Vísir - 27.07.1967, Blaðsíða 13
VÍSIR . Fimmtudagur 27. júlí 1967.
13
^MLDIHMLS”
nicVii r.siiOuvöriii* eru bcxtar i ferðalagxð
Enn ein gæða
vara frá
CO INC. N.
Pepsi, Pepsi-Cola
og Mirinda eru
skrásett
merki, eign
P E P SIC O INC
N. Y.
f3i ,E .lÍtlöVgrtW—'ltgS
Freyðandi, ferskt og
svalandi Mirinda appel-
sín. Nýja appelsínið á
nýrri flösku sem eykur
ánægjuna.
Samningar —
Framh. af bls. 8
er ekki allt Rhodesiumegin
vegna refsiaögerðanna , heldur
einnig Bretlands vegna tapaöra
viöskipta, sem kunna að vera
þeim töpuð að fullu, og tapið
enn tilfinnanlegra vegna stööv-
unar viðskipta milli Bretlands
og Arabaríkjanna.
Aö því er Rhodesiu varðar ætti
fjárlagafrumvarp nýlagt fram
að tala sínu máii, en þaö er
annað fjárlagafrumvarp stjómar
innar frá því Rhodesía lýsti yfir
sjálfstæöi sínu, en Wrathall fjár
málaráðherra kvað hafa tekizt á
undangengnum 20 mánuðum að
ná greiðslujöfnuði viðhalda fjör-
legu efnahagslífi og afstýra verð
bólgu.
1 brezkum blöðum er því hald
ið fram, að á þeim 7 mánuðum
sem liðnir eru síðan er Samein
uðu þjóðimar fyrirskipuðu við-
skiptabann á Rhodesiu hafi í
reyndinni mörg aðildarlönd auk
ið viðskipti sín við hana Af
hinum stóru viðskiptalöndum
Rhodesiu hafi Bretland eitt fram
fylgt banninu.
Wilson getur ekki hvikað frá
stefnunni um meirihlutastjóm
sem mark, en nái hann sam-
komulagi um meirihlutastjórn
stig af stigi, væri málið leyst. —
ef — ef harðsnúnir hvítir menn
í Rhodesiu fallast á slíka lausn
og jafn harösnúnir blökkuleið-
togar ýmsir í Afríku, en vitaö að
þeir krefjast harðari refsiað-
gerða og samgöngubanns við
Rhodesiu og hér er um að ræöa
leiðtoga landa í brezka sam-
veldinu. Einn þessara leiðtoga
er Ali Simbule ambassador Zam
bíu (nágrannarikis Rhodesiu)
í London. Hann sagði nýlega,
að í Rhodesiumálinu væri
b.rezka .stjómin „eins og tann-
islpps, skriþandi bol.abítur“. -
.s^rt Á.imeöfylgjandi mynd er Sim
bule klæddur skikkju þeirri er
hann gekk í á fund drottningar
Bretlands. Á skikkjunni er
mynd af Kenneth Kaunda for-
seta Zambíu og orðið „frelsi"
er á hana letrað sem og tákn-
myndir ýmsar. Simbule baöst
síðan afsökunar á ummælum
sínum um brezku stjómina, en
á þann hátt að ekki verður
beint sagt, að hann hafi „étið
þau ofan í sig“.
A.Th.
AUGLÝSING
um gjalddaga og innheimtu
opinberra gjalda í Reykjavík.
Næstu daga veröur gjaldendum opinberra
gjalda í Reykjavík sendur gjaldheimtuseðill
þar sem tilgreind eru gjöld þau er greiða ber
til Gjaldheimtunnar samkvæmt álagningu
1967.
Gjöld þau sem innheimt eru sameiginlega og
tilgreind eru á gjaldheimtuseðli eru þessi:
Tekjuskattur, eignarskattur, námsbókagjald,
lífeyristryggingagjald atv.r., slysatrygginga-
gjald atv.r., iðnlánasjóðsgjald, alm. trygginga
sjóðsgjald, aðstöðugjald, tekjuútsvar, eignar-
útsvar, kirkjugjald, atvinnuleysistrygginga-
gjald, kirkjugarðsgjald, launaskattur, sjúkra-
samlagsgjald og iðnaðargjald.
Það, sem ógreitt er af sameiginlegum gjöldum
1967 (álagningarfjárhæð, að frádreginni fyrir-
framgreiðslu pr. 14. 7. s.l.), ber hverjum gjald-
anda að greiða með 5 afborgunum, sem nánar
eru tilgreindar á seðlinum, þ. 1. ágúst, 1. sept.,
1. okt., 1. nóv. og 1. des. Séu mánaðargreiðsl-
ur ekki inntar af hendi 1.—15. hvers mánað-
ar, falla öll gjöldin í eindaga og eru lögtaks-
kræf.
Gjaldendum er skylt að sæta því, að kaup-
greiðendur haldi eftir af kaupi þeirra tilskild-
um mánaðarlegum afborgunum, enda er
hverjum kaupgreiðanda skylt að annast slík-
an afdrátt af kaupi að viðlagðri eigin ábyrgð
á skattskuldum starfsmanns.
Gjaldendur eru eindregið hvattir til að geyma
gjaldheimtuseðilinn þar sem á honum eru
einnig upplýsingar um fjárhæð og gjalddaga
fyrirframgreiðslu 1968.
Reykjavík, 26. júlí 1967.
Gjaldheimtustjórinn.