Vísir - 29.08.1967, Síða 16
Þriðjudagur 29. ágúst 1967.
Maður í varðhald
grunaður um
nauðgun
Lögreglan handtók um hádegi
á sunnudag mann nokkum, kærðan
fyrir nauðgun. Hafði lögreglunni
borizt kæra frá ungri konu, sem
sagðist hafa verið á dansleik á laug
ardagskvöldið og hitt manninn þar.
Hafði hann boðið henni heim til
sín til samkvæmis, sem hann sagð-
ist ætla að halda þar um nóttina,
en þegar heim til mannsins kom,
voru ekki aðrir í samkvæminu en
þau tvö. Þar segir hún hann hafa
nauðgað sér. Var hún öll blá og
bólgin eftir barsmíðar og kom í ljós
að maðurinn var rifinn og klóraður.
Hann hefur viðurkennt að hafa átt
mök við konuna. Situr hann í
gæzluvarðhaldi, en málið er í rann-
sókn.
HRÖKTUST FIMM SÓLARHRINGA
í GÚMMBJÖRGUNARBÁ TNUM
— 80 skip og fjórar flugvélar tóku þótt í leitinni að
Stíganda — Áhöfninni bjargað um borð í Snæfugl í gær
% Á tíunda tímanum í gærkvöldi fann síldarleit-
arskipið Snæfugl gúmmbjörgunarbát með 12
manna áhöfn af vélbátnum Stíganda frá Ólafsfirði.
Mennirnir voru allir heilir á húfi og varð því mikill
fögnuður í heimahöfn skipsins, þegar þessi tíðindi
spurðust.
— Við vorum orðnir alvar-
lega uggandi um afdrif skips-
ins, sagði Hannes Hafstein,
fulltrúi Slysavamafélagsins,
þegar Vísir átti tal við hann
í morgun.
Stígandi hefur að öllum lík
indum sokkið mjög fljótlega
Guðmundur vann B-riðilinn
Ásamt tveim öðrum
Heimsmeistaramóti unglinga í
skák, sem fram fór í Jerúsalem í
ísrael lauk í gær. Guðmundur Sig-
urjónsson tók þátt í mótinu fyrir
íslands hönd. Hann fékk ekki til-
skllinn vinningafjölda í undan-
keppninni til að öðlast rétt til
keppni I A-riðli úrslitanna, en sig-
urvegarlnn í þeim riðli hlýtur nafn-
bótina „heimsmeistari unglinga í
skák 1967“. Guðmundur keppti í
B-riðli úrslitanna og var hann efst-
ur i riðlinum ásamt tveimur öðrum
skákmönnum.
Mót þetta, sem staðið hefur yfir
frá miðjum ágústmánuöi, hefur
ekki vakið mikla athygli, einkum
vegna þess, að flest A.-Evrópurikin
sendu ekki keppendur til mótsins,
vegna styrjaldar Egypta og Israels-
manna. Undantekn'ing eru þó Rúm-
enar, en rúmenski þátttakandinn
stóð sig þó frekar slælega, varð í 6.
og 7. sæti í A-riðlinum.
Úrslit í mótinu urðu þessi:
A.-riðill:
1. Julio Kaplan (Puerto Rico) 6y2
vinning.
12. Keene (England) 5]/2 vinning.
3. Timman (Hollandi) 5 vinninga.
4. Huebner (V.-Þýzkal.) 4y2 vinn.
Úrslit B-riöils:
1.—3. Guðm. Sigurjónsson 7 vinn.
1.—3. Matera (USA) 7 vinn.
1.—3. Woodhams (Ástralíu) 7 v.
4. Lombard (Sviss) 6 vinninga.
Þátttakendur í hvorum riðli voru
9 talsins. Guðmundur var aldrei í
; efsta sæti riöilsins, en sótti sig
j nokkuð ef á keppnina leið og tókst
að krækja í efsta sætið i síðustu
umferðinni.
Þessi mynd er tekin á reikningsnámskeiðinu í Hagaskóla í morgun.
Kennt eftir nýja reikn-
ingskerfínu næsta vetur
Reikningsnámskeið fyrir
bamaskólakennara var sett í
gærmorgun í Hagaskóla á vegum
Fræðsiumálaskrifstofunnar og
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur-
borgar. Helgi Elíasson fræðslu-
málastjóri setti námskeiðið, en
síðan flutti Jónas B. Jónsson
stutt ávarp. Á námskeiðinu eru
nú 80 kennarar, 55 úr Reykja-
vík, en hinir úr nágrenni Reykja
víkur og nokkrir frá Akureyri
Qg Húsavík.
Kennarar á námskeiðinu eru
Agnete Bundgaard yfirkennari
frá Danmörku, Guðmundur Arn-
laugsson, rektor og Björn
Bjarnason dósent. Fer kennsian
fram í Hagaskólanum frá 9 — 12
f.h. og 1.30 til 4 e.h. Gcrt er
ráð fyrir að næsta vetur verði
kennt eftir bessu nýja kerfi í
allfiestum 7 ára bekkjum barna-
skólanna hér í Reykjavik, og
verður þá notuð bók sú, sem
kennurum er kynnt á þessu
námskeiði, en hún er eftir
Agnete Bundgaard og Eeva
Kytta. Námskeiðinu verður slit-
ið 6 seotember.
eftir að hann hélt af stað frá
miðunum suður af Svalbarða,
því að gúmmbjörgunarbátur-
inn fannst tiltölulega skammt
frá veiðisvæðinu, eða á 73.50
N. br. og um 4 gr. A. 1. —
Og skipið hefur sokkið mjög
snögglega, þar sem skipverj-
um virðist ekki hafa gefizt
neitt tóm til þess að senda
út neyðarkall.
— Hafa þeir svo hrakizt um
það bil fimm sólarhringa í björg-
unarbátnum áður en þeir fund-
ust.
Ekki hefur reynzt unnt að ná
tali af skipverjunum af Stíganda,
sem nú eru um borð í Snæfugli
um það bil 500 mílur NNA af
Raufarhöfn á leið til lands, þar
sem skipið er ekki í kailfæri og
skipverjar hafa ekki viljað gefa
neitt upp um tildrög slyssins
ennþá.
Seinast heyrðist til Stíganda
á miðvikudag, þar sem hann
var búinn að innbyrða um 240
lestir af síld og var að halda af
stað frá miðunum. Tilkynnti
hann síldarleitinni um afla sinn
sem hann hafði fengið f mjög
góðu kasti, svo að Sigurbjörg
frá Ólafsfirði háfaði einnig úr
því töluveröan slatta.
Skipstjóri á Stíganda, Karl
Sigurbergsson, mun ekki hafa
gefið neitt ákveöið upp um það
hvort hann ætlaði til lands, eða
að Jan Mayen, þar sem síldar-
tökuskipin lestuðu síld úr bát-
unum.
Gísli Árni lagði af stað af
miðunum rétt á undan Stíganda
og var kominn til lands á laug-
ardag. Þegar ekkert hafði spurzt
tii Stíganda á mánudagsmorgun
var farið að óttast um hann og
Framh. á 10. síðu.
rrSVÁtM«>í
&
VEíOí-
Kortið sýnir svæðið, sem' leitafi var á i gær. Gúmmbjörgunarbátur-
inn fannst á 73.50 gr. N. br. og 4. gr. A 1., eða um 180 sjómilur
norðaustur af Jan Mayen
ísfisksölur í júlí
7 milljónir kr.
— Togararnir l'ónduðu 5.855 lestum heima
Fimm togarar og sex fiskibátar
seldu ísfisk á erlendum markaði í
júlímánuði fyrir samtals um 9
milljónir íslenzkra króna. Togar-
arnir seldu í Hull og Grimsby,
samtals 965 tonn fvrir samtals
6.969 millj. krónur ísl.. eða að
meðaltali 7.21- fyrir hvert kíló.
Bátarnir seldu hins vegar í
Grimsby og Aberdeen, 175,542 tonn
fyrir 1.905.587 krónur, eða 10.86
kr. að meðaltali hvert kg.
Fremur lítið hefur verið um ís-
fisksölur í sumar og togararnir
hafa þegar landað i Reykjavík
meiri afla, en þeir lönduðu þar
allt árið í fyrra, eins og frá var
skýrt í Vísi fyrir skömmu. Má bú-
ast við vegna ’tolla á þýzka mark-
aðinum og söluhöftum í Englandi
að minna verði um ísfisksölur i
haust en undanfarin ár.
I nýútkomnum Ægi segir að afli
togaranna hafi verið allgóður í
júlímánuði en þó mun minni en í
júnf, sem var einn bezti v$iði-
mánuður togaranna hin sfSari ár.
— Á innlendum markaði var land-
að 5.855.6 lestum úr 25 veiðiferðum
í mánuðinum.
Bilvelta hjó
Akureyri
Bílvelta varð í gærkvöldi kl. 9
hjá Fálkafelli, vestan og ofan við
Akureyri. Tveir menn voru þar á
ferð niður fjallið, þegar ökumaður-
inn varð var annarrar bifreiðar,
sem kom á móti þeim. Vék hann
þá bifreið sinni til hægri og heml-
aði um leið, en þá skreið bíllinn
til og valt út af veginum. Fór bfll-
inn heila veltu og staðnæmdist að
lokum á hjólunum aftur. Menn-
imir báðir sluppu ómeiddir en bif-
reiðin stórskemmdist.