgina. Má gera ráð fyrir að þetta verði stærsta hópferð ársins eins og undanfarin ár, þegar far- þegamir hafa verið 400—1000. Eins og kunnugt er hafði ferða- skrifstofan forgöngu um að flytja skemmtikrafta inn á Þórsmörk um þessa helgi siðastliðin 5 ár og hef- ur jafnframt boðið þangað með sér ýmsum æskulýðsleiðtogum. Er þess skemmst að minnast er séra Bragi Friðriksson hélt þar helgistund á sunnudagsmorgni helgarinnar. 1 ár hefur málum skipazt svo, að Hjálparsveit skáta í Reykjavík mun annast allt skemmtihald á Þórsmörk um þessa helgi. Ferðaskrifstofa Úlfars Jacobsen vill taka fram, að þag er með full- um stuðningi skrifstofunnar að skátar sjá um skemmtiatriðin, enda hefur skrifstofan lánað þeim til af- nota allan útbúnað sinn í Þórsmörk og ráðin hefur verið hljómsveit! sú, er feröaskrifstofan hafði áður ráðið til þessarar helgar, Toxic. Farig verður í Þórsmörk frá ferðaskrifstofunni bæði á föstudag og laugardag. Á föstudag klukkan 20.00, en laugardag klukkan 13.00 —15.00. Þá verða ferðir til baka á mánu- dag kl. 10.00 til 16.00. Fólk er beðig að gæta þess, að að þessu sinni verður hver og einn að gæta síns farangurs, þar eð ekki verð- ur sérstakur flutningsbíll með í ferðinni. Afgreiðsla á bílum ferða- skrifstofunnar verður við sérstak- an staur neðan girðingar í Húsa- dal, og svo vitanlega á skrifstof- unni í Austurstræti 9 í Reykjavík. Þá skal þag sérstaklega tekið fram, að þar sem skrifstöfan losnar að þessu sinni við tugþúsunda kostnað vegna skemmtanahalda, verða fargjöld til farþega lækkuð sem því nemur. Veröur Ferðaskrif- stofa Úlfars Jacobsen því með lægstu fargjöldin í Þórsmörk að þessu sinni. FERÐIR - FERÐALÖG LANDSÝN — INNANLANDSFERÐIR Daglegar ferðir: 1. Gullfoss—Geysir—þingvellir o. fl. 2. Hvalfjörður—Uxahryggir—Þingvellir. 3. Krýsuvík- Grindavík—Reykjanes—Bessastaðir. 4. Þingvellir, um Grafning, hringferö. 5. Sögustaðir Njálu, sunnud. og fimmtud. 6. Borgarfj.—Kaldidalur—Þingvellir, sunnud. og miðvikud. 7. Hvalfjörður, kvöldferðir. 8. Þingvellir, kvöld- ferðir. 9. Borgarfj.—Snæfellsnes, 21/2 dagur, brottför mánud. og föstud. kl. 20. 10. Surtseyjar- og jöklaflug. Bróttfar frá skrifstofunni i allar ferðir.— Útvegum bif- reiðir fyrir 3—60 farþega í lengri og skemmri ferðir og einnig leiguflugvélar af ýmsum stærðum. l/\n nsy n t FERÐASKRIFST Laugavegi 54 Simar 22875 og 22890 O F A LANDSÝN UTANLANDSFERÐIR Danmörk — Búlgaría 17 dagar og lengur, et óskað er. Brottfarardagar: 31. júli, 21. ágúst, 4. og 11. september IT ferðir til 9 landa. Seljum í hópferðir Sunnu. Fram undan vetrarferðir: Gullfoss 21/10 og 11/11 1. farrými Rússlandsferð 28/10 i tilefni 50 ára byltingarinnar. Far- ið á baðstað ) Kákasus. Nánar auglýst síðar. Fleiri ferðir á döfinni. Feröir meg þekktum erlendum ferðaskrit stofum, norskum, dönskum. enskum, frönskum, ítölsk- um o. fl. Leitiö upplýsinga. LANDSBNh FERÐASKRIFSTOFA Laugavegi 54 Simar 22875 og 22890 Fararstjóri í Þórsmörk verður hinn landskunni fararstjóri, Guð- mundur Magnússon. (Frá Ferðaskrifstofu Úlfars Jacobsen). Kvennasíða — Framh. af bls. 5 lauslega upp úr köldu vatni fyrir notkun .aldrei úr volgu eða heitu vatni. Þurrkið grænmetið t.d. með grisju áður en þið ríf- ið það. Við blöndun á grænmetis salati verðið þið alltaf að fara varlega, svo að grænmetið kless ist ekki of mikið. Og svo eru hér tvær upp- skriftir af auðveldum salötum: EPLASAI.AT: Blandið þúnnúm eplasneiðum með litlum sneiðum af tómöt- um og hellið oliu og edik blöndu yfir, setjið örlítið af hvítlauk og mikið af hakkaðri persillu. Bezt með skinku eða köldu nautakjöti. FRANSKT BLÓMKÁLS- SALAT: 100 g. mayonnaise, 1 mat- skeiö tómatkraftur, lítið blóm- kálshöfuö, karry, salt og pipar, ólívur. Rífið blómkálið (hrátt) og blandið tómatkraftinum og mayonnaise saman við. Kryddið vel og blandið ólívusneiðum sam an við. Mjög gott með ristuðu brauði. uwehðaw^16- unniii,. þvottastöðin SUÐURLANDSBRAUT SIMI 38123 OPIÐ 8 -22,30 SUNNUD. 9 - 22.30 Auglýsið í VÍSI REYKVÍKINGAR — FERÐAFÓLK Hringferð um Þjórsárdal Á einum degi gefst yður tækifæri til að ferð- ast um eitt af fegurstu héruðum landsins, að skoða minjar sögunnar, og sjá með eigin aug- um hluta framkvæmda við stærsta mannvirki landsins. í hringferðum okkar frá Reykjavík um Þjórs- árdal er m. a. komið við á eftirtöldum stöðum: Skálholti, Stöng, Gjánni, Hjálp. Við Búrfell er að rísa stærsta mannvirki, sem þjóðin hefir færzt í fang að reisa. Af Sámstaðamúla sést vel yfir hluta framkvæmdasvæðisins. í fylgd með kunnugum fararstjóra eigið þér kost á óvenju fróðlegri, þægilegri og ódýrri ferð. — Farið frá B.S.Í., Umferðarmiðstöðinni alla sunnudaga kl. 10. alla miðvikudaga kl. 9. Komið aftur að kvöldi. Upplýsingar gefur B.S.Í., sími 22300. LANDLEIÐIR H.F. Hafnfirðingar — Hafnfirðingar Stærsti málverka- og bókamarkaöur, sem haldinn hef- ur veriö í Hafnarfirði, er í Góötemplarahúsinu. — Fjölbreytt úrval, mjög lágt verð á málverkum og bókum. Notið þetta einstæöa tækifæri. — Opið til kl. 10 e. h. MÁLVERKA- og BÓKAMARKAÐURINN í GÓÐTEMPLARAHÚSINU

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.