Vísir - 29.08.1967, Page 1
GLAUMBÆR SVIFTUR
FRAMLENGINGARLEYFI
57. árg. - ÞriÖjudagtfT29. ágúst 1967. - 196.101.
— Verður að loka
Jc Vegna brots á heilbrigðis-
samþykkt Reykjavikur, þegar
en onnur
hús
535 gestum meir en leyfilegt
var, var hleypt inn i Glaumbæ
á föstudagskvöidið síðasta, var
framkvæmdastjóri Glaumbæjar,
Sigurbjörn Eiríksson, kallaður á
fund fulltrúa lögreglustjóra og
yfirlögregiuþjóns í gærdag.
Þar var honum tilkynnt,
að vegna þess brots og annarra
væri staöurinn sviptur fram-
lengjngarleyfi lögreglustjóra
næstkomandi föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Verð-
ur þvi húsið aö loka kl.
23.30 þessi kvöld í stað þess að
hafa opið til kl. 1 eftir mið-
nætti, eins og önnur hús.
★ Það er lögreglustjóri,
sem veitir þessi leyfi og getur
tekið þau aftur, ef ástæða þykir
til, án nokkurs formála annars.
Skýrsla varðandi brotið á föstu-
dagskvöld verður svo send frá
skrifstofu lögreglustjóra til
sakadómara mjög bráðlega og
þaðan verður hún svo væntan-
lega send skrifstofu saksóknara,
en hann mun svo ákvarða, hvort
mál verði höfðað á hendur við-
komandi.
Svifnökkvinn sigldi
upp Ölfusá í morgun
— Kemur til Reykjavikur i dag
Svifnökkvinn mun vera væntan-
legur til Reykjavíkur síðari hluta
dagsins í dag, samkvæmt þeim
upplýsingum, sem Visi tókst að
afla sér í morgun Nökkvinn átti
að vera á Selfossi rétt um hádegið
í dag samkvæmt áætlun, en hann
fór frá Vestmannaeyjum klukkan
rúmlega 9 í morgun.
i Nokkur hópur manna hafði safn
borgarinnar, en þær eru víðsvegar um bæinn og brátt von á fleiri. — Auk þess liafa fyrirtæki og j azt saman á bryggjunni á Eyrar-
stofnanir keypt myndir eftir ÁSmund og látið steypa upp. I bakka klukkan rúmlega 10 í morg-
PSír listamenn hafa átt eins mikinn þátt í að prýða lystigarða borgarinnar Iistaverkum eins og Ásmund-
nr Sveinsson. Nýlega var sett upp eftir hann tíunda myndin í eigu Reykjavíkur, Vatnsberinn í Öskjuhlíð.
Hér er Ásmundur viö mynd sína „Móður jörð“, en i Myndsjá i dag eru sýndar allar myndastyttur Ásmundar :
í
um, en þá var von á nökkvaraum
þá og þegar. Hann mun síðan sigla
upp Ölfusá og stoppa stutta stund
á Selfossi. Var von á honum þang-
að um hádegið f dag. Sfðan mun
nökkvinn sigla sömu leið til baka
niður Ölfusána, og fyrir Reykja-
nesið til Reykjavíkur. Ekki er alveg
víst, hvenær hann kemur hingað
til borgarinnar, en búizt við að það
verði undir kvöldmatarleytið, alla
vega ekki fyrr en eftir kiukkan
fimm í dag.
— Bráðabirgðasamkomulag náðist eftir sáttafund, sem stóð i alla
nótt. — Samkomulagið lagt fyrir til staðfestingar i dag
við þá Björgvin Sigurðsson ^ram-
kvæmdastjóra Vinnuveitendásam-
bandsins og Hermann Guðmunds-
son, formann Hlífar, en þeir vildu
Bráöabirgðasamkomu-
lag náðist í morgun kl. 7 í
Straumsvíkurdeilunni, eft-
ir að sáttafundur hafði stað
ið í alla nótt frá því kl.
20.30 í gærkvöldi. — Hald-
inn verður annar sáttafund
ur í dag, þar sem gengið
verður frekar frá bráða-
birgðasamkomulaginu, áð-
ur en það verður lagt til
staðfestingar fyrir félags-
fund hjá verkamannafélag-
inu Hlíf og fyrir stjórn
Vinnuveitendasambands
íslands seinna í dag.
Verkfallið hafði staðið í nákvæm
Iega 5 vikur í gær. Verkamanna-
félagið Hlíf setti verkbann á verk-
takasamsteypuna Véltækni-
Hochtief, þegar verktakarnir neit-
uöu að láta kaupgjaldssamninga
þá gilda, sem Hlíf hafði gert sam-
komulag um við verktakasam-
steypuna Hochtief- Strabag, sem
annaðist jarðvinnslu á verksmiðju-
stæðinu.
Vísir hafði í morgun samband
hvorugur gefa upplýsingar um á
hverju bráðabirgðasamkomulagið
væri byggt, enda getur stjóm
Vinnuveitendasambandsins og
félagsfundur Hlífar hvort um sig
fellt samkomulagið. — Hermann
Guðmundsson, kvaðst þó vera eftir
aðstæðum ánægður með bráða-
birgðasamkomulagiö og sagðist
vona að félagsfundur Hlífar sam-
þykkti það.
Brotizt inn hjd
KLETTI HF
Þegar menn mættu til vinnu i
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjuna
að Kletti hf., inni í Laugamesi, í
morgun, urðu þeir þess varir, að
brotizt hafði verið inn f vigtarskúr
verksmiðjunnar. Var rannsóknarlög
reglunni gert viðvart og -kom hún
strax á staðinn. Kom í Ijós að sakn
að var úr skúmum einnar rafmagns
reiknivélar af „Aiddo“gerð, grárrar,
en einskis annars. Hafði þjófurinn
einhvern tíma frá því kl. 7 í gær-
kvöldi þegar vinnu var hætt, þar
til í morgun, brotið rúðu í skúrnum
og farið inn um glugga. Málið er
í rannsókn.
Rottugongur
eykst þegur j
huustu tekur.
Vegna söguburðar um að óvenju-
mikill rottugangur sé í borginni I
um þessar mundir, hafði blaðið
samband við Leó Schmidt, mein-
dýraeyði borgarinnar.
Leó sagði að vissulegi ykist
rottugangur í borginni á hverju
hausti og stafaði sú aukning af því
hve ört rottan tímgaðist yfir sum-
i artimann og fleiri dýr kæmust
ar vegna tíðarinnar. Leó sagði enn
fremur, að sögur sem þessar kæm
ust yfirleitt á kreik á hverju hausti
og þær væru fljótar að breytast í
meðförum fólksins, eins og sögur
yfirleitt gerðu, og fyrr en varði
væri ein rottan orðin að hundruð-
ím. Leó sagði, að þeir sem ynnu
við rottueyðinguna yröu sjaldan :
farir viö rotturnar sjálfar. enda
héldu þær sig aðallega niðri í kló- j
Skunum en kæmu sjaldan upp á |
firborðið. Þegar það hins vegar
Vrvxnh. á 10. síðu.
ÞRJÁR VÉLSMIÐJUR í NJARÐ-
VIKUNUM SAMEINAST
— Til að bæta samkeppnisaðstöðuna og veita fullkomnari bión-
ustu. — Fyrsta tilfelli sinnar tegundar hér á landi
Viðræður um sameiningu
þriggja vélsmiöja í Njarðvikun-
um eru nú komnar á lokastig.
Það eru þrjár vélsmiðjur í Njarð
víkunum, sem munu sameinast,
og ef til vill koma fleiri aðilar
inn í samrunann, en frá bví cr
ekki endanlega gengið ennþá.
Ef til vili verða fleiri hluthafar
í hinu nýja fyrirtæki, og hafa
væntanlegir hlulhafar m, a. tek-
ið þátt i viðræðum um málið.
Að því er Gísli Júlíusson verk-
fræðingur hjá Vélsmiðju Njarð-
víkur sagði Vísi i stuttu viðtali
í morgun, er samruni þessi til-
kominn til að gera fyrirtækið
samkeppnishæft og svo að geta
veitt hinum nýia slipp í Njarð-
víkunum betri þjónustu, eink-
um varðandi járnsmíðavinnu.
Gísli sagði aö um eftirtaldar
þrjár vélsmiðjur sé aö ræða:
Vélsmiðju Njarðvíkur, Vél-
smiðju Björns Magnússonar og
Vélsmiðju Ólsen, Gísli sagði enn
fremur:
„Viö höfum haft náið sam-
starf við iðnaðarmálaráðherra
og Iðnaðarmálastofnun Islands
varðandi þetta mál. Viðræður
hófust um sl. áramót og eru
þær nú komnar á lokastig. Þess
má geta til gamans, að á ráð-
stefnu Stjórnunarfélags íslands
á Bifröst síðar í þessari viku
verður þessi samruni vélsmiðj-
anna sérstaklega ræddur“.
„Ég held, að þetta sé fyrsta
tilfelli sinnar tegundar hér á
landi. Ég vildi leggja sérstaka
áherzlu á þátt iðnaðarmáiaráð-
herra í þessu máli, en hann
hefur verið því mjög hlynntur
og lagt sig sérstaklega fram til
að tryggja framgang þess“.
Við vélsmiðjurnar þrjár, sem
áður eru nafngreindar, starfa nú
milli 40 og 50 manns, svo til
eingöngu járnsmiðir. Þá má geta
þess, að liklega verður hinn
nýi slippur í Njarðvíkunum
tekinn i notkun eftir um það
bil tvo.mánuði. Tveggja mánaða
vinna er eftir, til að hann kom-
ist I gagnið. Slippurinn verður
mjög fullkominn og getur tek-
ið við stærstu fiskiskipum okk-
ar til viðgerðar.