Vísir - 29.08.1967, Side 7
7
V1SIR. Þriðjudagur 29. ágúst 1967.
morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd
Wilson tekur við yfírstjórn efnahagsmála og
tilkynnir víðtækar breytingar á stjórn sinni
Andstæðingablöð brezku stjóm-
arinnar em mörg býsna harðorð
í gagnrýni sinni á hana í rit-
stjórnargreinum í morgun, sem
fjalla um breytingar þær, sem
Wilson boðaði í gær. Telja blöð-
in það byggjast á óskhyggju, að
af breytingunum leiði, að takist
að afstýra þeim háska, sem
þjóðinni sé búinn, vegna rangr-
ar stefnu í þessum málum.
Harold Wilson forsætisráðherra
Bretlands tilkynnti í gær víðtækar
breytingar á stjóm sinni og voru
þá ekki liðnir fullir tveir sólarhring
ar frá því hann kom til Lundúna úr
sumarleyfi sínu. — Mikilvægasta
breytingin er sú, að Wilson tekur
persónulega í sínar hendur yfir-
stjórn efnahagsmálanna, en hinn
nýi efnahagsráöherra er Peter
Shore, 43 ára að aldri, sem ekki
hefur átt sæti f ríkisstjórninni nema
tæp 3 ár. Sú ákvörðun Wiisons,
að taka persónulega við yfirstjórn
Frakkar og kjarn-
orkuvopnin
Parísarfréttir herma, að fremur
lítig hafi verið sagt um þaö f blöð-
um og ötvarpi, að ríkisstjómir
Bandaríkjanna og. Sovétríkjanna
lögðu fram samhljóöa tillögur um
bann við frekari útbreiðslu kjam-
orkuvopna.
Eftir þeim ummælum að dæma,
sem fyrir hendi eru, hafa Frakkar
ekki áhuga á málinu, og munu ekki
telja sig bundna af slíkum sátt-
mála. Peim er það mikilvægt mál
og metnaðarmál að komast í tölu i
kjarnorkuvelda.
efnahagsmálanna á sér ekki for-
dæmi á frfðartímum. Meginástæðan
fyrir, aö hann tók þessa ákvöröun,
er talin hin mikla fjölgun atvinnu-
leysingja, en þeir eru nú orðnir
yfir 550.000 talsins, eða miklu fleiri
en Wilson gerði ráð fyrir fyrr á
árinu. Vonazt er til, að ákvöröun-
in verði til þess að þagga niður f
þeim, sem harðast hafa gagnrýnt
stjóm efnahagsmálanna, þ. e. af
leiðtogum verkalýðssamtakanna
Peter Shore verður forsætisráðherr
anum dag hvern til aðstoðar og
ráðuneytis ásamt Callaghan fjár-
málaráðherra, sem heldur sæti sínu
í aðalstjóminni. Fyrrverandi efna-
hagsmálaráðherra Michael Stewart
á áfram sæti í aðalstjórninni (cab-
inet) sem fyrsti ríkisritari (Secret-
ary of State), en Jay verzlunarráð-
herra var beðinn að víkja úr ríkis-
stjóminni. Alls víkja 5 ráðherrar
úr aðalstjórninni, þeirra á meðal
Herbert Bowden og Bottomley. —
Patrick Gordon Walker verður
menntamálaráðherra.
Douglas Jay, sem lætur af emb-
ætti verzlunarráðherra, hefur gagn-
rýnt stefnu stjórnarinnar, m. a. um
sóknina um aðild að EBE. Bowden
samveldisráðherra veröur forseti
stjórnar Óháða sjónvarpsins og aðl-
aður. Anthony Crossland mennta-
málaráðherra tekur við af Jay. —
Michael Stewart lætur af embætti
efnahagsmálaráðherra og tekur við
! embætti til samræmingar félags-
I legra mála og annarra innanlands
! opinberra mála. Við embætti hans
] tekur Peter Shore, sem fyrr var
j getið. Viö embætti Bottomleys tek-
! ur Reginald Prentice.
Harold Wilson
Sovét-herþotur í
Uppsalaheimsókn
Sovézkar herþotur komu til Upp-
sala-flugvallar í gær.
Er þetta vináttuheimsókn af;
hálfu sovézka flughersins og hin i
fyrsta til vestræns lands. Heim- !
sókninni lýkur á fimmtudag. Sam-,
komulag varð um heimsókn þessa
í heimsókn yfirhershöfðingja Svfa,
Torstens Rapps til Sovétríkjanna
fyrir nokkru.
FÉLAGSLÍ F
Knattspyrnufélagið Valur.
Skíðadeild.
Aðalfundur Skíðadeildar Vals, —
verður haldinn að Hlíðarenda —
þriðjudaginn 5. sept 1967. kl. 20.30
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Bourguiba hirtir Nasser
66
Bourguiba forseti Túnis hefir á
ný mælt aðvörunarorð til Araba-
Aukinn útflutn-
ingur norskra
fiskafurða
Norðmenn fluttu út fisk og fiskaf
urðir á fyrra misseri ársins fyrir
741 milljón krónur (norskar) og var
þetta 91, millj. kr. meira en á sama
tíma í fyrra.
Stóraukinn útflutntngur sildar-
mjöls seinustu mánuði er ein orsök
þcssa fremur óvænta árangurs. —
Síldarmjölsútflutningurinn á fyrra
misseri þessa árs nam 103 millj.
n.kr. Einnig jókst útflutningur á
saltfiski, en útflutningur á frystum
fiski minnkaði um 22 millj. nkr. mið
að við fyrra misseri ársins 1966.
ríkjanna þess efnis, að bau verði
að viðurkenna ísrael og fella niður
áróður um að „þurrka ísrael af
landabréfinu".
Hann gagnrýndi einnig þau ,,mis-
tök“ að banna ísrael siglingar um
Akabaflóa, en það hafi stuðlað að
því, aö til styrjaldar kom í júní.
í yfirlýsingu, sem birt var sl
sunnudag segir hann :
„Ríkið ísrael hefir hlotið viður-
kenningu bæði Bandaríkjanna og
i Sovétríkjanna. Þaö er í félagsskap
■ Sameinuðu þjóðanna og aðeins Ar-
‘ abar ógna tilveru þess. Við þessar
I aöstæður er tilgangslaust að halda |
; áfram að virða að vettugi þessar j
: itaðreyndir".
Þessi áskorun Bourguiba kom
I rétt á eftir að lauk fundi hans og j
; Husseins Jórdaníukonungs í fyrri j
viku. Talið er, að meg því að endur |
taka kröfu sína um endurskoðun i
1 á afstöðu Araba, sem hann bar |
frarh fyrir 2 árum, er hann hafn-
aði árásarstefnu á ísrael, hafi hann
viljað beita áhrifum sínum á gerð-
ir fundar æðstu manna Arabaríkj-
anna í Khartoum og að horfið yrði
frá óraunsærri afstöðu, sem myndi
verða til þess ag deilur hörðnuðu
enn varðandi Austurlönd nær, en
um þau mál er svo ástatt, að hvorki
gengur né rekur.
Eitt Lundúnablaðanna birti þessa
frétt undir fyrirsögninni „Bourgu-
iba.hirtir Nasser".
Bein lína milli
Kreml og Downing
Street 10
Sáttmálinn um beint loftskeyta-
samband milli sovétstjómarinnar
og brezku stjómarinnar var nýlega
undirritaður í London og Moskvu.
Hér er um að ræða beint sam-
band milli Kreml og nr. 10 Down-
ing Street.
Samkomulag varö um sáttmálann
í heimsókn Kosygins í febrúar í ár.
Ottast gagnbylt-
ingu í Kína
í blaöi í Shanghai kemur t’ram, að
innan kommúnistaflokksíhs em
menn, sem farnir em ag hallast
að því, að þaö veröi Mao-fylkingin
í flokknum, sem bíöi ósigur að lok-
um í þeim átökum, sem nú eiga sér
stað í Kína. Blað þetta er vinveitt
Mao og nefnist Web Wei Bao.
Blaðið segir, að sumir kommún-
istar vilji ekki játa, að horfumar
séu góðar fyrir Mao, vegna þess,
að dagar gagnbyltingarinnar nálg-
ist. Blaðið gagnrýnir líka herinn
fyrir mistök í stuðningi við rót-
tæka menn. — Sums staðar f Kína
hafa hersveitir neitað að ganga f
lið með öörum aðilanum. Rauðir
varðliðar hafa gagnrýnt afskipta-
leysi hersins.
Hryðjuverkamenn
upprættir í
Rhodesíu
Þaö er talið að þaö hafi verið
um 50 hryðjuverkamenn, sem rhod-
esískar öryggissveitir áttu í höggi
vig í vikunni sem leiö.
Öryggissveitir studdar þyrlum
voru langt komnar með að uppræta
það, sem eftir var af fylkingunni,
en hún er sögð hafa fengið þjálfun
í Zambíu, en því er neitað þar.
Nær allir munu nú hafa verið hand
teknir eða felldir.
Rap Brown við sama
heygarðshorn ið
Rauðir varðliðar gera árás á
grískt skip í Shanghai-höfn
London : Rauðir varðliðar iögöu
hendur á áhöfn grísks flutninga-
skips, sem lá fyrir akkerum í höfn-
inni í Shanghai. Er frá þessu skýrt
í útvarpsfréttum frá Moskvu.
í fréttinni er sagt, að skipstjór-
mn hafi rifiö í tætlur samning sinn
við Kínverja og siglt til hafnarbæj-
arins Nachodka og beðið um lækn-
ishjálp fyrir sjálfan sig og nokkra
skipverja sína.
Það voru um 200 rauðir varð-
liöar, sem réðust á skipið, eftir að
skipstjórinn hafði beðið yfirvöldin
um að stilla til friðar milli hafnar-
verkamanna, sem áttu þar í inn-
; bvrðis bardögum.
Útvarpið í Moskvu gat ekki um,
! itvenær þetta hefði gerzt, en sagt
var, að hér væri um leiguskip að
ræða, sem leigt hafi verið til flutn-
! inga milli Kína og erlendra hafna.
ið hefðu og særzt í Vietnam af
Bandaríkjamönnum, væru 22 af
hundraði blakkir, sem berðust þar
gegn brúnum fyrir málstað hvíta
mannsins. Hann sakaði hvíta menn
að nota sér Vietnamstyrjöld-
Blökkumannaleiötoginn banda-
ríski Rap Brown flutti mikla æs-
ingaræðu í gær, segir í fregn frá
Detroit, og kvað hann þátttakend-
urna í upp]>otinu þar í borg i júlí,
er 42 menn létu lífið, hafa staðið
sig vel.
Áheyrendur hans voru um 2000
blökkumenn. Hann kallaði uppþot-
in ,,styrjöld“ og ráðlagði mönnum
að „hætta að ræna og byrja að
skjóta" 1 varpsmenn, sem voru á fundarstaðn
Brown er 24 ára og formaður um til þess að taka myndir, en ræð
stúdentanefndar, sem hefir að | an var flutt af þaki leikhúss í vest-
um
ina til þess að ná marki sínu, fæð-
ingatakmarkanir og svelti blökku-
mannabörn og héldi viö óréttlátu
réttarfari, allt í sama tilgangi.
Kastað var grjóti á hvíta sjón-
marki að vinna að málum blökku-
manna „án ofbeldis" !
í ræðu sinni minntist hann á
styrjöldina í Vietnam og kvað það
enga tilviljun, aö af þeim sem fall-
urhluta borgarinnar, þar sem upp-
þotin urðu í mánuðinum sem leið.
Fundarmenn dreifðust þegar ræð-
unni lauk, án þess að neitt frekara
gerðist.